Morgunblaðið - 06.12.1986, Side 66

Morgunblaðið - 06.12.1986, Side 66
MORGUNBLAÖIÐ, LAUGARDÁGUR 6. DÉSEMBÉR 1986 66 Minning: Helga Ag. Asmunds■ dóttir, Grindavík Fædd 13. ágúst 1888 Dáin 25. nóvember 1986 Mig langar með örfáum orðum að minnast hennar ömmu minnar Helgu Á. Ásmundsdóttur, sem and- aðist þann 25. nóvember 98 ára að aldri. Það eru margar minningar sem koma upp í huga manns þegar litið er til baka. Þær voru til dæmis vin- sælar Grindavíkurferðimar hjá okkur systkinunum en þar bjuggu amma og afi nær allan sinn bú- skap. Það var öruggt að amma átti alltaf eitthvað gott í búrinu sínu sem vel var þegið. Amma og afi voru alla tíð mjög samrýnd og ég minnist þess þegar að ég var lítil þá hugsaði ég með mér að þegar ég yrði stór þá ætlaði ég að vera svona skotin í manninum mínum eins og hún amma var í honum afa. Haustið 1977 fluttust amma og afí á Hrafnistu í Hafnarfírði, þar sem þeim leið mjög vel. Því miður varð samvera þeirra þar ekki löng, því í mars 1978 andaðist afí og var það að vonum mikill missir fyrir ömmu. Eftir að afí dó eignaðist amma mjög góða vinkonu, Guð- björgu Jónsdóttur, og áttu þær saman margar góðar stundir. Amma var alla tíð heilsuhraust þar til í haust er hún varð að leggj- ast inn á súkrahús í fyrsta skiptið á sinni löngu ævi. Hafði hún á orði að sér fyndist mjög bagalegt að tefja starfsfólk sjúkrahússins með dvöl hennar þar. Og heim á Hrafn- istu komst hún áður en hún kvaddi þennan heim. Þrátt fyrir að amma hafi nú kvatt og þau afí séu nú saman á ný lifa minningamar um hana áfram og allt hið góða sem hún kenndi mér gleymist ekki. Hafrún Dóra í dag, laugardaginn 6. desember, verður jarðsungin frá Grindavíkur- kirkju amma mín, Helga Ágústa Ásmundsdóttir, og verður hún lögð til hinstu hvílu f Staðarkirkjugarði við hliðina á manni sfnum, Magnúsi Magnússyni. Langri vegferð er lokið, vegferð sem hófst f Þorkelgerði í Selvogi, en þar fæddist amma þann 13. ágúst 1888. Voru æviárin þvf orðin rúmlega nfutfu og átta. Hún var dóttir hjónanna Guðrúnar Einars- dóttur ljósmóður og Ásmunds Ásmundssonar bónda f Þorkelgerði. Guðrún hafði eignast eina dóttur áður en hún kynntist Ásmundi, hét hún Helga, en dó aðeins sjö ára gömul, og hét amma eftir henni. Asmundur var ekkjumaður þegar hann giftist Guðrúnu og átti hann einn son er Vilmundur hét, en hann er látinn fyrir mörgum árum. Ás- mundur og Guðrún slitu samvistir en áður höfðu þau eignast aðra dóttur, Aðalheiði. Guðrún hóf síðar sambúð með Halldóri Halidórssyni og eignuðust þau einn son, Kristin. Mjög var kært með þeim systkinum öllum svo og systkinabömum ömmu, en öll hafa þau reynst henni vel og glatt hana í ellinni með heim- sóknum og öðru. Tólf ára gömul fór amma að Krossi í Ölfusi og þótt aldurinn hafí ekki verið hár má reikna með að nokkuð hafí hún þurft að vinna fyrir lifibrauði sínu. Frá Krossi fermdist hún í Kotstrandarkirkju þegar aldur leyfði. Eftir það er hún í vist á ýmsum stöðum og meðal annars lærði hún karlmannafata- saum í Hvassahrauni. Árið 1916 ræðst hún svo hlutakona að Hrauni í Grindavík og má þá segja að lffssaga hennar hafí verið ráðin, því þar