Morgunblaðið - 12.11.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986
Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykianesi:
Kjartan Jóhannsson
hlaut efsta sætið
KJARTAN Jóhannsson alþingis-
maður fékk flest atkvæði í 1.
sætið á framboðslista Alþýðu-
flokksins í Reykjanesi í prófkjöri
sem þar fór fram um helgina.
Karl Steinar Guðnason alþingis-
maður hlaut flest atkvæði í 2.
sætið og Rannveig Guðmundss-
dóttir forseti bæjarstjómar
Kópavogs fékk flest atkvæði i
3. sætið, Guðmundur Oddsson
skólastjóri og bæjarfulltrúi í
Kópavogi fékk flest atkvæði í 4.
sæti og Elín Harðardóttir flest
atkvæði í 5. sætið en kosið var
um fimm sæti á listanum.
Alls kusu 3505 í prófkjörinu og
atkvæði skiptust þannig á fram-
bjóðendur: Kjartan Jóhannsson
fékk 2022 atkvæði í 1. sætið, 2734
í 1.-2. sætið, 3050 í 1.-3., 3233 í
1.-4. og 3316 í 1.-5. sætið. Karl
Steinar Guðnason hlaut 854 at-
kvæði í 1. sæti, 2351 í 1.-2., 2747
í 1.-3., 3031 í 1.-4. og 3165 í 1.-5.
sætið. Rannveig Guðmundsdóttir
fékk 213 atkvæði í 1. sætið, 711 í
1.-2., 1910 í 1.-3., 2474 í 1.-4. og
2909 atkvæði alls. Guðmundur
Oddsson fékk 242 atkvæði í 1.
sæti, 495 í 1.-2., 752 í 1.-3., 1227
í 1.-4. og 1679 atkvæði alls. Elín
Harðardóttir fékk 6 atkvæði í 1.
sæti, 126 í 1.-2. sæti, 421 í 1.-3.,
993 í 1.-4. og 1868 í 1.-5. sæti.
Þrír frambjóðendur til viðbótar
„ÉG er afskaplega ánægð yfir
að hafa verið valin í þetta sæti
og ég held að listinn sé mjög
sterkur í heildina. Ég er sátt við
að í fimm efstu sætunum skuli
tóku þátt í prófkjörinu. Ámi Hjör-
leifsson fékk 1650 atkvæði, þar af
1127 í 1.-4. sæti, Kjartan Sig-
tryggsson fékk 1614 atkvæði alls
og Grétar Mar Jónsson fékk 1324
atkvæði alls.
Kosning var bindandi í fyrstu
fimm sætin en kjördæmisráð mun
ganga endanlega frá framboðslista
Alþýðuflokksins og er búist við að
listinn liggi fyrir innan nokkurra
vikna.
vera tvær konur. Það sýnir visst
sjónarmið í mínum flokki þó ég
sé nú að vona að ég hafi ekki
aðeins verið valin í þetta sæti
vegna þess að ég er kona“, sagði
Rannveig Guðmundssdóttir, for-
seti bæjarstjóraar Kópavogs sem
hlaut 3. sætið i prófkjöri Al-
þýðuflokksins í Reykjanesi.
A
„Anægður með þessa
„Sátt við að tvær konur
séu í 5 efstu sætunum“
-segir Rannveig Guðmundsdóttir
miklu þátttöku“
-segir Kjartan Jóhannsson
í FYRSTA lagi er ég ánægður
með þessa miklu þátttöku í próf-
kjörinu, sem er mun meiri en
síðast og sýnir vaxandi gengi
flokksins í kjördæminu", sagði
Kjartan Jóhannsson alþingis-
maður í samtali við Morgun-
blaðið, en hann fékk flest
atkvæði í prófkjöri Alþýðu-
flokksins í Reykjanesi um helg-
ina.
„Ég vil þakka öllum sem tóku
þátt í próflqörinu. Úrslitin voru
greinilega afdráttarlaus og listinn
er sigurstranglegur. Ég er persónu-
lega þakklátur fyrir það mikla
traust sem mér var sýnt og þakka
þeim sem veittu mér liðsinni. Ég
óska sigurvegurunum í hverju sæti
einnig til hamirigju með sinn sig-
ur“, sagði Kjartan.
Þegar Kjartan var spurður hvað
Alþýðuflokkurinn í Reykjanesi
stefndi að mörgum þingmönnum í
næstu kosningum svaraði hann:
„Við stefnum að því að verða
stærsti flokkurinn í kjördæminu".
