Morgunblaðið - 12.11.1986, Blaðsíða 56
STERKTKORT
SEGÐU
[RnARHÓLL
ÞEGAR
W EERÐ ÚTAÐ BORÐA
S\m 18833-----
MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Skýrsla um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips:
Hagsmunagæslu bankans í
mörgum atriðum ábótavant
HAGSMUNAGÆZLU Útvegsbankans, hvað varðar viðskipti hans við
Hafskip, allt frá árinu 1978-85 hefur ekki verið sinnt sem skyldi.
Þetta kemur fram í ítarlegri og viðamikilU skýrslu, sem viðskiptaráð-
herra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun, en skýrslan var
nnnin samkvæmt lögum frá þvi 24. desember sl. af þeim Jóni Þor-
steinssyni hæstaréttarlögmanni, Brynjólfi I. Sigurðssyni, dósent og
Sigurði Tómassyni, löggiltum endurskoðanda. Bar nefndinni að
kanna hvort nm óeðlilega viðskiptahætti hefði verið að ræða í við-
skiptum Útvegsbankans og Hafskips.
í skýrslunni kemur fram að
bankaeftirlitið hafí ítrekað talið að
greiðslutryggingar miðað við skuld-
bindingar Hafskips við Útvegs-
bankann væru ónógar. „Öll þessi
-J£.riði og allar kringumstæður voru
því ríkulegt tilefni fyrir bankann til
að fylgjast með rekstri félagsins
og sýna ýtrustu varfæmi í viðskipt-
um við félagið," segir í skýrslunni.
Sömuleiðis gerði hagdeild Út-
vegsbankans athuganir á Hafskip
1980 og 1981 að frumkvæði banka-
stjómar. í síðari athuguninni eru
dregin fram ýmis atriði, sem sýna
fram á nauðsyn þess að vel verði
fylgst með rek8tri félagsins að því
er segir í skýrslunni, sem hafí átt
<•61 gefa bankastjóm enn frekara
tilefni til gagnaúrvinnslu.
Hins vegar segir, að það liggi
fyrir, að eftir athugunina 1981 hafi
engar frekari tölulegar úrvinnslur
eða athuganir á ársreikningum eða
áætlunum Hafskips, verið gerðar
hjá hagdeild bankans frá 1981-84.
Það hafí næst verið gert upp úr
miðju ári 1985. Ljóst sé að banka-
sijóm hafí ekki nýtt sér sérfræði-
lega þekkingu innan hagdeildar
eftir 1981, heldur hafi gögn frá
Hafskip á árunum 1981 til 1984
einungis verið yfírfarin á fundum
bankastjómar og að mestu treyst á
upplýsingastreymið frá félaginu.
Gagnrýni kemur fram í skýrsl-
unni um það hvemig staðið hefur
verið að greiðslutryggingum, og
mati bankans á þeim. Bankaeftirlit-
ið hafi gagnrýnt víxla og ekki metið
þá gilda tryggingu fyrir skuldbind-
ingum Hafskips gagnvart bankan-
um. Þá er of hátt veð á kaupskipum
gagnrýnt.
Nefndin fullyrðir að ef banka-
stjóm og/eða eftirlitsmaður hefðu
skoðað samsetningu og verðmat
trygginga með lágmarksgagnrýni
og haft umsagnir bankaeftirlitsins
að leiðarljósi, þá hefði mátt sjá þeg-
ar árið 1981 að bankinn þurfti
verulega auknar tryggingar til að
áhætta bankans væri hófleg. Segir
nefndin að Útvegsbankinn hafí ekki
gætt þess sem skyldi að hafa næg-
ar tryggingar fyrir skuldbindingum
Hafskips við bankann. „Veikleikar
tryggingarstöðunnar voru löngum
svo augljósar, að bankinn átti að
gera sér grein fyrir þeim, auk þess
sem bankaeftirlitið hafði hvað eftir
annað aðvarað bankann í þessum
efnum," segir orðrétt í skýrslunni.
Hversu illa hafí tekist til, megi
gleggst sjá af því að bankinn hafí
þegar afskrifað í ársreikningi sínum
fyrir árið 1985, 422 milljónir, sem
tap á þessum viðskiptum og enn
séu ekki öll kurl komin til grafar,
þar sem heildarkröfur bankans á
hendur þrotabúi Hafskips nemi um
800 milljónum króna. Ekki sé hægt
að búast við að bankinn fái nema
um þriðjung af þessum kröfum
greiddan.
Sjá nánar fregnir úr skýrslu
nefndarinnar á bls. 2.
Frá fundi
samninganef nda
VSIogVMSÍ
í húsnæði
Vinnuveitendasam-
bandsins í gærdag.
VSÍ hefur rætt við flest landssambönd ASÍ:
Morgunblaðið/ól.K.M.
Óákveðið hvernig staðið
skuli að samningunum
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
„NIÐURSTAÐAN af viðræðun-
um við landssamböndin er sú, að
hvorki þau né Alþýðusamband
íslands hafa markað um það
ákveðna stefnu hvernig aðildar-
félögin muni standa að komandi
kjarasamningum og að ákvörð-
Sea Shepherd-mennirnir:
Stöðvaðir af lögreglu
á leið til Keflavíkur
Ooronado vann hjá Sláturfélaginu í fimm daga
MENNIRNIR tveir, sem grunaðir
eru um skemmdarverkin á eign-
um Hvals h.f., voru stöðvaðir af
lögreglu við Shell-stöðina við
Öskjulilíð um klukkan 5.30 á
sunnudagsmorgun, eða um
hálftíma eftir að þess varð vart
að Hvalur 7 var að sökkva. Þeir
voru þá á leið til Keflavíkur og
fengu að halda áfram för sinni
eftir að gengið hafði verið úr
skugga um að ekki var um ölv-
unarakstur að ræða. Útlendinga-
eftirlitið hafði afskipti af
mönnunum á meðan þeir dvöldu
hér á landi og meðal annars var
annar þeirra, Rodney Coronado,
kallaður fyrir eftir að.hafa starf-
að í finun daga hjá Sláturfélagi
Suðurlands án atvinnuleyfis.
