Morgunblaðið - 12.11.1986, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 12.11.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986 25 Noregur: Fimmtug og móðir í fjórða sinn Ósló, frá Jaii Erík Laure, fróttarítara Morgunblaðsins. AUD Johannessen í Björgvin er í sjöunda himni enda nýorðin móðir í fjórða sinn, fimmtug að aldri. Þykir það jafnan í frásögur færandi þegar svo fullorðnar konur fæða barn. Gerðist það síðast í Noregi snemma á fyrra áratug. „Þetta er yndislegt kríli, það verður gaman að fá litlu stúlkuna heim,“ sögðu þau hjónin Aud og Ame Johannessen, sem bæði urðu fímmtug fyrir skömmu. Eiga þau þijú böm fyrir, það jmgsta 11 ára, og urðu amma og afi í fyrra. „Ég veit, að það getur verið áhættusamt að eiga barn á þessum aldri en nú er ég feginn að ég lét verða af því,“ segir Aud en þau Ame segj- ast ekki ætla að eiga þau fleiri. ERLENT Til mikilla óeirða kom í gær Dhaka í Bangladesh þegar lögregla hóf skothríð á fjölda manns sem safnast hafði saman til að mótmæla ofríki stjómar Hussains Muhammad Ershad. A myndinni sést hvar lík 14 ára gamals drengs er borið burt. AP/Símamynd Óeirðir í Bangladesh Bildam Sonntag: SS-menn skutu Joseph Kennedy Bonn, Reuter. JOSEPH, sem var elstur Kennedy-bræðranna, fórst ekki með sprengjuflugvél sinni yfir Ermarsundi árið 1944 eins og talið hefur ver- ið, heldur féll hann fyrir byssukúlum þýskra SS- manna. Kom þetta fram í vestur-þýsku dagblaði um siðustu helgi. í slqölum bandaríska flug- hersins stendur skrifað, að Joseph, einn fjögurra sona auðkýfíngsins Josephs Kennedy og konu hans, Rose, hafí líklega farist þegar sprengjuflugvél hans sprakk í lofti yfír Ermarsundi árið 1944.1 grein í blaðinu Bild am Sonntag er öðru haldið fram. Þar er það haft eftir fyrrum foringja í þýsku loftvamasveit- unum, Karl Heinz Wahn, að menn hans hafí skotið niður B-17-flugvélina og að Joseph, sem þá var 29 ára gamall, og annar bandarískur flugmaður hafí bjargað sér til jarðar í fallhlíf. Lentu þeir í Frakklandi og tók Wahn þátt í yfirheyrsl- unum yfír Joseph. Wahn segir, að Joseph og félagi hans hafí verið sendir áleiðis í fangabúðir en á leið- inni þangað reyndu þeir að flýja. Köstuðu þeir sér til sunds í Ome-fljóti og ætluðu augljós- lega að reyna að komast að bresku víglínunni en SS- mennimir skutu þá til bana úti í vatninu. Sagði Wahn, að Joseph hefði verið lagður í ómerkta gröf í hermannagraf- reitnum í Fontenay í Frakk- landi. Valdaráná Filippseyjum yfirvofandi? Manila, Reuter, AP. JUAN Ponce Enrile, vamarmála- ráðherra Filipseyja, hefur gagnrýnt stjórn Corazon Aquino harkalega með þeim afleiðingum að orðrómur um valdarán hefur komist á kreik. Hann aflýsti í gær ræðu við málsverð með evr- ópskum kaupsýslumönnum. Talsmaður vamarmálaráðher- rans sagði að Enrile ætlaði ekki að halda fleiri ræður þessa viku og er það óvenjulegt hjá manni, sem að meðaltali flytur fjórar ræður á viku: „Enrile hefíir ákveðið að hætta að tala,“ sagði talsmaðurinn. Foringjar í hemum, sem hafa verið nánir Enrile, voru heldur ekki til viðtals og gaf það orðrómnum um valdarán byr undir báða vængi. Talið var að líkur á valdarani hersins hefðu stóraukist, eftir að tilraunir stjómarinnar til að semja um vopnahlé við uppreisnarmenn kommúnista höfðu farið út um þúf- ur. Sjálf er Corazon nú í fjögurra daga opinberri heimsókn í Japan og er markmiðið að fá Japani til að veita Filippseyjum stórfellda efnahagsaðstoð til uppbyggingar atvinnulífinu í landinu. Áður en Corazon fór að heiman, varaði hún andstæðinga sína innan hersins við því, að hún myndi skjóta máli sínu til þjóðarinnar og kalla milljónir manna út á stræti og torg til stuðn- ings við sig, ef valdarán yrði reynt. Aquino ítrekaði þessi orð sín í Jap- an í gær. Gengi gjaldmiðla London, AP. BANDARÍKJADOLLAR lækkaði gagnvart flestum helztu gjaid- miðlum heims í gær. Síðdegis í gær kostaði sterlingspundið 1,4385 dollara í London (1,4385), en annars var gengi dollarans þannig, að fyrir hann fengust 2,0365 vestur-þýzk mörk (2,0445), 1,6880 svissneskir frankar (1,7008), 6,6525 franskir frankar (6,6825), 2,3000 hollenzk gyllini (2,3115), 1.408,50 ítalskar lírur (1.414,80), 1,3871 kanadi- skir dollarar (1,3875) og 162,22 jen (162,65). GuU lækkaði um nær 5 dollara únsan og var verð þess 405.00 dollarar hver únsa (411,50). Selma MÁ ÉG í FANG ÞÉRFÆRA sB Júlíus Vífill Ingvarsson Guðrún Tómasdóttir Ólafur Vignir Albertsson Út er komin hljómplata með 24 sönglðg- um eftir Selmu Kaldalóns og ber hún heitið: Má ég í fang þér færa. Flytjendur eru eftirtaldir þjóðkunnir listamenn: Kristinn Elísabet F. Elín Jónas Sigmundsson Eiríksdóttir Sigurvinsdóttir Ingimundarson Eyjólfur Melsted segir í tónlistargagnrýni um plötuna í DV 31/10 meðal annars: „Til að flytja lög Selmu Kaldalóns á umræddri plötu eru fengnir valinkunnir lista- menn og þeir hafa allir sem einn lagt sitt besta af mörkum.“ Og síðar segir hann: „Sameiginlegt er öllum flytjendum, jafnt söngvurunum sem meðleikurunum báð- um, sú einstæða alúð sem þeir leggja í fiutninginn. Ekki svo að skilja að þetta fólk sé ekki vant að vanda til sinna verka, en sjaldan eða aldrei hefur alúðin verið jafn auðfundin hjá þeim sem á þessari plötu, enda gefa lögin kannski tilefni til þess.“ Hljómplatan fæst í flestum hljómplötuverzlunum um land allt. Dreifingu annast Öm og Örlygur. Utgefandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.