Morgunblaðið - 06.12.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986
27
u.þ.b. þrefaldri framleiðni á við
starfsmann í frystihúsi. Hann hefur
líka a.m.k. þreföld laun landverka-
fólks og afkoma skipanna er með
miklum ágætum. Það er ekki að
sjá annað en frystitogurum muni
fjölga töluvert á næstu árum og
ólíklegt að stjómvöld vilji stöðva
þá þróun. Bein áhrif frystitogara á
afkomu frystihúsa eru kannski ekki
augljós, en óbeinu áhrifin gætu orð-
ið mikil. Það er nefnilega líklegt
að áhrif ferskleika hráefnis á
eftirspurn og verð frystra afurða
fari vaxandi á þeim mörkuðum
sem best borga og þessa er þegar
farið að gæta.
Vörugæðin hafa verið okkar
sterkasta vopn til þessa, en keppi-
nautamir sækja á og kröfur
kaupenda vaxa.Frystihúsin munu
þurfa að ieggja meira upp úr
ferskleika hráefnis sem aftur
þýðir ákveðnari stjórn á veiði-
skipum. A vissum svæðum landsins
hefur það orðið að reglu eða nærri
því að togarar koma inn á ákveðn-
um vikudegi — til að landa hluta
aflans í gáma. Á þann hátt geta
gámasölumar orðið frystihúsunum
til hjálpar.
Áður en skilið er við frystiiðnað-
inn þá skal þess getið að stórfelld
tæknibylting er ekki fyrirsjáanleg
á allra næstu ámm. Þar með er
ekki sagt að viss þróun og hagræð-
ing muni ekki halda áfram, en
vélvæðing og sjálfvirkni í snyrtingu
á töluvert langt í land. Islenski
hraðfrystiiðnaðurinn tók mikið for-
skot í fiskvinnslu heimsins fyrir svo
sem áratug eða rúmlega það. Nú
held ég að fyrirtækin muni neyðast
til að hægja á íjárfestingum og búa
betur að sínu tæknilega séð meðan
þau em að aðlaga sig breyttum
markaðsaðstæðum, aukinni sér-
hæfíngu og nýjum áherslum í
vinnslurásum. Eg held að hrað-
frystiiðnaðurinn verði áfram
máttarstólpi og kjölfesta fisk-
vinnslunnar, en menn verða að
vera fljótir að átta sig á og bregð-
ast við breyttu umhverfi og
nýjum viðhorfum ekki síst í
markaðsmálum, annars fer illa.
Það er tilgangslítið að kvarta
yfir óhagstæðri gengisþróun er-
Vestur- Is-
lensk æviskrá
BÓKAFORLAG Odds Björnsson-
ar á Akureyri hefur gefið út
fimmta bindið af Vestur-íslensk-
um æviskrám Jónasar Thordar-
sonar.
í þessu nýja bindi em æviskrár-
þættir 100 Vestur-íslendinga með
330 ljósmyndum, saga þeirra sögð
í stuttu máli, greint frá uppmna
og ævistarfí, ættingjum og afkom-
endum. I bókarlok er mannanafna-
skrá.
Bókin er 307 blaðsíður að stærð,
prentuð og bundin í Prentverki
Odds Bjömssonar á Akureyri.
lendis, yf ir ríkisstyrk til sjávarút-
vegs annarra landa eða
stækkandi fiskstofnum annars
staðar i heiminum. Islenskur
sjávarútvegur verður að hjálpa
sér meira og minna sjálfur út
úr erfiðleikum eins og hann hef-
ur alltaf gert.
Aðrar greinar
Það verður því miður lítill tími
til að hyggja að öðmm vinnslugrein-
um. Næst frystiiðnaðinum er alltaf
rökrétt að telja saltfiskvinnsluna.
Þar er afkoman eins og er miklu
betri en hjá frystingunni. í fram-
leiðslu saltfísks hafa hávaðalítið
gerst stórar breytingar, nærri bylt-
ing undanfarin ár, bæði tæknilega
séð og í vömþróun. Líklegt er að
framhald verði á þeirri þróun
sem átti sér stað með tilkomu
tandurfisksins þar sem gæðin
eru látin sitja í fyrirrúmi og
reynt að mæta óskum kröfuharð-
ari neytenda með verkun og
pönnun, kaupenda sem vilja og
geta greitt hærra verð fyrir góða
vöru. Áfram verður þó um sjálfsagt
langa framtíð verkaður hefðbund-
inn saltfískur á ódýran máta í
ódýmm umbúðum fyrir fólk með
minni kaupgetu og það er engin
ástæða til að amast neitt við því.
Með saltsíldina horfir fremur illa
til lengri tíma litið þó að sölur tækj-
ust nú_ sérstaklega hvað verð
snertir. Ég efast um að við getum
selt saltsíld á yfirverði með hálf-
gerðum hótunum í mörg ár enn
og þá verða menn bara að skoða
það hvort hægt er að veiða síld
til söltunar á mun lægra verði
en nú er. Færri skip með stærri
kvóta munu hjálpa til að gera þetta
mögulegt en einnig hlýtur verkend-
um að fækka. Eitthvað gæti
framleiðsla á frystri síld líklega
aukist.
