Morgunblaðið - 12.11.1986, Side 17

Morgunblaðið - 12.11.1986, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986 17 Mikill fjöldi leikenda tekur þátt i sýningunni. Ó, þú, Rómeo Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Leikfélagið að Sólheimum sýndi Rómeó og Júlíu eftir Shakespeare Tónlist: Sergei Prokofiev Leikstjóri, leikmynd og tónlist- arval: Kristina E.Noren Búningar: Kersten Anderson og Elisabet Johanson Leiktjöld og leikmunir: Hrafn- kell Karlsson Ljós: Gylfi G. Kristinsson og Guðjón Sigmundsson Undanfarin ár hefur verið heil- mikil gróska í leiklistar- og menningarstarfínu að Vistheimil- inu Sólheimum í Grímsnesi og í fyrra lagði hópurinn m.a. land undir fót og sýndi í Félagsheimil- inu á Seltjamamesi við góðar undirtektir. Þegar þetta er skrifað hafa sýningar eingöngu verið að Sólheimum og fara fram í nýju og myndarlegu íþróttahúsi staðar- ins. A þeirri sýningu, sem ég var á, sl. laugardag, var fjöldi áhorf- enda og sýningunni tekið af mikilli hrifningu. Aðdáunarvert er að gefa Sól- heimafólki kost á að taka þátt í leiklist, sem er áreiðanlega til þess fallið að þroska og aga, liðka og kæta. En kannski er í fullmik- ið ráðist að taka Rómeó og Júlíu fyrir. Samt tókst þetta allt ótrú- lega vel, leikendur sýndu við- felldna virðingu gagnvart verkinu og allir lögðu sig óumdeilanlega fram. Leikstjóri hefði að ósekju mátt auka á tempóið í sýning- unni, enda fannst mér leikendur það öruggir, flestir, að óhætt hefði verið að reyna það. Sérstaklega fannst mér ganga full rólega fyrir sig, þegar Júlía hefur lagzt til svefns og martröð hennar byijar um, hvort hún eigi að taka inn lyfíð eður ei. Leikstjór- inn hefði átt að stytta þetta atriði. En þetta eru smáatriði, miðað við það, hversu flest í sýningunni var ljómandi vel lukkað. Ótrúleg vinna, samstilling og dugnaður liggur að baki, sem er lofsverð og hlýtur að vekja ósvikna hrifn- ingu. vi I AUK hf. 3.158/SlA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.