Morgunblaðið - 06.12.1986, Page 78

Morgunblaðið - 06.12.1986, Page 78
Bobby Robson ráðinn fram yfir HM á Ítalíu - Bryan Robson hefur góð laun Frá Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaðsins á Englandi. BOBBY Robson, þjáifari enska landsliðsins, hefur gert samning við enska knattspyrnusambandið fram yfir næstu heimsmeistara- keppni á Ítalíu 1990. Hann mun hafa um 75 þúsund pund í árs- tekjur hjá sambandinu. Wimbledon, sem kom upp úr 2. deild í fyrra, vill fá að setja upp gervigrasvöll. Tíu félög í deildar- keppninni vilja setja upp gervigra- svöll. Nú eru fjögur lið með gervigras í Englandi QPR og Lu- ton, sem leika í 1. deild, og Oldham og Preston. Vikukaup Robsons 145 þúsund íslenskar Það kostar mikla peninga að reka knattspyrnulið eins og Manc- hester United. Ellefu leikmenn v United hafa meira en 50 þúsund pund á ári, eða um 3 milljónir íslenskar. Tekjuhæstur þeirra er fyrirliðinn, Bryan Robson, hann hafði um 2400 pund (145 þúsnd íslenskar) á viku. Hann lék aðeins 26 leiki á síðasta keppnistímabili og hefur því haft um 4800 pund (290 þúsnd íslenskar) fyrir hvern leik, sem gerir 55 pund fyrir hverja mínútu sem hann spilaði. Fer Bearndsley til Liverpool? Nú eru uppi háværar raddir í Engalndi um að Peter Bearndsley, Newcastle, verði næsti kónungur á Anfield Road í Liverpool. Hann er sagður kjörinn til að taka stöðu Kenny Dalglish hjá liðinu. Bearnds- ley er þó ekki falur fyrir minna en tvær milljónir punda, hann er samningsbundinn hjá Newcastle til þriggja ára. Það er þó ekki talið útilokað að Liverpool kaupi hann þegar lan Rush fer til Juventus. • Bobby Robson, landsliðs þjálfari Englendinga. Skíði: Daníel f 20. sæti á sterku móti f Frakklandi DANÍEL Hilmarsson, skíðamaður frá Dalvík, hafnaði f 20. sæti af 130 keppendum á sterku svig- móti í Valthorens í Frakklandi á fimmtudaginn. Flestir af bestu skíðamönnum heims tóku þátt í mótinu og sigr- aði Bandaríkjamaðurinn Felix McGrath á tímanum 1.33,58 mínútum. Grega Benedik, Júgó- slavíu, varð annar á 1.33,83, er. hann varð sjötti í fyrsta svigi heimsbikarsins um síðustu helgi. Þriðji varð Austurríkismaðurinn, Bernhard Knauss, á 1.33,91 mín. Tími Daníels var 1.39,83 mínúta, sem er nokkuð góður árangur þeg- ar tekið er tillit til þess að þetta var fyrsta keppni hans í vetur. Guðmundur Sigujónsson féll úr keppni í fyrri ferð en hann hafði mjög slæmt rásnúmer, eða 105. • Danfel Hilmarsson Rok Petrovic, sem sigraði í svig- keppni heimsbikarsins í fyrra, varð í þriðja sæti eftir fyrri ferð en féll út í seinni. íþróttafólk heiðrað í Vestmannaeyjum: Birgir Ágústsson íþróttamaður Vestmannaeyja - Radinka Hatzig hlaut Guðlaugsbikarinn Vestmannaeyjum. VESTMANNAEYINGAR hafa valið fþróttamann ársins 1986 og veitt ýmsar aðrar viðurkenn- ingar til afreksfólks f fþróttum. Þetta er árlegur viðburður í Eyjum á þessum árstfma og ávallt er beðið með eftirvænt- ingu efir fréttum af þvf, hvaða fþróttafólk hampar hinum glæsilegu og eftirsóttu verðlau- nagrlpum sem veíttir eru af- reksfólkinu. Á ársþingi ÍBV um síðustu helgi var kunngert um val íþrótta- manns Vestmannaeyja 1986 og varð Birgir Ágústsson, 16 ára gamall golfleikari, fyrir valinu að þessu sinni. Sérstök valnefnd innan ÍBV komst að samdóma áliti um þessa útnefningu. Birgir er kornungur og stórefnilegur golfspilari sem hefur staöiö sig mjög vel á golfvellinum og vakið athygli. Hann varð unglinga- meistari íslands í fyrra og lék i sumar með unglingalandsliðinu í Belgíu. Þrátt fyrir ungan aldur sigraði Birgir í nokkrum sterkum mótum í Eyjum í sumar og var framarlega í mfl. á meistaramóti GV. Hann varð unglingameistari Vestmannaeyja í golfi í ár. Birgir er einnig sundmaður góður og keppir með hinni dugmiklu sunddleild ÍBV. Þá var og kunngert á árs- þinginu hvaða sundmaður hefði hlotið hinn stórglæsilega Guð- laugsbikar í ár. Þennan bikar gaf ÍSÍ til minningar um hið frækilega sundafrek Guðlaugs Friðþórs- sonar á sínum tíma. Bikarinn er veittur þeim sundmanni ÍBV sem nær bestum meðalárangri i hin- um fjórum 100 metra sundgrein- um. Það var hin stórefnilega sundstúlka, Radinka Hadzig, sem hlaut Guðlaugsbikarinn ann- að árið í röð. Hún hefur verið dugleg við að bæta Vestmanna- eyjametin og staðið sig með mikilli prýði á mótum þeim sem hún tók þátt í á þessu ári. Rad- inka hlaut 445,5 stig en næstur henni að stigum varð Arnoddur Erlendsson með 444,875 stig. Þriðji í röðinni varð síðan Birgir Ágústsson, íþróttamaður Vest- mannaeyja. Sundfólk ÍBV hefur staðið sig mjög vel á þessu ári og hefur verið mikil drift í sunddeildinni undanfarin ár. Deildin er ekki fjöl- menn en krakkarnir hafa sýnt frábæran áhuga og mikla elju- semi við æfingar og keppni. Foreldrar krakkana hafa stutt og starfað með þeim af mikilli fórn- fýsi og áhuga. Sundfólk úr Eyjum stóð sig vel á mörgum mótum á árinu og lið ÍBV vann 3. deild bikarkeppninnar í sundi með yfir- burðum. Fjölmörg Vestmanna- eyjamet hafa fallið á þessu ári. Árlega eru útnefnd Sund- drottning og Sundkongur Morgunblaöið/Sigurgeir • Radinka Hatzig hlaut Guðlaugsbikarinn annað áriA í röð. Hún ar hór ásamt Guðlaugi Friðþórssyni og Guðmundi Þ.B. Ólafssyni formanni ÍBV. Vestmannaeyja. Þau sæmdar- heiti hljóta þau sem vinna bestu afrekin á meistaramóti Vest- mannaeyja í sundi samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu. í ár hlutu þessi sæmdarheiti þau Radinka Hadzig og Arnoddur Erlendsson. -hkj. • Birgir Ágústsson, iþróttamaður Vestmannaeyja 1986.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.