kynntist hún manni sínum, Magnúsi Magnússyni sjómanni, en þau giftust 21. desember árið 1918. Búskap sinn hófu þau á Hrauni en fluttust að Móakoti í Staðarhverfí vorið 1919. Eftir að þau hófu bú- skap f Móakoti hófu þeir útgerð saman Magnús og séra Brynjólfur Magnússon prestur á Stað. Var þá oft mannmargt heimilið í Móakoti og starfsdagur húsfreyju langur, og til marks um það var til þess tekið að amma var stundum búin að sauma heila flík þegar aðrir komu á fætur að morgni. Þau hjón eignuðust þijár dætur; Ásrúnu fædda 16. desember 1919, dóttur fædda andvana og Ástu fædda 3. nóvember 1924. Ásrún var gift Þórhalli Einarssyni bif- reiðastjóra og eignuðust þau tvö böm, þau bjuggu allan sinn búskap í Grindavík. Ásrún andaðist langt um aldur fram, þann 29. október 1969. Var það afa og ömmu mikið áfall, en guðstrúin veitti þeim styrk þá eins og alltaf áður. Ásta er gift Júlíusi Sigurðssyni skipstjóra og eiga þau fimm böm. Þau hafa allt- af búið í Hafnarfírði. Mjög var þeim afa og ömmu Staðarhverfið kært. Þar fæddust og uxu úr grasi dætur þeirra og þar sáu þau strit hversdagsins bera ávöxt. Afi hafði alltaf nokkum bú- skap, bæði kýr og kindur, samhliða sjósókninni. Kom það æði oft í ömmu hlut að annast um skepnum- ar, sérstaklega hin síðari búskapar- ár þeirra í Móakoti, því í kringum 1940 varð afi að hætta sjómennsku sökum heilsubrests og fara að vinna í landi. Þá var ekki vinnu að hafa nema í Jámgerðarstaðahverfí, því varð það að árið 1945 flytjast þau frá Móakoti að Nesi í Jámgerðar- staðahverfi. Ég, sem þessar línur rita, dvaldi oft vegna heilsubrests móður minnar langdvölum hjá afa og ömmu. Eftir að móðir mín fékk heilsuna aftur lét ég það ekki aftra mér þótt nokkur vegalengd aðskildi hverfín, að leggja land undir fót þótt stuttur væri, mislíkaði mér eitt- hvað heima. Þar var mér alltaf tekið opnum örmum og kom það þá í hlut afa að fara og gera grein fyr- ir ferðum mínum og fá þá jafíivel dvalarleyfí fyrir mig til eins eða tveggja daga. Amma vann aldrei utan heimilis, hennar starfsvettvangur var heimil- ið og umhyggja hennar fyrir sínum nánustu var sett öllu ofar. Hún var sérstaklega nærfærin við sjúka og var oft leitað til hennar í sambandi við slíkt, sjálfsagt hefur hún margt lært af Guðrúnu móður sinni, en hún var með fyrstu lærðu ljósmæðr- um þessa lands. Guðrúnu og mann hennar, Halldór, tóku amma og afi til sín að Móakoti og dvöldust þau hjá þeim til æviloka og eru þau bæði jarðsett í Staðarkirkjugarði. Fæðingarsveit ömmu, Selvogur- inn, var henni alltaf mjög kær, hún ljómaði alltaf þegar minnst var á þann stað og Strandarkirkja var svo sannarlega hennar guðshús. Þegar árin færðust yfír og þeim hjónum fannst þau ekki geta að öllu leyti séð um sig sjálf ákváðu þau að fara á dvalarheimili fyrir aldraða og 9. nóvember 1977, þeg- ar Hrafnista í Hafnarfirði var vígð, urðu þau fyrstu vistmennimir þar. Þá voru þau komin í nábýli við Ástu dóttur sína, Júlíus mann henn- ar og böm þeirra. Þegar þau fíuttu frá Grindavík fannst langafa- og ömmubömunum hér æði tómlegt þegar ekki var lengur hægt að koma við f Nesi og heilsa upp á þau, en