Morgunblaðið - 06.12.1986, Page 33
33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986
*— --------------------------—------------------------------------------------
Sverrir Einarsson
En nú er svo komið að
tannlæknar þurfa sjálf-
ir á tannvernd að halda.
Vernd gegn tönnum
þeirra bakbíta sem
ástunda iðju sína í Ork-
inni við Austurvöll.
að bera þessa tölu saman við þær
stéttir sem erfíðast áttu í þessari
launaþróun eins og það sé sök tann-
lækna. Á þessu tímabili varð
launaþróun tannlækna lægri en hjá
BHM-mönnum og svipuð og hjá
alþingismönnum en það þykir Jó-
hönnu ekki ástæða til að nefna.
Sem dæmi um skilningsleysi
hennar á þessum málaflokk þá hef-
ir Jóhanna lagt fram frumvarp á
Alþingi, sem hún taldi vera tann-
vemdarfrumvarp en þegar að var
gáð kom í Ijós að ekki ein einasta
króna hefði farið til þess þarfa verks
þó frumvarpið hefði verið sam-
þykkt.
Þá grípur Jóhanna fegins hendi
afskræmda prósentutölu sem hún
hefír ekkert leyfí til að trúa og
notar hana í þeim tilgangi að reikna
tannlæknum hveijum og einum
laun upp á 8 millj. kr. og sameigin-
leg skattsvik upp á 1,5 milljarð og
birtir þetta í þingskjali. Á sínu §öl-
miðlafylleríi sem nú stendur yfír
hefír Jóhanna hvað eftir annað sagt
að laun tannlækna séu 63 þús. kr.
á mánuði þótt hún viti vel að talan
sé 50% hærri. Og nú hentar vel að
hafa meðaltalstölu.
Þetta em aðeins nokkur dæmi
um starfshætti þingmannsins gagn-
vart því vandamáli sem hún þykist
vera að vinna að. Á Alþingi hefír
hún leyft sér að túlka þær tölur sem
enn er ekki aðstaða til að melta
með því orðalagi og dylgjum að
allir tannlæknar séu skattsvikarar
jafnvel þótt augljóst sé að stórir
hópar tannlækna hafa engan mögu-
leika á að stunda slíka iðju. Ég mun
ekki ræða tölur við Jóhönnu frekar.
Slíkt mun bíða þar til ljölmiðlafyll-
eríi frúarinnar lýkur og timburmenn
taka við.
Það er ekki tilgangurinn með
þessari grein að hvítþvo íslenska
tannlæknastétt gagnvart skattsvik-
um. Skattsvik á Islandi er þjóðar-
íþrótt. Engin stétt, þar með talin
stétt heilagrar Jóhönnu, kemst und-
an því að eiga innan sinna vébanda
slíka íþróttamenn. Umræður um
þetta mál hafa ávallt verið í gangi
og orsakanna leitað. Meðal ástæðna
sem nefndar hafa verið em ósann-
gjöm skattalög sem verður að
teljast handvömm þingmanna.
Þingmenn einir hafa hinsvegar þá
sérstöðu meðal stétta að geta haft
það í sinni hægri hendi að gera öll
þeirra skattamál lögleg. Það geta
ekki allar stéttir ákveðið það á
sínum aðalfundi að kostnaður við
endurmenntun sé frádráttarbær eða
að kostnaður við bíl skuli tekinn til
greina. Aðrar stéttir geta heldur
ekki ákveðið að áunnin lífeyrissjóðs-
prósenta skuli vera 3,5% á ári né
að leyfílegt skuli vera að fara bak-
dyramegin í ríkissjóð ef greiðslur
stéttarinnar hrökkva ekki til.
Ég ætla ekki að mæla skattsvik-
um bót en ég ætla að halda því
fram að raunveruleg eða ímynduð
skattsvik hjá einstaklingum úti í
þjóðfélaginu sé hjóm eitt hjá þeim
skattsvikum sem birtast í því hvem-
ig farið er með þann skattpening
sem alþingismönnum hefír verið
trúað fyrir.
Þetta mat endurómaði einnig í
orðum bankastjórans sem lýsti því
yfír að tjónið af Hafskipsmálinu
væri lítið miðað við það tjón sem
hlytist af stjómmálamönnum og
bankar þyrftu að standa undir og
endurómar einnig í ræðum alþingis-
manna þegar þeir telja sig þurfa
að koma höggi á pólitískan and-
stæðing.
Áhugaleysi annarra þingmanna
Þráinn Karlsson
Morgunblaðið/Gunnar Rafn
Gerðuberg:
Þráinn Karlsson
flytur einþáttunga
TVEIR einþáttungar eftir Böð-
var Guðmundsson verða frum-
sýndir í Gerðubergi, Breiðholti,
laugardaginn 6. desember, undir
samheitinu “Er það einleikið“.
Þráinn Karlsson leikari flytur
báða einþáttungana sem heita
“Vamarræða mannkynslausnara"
og “Gamli maðurinn og kven-
mannsleysið." Þráinn á 30 ára
leikafmæli um þessar mundir og
ákvað að halda upp á það með sýn-
ingu einþáttunganna. Hann fékk
Böðvar Guðmundsson til liðs við sig
og er seinni þátturinn sérstaklega
skrifaður fyrir þessa sýningu. Vam-
arræðan hefur áður birst í smá-
sagnasafni Böðvars.
