Morgunblaðið - 07.03.1987, Side 9
V8GJ S5JAM .V JíUOAOÍIAOTIA,! GTOA.IHMTJOOOM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MARZ 1987
8
9
Innflytjendur
athugið!
Ms. Combi Alfa
jestartil íslands: Næsta lestun:
í Rotterdam 9. mars Rotterdam í 15. viku
í Bremerhaven 11. mars
í Kaupm.höfn 13. mars Kaupm.höfn í 16. viku
Nánari upplýsingar í síma 96-27035.
Ath. framvegis verður siglt til Kaup-
mannahafnar í stað Esbjerg.
Umboðsmenn erlendis:
Kaupmannahöfn: E. A. Bendix, Adelgade 17,
telex: 15643, sími: 1113343
Rotterdam: Oil Shipping, St. Jobsweg 30, telex:
22149, sími: 10425239.
Bremerhaven: Karl Mestermann, Kalkstrasse 2,
telex: 244166, sími: 421170431.
Kaupskip hf.
Box 197
Strandgötu 53, 602 Akureyri
HUGBÚNAÐUR
BHMHUHHHRHHmCESHBi
ri
SÖLUAÐILAR:
EINAR J. SKÚLASON
GRENSÁSVEGI10
SKRIFSTOFUVÉLAR HF
HVERFISGÖTU 33
ÖRTÖLVUTÆKNI HF.
ÁRMÚLA 38
TÖLVUTÆKI SF.
AKUREYRI
HUGSJÓN HF.
ÍSAFIRÐI
GÍSLI J. JOHNSEN SF.
NÝBÝLAVEGI 16
RÁÐGJAFASTOFAN
BÍLDSHÖFÐA 18
HEIMILISTÆKI HF.
SÆTÚNI 18
r:
HUGBUNADUR
SOFTVER SF £
SKEIFAN 17 108 REYKJAVÍK SÍMI 91-687145
Lesefni í stórum skömmtum!
Uppgjörnýja
oggamla
tímans
Hagsmunabarátta eða pólitík?
Hinar árlegu kosningar til stúdentaráðs og háskólaráðs verða
12. mars nk. Þrír listar eru í framboði: Vaka, félag lýðræðissinn-
aðra stúdenta, Félag vinstri manna og Félag umbótasinnaðra
stúdenta. í vetur hefur Vaka haft forystu í stúdentaráði og lagt
áherslu á það, að setja hagsmunamál stúdenta á oddinn og
halda flokkspólitískum ágreiningsefnum utan ráðsins. Kosning-
arnar snúast um það, hvort þessari farsælu stefnu verður áfram
fylgt eða vinstri stefna með öllum sínum fylgikvillum verður
hafin til vegs á ný.
Sveinn Andri Sveins-
son, laganemi, skipar
efsta sætið á lista Vöku
til stúdentaráðs. Hann
segir í viðtali við Vöku-
blaðið, sem nýkomið er
út: „Ég lít svo á, að núna
eigi sér stað ákveðið upp-
gjör; uppgjör á milli
gamla og nýja tímans.
Gamli tíminn er sú óöld,
þegar stúdentaráð sat i
sínum fílabeinstumi úr
öllum tengslum við hinn
almenna ' stúdent og
ályktaði um alla mögu-
lega og ómögulega hluti,
en vanrækti algerlega
lúna eiginlegu hags-
munabaráttu. Nýi tíminn
er sú stefna, sem haldið
hefur verið uppi undan-
farin misseri; öflug
hagsmunabarátta óháð
flokkspólitískum hags-
munum.“
Og Sveinn Andri segir
ennfremur: „Að minu
mati hefur stúdentaráð
tvenns konar hlutverki
að gegna, annars vegar
er það stéttarfélag stúd-
enta við Háskóla Isiands
en hins vegar er það sam-
einingarafl í félagslífi
liinna ýmsu deilda. Sumir
vilja þó stundum halda
því fram, að stúdentum
sé fátt óviðkomandi og
má það sjálfsagt til sanns
vegar færa. Hins vegar
er stúdentaráð ekki rétti
vettvangurinn fyrir mál,
sem ekki snerta stúdenta
beint. Ráðið hefur fyrir
það fyrsta alls ekkert
umboð til þess að álykta
um slík mál, auk þess sem
slík umræða hlyti alltaf
að gera störf ráðsins
ómarkviss. Gætu menn
t.d. ímyndað sér stjóm
Strætisvagna Reykjavík-
ur álykta um kosningam-
ar á Filippseyjum?“
í viðtalinu er Sveinn
Andri spurður um helstu
hagsmunamál stúdenta
og hann svarar: „Þau
mál em vitaskuld mörg,
sem brenna á stúdentum,
en það mál sem ég tel
mestu varða er leiðrétt-
ing á framfærslunni.