minningin um þessi góðu hjón fylgir þeim langt út yfír gröf og dauða. Dvöl afa á Hrafnistu var stutt en góð, hann andaðist í svefni 15. mars 1978. Þá sýndi amma enn einu sinni hvílíkur kjarkur og æðru- leysi henni var gefíð. Almættið hlúir að þeim sem á það treysta. Ámma var alla tíð mikil hann- yrðakona og þegar amstur hvers- dagsins minnkaði sat hún öllum stundum við að sauma, hekla eða pijóna og eiga bamaböm og fleiri ættingjar hennar margt fallegt eft- ir hana. Þótt amma hafí verið komin á nítugasta og níunda aldursárið hélt hún fullri dómgreind allt fram á síðustu daga. Hún hafði stálminni og var hafsjór af fróðleik bæði úr fortfð og nútíð, því alla tíð fylgdist hún vel með atburðum líðandi stundar. Þessir síðustu haustmán- urðir urðu henni erfíðir því þá veiktist hún þannig að hún fann að leiðarlok vom í nánd en það var hún farin að þrá. Nú að Ieiðarlokum er mér efst í huga þakklæti til þessarar góðu konu sem í engu mátti vamm sitt vita. Þakklæti til allra sem reynd- ust henni svo vel, þar ber fyrst að telja dóttur hennar Ástu, Júlíus mann hennar og þeirra böm, því varla leið sá dagur að eitthvert þeirra kæmi í heimsókn og gleddu hana með nærveru sinni. Forstöðu- og starfsfólki Hrafnistu í Hafnar- fírði eru færðar alúðarþakkir fyrir þá góðu umönnun sem hún naut þar og þessu fólki var hún innilega þakklát. Sérstakar þakkir vil ég færa Guðbjörgu Jónsdóttur frá Sjónarhóli í Hafnarfírði fyrir þá miklu tryggð og vináttu sem þessi aldna heiðurskona sýndi ömmu, en hún sat við sjúkrabeð hennar svo oft sem hún gat uns yfír lauk. Að t Eiginmaöur minn og faöir okkar, KRISTMUNDUR BALDURSSON, verkstjóri, Njarðvflcurbraut 22, Njarövflc, varð bráökvaddur fimmtudaginn 4. desember. Björg Krlstlnsdóttlr, Pálína, Anna, Hulda, Broddi. t Eiginkona mín og móöir okkar, ÞÓRDÍS HÓLM SIQURÐARDÓTTIR, andaöist á Landspítalanum 4. desember. Guölaugur Stefánason, Sólveig og Hllmar. t Útför móður minnar, GUÐMUNDU BJARNADÓTTUR, Lönguhlfö 23, fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 8. desember kl. 13.30. Grótar Sigurösson. t Þökkum auðsýnda samúð og vináttu viö fráfall og útför, ÁGÚSTS ÞORVALDSSONAR, á Brúnastöðum, Guö blessi ykkur öll. Ingveldur Ástgeirsdóttlr, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu viö fráfall eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ARA L. JÓHANNESSONAR, Neöstutröö 2, Kópavogi. Áágeröur Einarsdottir, Einar Arason, Karl Arason, Jóhannes Arason, Arnfrföur Aradóttir, Haukur Matthfasson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug viö fráfall og útför bróður okkar og mágs, ÓLAFS ALBERTSSONAR, frá Hesteyri. Elfsabet Albertsdóttir, Emilfa Albertsdóttir, Helga Albertsdóttir, Borghild Albertssori, Hrefna Magnúsdóttir og systkinabörn. endingu vil ég þakka ömmu fyrir allt sem hún var mér og fjölskyldu minni. Ég hef þá trú að hún sé nú komin til æðri og betri heima og hafí sameinast þeim sem á undan eru farnir og henni voru kærir. