Morgunblaðið - 12.11.1986, Side 42

Morgunblaðið - 12.11.1986, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986 Aðalfundur LIU: Stjórnvöld hverfi frá áformum um olíuskatt Kristján Ragnars- son endurkjör- inn formaður * Á aðalfundi Landssam- bands íslenzkra útvegs- manna, sem haldinn var I Vestmannaeyjum í lok síðustu viku, var meðal ann- ars samþykkt áiyktun um efnahagsmál, þar sem skor- að var á stjórnvöld að hverfa frá áformum um olíuskatt. Jafnframt var tekið undir ályktun sjómanna um að tek- ið verði upp staðgreiðslu- kerfi skatta. Kristján Ragnarsson var endurkjör- inn formaður Landssam- Aandsins á fundinum. Hér fara á eftir helztu ályktanir fundarins og niðurstaða stjórnarkjörs: Morgunblaðið/Sigurgeir Frá aðalfundi LÍÚ Kristján Ragnarsson Efnahagsmál Eftir langvarandi hallarekstur útgerðarinnar undanfarin ár, horfír nú betur um afkomuna í heild á þessu ári. Það er krafa fundarins að sá ávinningur sem 'riáðst hefur á árinu haldist innan greinarinnar í þeirri von að rétta megi við stöðu fyrirtækjanna, koma lánum í skil og greiða skuld- ir hennar. Nægir í þessu sambandi að minna á 1400 milljóna króna skuld sjávarútvegsins við olíufé- lögin. Það er álit fundarins að ef þetta tekst, mundi atvinnugreinin eflast á ný og nauðsynleg fram- þróun geta átt sér stað. Megin forsenda þess, að frátöldum nátt- úruskilyrðum í hafínu, er að stöðugleiki sé í efnahagsmálum þjóðarinnar, og komið verði í veg fyrir óhóflega þenslu í þjóðarbú- skapnum, sem gæti leitt til nýrrar -iðaverðbólgu. Aðalfundurinn lýsir furðu sinni yfir því að stjómvöld skuli koma aftan að sjávarútveginum með þeirri ætlun sinni að skattleggja olíunotkun og stefna þannig í voða afkomu greinarinnar. A sama tíma og samráðs er leitað hjá sam- tökunum um virðisaukaskatt þykir ekki ástæða til að kanna hug okkar til skattlagningar á olíu. Fundurinn skorar á stjómvöld að hverfa frá áformum um olíu- skatt, en ítrekar mikilvægi þess að stjómvöld móti heildarstefnu í skattamálum sínum, þannig að •4'omast megi að samkomulagi um skiptinu þjóðartekna. Fundurinn vill taka undir álykt- un sjómanna um að tekið verði upp staðgreiðslukerfí skatta og telur að nú sé lag að koma slíku kerfi á, þar sem verðbólgan hefur minnkað. Endurnýjun og úreld- iug f iskiskipaf lotans 1. Fundurinn telur, að ekki eigi að endurstofna úreldingar- sjóð í því formi sem áður var, heldur verði einstökum útgerðarmönnum gefinn kostur á að leggja fjármagn í nýbyggingarsjóð fyrir sína útgerð. Það fjármagn myndi síðan lúta sérstökum skatta- lögum, þannig að innstæða þessi verði ekki skattlögð fyrr en viðkomandi útgerð er hætt. Eignum úreldingar- sjóðs skal ráðstafað til aldurslagasjóðs eða annarra þarfa útgerðarinnar. 2. Fundurinn telur, að aldur- slagasjóð skuli Ieggja niður, þó þannig að greiðslum í hann skuli haldið áfram til áramóta og síðan skal eign- um hans úthlutað með venjulegum hætti, þar til þær eru uppumar. 