Morgunblaðið - 12.11.1986, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 12.11.1986, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986 51 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 17-18 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu . . . Úr týndist Anna Jónsdóttir hringdi: Það var í síðustu viku að ég týndi úrinu mínu, gylltu kvenúri með grænni sporöskjulagaðri skífu. Þetta skeði í höfuðborginni og vil ég biðja finnanda úrsins að hringja í s. 37303 (heima) eða 03 (vinnus.). Af hveiju stoppar leið 100 ekki víðar? Sigurgeir hringdi: Mig langar til að spyrja for- ráðamenn Strætisvagna Reykjavíkur um það af hverju leið 100 stoppar ekki víðar en hún gerir? í annan stað langar mig til að vekja athygli á því að sumir strætisvagnabílstjóramir eru óhæfílega stressaðir. Til dæmis sá ég um daginn, þar sem ég sat í vagni númer 10, hvar eldri kona kom hlaupandi og ætlaði bersýni- lega að ná vagninum. Ég benti bílstjóranum á konuna því vagn- inn var að fara af stað. Hann hægði ögn á sér en gaf svo aftur í. Eftir sat gamla konan með sárt ennið. Brún hryssa tapaðist Hestaeigandi vill koma þeim skilaboðum á framfæri að í fyrri hluta júlímánaðar í sumar tapað- ist í nágrenni Reykjavíkur brún hryssa, fímm vetra og aljámuð. Mark er hangfjöður aftan hægra og biti aftan vinstra. Hafi ein- hveijir orðið hryssunnar varir þá gjörið svo vel að hringja í s. 71173 eða 78464. Þykjast vera í umboði Lamaðra og fatlaðra Jónína hringdi: Á laugardagskvöldið kom til mín piltur, kannski 13-14 ára, að selja plötu í umboði Lamaðra og fatlaðra. Mér þótti sjálfsagt að styrkja málefnið en síðar komst ég að því að pilturinn, þeir vom raunar tveir því ég heyrði í öðrum á hæðinni fyrir ofan, var alls ekki á snæmm Lamaðra og fatlaðra. Ég vil vara fólk við slíkum heim- sóknum sem í ofanálag geta skemmt fyrir hinum ýmsu góð- gerðarfélögum sem hafa þennan hátt á til að afla fjár til góðra málefna. Seljið mánaðar- kort í strætó Strætisvagnafarþegi hringdi og vildi beina þeim eindrægnu til- mælum til S.V.R. að þegar, eða jafnskjótt og mögulegt er, verði byxjað að selja mánaðarkort í vagnana. Sagðist farþeginn sann- færður um að slík kort myndu auka farþegafjölda vagnana. Starfsfólki Landsbankans, Laugavegi 77, þakkað Gömul kona hringdi: Ég vil þakka starfsfólki Lands- bankans í útíbúi þess að Lauga- vegi 77 fyrir alla þá aðstoð sem það hefur veitt mér. Ég hef f yfír 20 ár notið aðstoðar þess og öll þessi ár hefur það alltaf verið jafn elskulegt og hjálpfúst fólk sem valist hefur til útibúsins. Hvað varð af Tokyo Móðir af Vestfjörðum hringdi og bar fram þá beiðni að Morgun- blaðið tæki aftur upp veðurlýsing- ar frá Tokyo í veðurdálki sínum. Hún á dóttur í Japan og vill gjam- an geta fylgst eitthvað með veðurfarinu þar. Treysti starfsmönnum Hjálparstofn- unar kirkjunnar fullkomlega Samkvæmt skýrslu nefndar þeirrar sem fengin var til að rann- saka starfsemi Hjálparstofnunar kirkjunnar kemst 88% af gjafafé til skila, 12% fara í rekstur. Hjálpar- stofnunin hlýtur