Morgunblaðið - 12.11.1986, Side 33

Morgunblaðið - 12.11.1986, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986 33 * LYSTIGARÐURINN er heimsóttur af þúsundum manna á ári hverju - og eru heimsóknirnar flestar yfir sumartimann eins og- gefur að skilja. Nú, þegar veturinn er kominn á sinn stað samkvæmt dagatalinu og veðurspánni, eru heimsóknir aftur á móti fátíðar í lystigarðinn. Gott ef hann er ekki lokaður. Ekki verður þó betur séð en trén séu á sinum stað - hulin snjó að einhveiju leyti - eflaust farin að bíða eftir vori og nýjum gestum. Forskólakennsla: Nafnlaust félag um listasmiðju - sýningar eru markmiðið, segir formað- urinn Finnur Magnús Gunnlaugsson Á LAUGARDAGINN vpr stofnað félag á Akureyri með það markmið í huga að reka listasmiðju. Félagar eru 26. Aðalhvatamaður og for- maður félagsins er Finnur Magnús Gunnlaugsson - en félagið hefur enn ekki hlotið nafn ennþá. Úr því rætist þó væntanlega á laugardag- inn. Stofnun félagsins tók ekki ýkja langan tíma. Finnur auglýsti 'a dögunum væntanlega stofnun og var fundur haldinn á fimmtudag þar sem málin voru rædd. Stofn- fundur var svo á laugardag, fyrsti stjómarfundur á mánudag og á laugardaginn hefst starfsemin formlega með Opnu húsi, eins og á að halda á laugardögum á næst- unni. Kjörin var sjö manna stjórn í félaginu. Finnur er formaður sem fyrr segir, gjaldkeri er Harpa Harð- ardóttir, Ragnheiður Þórsdóttir er ritari og Jakob Þór Kristjánsson varaformaður. Meðstjómendur em Sóley Sturludóttir, Erika Isaksen og Davíð Davíðsson. Finnur Magnús sagði í samtali við Morgunblaðið að félagið hæfi starfsemi sína á því að halda nám- skeið. „Það hefur farið fram könnun meðal félaga hvemig námskeiðum þeir hafi mestan áhuga á og þau fara fljótlega í gang. Námskeiðin verða opin fyrir alla sem áhuga hafa. Opin hús verðum við með á laugardögum milli kl. eitt og þijú. Þetta opna hús verður haldið „hér og þar“ þangað til við fáum fast húsnæði," sagði Finnur. „í þessum Opnu húsum munum við spjalla saman og halda fmmlínum starf- seminnar gangandi. Námskeiðin verða kynnt þarna, á hvað verður lögð áhersla og sá mikli áhugi sem er í félaginu verður kynntur. Fólk getur komið og gengið í félagið á Opnu húsunum." Eins og áður sagði hefur ekki verið ákveðið nafn á félagsskapinn. „Það er frekar stemmning í hópnum að velja hlutlaust nafn þó ljóst sé að sýningar em markmiðið. Félágið er þó ekki eingöngu stofnað með það huga, við hugsum okkur það ekki síst til þess að fólk geti veitt gagnkvæma aðstoð." En hvers vegna listasmiðju. Finn- ur svarar því: „Hópurinn er tilkom- inn vegna óánægju með takmarkað listalíf á Akureyri. Þetta er þó ekki óánægjuhópur í venjulegum skiln- ingi því það er mikil bjartsýni ríkjandi og ég er mjög ánægður með hve margir fengust til að vera með.“ Finnur var spurðu hvort hann hefði lengi gengið með hugmynd þessa í maganum: „í hálft ár. Ég velti því fyrir mér í vor að fara koma upp sumarleikhúsi, en það vantaði leikara og fjárhagsdæmið var of erfítt þá.“ Finnur sagði það aðallega leik- listar-, myndlistar- og tónlistarfólk sem gengið hefði í félagið. Hann sagði hópinn staðráðinn í að vinna vel í vetur — „við ætlum að vera í startholunum fram í janúar og halda þá aðalfund". Finnur Magnús útskrifaðist vorið 1984 sem norskur cand. mag. í leik- húsfræðum og bókmenntum. Vinnuslys VINNUSLYS varð í fyrrakvöld á trésmiðaverkstæði á Akureyri. Maður fór með vinstri hönd í borð- sög og skarst upp í greip handarinn- ar. Tilraunakennsla í málörv- un á Akureyri og á Dalvík Nokkuð hefur verið um árekstra að undanförnu á Akureyri — hér er sýnishorn af illgresinu í bakgarði lögreglunnar: skemmd- um bifreiðum eftir