Morgunblaðið - 06.12.1986, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986 79
Heimsbikarinn:
Jón Páll ívatnsrúm?
JÓNI Páli var í gœr afhent Innsiglað umslag af eigendum verslunarinnar Vatsrúm í Brogartúni 29.
Umslag þetta má Jón ekki opna fyrr en á miðnœtti á gamlárskvöld þannig að hann veit ekki enn hvað er
f þvf.
Fyrirtækið hét á Jón ef honum tækist að endurheimta titilinn „Sterkasti maður heims" og er áheit þetta
í umslaginu. Hvort það er vatsrúm sem Jóni er heitið skýrist ekki fyrr en á nýju ári, en þangað til býður
Jón og vonar að hann geti hvílst næstu árin í vatnsrúmi.
• Það gekk mikið á þegar UBK vann Fram f Höllinni fyrir skömmu 19:21. Um helgina leika Framarar
við Víkinga og Breiðablik tekur á móti Valsmönnum f Digranesi. Báðir leikirnir hefjast klukkan 20 á sunnu-
dagskvöldið.
íþróttir helgarinnar:
- UBK gegn Val og Víkingur mætir Fram
MIKIÐ verður um að vera f bolta-
íþróttum um þessa helgi. Heil
umferð verður í 1. deild karla og
kvenna í handknattleik og einnig
verða margir leikir f neðri deild-
unum. Fjölmargir leikir verða á
íslandsmótinu í körfuknattleik og
blaki.
Handknattleikur
Haukar og KA mætast í 1. deild
karla í Hafnarfiði i dag kl. 14. Á
morgun leika Stjarnan og KR í
Digranesi kl. 14. Annað kvöld kl.
20 leika Breiðablik og Valur í Digra-
nesi, Víkingur og Fram í Laugar-
dalshöll og FH og Ármann í
Hafnarfirði.
Þrír leikir verða í 1. deild kvenna
í dag, laugardag. Fram og Víkingur
ieika í Laugardalshöll kl. 14. og
síðan leika KR og Ármann strax á
eftir. ÍBV og FH leika í Vestmanna-
eyjum kl. 14.45. Stjarnan og Valur
leika í Digranesi á morgun kl.
15.15.
Körfubolti
Tveir leikir fara fram í úrvals-
deildinni á morgun. Fram og
Njarðvík leika í Hagaskóla kl. 14
og KR og Valur leika á sama stað
kl. 20.
KR og ÍBK leika í 1. deild kvenna
í Hagaskóla kl. 15.30 á morgun. Á
Akureyri leika Þór og ÍS í 1. deild
karla í dag kl. 14 og á morgun leika
Breiðablik og Grindavík í Digranesi
kl. 17.
Blak
Þrír leikir verða á íslandsmótinu
í blaki í dag, tveir á Akureyri og
einn í Digranesi. KA og Fram leika
í 1. deild karla kl. 14 og í kvenna-
deildinni leika KA og Breiðablik kl
15.45. Báðir þessir leikir eru á
Akureyri. í Digranesi leika HK og
HSK í karlablakinu og hefst leikur-
inn klukkan 16.45.
Badminton
Um helgina fer fram opið af-
mælismót í badminton í iþrótta-
húsinu á Selfossi. Keppt verður í
A- og B-flokki.
Keila
Síðasta umferðin fyrir jól í 2.
deild íslandsmótsins í keilu fer
fram í dag og hefst kl. 17.30. Inn-
anhússmót Coca Cola í keilu fer
fram á morgun og hefst kl. 11.30.
Hlaup
í dag fer fram víðavangshlaup
UMFK í Keflavík. Hlaupið hefst kl.
14 við íþróttavallarhúsið við Hring-
braut. í kvennaflokki 15 ára og
eldir, drengjaflokki 15—18 ára og
karlaflokki verða hlaupnir 8 km. í
flokkum 14 ára og yngri verður
hlaupnir 4 km bæði í telpna- og
piltaflokkum. Verðlaun verða fyrir
fyrsta sæti í öllum flokkum.
Fimleikar
Bikarmót Fimleikasambands ís-
lands í fimleikum kvenna og karla
fer fram í Laugardalshöll kl. 14.15
á morgun, sunnudag. Alls eru 72
þátttakendur í mótinu og koma
þeir frá fjórum félögum.
