Morgunblaðið - 06.12.1986, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986
Patreksfjörður:
Fyrirtæki
kaupfélags-
ins ennþá
opin
SÝSLUMAÐURINN á Pat-
reksfirði frestaði því fram í
næstu viku að loka sölustöð-
um kaupfélagsins og öðrum
fyrirtækjum á staðnum
vegna söluskattsskuldar.
Stefán Skarphéðinsson
sýslumaður var búinn að hóta
lokun í gær, föstudag, ef fyrir-
tækin kæmu málum sínum ekki
í lag þá. Stefán sagðist í gær
hafa frestað aðgerðum fram í
næstu viku að ósk forráða-
manna fyrirtækjanna. Kaup-
félag Vestur-Barðstrendinga
fékk frest fram til þriðjudags
og hin fyrirtækin til föstudags.
Fjöldijólasveina á
SIÐUSTU daga hafa jólasveinar sést á ferli. Á Lækjartorgi hittu vegfarendur í gær jólasvein af hollenskum uppruna og hafði sá með
sér þjóna, dökka á brún á brá. Hann hefur vanist öðrum siðum en íslensku jólasveinarnir og kemur ár hvert til byggða 5. desember.
í Hallarmúlanum óku jólasveinar um á hestvagni og buðu viðstöddum börnum að sitja í. Ekki skemmdi fyrir að sælgæti var í pok-
um sveinanna. Verzlunin Penninn í Hallarmúla býður börnum i sleðaferð með jóiasveinum í dag og næstu laugardaga, fram til jóla.
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi f gær: Yfir norður-Grænlandi er 1020 millibara
haeð, en skammt út af Vestfjörðum er 990 millibara lægð á hreyf-
ingu norður. Austur við Noreg er önnur lægð, um 985 millibara
djúp, og hreyfist hún austnoröaustur. Um 600 kílómetra suður af
Hvarfi er vaxandi 978 millibara lægð á hreyfingu austur og síöar
norðaustur. Hiti breytist lítiö í kvöld og nótt, en á morgun hlýnar
heldur í veðri.
SPÁ: í dag verður austanátt um mest allt land, víða stinningskaldi
eða allhvasst. Slydda verður við suöur- og suðausturströndina, en
dálítil él á annesjum norðanlands. Á vesturlandi verður úrkomu-
laust aö mestu. Hiti nálægt frostmarki við sjávarsíðuna, en -2 til
-5 stiga frost inn til landsins.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
SUNNUDAGUR: Á sunnudag verður austan- og norðaustanátt á
landinu með snjókomu norðanlands, en skúrum eða slydduéljum
sunnanlands. Hiti nálægt frostmarki.
MÁNUDAGUR: Á mánudag kólnar í norðaustanátt, él verða norð-
an- og austanlands en lóttir til suðvestanlands.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- -J0° Hitastig: 10 gráður á Celsius
stefnu og fjaðrirnar • Skúrir Él
Heiðskírt 1 A vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. V * V
Léttskýjeð f r t r t r / Rigning = Þoka
Hálfskýjað r r r — Þokumóða
* / * 5 Súld
A ZÆk Skýjað r * r * Slydda r * r oo 4 Mistur Skafrenningur
/ '|| Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐURVÍÐA UMHEIM
kl. 12.00 i gær að ísl. tíma hitl veður
Akureyri -4 skýjað
Reykjavik -4 skýjað
Bergen 4 rigning
Helsinki -S alskýjað
Jan Mayen -7 skýjað
Kaupmannah. 9 þokumóða
Narssarssuaq -18 léttskýjað
Nuuk -11 skafrenn.
Osló 3 rígning
Stokkhólmur 4 rigning
Þórshöfn 3 skýjað
Algarve 18 mistur
Amsterdam 10 mistur
Aþena 17 léttskýjað
Barcelona 14 mlstur
Berifn 11 lóttskýjað
Chicago -9 heiðskírt
Glasgow 7 skúr
Feneyjar 3 þokumóða
Frankfurt 5 þokumóða
Hamborg 12 skýjað
Las Palmas 22 skýjað
London 14 alskýjað
LosAngeles 14 þokumóða
Lúxemborg 3 þoka
Madrfd 9 háffskýjað
Malaga 18 heiðskfrt
Mallorca 18 léttskýjað
Miami 20 úr.k.fgr.