„ÉG er mjög ánægður með þessi
úrslit og átti von á þeim varð-
andi þrjú efstu sæti listans. Ég
tel listann mjög sigurstranglegan
eins og kjósendur hafa valið
hann“, sagði Karl Steinar Guðna-
son alþingismaður í samtali við
Morgunblaðið en hann fékk flest
atkvæði í 2. sæti framboðslista
„Ég held að við hljótum að stefna
á að minnsta kosti þrjá þingmenn,
ég mun að minnsta kosti hamast
við að komast á þing í þessu þriðja
sæti. Það var mjög góð þátttaka í
prófkjörinu og það sýnir örugglega
góða stöðu flokksins núna“, sagði
Rannveig.
Alþýðuflokksins í Reykjanesi í
prófkjöri um helgina.
Karl sagði aðspurður að Alþýðu-
flokkurinn gerði sér von um að fá
a.m.k. þijá þingmenn í kjördæminu
og þegar tölur úr bæjarstjómar-
kosningunum væru lagðar saman
væri stutt í fjóra þingmenn.
„Mjög ánægður
með úrslitin“
- seg’ir Karl Steinar Guðnason
u vc i i 'i:
Morgunblaðið/Bjami
Leikararnir tveir, þeir Michael Simpson frá Bandaríkjunum og
Nik Abraham frá Dómíniska lýðveldinu
Gestaleikur í
Þj óðleikhúskjallaranum:
Fjallar á gamansaman
hátt um aðskilnaðar-
stefnuna í Suður-Afríku
CAFÉ Teatret í Kaupmannahöfn flytur gestaleik á litla sviðinu
í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld og annað kvöld. Fyrsta sýning
þess var í gær. Flutt verður Suður-afríkanskt leikrit „Wosa
Albert" og er það gamansöm úttekt á aðskilnaðarstefnu Suður-
Afríku. Leikarar eru tveir,'þeir Michael Simpson frá Banda-
ríkjunum og Nik Abraham frá Dómínaska lýðveldinu auk Sam
Oudo frá Filabeinsströndinni, en hann sér um tónlistarflutning
a meðan á sýningu stendur.
„Wosa Albert" íjallar um upprisu
Jesú í Suður-Afríku og er þannig
í mótsögn við fullyrðingar Bú-
anna um að aðskilnaðarstenfan
sé afleiðing af kristnum uppruna
þeirra. Leikendumir tveir bregða
sér í ein 50 hlutverk í stuttum
þáttum, allt frá forsætisráðherr-
anum til aldraðrar konu, sem
leitar sér matar í ruslatunnu.
Leikhópurinn kemur hingað til
lands frá Finnlandi og er Island
síðasta landið sem hann heim-
sækir á leikferðalagi sínu um
Norðurlönd. Hann hefur því verið
þijá mánuði að ferðast með
gestaleikinn um Norðurlönd.
Leikurinn var skrifaður í Suður-
Afríku fyrir tveimur árum og var
þar fyrst frumsýndur, en er nú
bannaður þar i landi.
Leikstjóri er Peter Bensted frá
Bretlandi. Hann segir sjálfur um
leikritið að það sé ekki einungis
gott og skemmtilegt leikrit, held-
ur líka tímabært og nauðsynlegt.
„Leikritið mun skerpa afstöðu
sumra, opna augu þeirra sem
ekki hafa tekið afstöðu og von-
andi fá alla til að sjá heim
svertingjanna á annan hátt en
þann sem yfirleitt birtist í sjón-
varpi og dagblöðum. Svo miklu
getur leiklistin komið til leiðar."
j
„Okkar menn voru stöðv-
aðir af lögreglunni“
- segir Paul Watson hjá Sea Shepherd
Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, frétta-
ritara Morgunblaðsins f Bandaríkjunum
„ÉG get staðfest að mennirnir voru tveir og annar heitir Rodney
Coronado, en það var enginn David Howard viðriðinn þetta,“ sagði
Paul Watson, forsvarsmaður Sea Shepherd samtakanna er hann var
spurður hvort mennirnir, sem frömdu skemmdarverkin hjá Hval
h.f. hefðu verið Rodney Coronado og Dawid Howard. „Ég get ekki
gefið upp nafnið á hinum manninum. Mér skilst að íslendingur hafi
verið handtekinn, og þykir mér það leitt, vegna þess að enginn íslend-
ingur tók þátt í þessum aðgerðum."
