Morgunblaðið - 12.11.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986
53_
• Christine Magnusson
• Stefan Karlsson
• Maria Bengtsson
• Kirsten Larsen
• Efrí röð frá vinstri: Árni Þór Hallgrímsson, Þorsteinn Páll Hœngsson, Broddi Kristjánsson, Jóhann
Kjartansson. Fremri röð frá vinstri: Elísabet Þórðardóttir, Kristín Magnúsdóttir, Inga Kjartansdóttir og
Þórdís Edwald.
eru þar skammt undan þótt auðvit-
að góður árangur saensku tennis-
drengjanna skyggi þar örlítið á.
En það er í Malasíu og Indó-
nesíu sem badminton er íþrótt
númer eitt, tvö og þrjú. Þar er látið
með bestu badmintonspilarana
eins og Suður-Ameríkumenn láta
með knattspyrnuhetjur sínar.
Toppleikmenn frá Evrópu eiga
erfitt með að venjast því að þurfa
lögregluvernd fyrir aðdáendum
sínum þegar þeir keppa í þessum
löndum, á meðan þeir geta farið
allra sinna ferða í heimalöndum
sínum áreitnislaust. Nýlega barst
hingað dagblað frá Jakarta þar
sem forsíðan var lögð undir þá
frétt að keppendur Indónesíu
hefðu fallið út í undanúrslitum bad-
mintonkeppni Asíu-leikanna. Slíkur
er áhuginn í þessum löndum.
En það er Kína sem er spútnik-
landið í badmintoníþróttinni.
Kínverska kvenfólkið er nánast
ósigrandi í dag og karlarnir eru líka
í fremstu röð. Breiddin hjá þeim
er ótrúleg og þar koma sífellt fram
leikmenn í heimsklassa. Á milli (s-
lands og Kína hafa skapast
skemmtileg tengsl og komið verð-
ur nánar að því síðar.
Fyrr á árum var töluverður mun-
ur á badminton í Evrópu og Asíu.
í Evrópu og þá sérstaklega Dan-
mörku, var mest lagt upp úr tækni
og fallegum stíl. Asíuleikmennirnir
voru hins vegar fyrst og fremst
snöggir og fljótir. Eftir því sem
samskipti þessara svæða fóru vax-
andi, breyttist þetta þannig að
báðir aðilar fóru að tileinka sér það
besta frá hinum. ( dag er því mun-
ur á stíl meiri á milli einstaklinga
en svæða.
Það er rétt að hafa í huga að á
því svæði í Asíu þar sem badmin-
ton er í fremstu röð íþróttagreina,
búa tveir þriðju hlutar mannkyns-
ins.
Helstu mótin
Á Ólympíuleikunum í Seoul árið
1988 verður badminton sýningarí-
þrótt og endanlega ein af keppnisí-
þróttunum á leikunum árið 1992.
Nú stefnir líka í að áhugamanna-
reglur Ólympíusambandsins verði
rýmkaðar það mikið að bestu bad-
mintonleikmennirnir geti keypt á
leikunum í framtíðinni þótt þeir séu
atvinnumenn.
Heimsmeistaramótið er haldið
annað hvert ár og verður næst í
Kína sumarið 1987. Þar fyrir utan
er það All England mótið, sem
haldið er árlega, sem vekur mesta
athygli þótt vegur þess sé aðeins
farinn að minnka núna og þá sér-
staklega árið sem HM er haldið.
Heimsmeistarakeppni landsliða
er kölluð „Thomas cup“ hjá karla-
liðunum en „Uber cup“ hjá
kvennaliðunum. Þau fara fram
annað hvert ár á móti HM. Þá er
fyrst keppt í heimsálfuriðlum en
2—3 efstu liðin úr þeim mæta
síðan í lokakeppnina. Kínverjar
sigruðu bæði Thomas og Uber cup
nú í ár.
Þar með eru talin þau mót sem
sjálfgefið þykir að allir bestu leik-
mennirnir mæti á. Það er orðið
mjög erfitt fyrir mótshaldara að
ná bestu leikmönnunum saman
því fyrir það fyrsta koma þeir frá
öllum heimshornum og svo eru
mótin hreinlega orðin það mörg.
