Morgunblaðið - 06.12.1986, Síða 61
61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986
Handbrag'ð snillinga eða tölvu? Beggja! Árangnr frábærrar sam-
vinnu rafeindaheila og mannsheila: Buick Wildcat — listaverk á
hjólum! Efst á myndinni sést þaklaust vélarrúmið og efsti hluti vélar-
innar.
nýtt áklæði á sætum. Samræma
þarf vinnu þeirra sem fjalla um
vélar, fjöðrun, málun, klæðningu,
yfírbyggingu o.s.frv. Venjulegatek-
ur meira en fimm ár að gera
hugmynd um nýjan bíl að veruleika
og það með hjálp tölvunnar! Það
er jafnvel lengri tími en sama verk
tók áður en tölvan kom til sögunn-
ar. Er þetta þá ekki þversögn! Ónei
— kröfumar um tæknilega full-
komnun hafa aukist svo gífurlega
og samkeppnin í bílaframleiðslunni,
að það verkefni sem nú tekur rúm
fimm ár að vinna með hjálp full-
komnustu tölvutækni, tæki a.m.k.
tvöfaldan þann tíma með gamla
laginu, væri jafnvel með öllu ófram-
kvæmanlegt.
Buick
Gamli Bjúkkinn sem áður og fyrr
var glæsitæki sem eftir var tekið,
verður ærið fomaldarlegur í saman-
burði við þá vagna sem nýjastir eru
frá Buick-deild General Motors. Á
sínum tíma hefur hver Buick að
vísu verið um margt sérstæður bíll.
Alla tíð hafa Bjúkkamir verið nokk-
uð fyrir augað og að auki hafa
þeir verið öflugir og vel liðtækir í
spymumeting. Enn í dag halda
Buick-bílamir sérstökum sjarma og
em auk þess í sprækari kantinum,
þótt ekki sé sú hliðin neitt í líkingu
við það sem var. Þar til nú, ef af
verður. Nýjasta afsprengi hönnun-
ardeildar Buick er e.k. áttaviti á
þá stefnu sem farin verður.
Villikötturinn
Wildcat er gamalkunnugt nafn
frá Buick. Nú hefur það fengið
nýtt líf í bíl sem er dæmigert af-
sprengi CAD. Svo er að sjá, sem
hin upphaflega hugmynd hafi ein-
faldlega verið sú, að kasta öllum
hefðum og venjum fyrir róða, búa
til eitthvað alveg nýtt (að vísu er
hægt að sjá svip með afturenda
Villikattarins og Chevrolet Corvair,
en sennilega er það tilviljun ein).
Hjá GM hefur hefðin verið sú,
að hafa vélina að framan (undan-
tekning: Corvair) og húddið langt
og voldugt, ennfremur hefur skottið
gjaman verið styttra en húddið.
Wildcat er með vélina afturí og
ekkert húdd! Hönnuðimir leituðust
við að ná fullkomnum samhljómi
loftkleyfni og formfegurðar og er
ekki annað að sjá, en að það hafí
tekist. Þá hefur það verið nokkum
veginn altæk hefð í bflaiðnaði ver-
aldarinnar, að loka vélina inni í
hesthúsinu, eins og hún sé eitthvað
til að skammast sín fyrir. Amerísk-
ir unglingar á öllum aldri hafa á
síðustu ámm farið þá leið við út-
færslu heimasmíðuðu tryllitækj-
anna sinna, að sleppa vélarhlífinni
og leyfa hvetjum sem vill að sjá
orkuverið. Nú fara Bjúkkamenn
sömu leið, vélarsalurinn er þaklaus
og þar gefur að líta V 6-Buick með
öllum þeim tæknibúnaði sem völ er
á í dag.
Wildcat mun vera í heild sinni
einskonar tæknisýning, þar er allt
sem hugsast getur af hátæknibún-
aði, en enn sem komið er hefur
fæst af því verið opinberað og enn
síður hvað bfllinn getur í akstri.
Honum hefur verið reynsluekið —
með innsigli á vélinni!