Stúdentar verða einnig
að standa vörð um hags-
muni sina varðandi
breytingar á lögum um
Lánasjóðinn; það er all-
sendis óvíst að okkur
takist jafnvel upp í vam-
arbaráttunni og nú i
vetur. Lánamálin em þau
mál sem mér em mest
hugleikin, enda er ég
einn af þeim ólánsömu
mönnum, sem skrimta
verða á 22.000 krónum á
mánuði. Það hefur mér
tekist það illa, að ég verð
að vinna með námi. Eins
og nútímakröfur em í
háskólanámi, er það afar
hæpið að stunda vinnu
samhliða nárni."
Virk hags
munabarátta
Valborg Snævarr skip-
ar efsta sætið á lista
Vöku til háskólaráös.
Hún er spurð að því í
Vökublaðinu, hver sé
ástæðan fyrir framboði
hennar. Valborg segir:
„Ef farið hefði verið
fram á það við mig fyrir
3 árum, að ég færi í
framboð, hefði ég sjálf-
sagt hlegið mig vitlausa.
Mér fannst stúdenta-
pólitíkin hreint fáránleg.
Menn vom þar að leika
„Mini-Alþingi“, og
ályklta um mál, sem ekki
koma stúdentum við og
eyddu í það tíma í stað
þess að vinna að virkri
hagsmunabaráttu. í vet-
ur a.m.k. hefur allt annað
verið upp á teningnum.
Gamla pólitíkin er komin
út og farið að gera eitt-
hvað í málum og á
breiðari grundvelli. Há-
skólaráð heillar mig,
enda miklir alvöruhlutir
að gerast þar og mjög
gott ef manni tækist að
hafa álirif á mótun og
þróun þessarar stofnun-
ar, sem er manni í raun
mjög kær.“
Síðar í viðtalinu segir
Valborg Siiævarr: „Há-
skólaráð er fjölmennt
stjómvald, þar sem full-
trúar námsmanna em í
minnilduta. Því getur
það verið erfitt að gefa
stór fyrirheit. Mitt fyrir-
heit er hins vegar, að
gæta hagsmuna stúdenta
í hvívetna og til þess að
það verði vel gert og til
að hagsmunamál stúd-
enta öðlist hljómgrunn
meðal annarra háskólar-
áðsliða, þarf að undirbúa
vel allar tillögur og
kynna. Þetta er ég reiðu-
búin að gera.“
Stefna Vöku
I Vökublaðinu er birt
stefnuskrá Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúd-
enta, í hagsmunamálum
stúdenta og málefnum
háskólans. I lánamálum
námsmanna leggur fé-
lagið mesta áhersiu á, að
jafnir möguleikar til
náms verði tryggðir. Fé-
lagið viU síðan, að
framfærslugmndvöUur
lánanna tengist verðlagi,
vöxtum á námslán er
hafnað svo og lántöku-
og innheimtugjaldi. Þá
er hvatt til þess, að end-
urgreiðslur verði sveigj-
anlegar og 1. árs neniar
sitji við sama borð og
aðrir.
Vaka viU, að Félagss-
stofnun stúdenta veiti
góða og fjölbreytta þjón-
ustu, en Ieggur jafnframt
áherslu á lxagkvæman
rekstur er standi undir
sér. I málefnum stúdent-
aráðs er það, sem fyrr
segir, eitt aðalmál félags-
ins, að ráðið verði fyrst
og fremst vettvangur
hagsmunamála stúdenta,
en landsmála- og ut-
anríkispólitík finni sér
annan farveg. í málefn-
um Háskóla íslands
fylgir Vaka þeirri stefnu,
að öflugur háskóli sé for-
senda framfara. Félagið
viU standa vörð um sjálf-
stæði skólans og leggur
áherslu á, að skólinn afli
sér eigin tekna í auknum
mæli. í því sambandi
bendir félagið á sam-
vinnu við atvinnulífið,
t.d. á sviði ýmissa þjón-
usturannsókna. „Gæta
verður þess þó í slíku
samstarfi að hvergi sé
vegið að sjálfstæði skól-
ans sem akademískrar
rannsóknar- og vísinda-
stofnunar," segir orðrétt
í stefnuskránni.
ÚRUALS
FILMUR
Kvnninaarverö
bensínstöðvum
m
Konur
Konur
Kvennadeild Fáks heldur sitt árlega skemmtikvöld
í félagsheimilinu 14. mars kl. 19. Matur og
skemmtidagskrá.
Munum eftir sparihöttunum.
Miðar seldir á skrifstofu Fáks 9.-13. mars.
Ath! Miðar ekki seldir á laugardag né við inngang.
Húsið opnað fyrir karlmenn kl. 24.
Kvennadeildin.
i 1
s Metsölublad á hverjum degi!