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ Ættingjum og vinum hennar sendi ég dýpstu samúðarkveéyur. Hönd Guðs leiði ykkur. Kristinn H. Þórhallsson Helga Ásmundsdóttir fæddist í Nesi í Selvogi 1888 og ólst þar upp. Leiðin lá síðan til Grindavíkur, þar sem hún bjó í nær 60 ár, þar af 25 ár í Móakoti í Staðarhverfi. Þar verður hún jörðuð í dag. Helga varð rúmlega 98 ára göm- ul. Á afmælisdaginn í sumar dvaldi hún langa stund með ættingjum og vinum og gjörði þeim glaðan dag. Þess minnumst við nú og margra góðra og skemmtilegra smaveru- stunda. I glímu sinni við Elli kerl- ingu hélt hún vel skýrleik sínum og minni. Frásagnir hennar frá löngu liðnum tíma eru lifandi og eftirminnilegar, hvort sem var frá vinnumennskuárum austur í sveit- um nálægt aldamótum eða lífinu í Staðarhverfí og atburðum þar. Sá er þetta ritar tengdist §öl- skyldu Helgu fyrir 12 árum og þakka ég henni umönnun og nær- gætni við mig og mína fyrr og síðar. Hún fylgdist ótrúlega náið með högum síns fólks og engu líkara en hún fyndi á sér hvemig leið. Það var unun að fylgja smáum langömmubömum á hennar fund og sjá hvemig hún náði til þeirra með hlýju og einlægni og hve þau virtu hana og dáðu. Þannig held ég að þetta hafí verið með alla ættliði fjölskyldunnar. Hún náði til þeirra yngstu og hélt traustum böndum við þá eldri og naut virðing- ar þeirra og aðdáunar. Fyrir þetta og margt fleira á hún þökk okkar allra. Hvfl í friði. Stefán Bergmann Þegar ég sest niður til þess að skrifa nokkur kveðjuorð til langömmu minnar, Helgu Ás- mundsdóttur, er vissulega margt sem mér kemur í hug. Ég skil hve heppin við bamaböm hennar vorum að fá að alast upp við ástríki slíkrar konu sem hún var. Við dáðumst oft að þvi hversu fordómalaus hún var gagnvart okk- ur, unga fólkinu, við áttum alltaf skilning hennar vísan hvað sem við tókum okkur fyrir hendur. Það var aldrei neitt kynslóðabil í samskipt- um hennar við okkur. Bama- og bamabamabömin áttu hug og hjarta ömmu. Það var notalegt til þess að vita að hún fylgdist með okkur og mundi eftir okkur hveiju og einu. Amma hafði minni á við unga stúlku og það var alltaf gaman að spjalla við hana því hún var vel inní flestum þeim málum sem hæst bar hveiju sinni. Sérstaklega fylgd- ist hún með málum er vörðuðu Grindavík. Mér er það minnisstætt þegar ég heimsótti hana í haust og hún lá fársjúk, þá spurði hún mig hvort ekki gengi vel með laxeldið í Staðarhverfinu. Amma gat einnig sagt okkur sögur og ýmsan fróðleik frá uppvaxtarárum sínum og bú- skapnum í Staðarhverfínu. Þegar amma og afí bjuggu í Nesi hér í Grindavík vorum við systkinin oft daglegir gestir, þar var alltaf gaman að koma. Afí hafði einnig sterkan persónuleika, svo hress og skemmtilegur sem hann var. Það var því engin lognmolla í kringum þau hjónin og oft glatt á hjalla í Nesi sérstaklega þegar allir afkomendur þeirra voru saman komnir í litla húsinu. Vissulega söknuðum við þess að geta ekki komið við í Nesi eftir að amma og afí fluttust á Hrafnistu í Hafnar- firði, en við heimsóttum þau þangað þegar við gátum. Nú þegar þau eru bæði horfín okkar sjónum eigum við margar og góðar minningar eftir. Systkini mín, maðurinn minn og dóttir þökkum elsku ömmu sam- fylgdina. Valdís Inga Kristinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.