Morgunblaðið - 12.11.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986
9
c§p Húsnæðisstol'nun ríkisins
Auglýsing
um dráttarvexti
Af lánum, sem verðtryggð eru
með lánskjaravísitölu, eru
reiknaðir dráttarvextir á 15. degi
frá gjalddaga.
Af lánum, sem verðtryggð eru
með byggingarvísitölu, verða
reiknaðir dráttarvextir einum
mánuði eftir gjalddaga.
Reykjavík, 7. nóvember 1986.
^Húsnæðisstofnun ríkisins
Stjórnunarfélag íslands
heimsækir
Reykjavíkurborg
á ára afmæli
Haustheimsókn
félaga Stjórnunarfélagsins er
i boði Reykjavikurborgar
fimmtudaginn 13. nóvember nk.
í Gerðubergi kl. 15.00.
Dagskrá:
Borgarstjóri, Davíö Oddsson
kynnir stjórnkerfi borgarinnar.
Borgarverkfræöingur, Þórður Þ.
Þorbjarnarson gerir grein fyrir
verklegum framkvæmdum.
Forstööumenn nokkurra stofnana
kynna starfsemi þeirra.
Eftir kynningarfundinn tekur
borgarstjóri á móti fundarmönnum
í Höföa.
Skráning þátttakenda fer fram
í síma 62 10 66.
▲
Stjórnunarfélag
íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
“"""öllurabauoa^ui.
^ Varatlugvonui a „ 1 |0
_ Steingrímur Henr'annsso ^ ^ slikt yrðl sanr^
Átök í framsókn
Fréttir af flokksþingi framsóknarmanna herma, að þar hafi allt
farið heldur friðsamlega fram nema hvað landsbyggðarmenn
hreinsuðu til í miðstjórn flokksins og spörkuðu um helmingi
hennar. Þá var deilt um varaflugvöll á Sauðárkróki. Hótaði Þórar-
inn Þórarinsson, helsti sérfræðingur flokksins í utanríkismálum,
að segja sig úr Framsóknarflokknum ef ákveðið yrði að reisa
annan „herflugvöll" á Sauðárkróki. Verður hugað að þessum
framsóknarmálum í Staksteinum í dag.
Stjórnlausar
hreinsanir
Steingrímur Uer-
mannsson, formaður
Framsóknarflokksins,
hlaut „sovéska" endur-
kosningu í formannslgöri
á flokksþingi framsókn-
armanna nú um helgina.
Hann hlaut 96% atkvœða.
Þegar Morgunblaðið
spurði hann hveiju hann
þakkaði þetta mikla fylgi
sagði formaðurinn: „Nú
er rétt að spyija aðra."
Þegar hann var spurður
að því i einhveiju sjón-
varpanna eða útvarp-
anna hvers vegna
fulltrúar höfuðborgar-
svæðisins hefðu verið
hreinsaðir út úr mið-
stjórn flokksins, svaraði
Steingrímur á þann veg,
að hann hefði nú ekkert
vitað um þetta fyrr en
úrslidn lágu ljós fyrir.
Af þessum orðum for-
mannsins má ráða, að
hann hafi hvorki skipt
sér af sinu eigin kjöri né
kjöri annarra manna á
flokksþinginu.
í samtali við Morgun-
blaðið i gær leggur
Steingrímur, sem hefur
sagt skilið við Vestfirð-
inga í von um að styrkja
flokkinn á Reylganesi,
blessun sína yfir upp-
skiptín í miðstjóminni
með þessum orðum: „Það
má segja, að þessi . . .
sé ekkert óskaplega
óeðlileg skipting." A hinn
bóginn saknar formaður-
inn nokkurra manna úr
miðstjóminni, sem þar
sátu áður og tilgreinir
þessæ Erlend Einarsson,
fráfarandi forstjóra SÍS,
Sigrúnu Magnúsdóttur,
borgarfulltrúa í
Reykjavík, Helga Bergs,
bankastjóra Landsbank-
ans, og Inga Tryggvason,
formann Stéttarsam-
bands bænda.
Þama tílgreinir for-
maðurinn sem sé fjóra
af þeim 10 er féllu í mið-
stjómarkjörinu. Hefur
hann gefið til kynna, að
nöfn sumra þeirra hafi
beinlínis gieymst þegar
menn kusu. Heldur er
það ólíklegt að fram-
sóknarmenn á flokks-
þingi gleymi jafn
áhrifamiklum mönnum
og þeim sem formaður-
inn nefnir þarna. Hins
vegar er athygiisvert að
sjálfur nefnir formaður-
inn ekki tvo menn, sem
hafa verið honum hand-
gengnir í miðstjóminni,
þá Hákon Sigurgrims-
son, framkvæmdastjóra
Stéttarsambands bænda,
og Þorstein Ólafsson,
einn af toppmönnum SÍS.
Gleymdi Steingrimur
þeim eða vildi hann ekki
nefna þá? Þessir tveir
menn vom helstu trúnað-
armenn formanns og
flokksforystu i átakinu,
sem gert var tíl að endur-
reisa Tímann, en endaði
með því að gera Fram-
sóknarflokkinn i senn
eigna- og húsnæðis-
lausan og stórskuldugan
að auki.
Vegir og
flugvellir
Það kemur fram i fyrir-
sögn á baksiðu Tímans i
gær, að Þórarinn Þórar-
insson, fyrrum ritstjóri
blaðsins og sérfræðingur
framsóknarmanna í ut-
anrikis- og vamarmál-
um, hafi hótað að segja
sig úr flokknum ef ætl-
unin væri að reisa
„herfiugvöll" á Sauðár-
króki. I frétt blaðsins
segir, að Þórarinn hafi
rifjað Keflavíkursamn-
inginn frá 1946 upp, en
samkvæmt honum yfir-
bandariski herinn
d en hervélar
Bandaríkjamanna fengu
afnot af fiugvellinum
vegna hemáms Banda-
ríkjanna í Þýskalandi og
hópur bandariskra
tæknímannn var þar tíl
staðar til að annast af-
greiðslu, viðgerðir og
viðhald. Sagðist Þórar-
inn myndu „taka það til
vandlegrar athugunar,
hvort hann ættí lengur
heima í“ Framsóknar-
fiokknum, ef samið yrði
um varaflugvöll við
Bandaríkin eða NATO á
svipuðum grundvelli og
gert var 1956.
Timinn sneri sér til
Steingríms, fiokksfor-
manns, af þessu tilefni.
Hann sagði meðal ann-
ars: „Það er tíl sjóður hjá
Atlantshafsbandalaginu
ætlaður til að hjálpa að-
ildarrikjunum til að
standa i framkvæmdum
sem gætu komið NATO
til góða að einhveiju leytí
og hafa t.d. Norðmenn
notíð þess í sambandi við
vegagerð.“ Með þessum
orðum visar Steingrímur
tíl svonefnds Mann-
virkjasjóðs NATO. Unnið
er að athugun á því,
hvort ísland gerist aðili
að sjóðnum. Virðist ekki
vanþörf á að islenskum
almenningi og ráða-
mönnum sé skýrt frá því
í hveiju starf þessa sjóðs
felst. Hvers vegna heldur
Steingrimur Hermanns-
son, forsætísráðherra, að
fé hafi runnið úr sjóðn-
um til vegagerðar {
Noregi? Hvar hefur þetta
komið fram?
Stærðir: nr. 24—46.
Aldrei glæsilegra
úrval af loðfóðruðum
kuldaskóm.
GElSiBl