Þórir Oddsson, vararannsóknar-
*J#igreglustjóri, sem stjómar rann-
sókn málsins staðfesti ofangreindar
upplýsingar í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. Hann sagði að
engar upplýsingar hefðu legið fyrir
hér á landi um menn þessa né
tengsl þeirra við Sea Shepherd sam-
tökin. Afskipti útlendingaeftirlitsins
hefðu meðal annars stafað af tíðum
aðseturskiptum þeirra á meðan á
dvöl þeirra stóð svo og ólöglegri
vinnu Coronado hjá Sláturfélaginu.
Að öðru leyti hefðu mennimir ekki
verið taldir varhugaverðir fremur
en aðrir útlendir ferðamenn sem
hingað koma.
Leitt hefur verið að því getum
að íslendingur, sem á við geðræn
vandamál að stríða, væri viðriðinn
skemmdarverkin í Hvalfírði. Að-
spurður sagði Þórir að talið væri
nánast óhugsandi að svo væri.
Maðurinn hefði verið tekinn í Hval-
fírði á sunnudag vegna geðrænna
vandamála og í fyrstu var ekki ta-
lið útilokað að hann gæti verið
viðriðinn málið. Verksumerki bentu
hins vegar til þess að þar hefði einn
maður ekki verið að verki og allra
síst í því ástandi sem viðkomandi
maður var í.
Paul Watson, forsvarsmaður Sea
Sepherd samtakanna, staðfesti í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
Rod Coronado hefði verið að verki
hér á landi um helgina. Hins vegar
kannaðist hann ekki við nafn David
Howard. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun sá hafa ferð-
ast undir fölsku nafni og talið að
þar kunni að vera kominn Nick
Taylor, sem var í áhöfn Sea Shep-
herd við Færeyjar í sumar.
Sjá viðtal við Paul Watson á
bls. 22.
unar þar að lútandi er ekki að
vænta fyrr en eftir formanna-
ráðstefnu ASÍ seinnihluta þessa
mánaðar," sagði Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands íslands
eftir fund VSÍ og Verkamanna-
sambands íslands í gærdag, en
VSÍ hefur undanfarið átt viðræð-
ur við flest landssambönd ASÍ.
Þórarinn sagði að VSÍ hefði skýrt
það sjónarmið sitt að mikilvægt
væri að ná saman samningum hið
fyrsta til þess að tryggja árangur
efnahagsstjómar og það sem náðst
hefur fram hvað varðar lækkun
verðbólgu og aukin kaupmátt.
Hann sagði að það hefði komið
skýrt fram á fundinum í gær, að
VMSÍ legði ríka áherslu á að stöð-
ugleiki í efnahagsmálum yrði
tryggður, þar sem það væri verst
hagsmunum láglaunafólks að verð-
bólga stigi á ný.
Uppsagnarfrest-
ur fóstra
framlengdur
BORGARRÁÐ samþykkti á
fundi sínum i gær að fram-
lengja uppsagnarfresti fóstra
um þijá mánuði.
Fóstrur á dagheimilum borg-
arinnar höfðu sagt upp störfum
frá og með 1. febrúar 1987.
Borgarráð ákvað að nýta sér
heimild í lögum um framleng-
ingu og framlengdi frestinn um
þrjá mánuði. Uppsagnimar taka
því ekki gildi fyrr en 1. maí
1987.
Þórarinn sagði að fundur yrði í
sambandsstjóm VSÍ 28. nóvember
næstkomandi til að ræða viðhorfin
I efnahagsmálum og komandi
samningaviðræður.
Verðlagsstofnun:
Verðlag á
ísafirði
enn hæst
VERÐLAG í verslunum á ísafirði
reyndist einna hæst á landinu í
september þegar Verðlagsstofn-
un kannaði verð á 370 vöruteg-
undurn í 120 matvöruverslunum
um allt land. Samkvæmt könnun-
inni var verðlag á ísafirði 8%
hærra en verðlag á höfuðborgar-
svæðinu og hafði munurinn aukist
frá hliðstæðri könnun sem gerð
var í janúar.
Vegna þess hvað verðlag á ísafirði
hefur reynst hátt í verðkönnunum
gerði Verðlagsstofnun sérstaka at-
hugun á verðmyndun þar síðastlið-
inn vetur. Þá kom meðal annars í
ljós að smásöluálagning var þar mun
hærri en á höfuðborgarsvæðinu, auk
þess sem óhagkvæm innkaup og
milliliðakostnaður heildsala og um-
boðsmanna virtust hækka verðið.
Verðlag í Vestmannaeyjum reyndist
einnig vera hátt. Aftur á móti kem-
ur fram að verðlag er einna lægst
t Keflavík.
Sjá einnig verðkönnun Verð-
lagsstofnunar og fréttatilkynn-
ingu á blaðsíðu 31.