Morgunblaðið - 14.11.1986, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986
43
Afmæliskveðja:
Oskar Olason yfir-
lögregluþjónn
Ég er einn af þeim, sem ekki
hafði dottið í hug að vinur minn,
Óskar Ólason, jrfirlögregluþjónn,
væri orðinn sjötugur, svo undurvel
sem hann er á sig kominn, bæði
andlega og líkamlega. Að svo sé
þó, var opinberlega staðfest sl.
föstudag, 7. þ.m. með afmælisgrein
kollega hans, Bjarka Elíassonar,
hér í Morgunblaðinu og um kvöldið
í boði þeirra hjóna, Óskars og konu
hans, sama dag, þar sem margir
vinir og vandamenn voru saman-
komnir til þess að samfagna með
afmælisbarninu og hylla það með
gjöfum og ámaðaróskum.
Óskar fæddist hér í Reykjavík
7. nóv. 1916, sonur hjónanna Grétu
Þorsteinsdóttur og Óla Vigfussonar
sjómanns. Nám stundaði Oskar við
Héraðsskólann á Laugarvatni
1936—38 og vann algeng störf til
sjós og lands fram undir þrítugt,
en gekk í lögregiulið Reykjavíkur
1943 og hefur starfað á þeim vett-
vangi allar götur síðan, eða á
fimmta áratug, og gegnt hinum
margvíslegustu störfum, m.a. verið
rannsóknarlögregiumaður og aðal-
varðstjóri, unz hann réðist sem
sérstakur yfirlögregluþjónn um-
ferðarmála 1966. Það eru því fuli
tuttugu ár sem Óskar hefur gegnt
þessu erilsama og ábyrgðarmikla
starfi með mikilli prýði og við viður-
kenningu og einstakar vinsældir
yfirboðara jafnt sem samstarfs- og
undirmanna.
En Óskar hefur ekki einskorðað
sig við embættisskyldumar einar
saman, heldur fylgist af áhuga með
viðleitni annarra til jákvæðra áhrifa
á svokallaða umferðarmenningu
landsmanna. Hvar sem eitthvað
gerðist á þeim vettvangi, var Óskar
aldrei langt undan, en boðinn og
búinn til liðsinnis í orði og verki.
Og það var á þessum punkti, sem
leiðir okkar Óskars upphaflega lágu
saman.
Arið eftir stofnun fyrstu 8 klúbb-
anna Ömggur akstur — 1966 —
var Óskar Ólason skipaður í núver-
andi embætti sitt. Þrem ámm síðar
komu landssamtök klúbbanna til
sögu. Allar götur síðan hefur Óskar
verið okkur félögum nálægur, setið
að ég ætla, alla landsfundi þeirra
og ^ölmarga fundi einstakra klúbba
víðsvegar um land.
Mér er í minni, þegar þessi fríði
og föngulegi embættismaður sat
fyrsta landsfundinn okkar. Ég verð
að viðurkenna, að þótt nærvera
hans gleddi mig stórlega, var ég
samt hálffeiminn svona innra með
sjálfum mér, og ekki laust við, að
um mig færi. Hvort tveggja var,
að maðurinn var glæsilegur og
embætti hans virðulegt. En eftir
að Óskar hafði staðið upp og ég
hlýtt á málflutning hans, var ég
strax sannfærður um, að þennan
mann þyrfti ég ekki að óttast! Það
skein af honum áhuginn, góðvildin
Gullbrúðkaup:
Justa Mortensen og
Daniel Jakob Johannsson
Mikil heiðurshjón eiga gullbrúð-
kaup f dag (föstudag 14. nóv.). em
það Justa Mortensen og Daniel Jak-
ob Johannsson. Ég kynntist þeim
hjónum er ég hóf prestskap hér í
Grensássókn, Reykjavík. Hafa þau
verið mjög tfðir gestir í guðsþjón-
ustum og öðm helgihaldi í Grensás-
kirkju. Og ekki aðeins það, heldur
verið virk í öliu félagsstarfí kirkj-
unnar. Justa starfaði mikið í
kvenfélaginu, en það hefur verið
stoð og stytta kirkjunnar hér. Hafa
konumar fært kirkjunni margar og
góðar gjafir t.d. kirkjuklukkumar.
Og til þess að afla §ár hafa þær
unnið mikið, haldið kaffi- og köku-
sölur, basara og auk þess þvegið
og straujað sjálfar alla fermingar-
kyrtla, en einmitt í því starfi var
Justa í mörg ár ásamt tveim öðmm
konum. Það var mikið starf, ferm-
ingarbömin vom flest um 130.
Justa veiktist á þessu ári og hefur
verið í sjúkrahúsi, hún dvelur nú í
Hafnarbúðum, en heimili þeirra
hjóna er að Bræðraborgarstíg 9,
Reykjavík. Ég vil fyrir hönd Grens-
áskirkju þakka þeim hjónum mikið
og gott starf og bið þeim blessunar
Guðs.
Halldór S. Gröndal
MEÐ EINU SÍMTALI
er hægt aö breyta innheimtuað-
ferðinni. Eftir það verða áskri
VTTTrrrry.ri
viðkomandi greiðslukortareikn-
ing manaðarlega.
SÍMINN ER
691140
691141
og göfugmennskan — persónueigin-
leikar, sem ég ekki beinlínis var
alinn upp við að tileinka þeim skelfi-
legu mönnum, er í þann tíð gengu
undir nafninu „pólití"!