Það eru því mótin sem bjóða
hæstu peningaverðlaun sem
draga til sín stærstu nöfnin. En
hvernig stendur þá á því að marg-
ir stigahæstu leikmenn heimsins
mæta nú til Reykjavíkur á Norður-
landamótið sem býður engin
peningaverðlaun.
Norðurlandamótið
Norðurlandamótið í badminton
á sér langa hefð sem það býr nú
að þegar boðið er í vinsælustu leik-
mennina. Það hefur alltaf talist
sterkur titill að vera Norðurlanda-
meistari og nú þegar atvinnu-
mennirnir þurfa að sýna meistara-
titla þegar þeir gera auglýsinga-
samninga þá er Norðurlandamótið
ómissandi hlekkur. Þeir koma því
hingað til lands ekki bara til að
leika heldur til að vinna. Það verð-
ur því grimmt barist á fjölum
Laugardalshallarinnar um næstu
helgi.
Badmintonsamband íslands
hefur alltaf lagt mikið upp úr Norð-
urlandamótinu og hefur alltaf sent
á það keppendur. Fyrr á árum áttu
íslensku keppendurnir kannski
ekki mikið erindi þangað og töpuðu
yfirleitt fyrstu leikjum sínum og
voru úr leik. En það var annað sem
vannst með þessari þátttöku. Það
var rétturinn til að halda mótið á
5 ára fresti. Mótið var fyrst haldið
.* hér árið 1976 og síðan aftur 1981.
Þetta hafa tvímælalaust verið
stærstu badmintonviðburðirnir
hérlendis og fóru mótin ágætlega
fram í bæði skiptin og var um góða
og spennandi keppni að ræða.
Nú hefur skipulagi mótanna í
einliðaleik verið breytt lítillega
þannig að keppendur (slands, Nor-
egs og Finnlands keppa í sérstök-
um undanriðlum í einliðaleik. Þetta
gefur keppninni aukið gildi fyrir
þessar þjóðir því það getur verið
góður árangur að vinna undanriðil
áður en menn lenda á móti at-
vinnumönnunum frá Danmörku og
Svíþjóð.
Staða íslands
íslendingar hafa nú skapað sér
fastan sess í alþjóða badminton
og -nú fara okkar bestu leikmenn
í keppni erlendis 2—3 á vetri. Það
er einkum í liðakeppnum því slíkt
fyrirkomulag gefur keppendum
kost á flestum leikjum. Einstakl-
ingsmótin’eru erfiðari að sækja
því þar getur óheppinn keppandi
dottið út í fyrstu umferð. ^
í tveimur síðustu Evrópumótum
hefur ísland hafnað í 13. sæti. Það
' er í sjálfu sér ágætur árangur því
þar með erum við fyrir ofan Finna
(15) og Norðmenn (16). Landsliðs-
fólkið er hinsvegar farið að þyrsta
í betra númer og verður örugglega
keppt að því í framtíðinni.
En það er í Evrópukeppni félags-
liða sem nafn íslands ber hæst.
Þar býr lið TBR við þá sérstöðu
að hafa getað teflt fram íslenska
landsliðinu óbreyttu til keppni og
hefur það lið komist í undanúrslit
tvö síðastliðin ár. í fyrra tapaði lið-
ið fyrir því fræga danska liði
Gentofte en í ár fyrir sænska liðinu
BMK Aura. í þeim leik vannst þó-
sætasti sigur (slendinga frá upp-
hafi þegar Broddi Kristjánsson
sigraði sænsku stjörnuna Stefan
Karlsson i einliðaleik.
Eins og áður er getið hafa ís-
lendingar átt góð samskipti við
Kína á badmintonsviðinu. Það felst
helst í því að Kínverjar hafa sent
hingað þjálfara 6 undanfarin ár.
Þetta hafa verið mjög kærkomnar
sendingar því bæði hafa þetta
verið reyndir þjálfarar og góðir
spilarar. Einnig hafa kínversk
keppnislið komið hingað tvisvar
sinnum.
■r~
Landsleikur
Á föstudagskvöldið kl. 20 munu
íslendingar og Norðmenn leika
landsleik í Laugardalshöllinni.
