Morgunblaðið - 12.11.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986
21
rannsóknir hafa verið gerðar hér í
Danmörku á þessu sviði, enda
óhægt um vik þar sem eiturlyíja-
sjúklingar eru oftast lagðir inn á
sjúkrahús undir sjúkdómsheitunum
sýking og li'rarbólga (hepatitis).
Eg hef haft samband við yfírhjúkr-
unarkonur á Epidemisk afd. M,
Lyflækningadeild A (Lifrar- og
blóðsjúkdómar) og infektionsdeild
bæklunarlækriingardeildar
Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn.
Þær áætla að fjöldi innlagðra eitur-
lyíjasjúklinga á deildum þeirra liggi
á bilinu 15 til 20 á hveiju ári. Legu-
tíminn er áætlaður frá einni upp í
átta vikur. Hver legudagur kostar
3000 d. kr. (15.000 ísl. kr.). Sé
tekið meðaltal af þessum tölum er
niðurstaðan sú, að meðhöndlun eit-
urlyijasjúklinga á deildum þessum
kosti samtals u.þ.b. 24.800.000 ísl.
kr. á ári. íbúafjöldi móttökusvæðis
Rfkisspítalans er u.þ.b. 80.000 ein-
staklingar.
Misnotkun á vímugjöfum er ekki
aðeins sjúkdómur einstaklinga,
heldur einnig sjúkdómur margra
vestrænna þjóðfélaga. Jafnréttis-
og siðferðiskennd sú sem ríkir í
þessum þjóðfélögum er hvöt að fjár-
festingu í heilbrigðisþjónustu fyrir
allan almenning, jafnt fátæka sem
ríka. Og það þjónustukerfi hefur
víðast hvar vaxið í takt við þróun-
ina á sviði læknavísinda, og orðið
að bákni sem efnahagur margra
þessara ríkja ræður ekki við. Við
endurskoðun stöðunnar og íhugun
vandamálsins hafa sérfræðingar á
sviði heilbrigðismála orðið sammála
um að fyrirbygging sjúkdóma
væri besta lausnin, bæði frá sið-
ferðislegum og efnahagslegum
sjónarhóli séð. Það sama gildir um
eiturlyfjaneyslu og aðra sjúkdóma.
Fyrirbygging er besta lausnin.
Hingað til hefur fyrirbygging eit-
urlyfjaneyslu verið aðallega fólgin
í því að reyna að hindra innflutning
á ólöglegum vímugjöfum. Sú aðferð
hefur vafálaust haft einhver áhrif,
en þó ekki næg. Því það er sama
hve kílóin verða mörg af hvítu,
rauðu og bláu dufti sem safnast
fyrir í skrifborðsskúffum og kjall-
araholum lögreglunnar; Peninga-
gráðugir smyglarar finna alltaf
nýjar leiðir til þess að véita neytend-
um hina eftirsóttu vöru. Það er að
segja svo lengi sem einhveija neyt-
endur er að fínna.
Heilsuvemd byggir að mestu
leyti á fræðslu. Fræðslu almennings
á sviði næringar, um eiturefni,
vinnustellingar, vinnuaðstöðu
o.s.frv. Slík fræðslustarfsemi krefst
fjármagns. Og árangurinn af slíkri
ijárfestingu kemur ekki í ljós fyrr
en eftir tiltölulega langan tíma, —
þegar bættar neyslu- og lífsvenjur
sýna sig svart á hvítu á reikningum
sjúkrahúsanna. Það sama á við um
fyrirbyggingu eiturlyfjaneyslu. Til-
tölulega lítil áhersla hefur verið lögð
á fræðslu á því sviði bæði í Dan-
mörku og á íslandi. Sú aðferð þykir
kannski of dýr. Menn eiga kannski
erfitt með að sætta sig við það að
sjá beinan árangur af slíku starfi,
— í krónum og aurum, og velja því
frekar að sjá árangurinn í kílóum
af heróíni og kókaini sem lögregla
og tollverðir ná í. Frekar en fræði-
legan möguleika á því að einhver
ótölulegur hópur ungs fólks verði
ekki háður eiturlyfjum fyrir sakir
fræðslustarfsemi. Því það er oftast-
nær ungt fólk sem verður eiturlyQa-
neyslunni að bráð, og sú staðreynd
gerir hörmungina ekki minni.
Hlutlægt mat á árangri fyrir-
byggingar og fræðslu á þessu sviði
er erfitt, ef ekki ómögulegt. Við
getum aldrei vitað hve margir
myndu ánetjast eiturlyfjum ef slíkt
fyrirbyggingarstarf hefði ekki verið
unnið.