3. Fundurinn telur, að ekki sé stætt á því, að skip þurfí að hafa verið 1 ár í rekstri þeirrar útgerðar sem hyggst á nýsmíði fískiskips. Þetta lokar fyrir möguleika á skiptum á skipum milli þeirra sem hugsa sér nýsmíði og þeirra sem halda áfram útgerð á lakari skip- um. 4. Fundurinn telur eðlilegt að við nýsmíði skuli annað skip tekið úr notkun. Fundurinn telur rétt, að reglur hvað snertir stærð á nýsmíði verði gerðar rýmilegri og sömu relgur gildi fyrir allar stærð- ir fískiskipa sem ákveðið hlutfall af stærð. Fundurinn telur þó rétt, að veiðiheim- ildir nýja skipsins verði þær sömu og gamla skipið hafði. 5. Fundurinn telur, að sömu regi- ur eigi að gilda um lánafyrir- greiðslu, hvort sem skip er smíðað innanlands eða er- lendis. Fundurinn telur rétt, að lánshlutfall fískveiða- sjóðs verði hækkað vegna þess að úreldingarsjóður var lagður niður. 6. Fundurinn telur rétt að rýmka þær lánareglur sem gilda vegna endurbóta á fískiskip- um og að lánstími fáist lengdur. Fundurinn vill enn- fremur ítreka, að afgreiðsla fiskveiðasjóðs á lánum og lánsloforðum verði sem skil- virkust og gangi hratt fyrir sig. Verðlagning- og mat á fiski 1. Mat á fiski Ríkismat sjávarafurða verði lagt niður og verkefni þess fram- kvæmd á eftirfarandi hátt: a) í hverri verstöð verði skipuð nefnd útgerðarmanna, sjó- manna og fískkaupenda, sem sjái um framkvæmd fersk- físksmat, þ.m.t. um lausn á hugsanlegum ágreiningi. b) Eftirlit með búnaði fískiskipa verði í höndum Siglingamála- stofnunar, en eftirlit með búnaði fískvinnslustöðva verði hjá Vinnueftirliti ríkisins. c) Afurðamat verði alfarið í hönd- um útflutnings- og söluaðila. 2. Verðlagning á fiski Fundurinn fagnar þeim skref- um sem stigin hafa verið til fijálsrar verðlagningar á físki. Fundurinn telur þó, að nægjanlegt sé, þegar eðlilegar markaðsað- stæður eru fyrir hendi, að Verð- lagsráð geti ákveðið með einföldum meirihluta, hvort verð- lagning skuli vera frjáls á einstök- um fisktegundum. 3. Frjáls fiskmarkaður Fundurinn styður tilraun til að stofna fískmarkað á íslandi og telur nauðsynlegt að fylgst sé náið með áhrifum hans á byggða- þróun. Einnig leggur fundurinn áherslu á að markaðurinn geti svarað því, hvort fískvinnsla hér- lendis geti greitt hærra verð en nú er. Stjórnarkjör Kristján Ragnarsson var endur- kjörinn formaður. Aðrir í stjóm vom kosnir til 3ja ára: Brynjólfur Bjamason, Reykjavík, Hilmar Rósmundsson, Vestmannaeyjum, Ingvar Hólmgeirsson, Húsavík, Tómas Þorvaldsson, Grindavík, Vilhelm Þorsteinsson, Akureyri. Stjóm LÍÚ er skipuð 15 mönn- um og vom fyrir í stjóm: Finnur Jónsson, Stykkishólmi, Gísli Jón Hermannsson, Reykjavík, Guð- mundur Guðmundsson, Isafirði, Guðrún Lámsdóttir, Hafnarfirði, Hallgrímur Jónasson, Reyðarfírði, Haraldur Sturlaugsson, Akranesi, Jakob Sigurðsson, Reykjavík, Ól- afur Björnsson, Keflavík, Sverrir Leósson, Akureyri. 7,25% ársvextir unifram vísitölu 100 ára Afmælisreikningur Landsbankans er yfirburöa ávöxtunarieið. Hann er verðtryggður og gefur að auki 7,25% ársvexti. Samt er hann aðeins bundinn í 15 mánuði. Til dæmis samsvaraði ársávöxtunin frá afmælisdegi bankans 1. júlí sk til septemberloka 19,9%. Stofiiaðu Afinæiisreikning fyrir áramót Afmælisreikningurinn er bundinn við 100 ára afmæli Landsbank- ans. Þess vegna þarf að stofna hann áður en afmælisárinu lýkur um næstu áramót. Afmælisreikningurinn er innlánsform sem allir peningamenn geta mælt með. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.