Morgunblaðið - 14.11.1986, Qupperneq 47
og málefnum ekki aðeins í orði
heldur miklu ffemur í verki, ýmist
fyrir einstaklinga eða félagsstarf-
semi.
Þannig sé ég hann sem syngj-
andi félaga í Karlakór Reykjavíkur;
áhugasaman bróður í Frímúrara-
reglunni; sálusorgara sjúkra og
syrgjenda; hjálparhellu rnargra oln-
bogabama lífsins; uppbyggjandi
kennimann við kristilegt bamastarf
í kirkju sinni; virkan, frjóan og
árangursríkan starfsmann að bygg-
ingu og starfí glæsilegrar sóknar-
kirkju sinnar, Langholtskirkju, með
þátttöku í fjáröflunamefnd safnað-
arins, sóknamefnd og bræðranefnd
þar sem hann var um tíma formað-
ur; sannfærandi predikara í kirkju
og síðast en ekki síst áheyrilegan
og ágætan ræðumann við ýmis
tækifæri. Allt eru þetta störf, sem
gáfu honum fyrst og fremst vitund-
ina um að hafa látið gott af sér
leiða og þakklæti þeirra er nutu.
Hans hlutskipti var þvi miklu frem-
ur að gefa en þiggja enda safnaði
hann ekki þeim auði, sem mölur
og ryð fá grandað.
Okkur er tamt að setjast í dóm-
arasætið og dæma lifendur og
dauða oft misjafnlega réttlátum
dómum. Auðvitað emm við öll
blanda af kostum og göllum og
Sigurður var þar engin undantekn-
ing. En er ekki viðhorf okkar til
hans, líf hans allt og starf ekki
dýrmætt dæmi um það, að við get-
um, eins og hann svo ríkulega
sýndi, metið hið góða í fari hvert
annars, þótt vænt hvert um annað
þrátt fyrir mannlega annmarka.
Sigurður var vinmargur maður
eins og vænta mátti. Margur mun
því sakna vinar í stað. Enginn hef-
ur þó misst eins mikið og nánasta
ijölskylda hans, Pálína, böm þeirra
og bamaböm. Ég votta þeim mína
innilegustu samúð. Megi minningin
um góðan dreng ylja þeim um
hjartarætumar um ókomna tíð svo
sem hún mun gera svo mörgum,
mörgum öðmm.
Sigmundur Magnússon
Frændi er dáinn. Ótal minningar
þjóta um hugann, en erfítt er að
koma þeim á blað.
Sigurður var góður frændi. Hann
var óþreytandi við að taka okkur
frændsystkinin með í hinar og þess-
ar skemmtiferðir þegar við vomm
yngri og áttum við margar góðar
stundir með honum og flölskyldu
hans. Glaðværð hans var smitandi.
Seinna kyntumst við Sigurði ekki
aðeins sem frænda heldur sem vini.
Það vom ófáar ferðimar niður í
Útvegsbanka til að hitta hann og
aldrei var komið að tómum kofan-
um. Alltaf var hægt að treysta því
að maður fengi greinargóð svör hjá
honum, gefín af góðum hug. Hóg-
værð og hreinskilni vom Sigurði í
blóð borin, allt sem var tilgerð og
óekta fór í taugamar á honum og
var hann þá alltaf fyrsti maðurinn
til að draga sig í hlé. Okkur langar
til að segja stutta sögu þar að lút-
andi:
Einu sinni sátum við og vomm
að horfa á drengjakór í sjónvarp-
inu. Kórinn söng eins og margir
drengjakórar, með háum falsettu-
röddum. „Svona söngur fer í
taugamar á mér,“ sagði Sigurður
„það vantar alla fyllingu innan frá.
Þessi hljóð verða bara til í hálsin-
um“.
Okkur finnst þessi saga vera
dæmigerð fyrir lífshlaup Sigurðar.
Sá söngur sem ekki kom frá hjart-
anu var honum einskis virði.
Blessuð sé minning frænda, við
þökkum honum allt það góða sem
hann lét okkur í té.
Sigurgeir, Sirrý og Gunna.
Vinur minn og samstarfsmaður
í Útvegsbanka Islands, Sigurður
Sigurgeirsson, lést sl. laugardag í
hörmulegu slysi á Hellisheiði. Kynni
okkar Sigurðar hófust fyrir tæpum
tuttugu ámm, þegar ég nýkominn
að vestan hóf störf í sparisjóðsdeild
Útvegsbankans, þar sem hann var
deildarstjóri. Það er ekki að orð-
lengja það að hann tók mér strax
vel, enda varla furða, ég var jú ís-
fírðingur eins og hann og ávallt
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986
47
síðan vomm við sammála um það
að besta fólkið væri úr fallega fírð-
inum okkar fyrir vestan. Sigurður
fæddist á ísafirði 6. júlí 1920 sonur
hjónanna Guðrúnar Pétursdóttur og
Sigurgeirs Sigurðssonar sóknar-
prests þar, síðar biskups jrfír
Islandi.