Efni fyrri þáttarins verður best
lýst með nafninu, “Vamarræða
mannkjmslausnara," þótt hveijum
sé í sjálfsvald sett hvaða merkingu
hann leggur í lausnir og vöm
“lausnarans" og viðbrögð samfé-
lagsins við honum, segir í frétt um
sýninguna.
I seinni þættinum segir miðaldra
maður ævi sína, allt frá bemsku-
dögum í sveitinni, þaðan sem leiðin
liggur út í heim og endar á olíubor-
palli í Norðursjónum.
Leikstjóri sýningarinnar er Þór-
hildur Þorleifsdóttir, leikmynd er
eftir Jón Þórisson, lýsingu annast
Láms Bjömsson og Bjami Ingvars-
son er “altmuligmand."
Sýningar á einþáttungunum
verða aðeins fímm hér í Reykjavík
og verða allar sýndar í næstu viku.
(Fréttatilkynning)
á þessu máli öllu er okkur tann-
læknum óskiljanlegt. Þeir virðast
njóta þess að þiggja matreiðslu Jó-
hönnu á öllum hennar tölum og
losna þannig við óþægindi af því
að bijóta þessi mál til mergjar. Slíkt
er þessu máli hættulegt.
Það er óhægt um vik fyrir tann-
lækna að halda uppi vöm í þessu
máli. Ég á t.d. ekki von á því að
þessi grein verði lesin upp í útvarpi
eða birt í sjónvarpi. Jóhanna hefír
hinsvegar verið ólöt að matreiða
tölur sínar ofan í landslýð í gegnum
ríkisfjölmiðlana og aðra. Tannlækn-
ar hafa ekki aðgang að stofnunum
hins opinbera né mannskap til að
vinna þær upplýsingar sem gefa
mundu raunsanna mynd af því sem
birt hefir verið. Jóhanna hefír leikið
þann ljóta leik að nefna ávallt með-
altöl þótt í hópi starfandi tannlækna
séu menn sem em komnir um aldur
fram og vinna stuttan vinnudag,
og aðrir sem ná ekki fullu starfsári
af ýmsum ástæðum svo sem veik-
indum, námi erlendis og að
ógleymdum miklum íjölda ungra
tannlækna sem eru að vinna sig
upp á þegar mettuðum markaði.
Með þessari grein ákæri ég Jó-
hönnu fýrir lúaleg og ofstækisfull
vinnubrögð. Ég ásaka aðra þing-
menn fyrir algert áhugaleysi á
þessum málaflokki um áratuga
skeið og afskiptaleysi af gangi
þessa máls í þingsölum. Ég ásaka
opinbera fjölmiðla og fjölmiðla í
einkaeigu fýrir að draga upp
óraunsæja mynd af íslenskri tann-
læknastétt, byggða á eindæmum.
íslensk tannlæknastétt hefir frá
stofnun félags síns unnið fómfúst
starf að tannvemd meðal þjóðarinn-
ar með þeim tiltæku ráðum sem
boðist hafa á hveijum tíma á stof-
unni, í blöðum og öðrum fjölmiðlum.
Þeir hafa því miður oftast talað
fyrir daufum eyrum stjómmála-
manna og embættismanna þar til
tókst að koma hæl milli stafs og
hurðar með stofnun tannvemdar-
sjóðs sem var skilyrði fyrir samn-
ingnum við Tryggingastofnun
ríkisins árið 1975. Sjóðurinn skilaði
því miður ekki því hlutverki sem
honum var ætlað, en hann hreyfði
við embættismönnum sem loks
sinntu þeirri kröfu Tannlæknafé-
lags íslands að fá til starfa í
heilbrigðisráðuneytinu tannlækni
með víðtæka þekkingu á vandamál-
inu. Þessi embættismaður hefír
afkastað meiru á stuttum tíma en
menn óraði fýrir. Vonandi er að
áframhald verði á þessari þróun.
En nú er svo komið að tannlækn-
ar þurfa sjálfír á tannvemd að
halda. Vemd gegn tönnum þeirra
bakbíta sem ástunda iðju sína í
Örkinni við Austurvöll. Um vinskap
Jóhönnu við íslenska tannlækna-
stétt, sem hún heldur að fólki í
fjölmiðlum, gildir hið fomkveðna
að sé hún vinur þá þurfum við ekki
á neinum óvini að halda.
Höfundur er tannlæknir.
urknstal ^
„Yatnsu-loftvog
t f 1 • •• r* r r
Jolagjonn 1 ar
Loftvog er ómissandi á hvert heimili,
— þetta er „þrumu“ loftvog.
1. Lægö
2. Breytilegt
3. Hæð
Sænsku fyrirtækin Lindshammar, Pukeberg og Skruf framleiöa sérstaklega fallegar
vörur, en þær eru aöeins hluti af því mikla úrvali sem viö bjóöum í kristals- og glervörum.
Þessi vatnsloftvog er einstök, — líklega elsta loftvogstegund í heimi, vitað er aö sams-
konar loftvog var notuö áriö 711 og nefnd „Þrumuflaska“.
Fyrirtækiö Skruf framleiðir þessa loftvog/ír kristal og er hún aö öllu leyti handunnin.
Verð kr. 2.400
Pantanir óskast sóttar
Póstsendum
IEIÍH-
I.KISTHI
Laugavegi 5, sími 14320.