Morgunblaðið - 06.12.1986, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 06.12.1986, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986 4 Hugprýði og handstyrkur Morgunblaðið/RAX Jón Vigfússon í Holti í Vestmannaeyjum með tvenn heiðurslaun fyrir björgunarafrekið 1928, Carnegie-peninginn og bikar Fiskifé- lags íslands. eftir Aðalstein Jóhannsson Þegar ég stóð nýlega við nokk- um tíma á gömlum heimaslóðum í Vestmannaeyjum, þar sem ég ólst upp fram á unglingsár, hitti ég að máli merkan mann, sem var mér minnisstæður frá fyrri tíð. Það er Jón Vigfússon vélstjóri í Holti. Á þorranum 1928, þegar Jón var tvítugur að aldri, var hann einn flmm manna í áhöfn Eyjabátsins Sigríðar, sem hrakti í stórviðri und- ir Ofanleitishamri og brotnaði í spón. Jón lenti þá í þeirri þrekraun að klífa þrítugan hamarinn (u.þ.b. 30 álnir) án hjálpartækja og gera viðvart um félaga sína, svo að þeim var bjargað. Sigið var til þeirra og þeir dregnir upp á bjargbrún. Þetta mikla björgunarafrek vakti óskipta athygli víðsvegar, og Jón var sæmd- ur tvennum heiðurslaunum, afreks- bikar frá Fiskifélagi íslands og peningi Camegie-sjóðsins danska, þar sem stendur á annarri hliðinni: Belpnning for udvist heltemod. Á sjómannadaginn í fyrra birti Morgunblaðið viðtal, sem Ámi Johnsen alþm. átti við Jón Vigfús- son um hina miklu mannraun við Ofanleitishamar 14. febr. 1928. Þar kemur fram að þeir Sigríðarmenn fóru í róður kl. 3 að nóttu f vondu veðurútliti og sama gerðu menn á sjö öðmm bátum. Þeir lentu í aust- anroki, slagviðri og slæmu skyggni og komu loks um níuleytið að kvöldi upp undir Heimaey vestanverða, en vissu þó ekki vel hvar þeir voru. Þar hugsa þeir sér að halda sjó og bíða birtingar, en það fór á annan veg. Með leyfl Áma Johnsens tek ég hér upp kafla úr viðtali hans við Jón, sem segir svo frá: „Eftir stutta stund hrekk ég upp við það að báturinn tekur hastar- lega niðri. Ég þaut upp og bakkaði. Þá slóst skrúfan í gijót og stopp- aði. Þama veltumst við á skerinu og þá hugsaði maður með sjálfum sér, man ég: Á maður að deyja svona ungur? Ég man það, að ég bað Guð að styrkja mig til að taka þessu með ró, og svo losnaði bátur- inn í því af skerinu og veltist þama um, og við sáum ekkert út fyrir myrkri. Við höfðum ekkert rafljós, en Ijóskastari var um borð, slíkir vom þá komnir í nokkra báta. Mér datt í hug að ná í hann og setja hann upp. Það gerðum við og lýst- um. Þá sáum við einungis þverhnípt bjargið framundan og ekkert ann- að. Það var ekki hægt að ímynda sér nokkra möguleika aðra en þetta væri búið. Þá berst báturinn upp að landinu. Ég var aftur á, fer fram á og sé að þar framundan er lítill stallur í berginu. Og ég segi við strákana: Hvað, ætlið þið ekki að reyna að komast í land? Ég var í leðurstígvél- um. Það var venja hjá mótoristum þá, snara mér úr þeim og stekk í land. Ég reiknaði með að það væri hált eins og reyndist. Sjórinn gekk yfir þennan stall, en ég komst svo- lítið ofar og bjóst við að þeir hefðu komið á eftir mér. En þegar ég lít við er báturinn kominn frá berginu og enginn kominn upp í bergið nema ég. Já, þama velktist báturinn í brimlöðrinu, og það vom þung augnablik að horfa á það og vera þama í bjarginu. Svo skeði það ótrúlega, báturinn kemur aftur að berginu á nákvæmlega sama stað og stoppar. Ég fikra mig niður á stallinn og held mér þar þannig, að um leið og strákamir