Því vaknar sú spuming, hvort
nokkur aðferð sé of dýr, — hvort
það sé nokkum tímann hægt að
veija of miklu §ármagni til fyrir-
byggingar á böli því sem eiturlyfja-
neyslan veldur neytendanum
sjálfum, aðstandendum og þjóð-
félaginu í heild? Því hvað kostar
líf, — og hvað kostar þjáning?
Höfundur er læknanemi; fyrrver-
andi hjúkrunardeildarstjóri á
bæklunarlækningardeild
Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn.
Signý, Haukur og Rannveig i búningum úr uppfærslunni á Brúð-
kaupi Figaros.
Islenskir söngnemar í
sýningarferð um Evrópu
ÞRÍR ungir íslendingar sem
stunda nám í sönglist við tónlist-
arháskólann í Vínarborg voru
meðal söngvara í sýningu „Junge
Oper Wien“ á Brúðkaupi Figaros
fyrr á þessu hausti. Sýningin fór
sigurför um rúmlega þrátíu
borgir Mið-Evrópu, í Vestur-
Þýskalandi, Sviss, Hollandi og
Austurriki. Morgunblaðinu barst
stuttur úrdráttur úr dómum
gagnrýnenda um sýninguna þar
sem frammistaða islensku söng-
nemana er rómuð.
Rannveig Bragadóttir sem hefur
stundað nám í Vínarborg í fjögur
ár fór með hlutverk Cherubino í
sýningunni, Signý Sæmundsdóttir
sem hefur numið við skólann í þijú
og hálft ár söng greifynjuna Almav-
iu og Haukur Haraldsson sem á
tveggja ára nám í Vín að baki söng
Dr. Bartolo. Kennari þremenning-
anna er Próf. Helene Meznesky-
Karusso.
í hlutverkin var valið úr stórum
hópi umsækjenda. Þrír sungu til
skiptis hvert hlutverk. Ákveðið er
að önnur slík söngferð verði farin
í byijun næsta árs með óperuna
„Ariadne auf Naxos" eftir Richard
Strauss. Signý og Rannveig munu
syngja hlutverk í þeirri sýningu.
Að ári verður sýningin á Brúðkaupi
Figaros tekin upp að nýju þegar
„Junge Oper Wien" fer í söngferða-
lag til Japans.
7. Chiun, wiH teach you-Remo-
the fine art
ofputting brains behind your fisi
ADICK CLARK/LARRY SPIEGEL/MEL BERGMAN ««*<».
AGUY HAMILTON^FRED WARD JOEL GREY WILFORD BRIMLEY
'REMO: UNARMED AND DANGEROUS"
J.APRESTON GEORGE COE - CHARLES CIOFFI KATE MULGREW LKSSS ELLEN MIROJNICK
—— tt.io.MARK MELNICK JACKSON DE GOVIA ANDREW LASZLOW, A.S.C.
_- — - -TKlWírtO'rtl*MtStÍT RICHARD SAPIR & WARREN MURPHY COMOUO CRAIG SAFAN
0 n«Min DICK CLARKE MEL BERGMAN JUDY GOLDSTEIN
lúnM. CHRISTOPHERWOOD LARRYSPIEGEL “""SGUYHAMILTON
KWniTOriUIf ORÍOlY
Lögreglumaðurinn Ed Makin (FRED WARD) er úrskurðaður látinn
eftir fyrirsát glæpamanna. Hann fær nýtt andlit, nýja ímynd og nýtt
nafn - REMO WILLIAMS Leyniþjónustan fær honum erfitt
verkefni: að uppræta glæpamenn sem eru svo voldugir
að lögreglan nær ekki til þeirra. Með hina fornu morðlist
Sinanju að vopni verður Remo að lífshættulegri bardagavél.
Fyrsta sendiför hans er í deiglunni...
ATERLOO
MADAME
CLAUDE
changed therr^ ^°Urs
Columbia
Pictures
ANORPHM AKI> PROIRY niON
FRANCOLSF. FABIAN • ML RRAY HEAD • I
MADAMF (ÍAIIDF AJUSTJAI-CKIN FILN
KLmS kÍnsÍcI • ROBFRT WFBBER • JIA
VIBEKE KNUDSFN ..... ANDREF/
FRANCOLS PFRROTMARC MICHFI
MAl’RiCERONET ANDRFGBRIJNEli
SFRGE GAINSBOURG ZZ ;JY
DILK^n PKOOUm CMIRF WVAL
MADAME CLAUDEi
ItGil
FUNNY GIRL
ISLENSKUR TEXTI
are the ■
\ucWestpeople
inthewortú'
BARBRA STREJSAND-OMAR SHARI
:RJNNYGPLo
KA ICDKKD AMCFkANOS Wy,TCRPC)GEjCN.ta.««>
® ^ WÍSÍWIER
U| BORGARTÚNI 24
INTERNATIONAL VIDEO