Morgunblaðið - 14.11.1986, Blaðsíða 27
?*{ r flswvfr/f-M tr íifín&fnrrs'fw •iraA.T«vnjogov ftS
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986 27
Forsætisráðherra um uppstokkun
bankakerfisins:
Hlynntur sam-
einingu Utvegs- og
og Búnaðarbanka
SKÝRSLA Seðlabankastjórn-
ar, um uppstokkun bankakerf-
isins, var lögð fram í
þingflokkum í fyrradag og
rædd á þingflokksfundum þar.
Skýrslan gerir ráð fyrir 4 mis-
munandi leiðum, en Seðal-
bankastjórn mælir með að 1.
leiðin verði farin, þ.e. að stofn-
aður verði einn hlutafélaga-
banki, með þátttöku
Útvegsbanka, Iðnaðarbanka
og Verzlunarbanka. 2. leiðin
gerir ráð fyrir sameiningu
Utvegsbanka og Búnaðar-
banka, og það er sú leið sem
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra vill fara, en
sjálfstæðismenn hailast að 1.
leiðinni.
„Við erum með þetta mál til
athugunar,“ sagði Steingrímur í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins og bætti við: „Ég hef alltaf
verið með því að sameina Utvegs-
banka og Búnaðarbanka."
Forsætisráðherra kvaðst telja
að sú tillaga væri afgreidd og raun-
ar afskrifuð á „afskaplega furðu-
lega stuttaralegan hátt í skýrslu
Seðlabankans. Þar sem einungis
er sagt að ekki sé pólitískur vilji
fyrir slíkri sameiningu. Ég vildi
gjaman láta á það reyna. Það er
ekkert sem sannfærir mig um það
að það sé ekki rétt að sameina
Útvegsbankann og Búnaðarbank-
ann, með vissri tilfærslu yfir í
Landsbankann," sagði Steingrím-
ur.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir,
þingmaður Kvennalista:
Góðra gjalda vert að
athuga þann kost vel
SIGRÍÐUR Dúna Kristmunds-
dóttir þingmaður Kvennalist-
ans segir að þingmenn
Kvennalista hafi fyrir síðustu
áramót lagt til að Utvegsbanki
og Búnaðarbanki verði sam-
einaðir, en þegar það hafi
verið, þá hafi sú leið sem
Seðlabankasijórn leggur til að
farin verði, með sameiningu
Útvegsbanka og tveggja
einkabanka, ekki verið með í
umræðunni. Hún segist telja
góðra gjalda vert að athuga
þann kost vandlega.
„Skýrsla stjómar Seðlabankans
er fróðleg," sagði Sigríður Dúna,
„en um síðustu áramót, þá settum
við fram þær hugmyndir að senni-
lega væri heppilegast í stöðunni
að sameina Útvegsbanka og Bún-
aðarbanka. Þá var sá valkostur,
sem Seðlabankinn leggur til, sem
fyrstu tillögu, ekki á döfinni. Ég
held að það sé allra góðra gjalda
vert að athuga þann kost mjög
vandlega, og það munum við
gera.“
Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins:
Viljum sameina Búnaðar-
banka og Útvegsbanka
Útilokar þó ekki aðra möguleika
„SKOÐUN okkar alþýðu-
bandalagsmanna hefur verið
sú, að það væri eðlilegast að
sameina Búnaðarbankann og
Útvegsbankann," sagði Svavar
Gestsson formaður Alþýðu-
bandalagsins, er hann var
spurður álits á tillögum Seðla-
bankastjórnar, hvað varðar
uppstokkun bankakerfisins.
Svavar sagði að jafnframt hefði
komið til greina sú skoðun hjá al-
þýðubandalagsmönnum að Út-
vegsbankanum yrði skipt upp á
milli Búnaðarbanka og Lands-
banka. „Mér sýnist af þessari
skýrslu bankastjóranna, að þeir
taki þarna eina leið, fram yfir aðr-
ar, án þess að flytja fyrir því
sjáanleg rök, fyrir utan þau, að
skuldbindingar ríkissjóðs yrðu
minni við þá leið, en við samein-
ingu Útvegsbankans og Búnaðar-
bankans, en það er sú leið sem
þeir mæla með sem leið númer
tvö,“ sagði Svavar.
Svavar sagðist telja að það áfall
sem Útvegsbankinn hefði orðið
fyrir, vegna viðskiptanna við Haf-
skip, myndi leiða til þess að það
yrði kallað á fé úr ríkissjóði, upp
á fleiri hundruð milljónir króna,
þó ekki væri nema til þess að
standa við lífeyrisskuldbindingar
við starfsmenn Útvegsbankans.