Er ekki að orðlengja það, að frá
þessari stundu myndaðist milli okk-
ar Óskars hið ánægjulegasta
samstarf varðandi klúbbana Ömgg-
ur akstur og viðleitni þeirra til
bættrar umferðarmenningar. Þeir
vom ófáir fundimir sem við sóttum
saman á R-5995, bæði í blíðu og
stríðu á vetri jafnt sem sumri. Man
ég þá fundi alla vei, en minnisstasð-
ust er mér kannski Vestflarðayfir-
reið okkar eitt sumarið, þegar
Óskar tók mig upp á sinn eigin eik
í umferðareftirlitinu, og við funduð-
um saman dag eftir dag. Alltaf var
það uppbyggjandi og traustvekjandi
að hiusta á mál Óskars, það
streymdu jafnan frá honum mann-
bætandi áhrif, þessum elskulega og
sjarmerandi manni. Ég veit fyrir
víst, að þátttaka Óskars hafði ómet-
aniega þýðingu fyrir klúbbana og
málstað þeirra; og gaf því aukið
gildi, beint og óbeint.
A þessum tfmamótum í ævi
Óskars Ólasonar fiyt ég honum
innilegar þakkir fyrir drengilega og
ljúfa samfylgd um hartnær 20 ára
skeið. Þessi samskipti hafa verið
mér sjálfum persónulega og þeim
samtökum, sem ég ber fyrir bijósti,
mikils virði — meira en orðum megi
að koma í stuttu máli. En margs
er að minnast og margt að þakka
frá öllum okkar stundum. Ég man
Óskar með mér; ávallt hlýjan, glað-
an og skemmtilegan drengskapar-
mann, sem mér þykir vænt um.
Óskar kvæntist ungur glæsilegri
konu, Ástu Einarsdóttur málara-
meistara Gfslasonar, sem var
kunnur athafnamaður hér í borg á
sinni tíð. Þau hjón eiga tvö myndar-
leg böm: Ágústu, sem gift er
Jóhanni Gunnari Þorbergssyni
lækni, og Einar verslunarstjóra hjá
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar, kvæntan Ragnhildi Gunn-
laugsdóttur úr Hafnarfirði.
Megi þakklæti, heill og heiður
fylgja Óskari Ólasyni um ókomin
ár. Af kjmnum mínum við hann
hefi ég sannfærst æ betur um sann-
leiksgildi orða Bjömstjeme Bjöms-
son: „Þar sem góðir menn fara, eru
guðs vegir.“
Baldvin Þ. Kristjánsson
Jóladraumur Dickens
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur
sent frá sér bókina Jóladraum
eftir Charles Dickens í þýðingu
Þorsteins skálds frá Hamri.
Sagan hefur verið kvikmynduð
og sýnd hér í sjónvarpi á jólum og
leikritsgerð hennar flutt á sviði hér
á landi. Bókin er prýdd fjölda teikn-
inga og litmynda eftir einn fremsta
myndlistarmann Breta, Michael
Foreman. Litmyndimar eru sér-
prentaðar á Ítalíu.
í frétt frá Forlaginu segir m.a.:
„Sagan segir frá nirflinum gamla,
honum Scrooge, sem hatast við jól-
in og boðskap þeirra. En hann á
sögulega jólanótt í vændum. Furðu-
legar sýnir ber fyrir augu hans og
þegar hann rís úr rekkju á jóladag,
lítur hann heiminn öðrum augum
en áður...
Nú er liðin nær hálf önnur öld
síðan meistaraverk Charles Dickens
kom út í fyrsta sinn. Sagan var
gefín út í London 17. desember
1843 og öðiaðist strax gífurlegar
vinsældir. Enn f dag er boðskapur
hennar í fullu gildi.
Jóladraumur er 134 bls. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði.
Bók um lönd og þjóðir
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg-
ur hefur gefið út bókina Lönd
og þjóðir í bókaflokknum Heim-
ur þekkingar. Höfundar eru
Arhur Butterfield, Ron Carter,
Peter Muccini og Peter Way.
Gunnfríður Hermannsdóttir og
Sigríður Stefánsdóttir íslensk-
uðu.
Bókin er í alistóru broti með um
250 litmyndum. í frétt frá útgef-
enda segir: „Lönd og þjóðir er
ítarleg skoðun á löndum heims og
menningu íbúa þeirra. Fjallað er
um loftslag, landshætti, landbúnað,
iðnað og efnahagslíf, íbúa og lifnað-
arhætti á hveiju svæði. Sögu og
stjómarfari frá lokum síðari heims-
stytjaldarinnar fram til þessa eru
gerð skil til að auka skilning á þeim
atburðum er hafa mótað núverandi
líf okkar.“
Fyrri bækur er komið hafa út í
bókaflokknum Heimur þekkingar
ero: Alheimurinn og jörðin, Þróun
lffsins og Þróun siðmenningar.
G E I R G U N N A R S S O N
Draumabók
ÖRN OG ÖRLYGUR hafa gefið
út bókina Draumar og ráðning
þeirra eftir Geir Gunnarsson.
Bókin kom út áður undir heitinu
Stóra draumaráðningabókin en
höfundur endurskoðaði og jók
efni hennar verulega, svo hér er
nánast um nýja bók að ræða,
segir í frétt útgefanda.
Draumar og ráðning þeirra er
sett og fílmuð í Filmur og prent en
prentuð í Víkingsprenti. Bókband
var unnið hjá Arnarfelli hf. Kápu-
teikningu gerði Brian Pilkington.
OG RÁÐNING ÞEIRRA
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstœðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll Háaieitisbraut
1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar
tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum
boðið að notfœra sár viðtalstfma þessa.
LAUGARDAGINN 15. NOVEMBER VERÐATIL VIÐTALS
Júlíus Hafstein formaður (þrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, umhverfismálaráðs og feröamála-
nefndar, Helga Jóhannsdóttir í stjórn umferðarnefndar og SVR og Sigurjón Fjeldsted formaður
stjórnar strætisvagna Reykjavíkur og í stjóm skólanefndar og fræðsluráðs.