Morgunblaðið - 05.08.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987
Guðmundur Magnús-
son aðstoðarmaður
menntamálaráðherra
GUÐMUNDUR Magnússoa
blaðamaður hefur verið ráðinn
aðstoðarmaður Birgis ísleifs
Gunnarssonar menntamálaráð-
herrá. Hann hóf störf í mennta-
málaráðuneytinu i gœr, segir i
frétt frá menntamálaráðuneyt-
inu.
Guðmundur er 31 árs að aldri.
Hann lauk BA-prófí í sagnfræði og
heimspeki frá Háskóla íslands árið
1980 og M.Sc.-prófi í rökfræði og
vísindalegri aðferðafræði frá Lon-
don School of Economics árið 1982.
Hann hefur verið stundakennari við
Háskóla íslands, kennt við grunn-
skóla og var blaðamaður við
Tímann 1982-1983. Hann réðst að
Morgunblaðinu í ársbyrjun 1984 og
hefur starfað þar síðan. Guðmundur
er kvæntur Vöku Hjaltalín og eiga
þau tvö börn.
Guðmundur Magnússon
Morgunblaðið/Júlíus
Að undanförnu hafa starfsmenn Reykjavíkurborgar slétt svæði austan við Laugardalshöll. Að sögn
Þórðar Þ. Þorbjarnarssonar borgarverkfræðings er þetta liður í undirbúningi fyrir Sjávarútvegssýn-
inguna, sem haldin verður 19. til 23. september næst komandi. Þarna verða reistir sýningaskálar
sem tjaldað verður yfir eins og gert var á fyrri sýnignu.
I DAG kl. 12.00:
Heimild: Veiurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
Jfr *
i 9
% w
T W'
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl veöur
Akureyri 13 láttskýjað
Reykjavfk 11 skýjað
Bergen 16 léttskýjað
Helsinki 16 alskýjað
Jan Mayen 4 skýjað
Kaupmannah. 12 skúr
Narssarssuaq 12 helðskfrt
Nuuk vantar
Osló 18 skúr
Stokkhólmur 17 skýjað
Þórshöfn 12 hálfskýjað
Algarve 26 þokumóða
Amsterdam 16 léttskýjað
Aþena 28 heiðskfrt
Barcelona 27 léttskýjað
Berlfn 16 skúr
Chicago 22 skýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 14 skýjað
Hamborg 16 skúr
Las Palmas 26 léttskýjað
London 18 skýjað
Los Angeles 18 skýjað
Lúxemborg 16 skúr
Madrfd 36 heiðskfrt
Malaga 31 helðskfrt
Mallorca 31 léttskýjað
Montreal 22 hálfskýjað
NewYork 26 helðskfrt
Parfs 20 hélfskýjað
Róm vantar
Vfn 18 þrumuveður
Washington 28 mistur
Winnipeg 7 léttskýjað
I/EÐURHORFUR í DAG, 05.08.87
YFIRLIT á hádsgi f gær: Fyrir sunnan land er 1028 millibara hæð
en kyrrstæð 1000 millibara djúp lægð yfir Skandinavíu. Um 700
km suður af Hvarfi er hægfara 995 millibara djúp lægð.
SPÁ: Útlit er fyrir hægviðri eða norðvestan golu á landinu. Skýjað
verður á annesjum vestanlands en annars víðast léttskýjað. Hiti á
bilinu 10 til 15 stig en þó öllu hlýrra á suðausturlandi.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
FIMMTUDAGUR og FÖSTUDAGUR: Hæg breytileg átt. Sums stað-
ar skýjað á annesjum fyrir norðan, annars léttskýjað. Hiti á bilinu 8
til 16 stig.
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[~7 Þrumuveður
Garðar Kjartansson í Sportvali:
Ummæli Guðlaugs
um Kringluna
með eindæmum
„GUÐLAUGUR Bergmann er sá
maður sem ég hef litið hvað mest
upp til, maður fijálsrar verslunar og
samkeppni. En það sem hann lét frá
sér fara fyrir helgi um Kringluna
er með eindæmum og á alls ekki við
þann Gulla sem ég hef haft trú á
sem verslunarmanni," sagði Garðar
Kjartansson, einn eigenda Sportvals
í samtali við Morgunblaðið. Sportval
opnar innan skamms nýja verslun í
Kringlunni en mun að auki halda
áfram rekstri verslunar sinnar við
Laugaveg.
„Guðlaugur hefur haldið því fram
í fjölmiðlum undanfarið að verð á
vörum í Kringlunni þurfi að vera
hærra en annarsstaðar. Þetta er vit-
leysa og hann veit það jafnvel og
ég að fólk sem er að setja upp versl-
anir þarna hefur lagt ýmislegt á sig.
Það hefur jafnvel selt ofan af sér
hús, íbúðir og verslanir í miðbænum
til þess að fjármagna kaupin í
Kringlunni. Guðlaugur hefur sjálfur
rekið verslun í einu af dýrustu versl-
unarplássum miðbæjarins svo hann
ætti að vita hvað það er að reka
verslun í dýru húsnæði. Hvemig eig-
um við sem rekum verslanir bæði í
gamla miðbænum og í Kringlunni
að starfa með Samtökunum um
gamla miðbæinn ef þessi tónn á að
vera ráðandi í samskiptum manna á
milli?
Nei, kaupmenn eiga að vinna sam-
an að uppbyggingu verslunar og
Morgunblaðið/Einar Falur
Garðar Kjartansson
þola samkeppni frá hver öðrum. Það
eru orð sem Guðlaugur hefur lagt
sér í munn.
Hann minnist líka á að illa hafi
gengið að selja húsnæði sem hann
átti í Kringlunni og kennir ýmsum
um það. Hann veit þó sjálfur að vissu
jafnvægi verður að halda meðal
verslana. Hvemig væri það ef við
sætum allt í einu uppi með til dæm-
is 40 skóverslanir í Kringlunni? Það
væri ekki mjög heppilegt og því
nauðsynlegt að einhver stjóm sé á
því hvernig verslanir raðast í húsið.“
Agúst helsti slysa-
mánuður ársins
ÁGÚST er helsti slysamánuður
ársins í umferðinni. Þetta kemur
fram í yfiriiti yfir slys í um-
ferðinni síðustu tólf ár, sem birt
var í Ferðafélaganum, blaði
Umferðarráðs og íþróttasam-
bands lögreglumanna. Yfirlitið
byggfii’ á skráningu lögreglunn-
ar.
Fjöldi slasaðra í umferðarslysum
á ári hverju undanfarin 12 ár er
um 685 manns. Ágúst er mesti
slysamánuðurinn að þessu leyti, en
í ágúst slösuðust að meðaltali 77
manns. Júlí kom þar næstur á eft-
ir, én í þeim mánuði slösuðust að
meðaltali 70 manns. 69 manns slös-
uðust í september, 67 í október, 60
í júní, 59 í maí, 54 í nóvember, 51
í mars, 49 í desember, 47 í apríl, 40
í febrúar og 37 í janúar.
Slysamesti mánuðurinn á þessu
tólf ára tímabili var júlí 1985, en
þá slösuðu 120 manns í umferð-
inni. Slysaminnsti mánuðurinn var
febrúar 1976, en þá slösuðust 19
manns. Slysamesta árið á þessu
tímabili var 1985, en þá slösuðust
889 manns í umferðinni, en fæstir
slösuðust árið 1976 eða 547.