Loðnuvinnsla mun eins og löng-
um áður verða háð verðsveiflum
afurða. Tæknibúnaður verksmiðja
hefur batnað stórlega undanfarin
ár. Loks em framleiðendur famir
að fínna fyrir verðmun á gufuþurrk-
uðu mjöli, lausu mjöli af jöfnum
gæðum og meiri vömvöndun sem
ekki hefur borgað sig að sinna hing-
að til.
Ég verð að sleppa ýmsum atrið-
um sem telja lægri fjárhæðir í
þjóðarútflutningnum svo sem
hrognum úr loðnu og öðmm fískum,
lagmetisframleiðslu, lifur og lýsi og
svo fiskúrganginum svokallaða.
E.t.v. koma þessi atriði upp í um-
ræðum hér á eftir, ég vil alls ekki
gera lítið úr þýðingu þessara afurða
né heldur aukfisksins svokallaða.
Það er svo mörg „matarholan" í
hafínu sem enn er ekki uppétin.
Meðan svo er skulum við ekki vfla
hót.
Höfundur erannarnfþingmönn-
um Sjálfstæðisflokksins fyrir
Norðurlandskjördæmi eystra.
Nýjar aðferðir við
rannsókn menningarsögu
NÝKOMIÐ er út hjá háskólanum
í Osló ritið Words and Objects
(Universitetsforlaget 1986). Er
bókin kynnt sem tímamótaverk
í rannsókn menningarsögu og er
hún á ensku. Ritstjóri er Gro
Steinsland. Eru álján ritgerðir í
bókinni. Ein þeirra, Hypothesis
as a Tool in Mythology, er eftir
Einar Pálsson.
I formála lýsir Gro Steinsland
því yfir, að sá tími sé liðinn, að
hver fræðimaður geti setið úti í sínu
eigin homi og rannsakað trúar-
brögð, fornleifar eða bókmennta-
texta án þess að hafa hliðsjón af
því sem læra má af öðmm greinum.
Nauðsyn ber til að bijóta niður
múra hinna hefðbundnu fræða-
sviða. Segir trúarbragðafræðingur-
inn, að nú geri allir sér grein fyrir
því, að svo margt nýtt hafi komið
til sögunnar síðustu áratugi, að
ekki sé stætt á því lengur að halda
sér við gamla heygarðshornið.
Bók þessi fjallar fyrst og fremst
um aðferðafræði í húmaniskum
greinum. Er þar spurt að heimildum
og einkum að túlkun þeirra. Er
norrænt efni tekið til sérstakrar
athugunar. Meginspurningarnar
em þessar: „Hver er sá vandi í túlk-
un, sem hinar ýmsu vísindagreinar
eiga sér sameiginlegan? Hvernig
mega niðurstöður einnar greinar
varpa nýju ljósi á viðfangsefni ann-
arra greina?“
Oxford University Press dreifir
bókinni utan Norðurlanda.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíóum Moggans! y
Aðventu-
kvöld í Landa-
kotskirkju
FÉLAG kaþólskra leikmanna
heldur aðventukvöld sunnudag-
inn 7. desember í dómkirkju
Krists konungs í Landakoti.
Ragnar Bjömsson leikur á
kirkjuorgelið, Láras Sveinsson leik-
ur á trompet, séra Hjalti Þorkelsson
sóknarprestur flytur ræðu, auk þess
BRÆÐURNIR
í GRASHAGA
loksins fáanleg
Skáldsagan sívinsæla eftir Guðmund Daníelsson
verður upplestur, einsöngur og jóla-
guðspjallið lesið. Állir em velkomnir.
(Fréttatilkynning)
Bræðurnir í Grashaga kom fyrst út fyrir rúmum
50 árum og seldist þá upp.
Frásögnin glitrar af kviku lífi og skemmtilegum
hugdettum.
Þetta merkisverk frásagnameistarans
þurfa allir að eignast.
Asgrímur Jónsson
Fir Jóh. rr Jóha Ásgrímur JZf
i Sr Sm Bne ■ Geu Jonsson
I
Ný bók í bókaflokknum
ÍSLENSK MYNDLIST
Sjötta verkið í bókaflokknum íslensk myndlist
lítur nú dagsins ljós. Höfundar bókarinnar um
Ásgrím Jónsson eru þau Hrafnhildur Schram
og Hjörleifur Sigurðsson. Bókina prýðir fjöldi
litprentana af málverkum Ásgríms ásamt
teikningum eftir hann svo og ýmsar ljósmynd-
ir. í listsköpun sinni var Ásgrímur í senn
brautryðjandi og meistari. Verk hans hafa fyrir
löngu hlotið lýðhylli. Bókin um Ásgrím Jóns-
son er listunnendum fagnaðarefni, enda ættu
þeir að bæta henni sem fyrst við bókasafnið.
LISTASAFN ASÍ