„Mennimir fóru fyrst í hvalstöð-
ina í Hvalfirði og skemmdu þar
vélar og tæki“, sagði Watson enn-
fremur. „Síðan héldu þeir til
Reykjavíkur, en voru stöðvaðir af
lögreglunni á leiðinni. Þeir sögðust
vera að koma úr skoðunarferð og
fengu að halda áfram. Þeir héldu
rakleiðis niður á höfn, gengu úr
skugga um að enginn væri í hval-
bátunum tveimur og tóku botnlok-
ana úr klukkan tuttugu mínútur
yfír fimm. Bátamir voru sokknir
klukkan sex. Mennimir fóru úr
landi með Lúxemborg-vélinni
klukkan 7:45 á sunnudagsmorgun."
— Þú stjómaðir þessu og skipu-
lagðir frá Vancouver?
„Ég lagði reglumar, þar á meðal
þær að alls ekki mætti valda meiðsl-
um á mönnum."
— Vom Kanadamenn viðriðnir
þetta?
„Ég er eini Kanadamaðurínn sem
átti aðild að þessu."
— Hversvegna lýstuð þið ábyrgð
á hendur ykkur, því farið þið í fjöl-
miðla?
„Auk þess að hefta hvalveiðam-
ar, vildum við auglýsa það fyrir
öllum heiminum að Island stundar
ólöglegar hvalveiðar. Við viljum að
fólk fordæmi þessar veiðar og styðji
efnahagsaðgerðir okkar, sem felast
í því að kaupa ekki íslenskar fiskaf-
urðir, ferðast ekki með íslenskum
flugfélögum — það er að segja að
koma íslandi á kné til að landið
hætti þessum glæpsamlegu hval-
veiðum.
Við ætlum ekki að sitja auðum
höndum á meðan hvölunum er út-
rýmt af fólki sem þráast við að
fylgja settum reglum. Við vöruðum
ísland við í fyrra að við neyddumst
til að grípa til þessara ráða ef hval-
veiðum væri haldið áfram."
— Halda íslendingar ekki bara
áfram að veiða hvali með þeim bát-
um sem eftir eru?
„Við höfum þegar valdið þeim
tveggja eða þriggja milljón dollara
tjóni, sem lýrir verulega hagnað
af hvalveiðum á íslandi. Ef þeir
halda áfram, þá höldum við áfram.
Þeir skulu ekki hafa einn einasta
dollara upp úr krafsinu, við ætlum
að sjá til þess. Við höfum ekki
minnsta samviskubit af að eyði-
leggja þessar hryðjuverkavélar sem
sigla um Norður-Atlantshafið og
ógna hvölunum með sprengiskutl-
um. Þetta er hræðilega andstyggi-
leg meðferð á einni viðkvæmustu
og skynsömustu skepnu í heimin-
um.“
— Ætlarðu að halda áfram að
beina spjótum gegn íslandi eða
mega aðrar hvalveiðiþjóðir eiga von
á aðgerðum ykkar?
„Við sendum íslandi, Noregi,
Sovétríkjunum og Japan aðvaranir
á síðasta ári og kváðumst ætla að
hindra hvalveiðar þeirra. Við höld-
um fast við þessa stefnu. Það má
búast við samskonar aðgerðum
gegn hinum hvalveiðiþjóðunum."
— Ertu að segja að búast megi
við að hvalbátum í Noregi, Sov-
étríkjunum og Japan verði sökkt
af meðlimum í Sea Shepherd sam-
tökunum?
„Já, það er búið að undirbúa
það. Ég býst við að þeir muni auka
öryggisgæslu og það er ágætt, af
því að það veldur aukaútgjöldum.
Ég vona að þeir eyði milljónum í
að koma í veg fyrir það sem við
höfum fullan hug á að gera. Eitt
er víst, hvalbátar fá hvergi trygg-
ingu hér eftir."
— Geta samtök eins og Sea
Shepherd tekið valdið í sínar hendur
ef þau telja eitthvert ríki bijóta al-
þjóðlög eða samþykktir?
„Vissulega. Þeirri grundvallar-
reglu var komið á með Numberg
réttarhöldunum eftir síðari heims-
styijöldina. Siðareglureru landslög-
um æðri, lögin víkja fyrir því sem
maður telur rétt af samviskuástæð-
um. Þeir sem björguðu gyðingum
frá Þýskalandi á stríðsárunum
gerðust brotlegir við þýsk lög. En
þeir gerðu það sem var siðferðilega
rétt. Island brýtur alþjóðalög og við
verðum að bijóta íslensk lög til að
framfylgja þessum æðri lögum.
Alþjóða hvalveiðiráðið hefur eng-
an framkvæmdaaðila sem fylgir