Morgunblaðið - 14.11.1986, Page 31

Morgunblaðið - 14.11.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986 31 at/ Dimamyna. Mark Thatcher og Diane Burgdorf frá Dallas trúlofuðu sig i gær. Á myndinni eru þau með foreld- rum Marks, Margaret og Denis Tahtcher. Sonur Thatcher trúlofar sig: Japansheimsókn Aquino lokið: Ótryggt ástand á Filippseyjum Leiðtogi stærsta vinstriflokksins finnst myrtur Manila, Filippseyjum, AP. CORAZON Aquino, forseti Filippseyja, kom í gær heim úr heimsókn til Japans en ferðina tókst hún á hendur „með hálfum huga“ að eigin sögn vegna orð- róms um yfirvofandi valdarán. Ráðherra ríkisstjómarinnar, þ. á m. Juan Ponce Enrile, tóku á móti Aquino við komuna en Enrile hefur einna helst verið orðaður við hugs- anlegt valdarán. Aquino sagði við komuna, að þegar hún hefði farið frá Manila hefðu alls kyns hviksög- ur gengið staflaust um borgina og því hefði hún verið á báðum áttum um hvort hún ætti að fara. Minnti hún ráðherra ríkisstjómarinnar á, að þeim bæri að hjálpa henni, ekki vinna gegn henni. Talsmenn stærsta vinstriflokks- ins á Filippseyjum tilkynntu I gær, að formaður flokksins væri horfínn og hótuðu miklum mótmælaaðgerð- um ef í ljós kæmi, að hermenn eða hægrisinnaðir öfgamenn hefðu rænt honum. Skömmu síðar fannst formaðurinn, Rolando Olalia, myrt- ur við hraðbraut í norðurhluta Manila. Olalia hefur verið harðorður í garð hersins og á þriðjudag kvaðst hann mundu hvetja til allsheijar- verkfalls og mótmæla ef herinn reyndi að ræna völdunum. Sögursagnir em um, að foringjar í hemum, hlynntir Enrile, hafí lagt á ráðin um að ráðast á og ræna leiðtogum vinstrimanna í þeirri von, að stuðningsmenn þeirra biygðust harkalega við. Mótmælin ætluðu þeir síðan að hafa að skálkaskjóli, lýsa yfír neyðarástandi og ræna völdunum. Millj ónamæringsdóttir frá Texas hin heppna Lundúnir, AP. TELKYNNT var um trúlofun Marks Thatcher og Diane Burgdorf í Lundúnum í gær. Tilkynningin birtist í þartil- gerðum dálki Tbe Times og Tbe Daily Telegraph. Ungfrú Burgdorf er dóttir milljóna- mærings frá Texas. Enn hefur ekkert verið upp- gefíð um hvar eða hvenær brúðkaupið fari fram, en talið er að þau gifti sig í Dallas snemma á næsta ári og að þau muni búa þar áfram. Hjúin hafa þekkst í eitt og hálft ár, en þau kynntust vegna viðskipta Marks og föður Diane, en hann er einn umsvifamesti bíla- sali Texas. Burgdorf-§ölskyldan þykir þó ekki tiltakanlega auðug á Texas-vísu. Á óvart hefur komið hversu jákvæð bresku blöðin hafa verið, en þeim hefur borið saman um að Diane sé hinn álitlegasti kven- kostur og að Mark sé vel að henni kominn. Makbeð á japönsku London, AP. HARMLEIKURINN „Makbeð" eftir William Shakespeare hef- ur verið færður í nýjan búning. Sögusviðið er Japan á 16. öld. Leikfélag frá Tókýó, sem nefnist Toho, mun flytja verkið á sviði breska Þjóðleikhússins í London, sagði Peter Hall leik- hússtjóri í gær. Hall sagði þegar, hann kynnti áætlun leikhúsins fyrir árið 1987, að tekist hefði að afla 250 millj- óna punda til að færa upp sýningu japanska leikhópsins í London. Verkið verður flutt sex sinnum og eiga áhorfendur þess kost að hlýða á þýðingu textans samtím- is í heymartólum. Toho leikhópurinn ætlar einnig að sýna leikritið „Medea“ eftir Evripídes á japönsku. Japönsku leikaramir fengu einróma lof gagmýnenda fyrir flutning sinn á þessum gríska harmleik á Edin- borgar hátíðinni í fyrra. Hall sagði að á næsta leikári Þjóðleikhússins yrði „Lér kon- ungur“ fluttur með Anthony Hopkins í aðalhlutverki og Ingm- ar Bergman myndi leikstýra „Hamlet" eftir Shakespeare. Corazon Aquino ásamt Fidel Ramos, yfirmanni herráðsins. Hann virðist traustur stuðningsmaður hennar en Enrile, vamarmálaráð- herra, er hins vegar grunaður um græsku. BÓKAÚTSALA BÓKAFORLAGA VIÐ ÞINGHOLTSSTRÆTI AÐ ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 Föstudag kl. 9—18 Laugardag kl. 9—16 Sunnudag kl. 13—16 Skáldsögur Barnabækur Fræðirit Ævisögur o.fl. Pófeaatsftfcm^pgasa ÍSAFOLD J¥ m 31 Bökaúigðfa BÓKAGERÐIN LILJA Í>ÐS báLZ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.