því að vera frábærlega vel rekin. Á þessu sést hve skrif Helgarpóstsins eru röng en þar er sagt að 10% fari í hjálp, 90% í annað. Mér þykir vænt um Hjálparstofn- unina því hún gefur okkur tækifæri til að hjálpa þeim er minna mega sín, enda kemur líka fram að Hjálp- arstofnunin hefur unnið gott starf. Ósmekklegt orðalag þykir mér hjá nefndarmönnum að tala um ferða- gleði starfsmannanna. Það er ekki víst að utanaðkomandi nefnd sé fær um að dæma starfsfólk svona stofn- unar, það hljóta þeir sem i eldlín- unni að meta sjálfír hveiju sinni. Um ýmislegt má sjálfsagt deila, svo sem hvort stofnunin þurfí á eigin húsnæði að halda? Eða hvort betra sé að eyða peningum í húsa- leigu? Flestir telja betra að vera í eigin húsnæði, bæði einstaklingar og fyrirtæki. Ég vil svo óska Hjálparstofnun- Við erum hér nokkrar starfs- stúlkur er vinnum hjá ríkisstofnun og eru mánaðarlaun okkar á bilinu 21 til 24 þúsund. í mörg ár höfum við styrkt Hjálparstofnun kirkjunn- ar, bæði með fatagjöfum og pen- ingagjöfum, í fullri vissu þess að allir þessir fjármunir færu beint til þeirra sem í nauðum eru. En nú er lokið frekari fjárframlögum af okkar hálfu eftir að upp komst um fjármálahneyksli Hjálparstofnunar- innar, þar sem fram kemur að starfsmenn fá fímm- til sjöföld laun inni alls góðs í framtíðinni og vona að sú gagnrýni sem fram hefur komið verði ekki til að lama það hjálparstarf sem hún hefur staðið að. Ein af styrktarmeðlimum okkar. Erum við ákveðnar í því að setja ekki eyris virði í þessa „hít“. Hvemig treysta þessir menn sér til að standa frammi fyrir alþjóð, flírabrosandi, og segja: „Jú, við þurfum að lagfæra ýmislegt í rekstrinum"; þessir menn sem festa kaup á húsi fyrir 10 og hálfa millj- ón og era þó ekki í neinu húsnæðis- hraki, þessir menn sem skammta sjálfum sér „ráðherralaun". Almenningur í þessu landi hlýtur að krefjast þess að þessir starfs- menn séu látnir víkja, við viljum ekki láta hvem sem er valsa með fjármuni okkar. Mál er að linni. Þessir menn hafa framið gróft trún- aðarbrot gagnvart gefendum, þeir grafa undan trúnaðartrausti fólks í landinu. Starfsstúlkur Skipstjórnarmenn Verið ávallt minnugir ábyrgðar ykkar á öryggi skipveija. Sjá- ið um að öll öryggistæki séu í lagi og að hver einasti sicipveiji kunni meðferð þeirra og viti hvemig og hvað hann eigi að gera á neyðarstundu. Kornið sem fyllir mælinn WIKA VATNSVIRKINN HF. ARMÚU 21 - PÖSIHÓlf 8620 - 128 REYKJAVtK SlMAR: VERSIUN 686455. SKRIFSTOfA 685966 VÖNDUÐ VINNA - VANDAÐ VERK Þrýstimælar Allar stæröir og gerðir ■kc-^L SöyirOðKuigiytr Vesturgötu 16, sími 13280 Kristalsglös Frönsk — Þýsk — Sænsk — Bæheims '¥ 'v'-i Handskorin og slétt Snafs, líkjör, sérrí, hvítvín, rauðvín, kampavín, kokkteil, koníak, vískí, öl, púns og „Irish coffee“. Vínkönnur fyrir rauðvín. Vínborðflöskur (karöflur), margar gerðir. Vínhitamælir, fallegur og einfaldur. Skeiðar í „Irish coffee“ og önnur vínglös. Ótrúlega gott verð. TEKKn I i i □ K Laugaveg 15 simi 14320

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.