árekstra. Harður árekstur í fyrrakvöld HARÐUR árekstur varð á mótum Þingvallastrætis og Mýrarveg- ar seint í fyrrakvöld. Tvær bifreiðar skullu saman og eru báðar stórskemmdar. FORSKÓLAKENNARAR á Ak- ureyri voru á dögunum á þriggja daga námskeiði á vegum Fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra. Umsjón með námskeiðinu Kristján var viðstaddur sýning- una og lauk dagskránni raunar með því að lesa ljóðið „Dagslátta". Hann var hylltur í lokin með löngu lófa- taki og var aðstandendum sýning- arinnar einnig klappað lof í lófa. hafði Ingibjörg Auðunsdóttir leiðbeinandi í byijendakennslu, sem fjallaði sérstaklega um móð- urmálið í byijendakennslunni, en auk hennar höfðu leiðsögn Að sýningunni lokinni voru þeim afhent blóm og þá sté Gunnar Ragnars, forseti bæjarstjómar, upp og hélt tölu Kristjáni til heiðurs auk þess sem hann afhenti honum styrk frá bæjarstjóm, 50.000 krónur. Valdís Jónsdóttir talkennari, sem fjallaði um máltöku barna og Hilda Torfadóttir leiðbeinandi í íslensku, sem kynnti nýtt málörv- unarkerfi, sem tilraunakennt verður á Akureyri og á Dalvík í vetur. Nýlega var lokið vinnu við mynd- band um byijendakennslu í móð- urmá, sem Ingibjörg Auðunsdótir hafði umsjón með. Myndin var tek- in í forskóladeild í Lundarskóla síðastliðið vor. Þessa mynd notaði Ingibjörg þegar hún tók fyri kennslu í móðurmáli í forskólanum, þar á meðal lestrarkennslu. Þetta er fyrsta myndbandið, sem útbúið er á vegum Fræðsluskrif- stofu Norðurlands eystra til þessara nota og vonandi verður framhald þar á. Þjónustusvæði fræðsluskrif- stofunnar nær frá Ólafsfirði austur á Þórshöfn. Myndband eins og þetta gefur leiðbeinendum möguleika á að kynna nýjar kennsluaðferðir í afskekktari skólum á svæðinu á mn einfaldari hátt en verið hefur til þessa. Málörvunarefnið, sem áður var minnst á, er þýtt, endursami- og staðfært úr sænsku og dönsku af Hildu Torfadóttur, sem einnig mun hafa umsjón með tilraunakennsl- unni. Málörvunarefni þetta er byggt á mugmyndum Ingvars Lundbergs prófessors í Umea í Svíþjóð, en hann hefur sannað með rannsókn- um, að það hefur gildi fyrir mál- þroska bama og velgengni f lestramámi, ef það er notað eftir settum reglum. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem námsefni er tilraunakennt á vegum Fræðsluskrifstofu N.e. og því merkur áfangi í starfsemi henn- ar. Forskólakennarar á Akureri eru 15 ogtóku þeir allir þátt í námskeið- inu. Ökumaður annarrar bifreiðar- innar var fluttur á slysadeild en fékk að fara heim eftir skoðun. Hann fékk þungt höfuðhögg en jafnaði sig fljótt. Báðar bifreið- amar vom á grænu ljósi en annar sveigði fyrir hinn - ökumaðurinn varð hans ekki var fyrr en um seinan. Nokkuð hefur verið um árekstra að undanfömu eftir að fór að snjóa. Til dæmis urðu níu árekstrar á sunnudaginn sem þyk- ir mikið hér um slóðir. Nokkrir árekstrar urðu í gærdag, enginn þó harður — „smánudd" eins og þeir segja hjá lögreglunni. Húsmæður á Akureyri Hafið þið áhuga á að fá ykkur morgungöngu sem borgar sig? Hafið þá samband við af- greiðslu Morgunblaðsins á Akureyri. Sími 23905. Morgunblaðið á Akureyri Hafnarstræti 85, sími23905. Gunnar Ragnars, forseti bæjarstjómar, heiðraði Kristján frá Djúpa- læk að loknum frumflutningi á laugardag - veitti honum 50.000 krónur að gjöf frá bæjarstjórn. Dreifum af dag- sláttu tekið vel DREIFAR af dagsláttu, dagskráin sem frumflutt var á laugardag Kristjáni frá Djúpalæk til heiðurs, hlaut mjög góðar viðtökur áhorf- enda. Húsfyllir var í Alþýðuhúsinu og verður dagskráin flutt áfram meðan aðsókn verður góð. Næstu sýningar em um helgina, kl. 15.00 á laugardag og sunnudag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.