„Ég tel óhjákvæmilegt að það
verði leyst fram úr þessum málum
nú í vetur," sagði Svavar, „og mun
gera það sem í mínu valdi stend-
ur, til þess að hjálpa til við að lausn
fáist á þessum skipulagsmálum
bankanna. í því sambandi útiloka
ég engar leiðir. Ég vil skoða málið
í heild, en mér lýst best á þá leið
sem ég nefndi áðan.“
Steingrímur var spurður hvort
honum jitist þá alls ekki á samein-
ingu Útvegsbankans og einka-
bankanna:„Eg vil ekkert afskrifa
á þessu stigi, en mér er spum:
Vill Verzlunar- og Iðnaðarbanki
fara út í slíka sameiningu. Það er
einnig talað um að hlutafé þessa
nýja banka, verði 1700 milljónir
króna, og þá þyrfti Seðlabanki að
leggja fram, 850 milljónir króna í
hlutafé. Það þarf að sannfæra mig
um að það sé rétt, að Seðlabanki
gerist hluthafi í slíkum banka. Ég
sé nú ekki stóran mun á því að
ríkissjóður og Seðlabanki sé hlut-
hafi í slíkum banka. Ég held að
það sé heldur verra að Seðlabank-
inn sé hluthafi."
Þær leiðir aðrar sem stjóm
Seðlabankans nefnir sem þriðja og
fjórða valkost em að Útvegsbank-
anum sé skipt upp á milli Búnaðar-
banka og Landsbanka og loks að
Útvegsbankinn verði endurreistur
sem ríkisbanki. Forsætisráðherra
sagði að sér litist alls ekki á síðasta
valkostinn, því sú stefna lægi fyr-
ir, og löngu hefði verið ákveðið að
stefna að fækkun ríkisbankanna.
Þorsteinn Pálsson um tillögur Seðla-
bankastjórnar:
Stjómin þarf að taka
af skarið eigi síð-
ar en í næstu viku
Vill fara þá leið sem Seðlabankinn mælir með
„ÞAÐ SEM skiptir mestu máli
nú að þegar í stað verði ákveðið
hvað gert verður við Útvegs-
bankann," sagði Þorsteinn
Pálsson fjármálaráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins,
er hann var spurður álits á tillög-
um Seðlabankastjómar. „Mín
skoðun er sú, að ríkisstjómin
geti ekki dregið það lengur en
fram í næstu viku, að taka af
skarið i því efni,“ sagði Þor-
steinn.
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins:
Höfum fyrirvara
á mati Seðlabanka
„NUVERANDI kerfi pólitísks
ríkisrekstrar í bankamálum hef-
ur gengið sér til húðar,“ sagði
Jón Baldvinn Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins er
hann var spurður hvernig honum
litist á tillögur Seðlabankastjóm-
ar hvað varðar uppstokkun
bankakerfisins. Jón Baldvin
bætti því við að þingflokkur Al-
þýðuflokksins hefði ekki tekið
afstöðu tU tillögu Seðlabankans.
„Við þurfum að fara ofan í saum-
ana á þessum tillögum Seðlabank-
ans, fyrst og fremst vegna þess að
við höfum efasemdir um getu þess-
ara litlu einkabanka til þess að
standa við undir sínum hlut, við
slíka sameiningu. Við höfum því
fyrirvara á því mati Seðlabankans
að það sé tryggt að þessi kostur
geti orðið, án þess að ríkissjóður
leggji fram verulegt fé frá skatt-
borgurum sem meðlag með hinum
nýja banka.“
Þorsteinn sagði að tillaga Seðla-
bankastjórnar sem lægi nú fyrir,
um sameiningu Útvegsbanka, Iðn-
aðarbanka og Verzlunarbanka, með
verulega auknu eigin fé, og opnum
möguleika á að aðrir aðilar, eins
og sparisjóðir og aðilar í sjávarút-
vegi kæmu þar inn, þyrfti nú að
skoðast af ríkisstjóminni, sem hefði
beðið bankastjóm Seðlabankans um
tillögur í þessum efnum.