Æskuára sinna á ísafirði minnt-
ist Sigurður ávallt með hlýju og
margar skemmtilegar sögur sagði
hann mér frá vem sinni fyrir vest-
an, bæði af mönnum og málefnum,
enda ánægjulegt umræðuefni okkur
báðum þegar tími gafst til frá
skyldustörfum.
Árið 1946 hóf Sigurður störf hjá
Útvegsbanka íslands og starfaði
þar til dauðadags, lengst sem deild-
arstjóri sparisjóðdeildar bankans,
þaðan minnast margir Reykvíking-
ar hans fyrir lipurð og alúð.
Það hefði verið Sigurði vini
mínum lítt að skapi að ég færi að
skrifa um hann lofgjörð, slíkur
maður var hann, en þakklæti til
hans knýr mig til þess að setja
þessar fátæklegu línur á blað, þakk-
læti fyrir tæpra tveggja áratuga
vináttu sem aldrei bar skugga á.
Sigurður var mér fyrirmynd í
mörgu og í hjarta mér mun ég
geyma minningu um góðan og
mætan mann.
Sem ljósbrot á lá
er lífsaldan hvik, -
sem hyllingin há
er hamingjan kvik, -
hve skjótt, er hún skín
við skýtjöldin blá,
öll dýrð hennar dvin
sem deplað sé brá.
En orðstírinn einn
hvers ágætismanns, -
hann nemur ei neinn
af nafninu hans.
Hann lýsir oss leið,
er lyftihvöt vor,
und minninga meið
hann markar oss spor.
(Guðmundur Guðmundsson)
Eiginkonu hans, frú Pálínu Guð-
mundsdóttur, og bömum þeirra,
Sigurgeir, Sigrúnu, Önnu, Guðrúnu,
Kjartani og Haraldi, votta ég mína
innilegustu samúð og bið þann sem
öllu ræður að gefa þeim styrk á
þessum döpru dögum.
Blessuð sé minning Sigurðar Sig-
urgeirssonar.
Sigurjón Finnsson
Enn hefur maðurinn með ljáinn
kallað til sín einn af félögum í bank-
anum fyrirvaralaust.
Ekkert okkar granaði síðastlið-
inn föstudag, að Sigurður okkar
væri að leggja upp í hinztu förina,
þangað sem leið okkar allra liggur
að lokum.
Þann hinn sama dag var hann
að ræða við nokkra samstarfsmenn
sína og segja þeim frá fyrirhugaðri
ferð sinni austur í Hranamanna-
hrepp, glaður að vanda.
Síðan barst talið að bankanum
og hann tók að segja frá ýmsu, sem
á dagana hafði drifíð hér áður fyrr
í stofnuninni, sem hann hafði nú
starfað hjá í rúm fjöratíu ár.
Bar þar sitthvað á góma, en Sig-
urður var gæddur skemmtilegum
frásagnarhæfíleikum, enda húmor-
isti góður.
Sigurður brautskráðist frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1941 ásamt mörgu öðra mætu fólki.
Veganesti það, sem hann hlaut
þaðan, ásamt uppfræðslu mikils
menningarheimilis í æsku mótaði
allt dagfar hans og ljúfa skapgerð.
Vel hefur ljúfmennskan dugað
honum í viðskiptum hans við gamla
fólkið, sem leitaði heilræða hans
varðandi ávöxtun spariíjár síns, en
Sigurður veitti því alla þá beztu
ráðgjöf sem völ er á.
Atti hann öragglega marga góða
vini í tengslum við vinnu sína og
margir nutu góðs af þekkingu hans
og reynslu í starfi.
Hann var ósínkur á tíma sinn að
ræða við fólk, enda mikils virði fyr-
ir það, þegar aldurinn færist yfír,
að mannleg hlýja sé höfð í fyrirrúmi
• í samskiptum fólks, á þessum
tímum hraða og tímaleysis.
Slíkir menn verða æ fágætari og
er mikil eftirsjá að þvílíkum mann-
kostamanni.
Sigurður var mikill félagshyggju-
maður og hugmyndaauðugur og
naut starfsmannafélagið góðs af.
Var hann m.a. endurskoðandi þess
um árabil.
Að leiðarlokum viljum við sam-
starfsmenn hans í bankanum færa
honum hugheilar þakkir fyrir sam-
verana.
Við vottum eftirlifandi eiginkonu
hans,. Pálínu Guðmundsdóttur,
bömum hans og fjölskyldum þeirra,
ættingjum og vinum innilega sam-
úð. Hvíl í friði.