Montreal -2 snjóél
Nice 13 heiðskírt
NewYork 2 léttskýjað
París 10 léttskýjað
Róm 12 þokumóða
Vín -3 Hrimþoka
Washington 1 ióttskýjað
Winnipeg -10 skafrenn.
aRBS&BssgsstJB
Bókmenntafélagið:
Heimspekifyrirlestrar
eftir Sigurð Nordal
Heimspekifyrirlestrar Sig-
urðar Nordal Einlyndi og
marglyndi, sem fluttir voru í
Reykjavík veturinn 1918 til 1919,
hafa nú verið gefnir út á bók í
fyrsta sinn. Útgefandi er Hið
íslenska bókmenntafélag, en um
útgáfuna sáu Þorsteinn Gylfa-
son, sem einnig ritar ýtarlegan
inngang, og Gunnar Harðarson.
Fyrirlestrar Sigurðar vöktu á
sínum tíma mikla athygli og haft
hefur verið á orði, að enginn
íslenskur maður hafi kvatt sér
hljóðs um heimspeki við þvílíkar
undirtektir. Á lestra hans hlýddu
400 til 500 áheyrendur.
Orðin „einlyndi" og „marglyndi"
bjó Sigurður Nordal sjálfur til og
að sögn Þorsteins Gylfasonar eiga
þau sér engar samsvaranir á öðrum
málum. Höfundur skýrir hugsun
sína m.a. með eftirfarandi orðum í
bókinni: „Einlyndi og marglyndi eru
fyrst og fremst tvær andstæðar
stefnur í sálarlífi hvers manns, þar
sem öllum er eðlilegt á víxl að
stefna að því að viða nýju efni í
sálarlífið og koma á það kerfun og
skipulagi, að vera á víxl opnir við
margs konar áhrifum og beina at-
hygli og orku að einu marki, að
vera á víxl eins og hljóðfæri í hendi
lífsins eða ráða sjálfir leiknum.
Sumir menn hallast þó fyrir eðlisfar
eða uppeldi svo greinilega á aðra-
hvora sveifina, að orðin „einlyndur"
og „marglyndur" má nota sem
skapgerðarlýsingar. En mörgum
verður örðugt að kjósa um auð og
samræmi, fjölbreytni og orku,
breidd og dýpt, viðkvæmni og fram-
kvæmni. Þá verða einlyndi og
marglyndi tvær sjálfráðar lífsstefn-
ur, sem gerast mönnum íhugunar-
efni og skapa vegamót í lífí þeirra
og þroska."
Sigurði Nordal entist ekki aldur
til að búa Einlyndi og marglyndi
til prentunar. Á bókinni birtast
handrit hans að fyrirlestrunum, á
stöku stað ekki samfellt mál heldur
minnisgreinar eða ágrip. Af sumum
lestranna eru tvær gerðir til, upp-
kast og hreinskrift, og er þá hvort
tveggja prentað. Þar birtast líka
fjögur sendibréf Sigurðar um lestr-
ana.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sigurður Líndal, forseti Hins íslens'ka bókmenntafélags, Gunnar
Harðarson, Þorsteinn Gylfason og Jóhannes Nordal, sonur Sigurð-
ar, kynna bókina á fundi með blaðamönnum í gær.
Akureyri:
Nefnd kannar gámamálin
STJÓRN Útgerðarfélags Akur-
eyringa skipaði á fundi sínum í
gær þriggja manna nefnd. Henni
er ætlað að fjalla um möguleika
á því, að verða við beiðni sjó-
manna á togurum félagsins þess
efnis að ákveðnum hluta aflans
verði landað í gáma og hann seld-
ur erlendis.
í nefndinni eru formaður stjómar
ÚA, Sverrir Leósson, og fram-
kvæmdastjórar félagsins, þeir Gísli
Konráðsson og Vilhelm Þorsteins-
son. Sverrir sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að því yrði
hraðað að fínna lausn á málinu.
„Nefndin var skipuð til að leysa
málið, ekki til að salta það,“ sagði
Sverrir.