Morgunblaðið - 12.11.1986, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 12.11.1986, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986 t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ENGILBERT D. GUÐMUNDSSON, lést 8. nóvember. Útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 13. nóvember kl. 10.30. Ebba Jónsdóttir, Orn Engilbertsson, Dagbjört Svana Engilbertsd., Ebba Þurfður Engilbertsd., Guðrún Erla Kirkeby, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn og fósturfaðir, JÓHANN H. PÁLSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Goðatúni 7, Garðabœ, lést í Landspítalanum 10. nóvember. Fyrir hönd vandamanna, Sigrfður Samúelsdóttir, Gunnar Jakobsson. t Eiginmaður minn og faðir, HÖRÐURBERGÞÓRSSON, stýrimaður, Kleppsvegi 134, andaðist í Borgarspftalanum 10. nóvember. Sigrún Sigurðardóttir, Olga Harðardóttir. t Móðir mín, RAGNHiLDUR BJARNADÓTTIR, Lönguhlfð 3, lést í Landspítalanum aöfaranótt 10. nóvember. Fyrir hönd aöstandenda, Óskar Þ. Þorgeirsson. t Systir mín, ÞÓRUNN GUÐMUNDSDÓTTIR, Hátúni 10, lést á öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10b 7. nóvember. Eyjólfur Guðmundsson. t Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ODDS HELGA HELGASONAR, forstjóra, / Sólvallagötu 68, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 12. nóv. kl. 13.30. Friðbjörg Ingjaldsdóttir, Helgi Oddsson, Sigrún Oddsdóttir, Þóra Oddsdóttir Rose, Sigurður B. Oddsson, Oddur H. Oddsson, Pétur E. Oddsson, Valgerður Oddsdóttir, Bjarni I. Árnason, Arthur Rose, Iðunn Lúðvfksdóttir, Elfnborg Jóhannsdóttir, Margrót Kjærnested, Friðrik Eysteinsson og barnabörn. Oddur Helgason forsljóri—Minning Fæddur 10. apríl 1912 Dáinn 3. nóvember 1986 Það er ljúft að minnast látins vinar, sem ljómar í heimi endur- minninganna. Það er líka sárt að sjá á eftir einkavini, sem skilur eftir skarð, er ekki verður fyllt. Við Oddur vorum jafnaldrar. Báðir fæddir og aldir upp í Reykjavík, meðan allir þekktu þar alla. Oddur var ekki ýkja hár í ioft- inu þegar hann vakti á sér athygli sem mjólkurpóstur. Þá knúði hann af afli kerru og hest í kappastri sveina, þar sem barist var um að koma vöru sinni fyrstur á markað frá nærliggjandi sveitabæjum. Þetta tókst honum oftar en ekki og þótti þá hinum unga sveini, sem hann hefði sigrað heiminn. Og sigr- amir urðu fleiri. Oddur Helgi var sonur sæmdar- hjónanna Oddrúnar Sigurðardóttur og Helga Magnússonar, kaup- manns, og var hinn sjöundi í röð 12 systkina, en af þeim eru nú 5 látin. Oddur ólst upp á rausnarheimili foreldranna, sem var rómað fyrir höfðingskap, ráðdeild og sam- heldni. Þar hlaut hann veganesti, sem dugði honum ævilangt. Hann gekk í bama- og gagnfræðaskóla í Reykjavík, en stundaði jafnframt ýmiss konar vinnu, bæði til sjós og lands, en brátt beindist hugur hans að viðskiptum og valdi hann því að sækja framhaldsnám við verslunar- skóla í Englandi. Þegar heim kom, vom hendur látnar standa fram úr ermum, eins og ævinlega, og þótt þá ríkti sligandi kreppa, var hann áður en varði búinn að eignast og farinn að reka arðvænlegt fyrir- tæki, Veru Simillon, með fram- sæknum og duglegum góðvini sínum. Þannig var málum háttað þegar Oddúr steig sitt mesta gæfuspor eða nánar tiltekið, þegar hann kvæntist Friðbjörgu Ingjaldsdóttur hinn 28. apríl árið 1938. Það vant- aði því aðeins hálft annað ár uppá, að hjónin gætu haldið hátíðlegt 50 ára hjúskaparafinæli og minnst fer- ils, sem var einstakur og til fyrir- myndar. Þau hjónin reistu bú, sem þrátt varð þekkt fyrir fegurð og gest- risni; en blikur voru á lofti og tímamót skammt framundan. Frá kreppu í stríðstíma, hvað sem það þýddi? Síðan hemám. Þá reyndi á karlmennskuþorið. Oddur var ekki í vafa. Framleiðsla og sala á snyrti- vörum kvenna var ekki svarið; hann vildi kaupa bát og bát keypti hann í féiagi við 3—4 einkavini. Fleytan var ekki stór — mig minnir röskar 40 smálestir, en útgerðarstjórinn t Eiginkona min, móðir, dóttir og systir, JÓHANNA SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, verður jarðsungin frá Hvalsneskirkju föstudaginn 14. nóvember kl. 14.00. Guðmundur Sörensen, Sigurður Guðmundsson, Sigurður Oddsson, Eggert Sigurðsson. t innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúö og hlýhug vegna