Morgunblaðið - 23.04.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
C 35
+
Skoðana-
leysi eldri
borgaranna?
eftir Garðar Jóhann
Guðmundsson
Morgunblaðið hefur undanfarið
látið Félagsvísindastofnun Háskóla
íslands gera nokkrar skoðanakann-
anir fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Ymsar niðurstöður hafa verið
fengnar út úr þeim tölum, sem þar
komu fram, þó ekki hafi Sjálfstæð-
isflokkurinn haft þor til að birta
þær allar.
Ég ætla að láta liggja milli hluta
allar þær rangtúlkanir, og beinar
rangfærslur, sem Morgunblaðið
hefur leyft sér að matreiða ofan í
landsmenn, sem sannleik frá æðstu
menntastofnun landsins. En — það
væri verðugt rannsóknarefni fyrir
Félagsvísindastofnun að kanna
hvers vegna þessi stofnun, sem mér
skilst að eigi að vera hlutlaus, hef-
ur ekki mótmælt meðferð Morgun-
blaðsins á þeim tölum, sem
stofnunin hefur látið blaðinu í té.
Slíkt mun kallað sjálfsgagnrýni, og
Félagsvísindastofnun ætti að leggj-
ast undir feld og hugleiða sinn
gang. Stofnun sem kennir sig við
vísindi getur ekki látið leggja nafn
sitt við slík vinnubrögð. Ég gef mér
þær forsendur að Morgunblaðið
hafi túlkað niðurstöðumar. Ef túlk-
animar em aftur á móti ættaðar
frá Félagsvísindastofnun, er um
miklum mun alvarlegra mál að
ræða.
Þetta var ekki það sem ég ætl-
aði að fjalla um. í þessum skoðana-
könnunum hefur verið sett hámark
á aldur þeirra, sem spurðir hafa
verið. í einu tilfellinu var hámarks-
aldur 70 ár, og í öðm 75 ár. Nú
er það alkunn staðreynd, að íslend-
ingar leggjast almennt ekki í kör,
hvorki á 70. afmælisdegi sínum,
né heldur er þeir verða 75 ára.
Þetta fólk hefur unnið hörðum
höndum og hefur skilað okkur inn
í tuttugustu öldina á einum manns-
aldri — verk, sem tók aðrar þjóðir
nokkra mannsaldra.
En, samkvæmt skilgreiningu-
Morgunblaðsins og Félagsvísinda-
stofnunar Háskóla íslands, er þetta
fólk annað hvort skoðanalaust, eða
ekki þess vert að leita eftir áliti
þess. Nöturlegri dóm er erfítt að
kveða upp yfír þeirri kynslóð, sem
við eigum lífsmáta okkar að þakka.
Nú er mér kunnugt um, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur gert út hóp
fólks til að bjóða fólki á elliheimilum
„Persónulega þekki ég
margt fólk á þessum
aldri, og ég veit að þessi
aldurshópur fylgist bet-
ur með þjóðmálum, en
margir þeir sem yngri
eru.“
akstur á iqorstað. Þessi aldurshópur
er sem sagt nógu góður til að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn, en hann má
ekki hafa skoðun á málunum. Þessi
tvískinnungur er svo ógeðfelldur,
að ég vil helst ekki hugsa þá hugs-
un til enda, hvað að baki liggur.
Persónulega þekki ég margt fólk á
þessum aldri, og ég veit að þessi
aldurshópur fylgist betur með þjóð-
málum, en margir þeir sem yngri
eru.
Þetta er fólkið sem man Hannes
Hafstein, Jón Þorláksson og Bjöm
Jónsson. Þetta er fólkið sem kaus
Ólaf Thors á þing. Þetta er fólkið
sem fjölmennti til Þingvalla 1930
og 1944. Þetta er fólkið sem greiddi
atkvæði um sambandsslit Dana og
íslendinga. Þá hafði þetta fólk skoð-
anir, og þær fastmótaðar. Þetta
fólk hefur ennþá skoðanir, og þær
eru líka fastmótaðar. Vandi Sjálf-
stæðisflokksins er bara sá, að þetta
fólk vill milda stefnu, einmitt þá
stefnu, sem Borgaraflokkurinn boð-
ar. Þetta fólk vill ekki ískalda
ftjálshyggju Sjálfstæðisflokksins.
Og þá erum við líklega komin að
kjama málsins — Morgunblaðið er
hrætt um að Borgaraflokkurinn eigi
mikil ítök í hugum þessa fólks, og
‘þá er auðvitað hættulegt að inna
það eftir skoðunum þess, því að það
gæti gert enn erfiðara að hagræða
niðurstöðunum eftir forskrift fijáls-
hyggjunnar.
Þessi aldurshópur telur það
skyldu sína að greiða atkvæði á
kjördag, og gerir það eftir sinni
bestu sannfæringu — sannfæringu,
sem Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki
þekkja. En á kjördag munu skoðan-
ir þessa fólks koma upp úr kjörköss-
unum, og ég er sannfærður um,
að þá kemur í ljós, að skoðanir
þess fara saman með hinni mildu
mannúðarstefnu Borgaraflokksins.
Höfundur er sölumaður í
Reykjavík.
Lagabreyt-
ingum Vísina-
ráð og Vísinda-
sjóð staðfest
FORSETI íslands staðfesti
bráðabirgðalög um breytingu á
lögum um Vísindaráð og Vísinda-
sjóð, Rannsóknaráð ríkisins og
Rannsóknasjóð á fundi ríkisráðs
í Reykjavík hinn 14. apríl síðast-
liðinn.
Þá fullgilti forseti íslands eftir-
greinda samninga: Þijá viðbótar-
samninga við Mannréttindasátt-
mála Evrópu. Samning um rétt
norrænna ríkisborgara til að nota
eigin tungu í öðm norrænu landi
og Stofnsamning Evrópustbfnunar
fjarskipta um gervitungl „EUT-
ELSAT“.
MALLORKA
Royal Jaixlin
del IMar
Gistislaður í sérflokki.
moivm
Fer&askrifslola, Hallveigarstfg I sfmar 28388 og 28580