stökkva í bergið geta þeir gripið í mig, og þama komust þeir allir upp á ör- skoti. Á sama laginu allir. Kannski var það hálf mínúta, kannski ein mínúta. En um leið og sá síðasti er stokkinn í bergið rennur báturinn frá berginu og kom aldrei nálægt landi aftur. Síðar reyndist þetta eini staðurinn þar sem möguleiki var að komast upp í bergið á stóm svæði. Enginn mannlegur máttur réð ferð bátsins að nibbunni, sem við komumst upp á. Svo fíkmðum við okkur til þama í berginu. Líklega hefur klukkan verið um 10 að kvöldi dags þann 14. febrúar 1928. Við fundum skúta. Það skvettist upp á okkur sjórinn, en svo fjaraði út og varð heldur kyrrara í skútan- um. En þama höfðum við lítið svigrúm til þess að hreyfa okkur. Við vomm í skútanum alla nóttina og fram í birtingu. Það var vissu- lega dálítið kaldsamt. . . I birtingu sáum við loks hvar við vomm staddir, og þá fór Eiður formaður að tala við mig og spyija mig hvort ég treysti mér til þess að fara þama upp bergið. Ég féllst á að reyna það, og áður en ég lagði í bergið reyndi ég að beija mér til hita, því mér var ansi kalt og var á sokkaleistunum. Áður en ég lagði af stað fékk ég lánaðan sjóvettling hjá einum hásetanum og hafði hann á annarri hendi til þess að róta snjó úr berg- inu og reyna að fínna handfestu, en það var mikill snjór í berginu á örðunum. Svo hélt ég sjóvettlingn- um á milli tannanna á meðan ég fíkraði mig upp. Þetta gekk alivel þangað til ég var kominn upp í mitt bergið, þá ætlaði mér að ganga illa að fínna handfestu. En ég hafði samt að vega mig upp, og síðan gekk ágætlega upp undir brún. Þá blasir það við, að brúnin slútir fram yfír sig. Það leit illa út í þessari stöðu, og það var líka innbyggt að við vomm hræddir, peyjamir í Eyj- um, við hamarinn, hann var svo laus í sér. En einhvemveginn hafði ég að teygja fíngurgómana í festu á brúninni, og hún hélt, en ég varð hreinlega að vega rnig upp á fíngur- gómunum. Mér ætlaði að ganga illa að kom- ast síðasta spölinn, en það hafðist. Ég varð ógurlega kátur, þegar ég var kominn upp, en líklega hef ég verið um 15 mínútur á leiðinni. Ég leit aldrei við. Það var engin von til þess að komast aftur niður þá leið, sem ég fór upp ... Þegar ég lagði í bjargið, var það ekki alveg árennilegt... Ég vissi líka að Hamarinn er mjög laus. Maður var vanur príli eins og strákar á þessum ámm en ég stundaði aldrei fjallamennsku. En það var ekki frost, og það hafði verið enn erfiðara við slíkar aðstæð- ur. En ég átti í raun enga möguleika á að snúa aftur niður, þegar ég hafði lagt í bergið, upp undir 20 metra hátt þverhnípt bjarg. Jú, mér er sagt að þama hafí verið ókleift, en ég hélt nú alveg ró minni og einbeitti mér að þessu og þakkaði Guði fyrir, þegar ég var kominn upp á brún ... Yfímáttúr- FUÚGIÐ / JÓLAFRÍIÐ Flugleiðir hafa nú sett upp yfir 50 aukaflug innanlands fyrir jólin. Við gerum okkar besta til þess að koma öllum á ákvörðunar- stað áður en hátíðin gengur í garð. Vinsamlega bókið far tíman- lega, því síðustu ferðir fyrir jól fyllast fljótt. Til þess að forðast biðraðir á flugvelli bendum við farþegum okkar á að kaupa farmiða í söluskrifstofum okkar eða hjá ferðaskrifstofum. Söluskrifstofur Flugleiða eru: Lækjargötu 2 (Nýja bió). Hótel Esju við Suðurlands- braut. Álfabakka 10 (í Mjóddinni). Farpantanir í síma 26622. FLUGLEIÐIR fBBF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.