Stórleikir í
handboltanum
Zurbriggerv
eykurenn
forystuna
PIRMIN Zurbriggen frá Sviss jók
í gær forystu sína í heimsbikar-
keppninni á skíðum er hann vann
brunkeppni sem fram fór i
frönsku ölpunum. Zurbriggen er
nú með 75 stig í keppninni um
heimsbikarinn og hefur nokkurt
forskot á Muller sem er í öðru
sæti.
Þessi sigur var mjög mikilvægur
fyrir Zurbriggen því þetta var fyrsti
sigur hans í Evrópu í rúmt ár og
veitir honum eflaust sjálfstraust í
þeim mótum sem eftir eru í
Evrópu.
í fyrra meiddist Zurbriggen í
þessari sömu braut með þeim af-
leiðingum að hann varð að hætta
keppni í nokkrar vikur og kostaði
það hann trúlega titilinn í fyrra.
í gær geystist Zurbriggen niður
hina 3.354 metra löngu braut á
tveimur mínútum 0.98 sekúndum
og var sigur hann nokkuð öruggur
því Markus Wasmeier frá Þýska-
landi varð annará2:01.15 sekúnd-
um. í þriðja sæti varð Michael
Mair frá Ítalíu á 2:01.34 og Stefan
Niederseer frá Austurríki varð
fjórði á 2:01.65. Landi Zurbriggen,
Peter Múller, varð í fimmta sæti á
2:01.74.
„Þetta var mikilvægur sigur fyrir
mig. Ég var dálítið hræddur vegna
meiðslanna sem ég fékk hér í fyrra
en þegar ég kom að staðnum þar
sem ég datt þá ákvað ég að láta
bara vaða. Ég held ég hafi stokkið
eina 70-80 metra þarna og það var
ekkert mál,“ sagði Zurbriggen eftir
að hann kom í mark.
„Ég er búinn að býða í þrjú ár
eftir því að byrja vel í keppninni
og nú finn óg að ég get unnið þau
mót sem ég tek þátt í þannig a£^
ég ætti að hafa góða möguleika a
að vinna titilinn," sagði svisslend-
ingurinn hinn ánægðasti með
sigurinn.
Röð efstu manna í keppninni um
heimsbikarinn er nú þannig:
Zurbriggen ............. 75 stig
Muller ................. 51 stig
Richard Pramotton ...... 40 stig
Heinzer ................ 39stig
Wasmeier ............... 37 stig
Alpiger ................ 34stig
Stock .................. 34 stig
Stenmark ............... 25stig
JoelGaspoz ............. 23stig
Hubert Strolz .......... 23 stig
JonasNilson ............ 20stig
Girardelli ............. ISstig^,..
Sigurður
setti
sveinamet
SIGURÐUR Þorleifsson setti f
vikunni glæsilegt sveinamet í
langstökki á innanfélagsmóti hjá
KR sem haldið var í Baldurshaga.^
Sigurður stökk 6.65 metra en
eldra metið átti Sigurður Sigurðs-
son og var það 6.59 metrar.
Sigurður er aðeins 16 ára gam-
all og á framtíðina fyrir sér í þessari
grein. „Þessi drengur á eftir að ná
langt. Hann er „super maður" og
á eftir að stökva yfir sjö metrana
á næstunni," sagði Valbjörn Þor-
láksson í samtali við Morgunblaðið
en Valbjörn þekkir vel til Sigurðar.
Morgunblaðið/Bjarni
Millertil Hibs
Frá Bob Hennessy, fréttaritara Morgunblaðslns á Englandi.
SKOSKA fólagið Hibernian hefur
ráðið til sfn nýjan framkvæmda-
stjóra fyrir John Blackley sem var
Leiðrétting
FUNDUR HSÍ með forráðamönn-
um handknattleiksdeilda verður f
dag klukkan 14 en ekki á morgun
eins og við sögðum á miðviku-
daginn.
rekinn fyrir hálfum mánuði. Sá
nýji heitir Alex Miller og er stjórl
hjá St. Mirren og hefur verið þar
f tvö ár.
Miller mun stjórna Hibs í dag á
heimavelli gegn Rangers en ekki
er enn vitað hver tekur við hjá St.
Mirren. Forráðamenn Hibs fengu
hvorki fleiri né færri en 50 umsókn-
ir um stöðu framkvæmdastjóra
félagsins og þeir völdu sem sagt
Alex Miller úr þeim hópi.