fráfalls og útfarar HJARTAR GUÐMUNDSSONAR, Lækjamóti, Fáskrúðsfirði. Guðrún S. Bjarnadóttir, dætur, tengdasynir og fósturbörn. t Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, SALMANÍU JÓHÖNNU JÓHANNESDÓTTUR, Vesturbrún 16, Reykjavik. fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 13. nóvember kl. 13.30. Hjördis Gunnarsdóttir, Margrót Gunnarsdóttir, Vilborg Sigríður Gunnarsdóttir, Haraldur Friðriksson, Gunnar Gunnarsson, Unnur Úlfarsdóttir, Styrmir Gunnarsson, Sigrún Finnbogadóttir og barnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, SIGURÐAR SIGURGEIRSSONAR, deildarstjóra f Útvegsbanka íslands, Skeiðarvogi 111, sem lést af slysförum 8. nóvember fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. nóvember kl. 15.00. Fyrir hönd aöstandenda, Pálina Guðmundsdóttir. Viljir þú minnast látins vinar, samstarfsmanns eða ætt- ingja og votta aðstandendum samúð, bendum við á minningarspjald SVFÍ. Minningarspjöld sendum við einnig til útlanda sé þess óskað; á dönsku, ensku eða þýsku. Slysavarnafélag íslands Sími (91) 27000 var knár — Oddur — svo ekki stóð á hagnaði, og nú var Oddur kominn í essið sitt. Hann gerði sér lítið fyr- ir og skipulagði sjóflutninga setu- liðsins milli herstöðva þess á öllu landinu. Hann tók á Ieigu tugi báta, ýmist með skipshöfnum eða án og stýrði síðan flotanum, í samráði við setuliðsstjómina, þannig að allir aðilar nutu góðs af. Skipulagsgáfa hans og vinnuþrek var með ólíkind- um. Eftir stríð var það sjávarútvegur- inn, sem heillaði hann mest og rak hann myndarlega eigin togaraút- gerð árum saman. Orðstír hans má marka af því, að hann var valinn í þriggja manna stjómskipaða nefnd, sem samdi um smíði 30 fyrstu ný- sköpunartogaranna árið 1945. Hann kom mikið við sögu í samtök- um útvegsmanna og veit ég, milli- liðalaust, hveijum aðdáunaraugum fæmstu útgerðarsfjórar þeirra örð- ugu tíma litu hugkvæmni hans og úrræðagetu. Hvemig gifta hans og gagnsemi var á verslunarsviðinu, sést best af því, að hann var formaður Verslun- armannafélags Reylgavíkur um árabil og kjörinn heiðursfélagi þess. Hann var einnig um skeið í stjóm Verslunarráðs Islands. í íþróttum skipaði hann sér sess og var m.a. formaður Golfklúbbs Reykjavíkur. Hann var fastur fyrir í sljóm- málum og átti sæti í stjóm lands- málafélagsins Varðar, og svo má lengi telja. En nú er komið að því, sem hann unni mest — einkalífinu. Þeim Björgu og Oddi varð 7 bama auðið en þau em þessi: Helgi, fulltrúi hjá Prentsmiðjunni Odda hf. Sigrún, gift Bjama Ingvari Amasyni, veitingamanni. Sigurður Berthel, skrifstofustjóri, kvæntur Iðunni Lúðvíksdóttur. Þóra, gift Arthur Rose, deildarstjóra í New York. Oddur Helgi, byggingameist- ari í Hafnarfirði, kvæntur Elín- borgu Jóhannsdóttur. Pétur Eggert, viðskiptafræðingur, kvæntur Margréti Kjæmested. Valgerður, gift Friðriki Eysteinssyni, hagfræð- ingi. Þau em bæði við framhalds- nám í Bandaríkjunum. Sonur Odds, er hann eignaðist fyrir hjónaband: Viggó Alfreð, kortagerðarmaður í Jóhannesar- borg, lést þar 1983. Bamaböm Odds og Bjargar em 11 talsins, þar af em tvö látin. Þetta vom að verðleikum eftir- læti þeirra beggja og augasteinar. Oddur var einstakur fjölskyldumað- ur og aldrei sá ég hann glaðari, en þegar hann hafði konuna, bama- hópinn, foreldra þeirra beggja og systkini í kringum sig. Við, sem skipuðum vinahópinn, nutum góðs af og ótaldar em fagnaðarstundim- ar í húsi hinna gestrisnu og glað- væm hjóna. Lundin svo létt. Hugurinn svo hlýr. Nú hefur Oddur horfíð af sjónar- sviði okkar. Stríðið, sem hann háði, var langvinnt, en þá komu fram mannkostir þeirra beggja. Hún vék ekki frá honum, hvort sem hann lá heima eða í sjúkrahúsi og blés af kærleika í hann lifsanda og krafti. Hann tók örlögum sínum með ró, en loks tók heimilisföðumum að leiðast þrálát spítalavist og fram- kvæmdamaðurinn var samur við sig. 2—3 mánuðum fyrir andlátið sigraðist hann á andófí læknanna með þvi að fara í hungurverkfall og heim var hann fluttur! Það er blessun að hafa ævilangt þekkt svona góðan dreng. Það er blessun að þekkja svona góða konu. Megi guðs friður fylgja þeim báðum og afkomendum þeirra. Geir Borg Hótel Saga Sími 1 2013 Blóm og skreytingar við öll tcekifceri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.