Buick Wildcat er fyrst og fremst
framtíðarsýn, gefur hugmynd um
hvert stefiiir hjá Buick á næstu
ámm, enn er óvíst hvað af búnaði
bflsins verður söluvara og hjá GM
sverja menn af sér allar áætlanir
um að framleiða þennan bfl, en —
hver veit, e.t.v. vinnur Buick, með
Wildcat, aftur þann sess, að vera
talinn eftirsóttur hörkubfll með ein-
stakan sjarma!
V
J
J
G#ÐJ«L
GLEÐILEG JÓL
Bestu jólagjatahugmyndir
ársins:
Bay Jacobsens heilsudýna og
heilsukoddi. Fyrir fjölskylduna,
virii eða þig sjálfan.
Margir velja heilsudýnu Bay
Jacobsens vegna baksins og
þeir eru svo sannarlega ánægðir
með hina frábæru eiginleika
dýnunnar. En sífellt fleiri velja
Bay Jacobsens heilsudýnu og
kodda til þess að fá góðan næt-
ursvefn svo að þeir geti vaknað
hressir og úthvíldir. Heilsudýn-
an inniheldur 80.000 litlar kúlur
sem einangra gegn kulda neð-
anfrá. Þær halda líkamshitanum
stöðugum alla nóttina. Auk þess
verka þær sem nudd á líkamann
og hafa þannig friskandi áhrif.
Það er vísindalega sannað að
nuddáhrif dýnunnar koma í
staðinn fyrir helminginn af þeim
hreyfingum sem maður annars
framkvæmir að næturlagi til
þess að finna þægilega hvíldar-
stellingu. Svefninn verður
rólegri, dýpri og lengri án hinna
mörgu truflana. Árangur: Maður
er hress og úthvíldur næsta
morgun. Dýnan er 3 cm þykk.
Fáanlegar breiddir eru
70/80/90 cm. Lengdin passar í
rúm sem eru 190-200 cm. Verð
kr. 4.860,-.
Heilsukoddinn styður fullkom-
lega við hnakka og höfuð.
Sérstaklega hannað loftrásar-
kerfi tryggir þægileg, tempruð
hitaáhrif allt árið. Verð kr. 1.960,-
Hreiðriö hefur jólagjöfina i ár -
€>
BAYJACOBSEN"
heilsudýnuna og
koddann - og þaö er 14 daga
skilafrestur
frá 24. desember.
HREIDRID
Grensásvegi 12
Simi 688140-84660
Pósthólf 8312 - 128 Rvk.
Réttindanám fyrir skipstjórnarmenn
80 rúmlesta námskeið
Á vorönn 1987 verða, ef næg þátttaka fæst, haldin 80
rj.-námskeið fyrir skipstjórnarmenn, sem starfað hafa
á undanþágu. Námskeiðin eru haldin skv. lögum nr.
112/1984.
Námskeiðið Stendur í 14 vikur og verður haldið frá
5. janúar nk. til 10. apríl (fram að páskum).
Sjómenn, sem uppfylla inntökuskilyrði og óska eftir að
hefja námið, snúi sér til eftirtalinna skóla fyrir 20.
desember nk.:
Stýrimannaskólans í Reykjavík, sími 13194.
Austurland: Verkmenntaskóla Austurlands, sími
7285 og 7620.
Menntamálaráðuneytið
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
■íslensk .
bókamenning
er
Refska, sönn lygisaga er fyrsta skáldsaga höfundar
Kristjáns J. Gunnarssonar fyrrv. fræöslustjóra í
Reykjavík.
Refska er skrifuö í gráglettnum ýkjusagnastíl og
uppfull af sjónhverfingum þar sem staöreyndin
verður fáránleiki og fáránleikinn staöreynd.
Refska gerist í oröu kveönu í árdögum íslands-
byggöar og minnir víða á íslendingasögur um brag
og túlkun. Kennir því margra grasa í þessari sönnu
lygisögu sem vaíalaust mun þykja tíðindum sæta.
Einsætt er að Refsku verður skipaö í ílokk með
sérkennilegustu og metnaðarfyllstu skáldsögum í
íslenskum nútímabókmenntum.
Refska bók sem talað verður um og 'allir þurfa að
lesa. Refska sagan um refskuna í íslenskri samtíð.
REFSKA