Þessar þjóðir hafa oft leikið lands-
leiki og báru Norðmenn ávallt sigur
úr býtum framan af. í Evrópu-
keppninni fyrir tæpum þremur
árum snerist dæmið hinsvegar við
þegar íslendingar unnu frækinn
sigur 5—0. Á síðasta Evrópumóti
síðastliðið vor unnu ístendingar
svo aftur 4—1. Norðmenn, sem
koma nú hingað með sitt sterkasta
lið, ætla örugglega að hefna harma
sinna og ekki mundi það skaða ef
það tækist á heimavelli íslendinga.
Það má því búast við hörku keppni
á föstudaginn því íslenska lands-
liðsfólkið mun örugglega ekki
vanmeta andstæðinga sína.
Erlendir keppendur
Allar Norðurlandaþjóðirnar koma hingað með sína sterkustu menn.
Þar eru auðvitað mest áberandi dönsku og sænsku atvinnumennirn-
ir. Hér eru nokkrir þeirra kynntir nánar.
Steen Fladberg/Jesper
Helledie (D).
Geysisterkir tvíliðaleikmenn.
Þeir komust á verðlaunapall á
þremur fyrstu heimsmeistara-
mótunum sem haldin voru, fengu
brons í Malmö '79, silfur í Indó-
nesíu '81 og urðu heimsmeistar-
ar í Kaupmannahöfn '83. Eru
núverandi Evrópumeistarar.
Fladberg hefur mikið úthald og
leikur líka tvenndarleik. Hann var
áður þekktur fyrir að taka þátt (
öllum greinum á Norðurlanda-
mótum. Helledie er mjög
skemmtilegur leikmaður sem
gaman er að fylgjast með.
Morten Frost (D)
Er talinn sterkasti badminton-
leikmaður í heimi. í dag er mikil
breidd í toppnum í einliðaleik og
Morten Frost tapar vissulega
leikjum en hann vinnur fleiri mót
en nokkur annar. Hann hefur
unnið All-England þrisvar og er
núverandi Evrópumeistari.
Keppti ekki í NM í fyrra en hafði
áður unnið það 7 sinnum í röð í
einliðaleik.
Stefan Karlsson (S)/Mark
Christiansen (D)
Karlsson hefur lengi verið
sterkasti leikmaður Svía. í tvíliða-
leik hefur hann unnið All-England
og þrisvar orðið Evrópumeistari
en aldrei með sama meðspilara.
Var í úrslitum i tvenndarleik í
síðustu HM. Er núverandi Norð-
urlandameistari í tvíliða- og
tvenndarleik. Hann er mjög tekn-
iskur og snöggur leikmaður.
Karlsson tekur nú þátt í tvíliða-
leik ásamt Dananum Mark
Christiansen en það er furðu al-
gengt að leikmenn í fremstu röð
í Evröpu hafi meðspilara af ööru
þjóðerni. Christansen hlaut
óvænt brons í tvíliðaleik á síðasta
HM.
Michael Kjeldsen (D)
Lék áður tvfliðaleik með Mark
Christiansen en einbeitir sér nú
að einliðaleik. Danir stilla honum
nú upp í annað sæti á styrkleika-
lista.
Ib Fredriksen (D)
Er núverandi Norðurlanda-
meistari í einliðaleik. Leikmaður
sem gefst aldrei upp. Tapaði á
móti Morten Frost í úrslitum á
siðasta EM.
Kirsten Larsen (D)
Hún tapaði fyrir Helen Troke
(E) í úrslitum á síðasta EM en
þær tvær eru taldar vera einu
stúlkurnar í heiminum í dag sem
geta veitt kínverska kvenfólkinu
einhverja keppni. Hún keppti ekki
í síðasta NM en sigraði í einliða-
leik árið áður.
Christine Magnusson/Maria
Bengtson (S)
Magnusson sterkust af
sænska kvenfólkinu og núver-
andi Norðurlandameistari í ein-
liðaleik. Bengtson er núverandi
Norðurlandameistari í tvenndar-
leik ásamt Stafan Karlsson.
Dorte Kjær/Netti Nielsen (D)
Eru númer eitt i tvíliðaleik í
Danmörku og núverandi Norður-
landameistarar. Fengu silfur á
síðasta EM. Þær leika báðar
tvenndarleik.