Starf smannaf élag
Útvegsbankans
Þetta er eitt nýjasta Grænlandsfarið Nuka Ittuk. Var myndin tekin
{ Reykjavíkurhöfn er það kom hér við á leið frá Danmörku.
Glæsilegt Grænlandsfar
ÞETTA SKIP var hér I
Reykjavíkurliöfn i byrjun vik-
unnar sem nú er að líða. Þetta
er eitt nýjasta Grænlandsfarið
Nuka Ittuk og er eign skipaút-
gerðarinnar þar í landi Kalaallit
Niuerfiat. Skipið var i áætlunar-
ferð sinni er það kom hér við á
heimleið frá Danmörku.
Að sögn umboðsmanna skipsins
hér, skipamiðlunar Þorvaldar Jóns-
sonar, vora sendar með skipinu til
Grænlands nær 30 tonn af vöram,
mestmegnis vora það útgerðarvör-
ur. Einnig hafði verið sendur með
því Frónkex og harðfískur m.m.
Menn sem vora niðri á hafnarbakk-
anum þegar skipið var tekið inn á
höfnina veittu þvi eftirtekt hve skip-
ið lét vel að stjóm. Þó það sé 110
m. langt er hægt að snúa því á
fimmeyringi eins og það var kallað
í eina tíð.
Skipið er búið tveim hliðarskrúf-
um og er hvor þeirra 1000 hestöfl.
Þetta gerði það að verkum hve
auðvelt var að fást við skipið og
fljótlega gekk að leggja því upp að
hafnarbakka. Það er 3500 brúttó-
tonn, tveggja ára gamalt og er
útbúið til úthafsflutninga og strand-
siglingar heima í Grænlandi. Um
borð í skipinu var allt tiltakanlega
snyrtilegt og vistarverur áhafnar-
innar afar vistlegar. Myndin er
tekin hér í höfninni og er Hafnar-
húsið í baksýn.
Blaðburðarfólk
óskast!
AUSTURBÆR GRAF ARVOGU R
Óðinsgata Fannafold
ÚTHVERFI
Gnoðarvogur 44-88
PtotqgptttiMitMto
n
IÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS^-r^Vrv'
Eftirtalin námskeið verða haldin á næstunni
hjá Iðntæknistofnun
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS:
17.-19. nóv. Loftræstar útveggjaklæðningar. Haldið
í samvinnu við Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins.
21 .-29. nóv. Vökvakerfi. Ætlað iðnaðarmönnum og
vélstjórum.
1,- 6. des. Loftræstikerfi. Ætlað blikksmiðum.
Haldið kl. 17-20,12. og 4. des. og kl.
09-16, 6. des.
MÁLMTÆKNIDEILD
1.- 6. des. Hlífðargassuða(MIG.TIG). Kl. 08.30-18.
REKSTRARTÆKNIDEILD
24.-27. nóv. Gæðastjórnun. Kl. 09-15. Leiöbeinandi
frá Statens Teknologiske Institutt í Nor-
egi. Ætlað stjórnendum. Haldið í sam-
vinnu við Félag íslenskra iðnrekenda.
VERKSTJÓRNARFRÆÐSLAN
26.-29. nóv. Vinnuhagræðing. Haldið á Akureyri.
Farið yfir undirstöðuatriði vinnurann-
sókna og hagræöingar í fyrirtækjum
ásamt launakerfum.
1. - 4. des. Stjórnun 1. Fariðyfirundirstöðuatriði í
stjórnun og mannlegum samskiptum.
Ætlað konum, með sérstökum þáttum
sniðnum að þörfum kvenna.
12.-15. jan. Stjórnun 2. Farið yfir undirstöðuatriði í
verktilsögn og fyrirmælum. Stjórnun
breytinga og hegðun einstaklinga við
vinnu.
19.-22. jan. Stjórnun 1. Farið yfir undirstöðuatriði í
stjórnun og mannlegum samskiptum.
26.-29. jan. Verkskipulagning. Haldið á Eskifirði.
Farið yfir undirstöðuatriði í skipulagningu
verka og áætlanagerð.
2. - 5. feb. Vinnuumhverfismál. Farið yfir helstu atr-
iði ívinnulöggjöf og bótarétti. Skyldur
verkstjóra og ábyrgð. Öryggismál, bruna-
varnirog slysavarnir.
9.-12. feb. Stjórnun 2. Haidið í Borgarnesi. Sjá lýs-
ingu ofar.
18.-21. feb. Vinnuhagræðing. Haldið á Egilsstöðum.
Sjá lýsingu ofar.
23.-26. feb. Vinnuumhverfismál. Haldið á Akureyri.
Sjá lýsingu ofar.
Námskeið ( Reykjavík eru haldin í húsakynnum Iðntækni-
stofnunar, Keldnaholti, nema annað sé tekið fram. Upplýs-
ingar og innritun hjá stofnuninni í síma (91)68-7000.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA!