Morgunblaðið - 12.11.1986, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 12.11.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986 23 Magnús H. Magnússon efstur hjá Alþýðuflokki - 909 greiddu atkvæði í prófkjörinu Vestmannaeyjum. MAGNÚS H. Magnússon, Vestmannaeyjum, fyrrum alþíngismaður og ráðherra, hlaut yfirgnæfandi kosningu í efsta sæti framboðslista Alþýðuflokksins í Suðurlandskjördæmi í prófkjöri flokksins um helg- ina. Magnús hlaut 683 atkvæði í 1. sætið, 3 atkvæði í 2. sætið og samtals 686 atkvæði af 833 gildum atkvæðum. Alls greiddu 909 manns atkvæði í prófkjörinu, 833 atkvæði reyndust gild, 75 ógild og einn seðill var auður. Kosið var um fjögur efstu sæti framboðslistans. Elín Alma Reykjanesbraut: Óká eyju, lentn árekstri og valt Reykjanesbraut óupp- lýst á kafla ÖKUMAÐUR sem missti stjórn á bíl sinum, ók á eyju á Reykjanes- braut aðfaranótt laugardagsins. Bíllinn kastaðist yfir á hina ak- reinina og skall á bifreið sem kom á móti og valt loks út af veginum. Meiðsli voru lítil. Slysið varð með þeim hætti að einhver bilun varð í bílnum þar sem honum var ekið eftir Reykjanes- braut í gegnum Kópavog. Við bilunina slokknaði á ljósum bílsins. Reykjanesbrautin er ekki upplýst á þessu svæði, eða alveg frá Nýbýla- vegi og allt suður í Garðabæ. Ökumaður sá því ekki eyju á vegin- um og ók á hana. Bíllinn kastaðist yfir á hana og á sendibíl sem á móti kom og valt loks út af vegin- um. Ökumaðurinn kastaðist út úr bílnum og er mesta mildi að ekki fór illa, en hann mun skrámaður og marinn. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi er Reykjanesbraut mjög hættuleg á þessu svæði þar sem engin lýsing er á brautinni. Þá er beygja á vegin- um þar sem umferðareyjan er og eykur það enn á hættu. Mikil um- ferð hesta er við brautina og lögreglan hefur þungar áhyggjur af því hvað getur gerst um helgar þegar fólk gengur gjaman suður í Garðabæ að loknum dansleik í Bro- adway. eftir samþykktum þess. Því svipar til Sameinuðu þjóðanna að þessu leyti — margar góðar samþykktir og reglur en ekkert framkvæmda- vald. Þeir sem stunda hvalveiðar eru sjóræningjar, vegna þess að engin aiþjóðleg stofnun lítur eftir framkvæmd reglnanna. Af þeim ástæðum höfum við ákveðið að ta- kast óopinbert lögregluvald á hendur. Bandarískir fjölmiðlar hafa verið mjög jákvæðir í okkar garð og leggja á það áherslu að þetta séu ólöglegar hvalveiðar og enginn hafi meiðst. — Þú ert í framboði á vegum Græna flokksins í Vancouver í borg- arstjómarkosningum næstkomandi laugardag. Hafa þessar aðgerðir áhrif á framboð þitt til garða- og skógræktarstjóra? „Þessar aðgerðir koma framboð- inu ekkert við. Ef fólki geðjast að þessum aðgerðum eða mislíkar við þær, kemur það eflaust fram í kosn- ingunum. En fólk verður að gera slíka upp við sig sjálft. Græni flokk- urinn leggst án efa gegn aðgerðum af þessu tagi, það efast ég ekki um. En ég hef líka skyldum að gegna sem stjómandi alþjóðamála hjá Sea Shepherd vemdarsamtökunum. Þetta eru tvö algerlega aðskilin mál.“ Arthúrsdóttir, Vestmannaeyjum, hlaut flest atkvæði í 1.-2. sæti, 206, en samtals 673 atkvæði. Þor- lákur Helgason, Selfossi, hlaut flest atkvæði í 1.-3. sæti, 305 atkvæði en samtals 508 atkvæði. í fjórða sæti varð Steingrímur Ingvarsson, Selfossi, með 445 atkvæði. Eyjólfur Sigurðsson og Guðlaug- ur Tryggvi Karlsson, báðir úr Reykjavík, hlutu jafn mörg atkvæði í fjögur efstu sætin, 356, en Krist- ján Jónsson, Þorlákshöfn hlaut 296 atkvæði. Ágúst Bergsson formaður kjör- stjómar sagði í samtali við fréttarit- ara Morgunblaðsins að til þess að hljóta bindandi kosningu yrði fram- bjóðandi að ná 20% af kjörfylgi flokksins í síðustu alþingskosning- um. Samkvæmt því hefði aðeins Magnús H. Magnússon náð bind- andi kosningu í þessu prófkjöri. -hkj. Morgunblaðið/Bjarni Frá setningu 17. kirkjuþings I Bústaðarkirkju. Hr. Pétur Sigurgeirsson biskup ávarpar þingfulltrúa. Kirkjuþing sett í Bústaðarkirkju KIRKJUÞING þjóðkirkjunnar hið 17. í röðinni var sett I Bústað- arkirkju í gær með guðsþjónustu. Margrét Jónsdóttir á Löngumýri einn þingfulltrúa predikaði. Kjörnir fulltrúar þingsins eru 22 talsins. Biskupinn herra Pétur Sigur- geirsson setti þingið með ávarpi sínu og minntist meðal annars Hen- riks Frehn biskups kaþólskra manna hérlendis, sem lést fyrir skömmu. Skýrslu sína flytur biskup kirkjuþingi í dag. Þosteinn Geirsson fulltrúi kirkjumálaráðherra flutti ávarp og gat þess að stjómarfrum- varp um breytingar á prestskosn- ingum verði flutt á alþingi á næstunni. Þá hefur ráðherranefnd skilað ýtarlegu áliti um starfskjör presta og gagnger endurskoðun fer nú fram á skipulagi prestakalla og prófastsdæma. Þeir Gunnlaugur Finnsson á Hvilft og Sr. Jón Einars- son prófastur í Saurbæ voru kjömir forsetar kirkjuþings. Fundum verð- ur framhaldið næstu níu daga í Bústaðarkirkju og eru þeir öllum opnir. SIADFESTING MAZDA 323 sigraði í samkeppni um „Gullna stýrið“ sem veitt er árlega af þýska blaðinu „Bild am Sontag", stærsta og virtasta dagblaði sinnar tegundar í Evrópu. Þessi eftirsótta viðurkenning er veitt þeim bílum, sem taldir eru hafa skarað fram úr og sigraði MAZDA 323 með miklum yfirburðum í sínum flokki. Þjóðverjar eru afar kröfuharðir bílakaupendur. Það er því engin furða að MAZDA nýtur geysi- legra vinsælda í Vestur Þýskalandi. Gerir þú ekki líka kröfur? Komdu þá og skoðaðu MAZDA 323, þú verður ekki fyrir von- brigðum! MAZDA 323 1.3 Sedan, sem sést hér að ofan, kostar nú aðeins 369 þúsund krónur og aðrar gerðir kosta frá 338 þúsund krónum. gengisskr. 10.11.86 Suðurlandskj ördæmi:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.