„Ég er eindregið þeirrar skoðun-
ar, að þetta verði að gerast, og tel
að það verði að láta á það reyna
hvort vilji sé fyrir því innan ríkis-
stjómarinnar að þessi leið verði
farin," sagði Þorsteinn og bætti
við: „Sjálfstæðisflokkurinn hefur
margsinnis lagt á það áherslu að
það þurfi að draga úr afskiptum
ríkisins af bankakerfinu, og það
kemur fram í skýrslu nefndarinnar,
sem skoðaði viðskipti Útvegsbank-
ans og Hafskips, að það megi að
hluta til rekja málalok í þessu máli
til ríkisbankakerfisins sjálfs, og
þeirra lögmála sem í því gilda.“
Þorsteinn var spurður hvort hann
væri bjartsýnn á að pólitísk sam-
staða næðist um þá leið sem Sjálf-
stæðisflokkurinn vill fara í þessu
máli: „Ég hef trú á því að það sé
hægt að ná fram samstöðu um
þessa leið. Ég tel að það eigi að
taka ábendingar þessarar nefndar
um ágalla ríkisbankakerfisins mjög
alvarlega og fyrsta skrefið til þess
að bregðast alvarlega og raunhæft
við þeim ábendingum, er að stíga
þetta skref núna.“
Skýrslan um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips
Matthías Bjarnason viðskiptaráðherra:
Hörð aðför að Alþingi
„ÞAÐ kemur fram í þessari
skýrslu þungur áfellisdómur
yfir stjórnendum bankans og
auðvitað um leið stjórnendum
Hafskips. Þá finnst mér aðförin
að Alþingi, varðandi kosningu
í bankaráð vera nokkuð hörð,
og ég tel að nefndin hefði ekki
þurft inn á það að koma,“ sagði
Matthías Bjarnason, viðskipta-
ráðherra í samtali við Morgun-
blaðið um gagnrýni þá sem
kemur fram í skýrslunni um
viðskipti Útvegsbankans og
Hafskips.
Viðskiptaráðherra sagðist ós-
ammála þeirri skoðun nefndarinn-
ar, að víkja hefði átt núverandi
bankastjórum úr starfi. „Auðvitað
verða þeir, eins og allir aðrir, að
axla þá ábyrgð sem þeir bera,
þegar réttir málsaðilar hafa farið
yfir málið, sem eru dómsmálayfir-
völd,“ sagði Matthías, „og ég hef
aldrei tamið mér það, að dæma
menn seka, eða sýkna þá fyrir-
fram og það hefði verið mikið
áfall að víkja þessum mönnum
þannig frá starfi. Þetta eru menn
með langa reynslu sem banka-
menn, sumir þeirra, og aðrir með
fjölhæfa reynslu. Þó að þetta mál
sé úr sögunni, sem mál Útvegs-
bankans, þá eru auðvitað tugir
eða hundruðir mála, þar sem að mínum dómi að leita til nýrra
reynsla þessara manna kemur að manna, sem ekki hafa þekkt neitt
góðu gagni. Það hefði verið óráð til í bankanum."
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf-
stæðisflokks:
Gagnrýnisatriði skýrsl-
unnar mjög alvarleg
ÞORSTEINN Pálsson formað-
ur Sjáifstæðisflokksins segir
gagnrýni þá sem fram kemur
í skýrslunni um viðskipti Út-
vegsbankans og Hafskips, á
Útvegsbankann, Hafskip,
stjórn bankans og hagsmuna-
árekstra vera mjög alvarlegs
eðlis.
„Það er augljóst mál að í þess-
ari skýrslu kemur fram gagnrýni
á Útvegsbankann, það kemur
fram gagnrýni á Hafskip fyrir að
láta bankanum í té upplýsingar
sem ekki gefa rétta mynd af
rekstri fyrirtækisins og eiginijár-
stöðu þess,“ sagði Þorsteinn í
samtali við Morgunblaðið, „Það
kemur fram gagnrýni á stjóm
bankans fyrir að huga ekki nægi-
lega vel, upp á eigin spýtur að
þessum atriðum. Það kemur fram
gagnrýni á það, að á tímabili er
hagsmunaárekstur á milli for-
mennsku í bankaráði og stjómar-
formennskunnar í Hafskip. Þetta
em auðvitað allt atriði sem em
mjög alvarlegs eðlis, en misjafn-
lega alvarlegs eðlis."
Þorsteinn sagði jafnframt, að
eins og kæmi fram í skýrslunni
sjálfri, þá væri oft auðveldara að
sjá eftir á, hvað hefði átt að gera.
„Frá mínum bæjardymm séð,“
sagði Þorsteinn, „þá skiptir núna
mestu máli, að það verði tekin,
þegar í stað ákvörðun um það
hvað gert verður við Útvegs-
bankann."