Morgunblaðið - 05.08.1987, Síða 58

Morgunblaðið - 05.08.1987, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1987 Minning: Páll Guðjóns- son frá Sléttu Fæddur 21. ágúst 1897 Dáinn 28. júlí 1987 Göngulúinn góðvinur minn allt frá æsku og bemsku hefur gengið lífsbraut sína á leiðarenda. Efst í hug nú, næst hlýrri þökk fyrir kynn- in kær, er eftirsjá að hafa um alltof langa stund ekki sinnt þeirri ljúfu skyldu að sækja heim þennan góð- k vin og þau hjón, hina góðu granna um fjölda ára, sem einlæg vinátta innsiglaði í ágætum samskiptum. Og fyrr en varir er svo allt um seinan, mætar minningar allt frá fyrstu minnisámm mínum þyrpast að og mynda fallega umgjörð um lffsmynd hins látna, þar sem far- sældin var í för, félagslyndi og glaðlyndi um leið, góðir fylginaut- ar, sem gerðu Pál ásamt iðni hans elju og trúmennsku að ágætum þegn síns þjóðfélags og þökkkum sönnum dreng um leið, sem fólki þótti gott að kynnast og eiga vin- áttu hans. Eðli hins hyggna og góða bónda var hans, enda rætur hans í sveit, lífsstarf hans þar um langan veg innt af hendi af sömu alúð og ann- að, hvort sem unnið var að ræktun lands eða hirðingu búsmala. Nær- fæmi og umhyggja voru þar aðalsmerki hans. Hann fór fyrir í ýmsu er að búskapnum laut, tók tæknina gjaman fyrstur í sína þjón- ustu, tækni sem hann miðlaði til annarra hjálpfúsum huga. Hann var verkhagur hið besta án þess að hafa til nokkurrar iðnar lært, vélar sínar annaðist hann einn að mestu og síðar þegar hann stjómaði fatahreinsun heima kom vandvirkni og verklægni hins sam- viskusama manns mæta vel í ljós. Páll barst ekki á, var ekki há- vaðasamur, offors átti hann ekki til, en hann fylgdi fast fram málum sínum og átti heitt skap undir niðri. Góða eðlisgreind sfna nýtti hann af yfírvegun til allra starfa og gekk trúr og heill að hverju verki. Hann var sérstaklega félagslynd- ur, naut sín mæta vel í mannfagn- aði, var þá hverjum manni glaðari, gamanyrði léku þá gjaman á vörum og hann naut þess að gleðjast með glöðum á góðri stund. Ég á svo margar góðar minningar um Pál frá Siéttu, að sú gnótt nægði til langr- ar greinar. En leifturmyndum verður leitast við að bregða upp. Ég man fyrstu heimsókn mína á Sléttu, hversu opnum örmum okkur feðgum var tekið, ég sat m.a.s. inni í stofu og fékk þangað kræsingar Libby’/ Stórgóða tómatsósan húsfreyju, en húsbóndinn innti mig grannt eftir ánum, sem hann vissi að áttu hug krakkans. Minnisstæð- ust er mér þó mynd móður Páls, aldraðrar öðlingskonu, sem lífsbar- áttan hafði rúnum rist, en ljómaði þó af, þegar liðna tíð bar á góma. Ég man allar ferðimar, sem ég tölti að heiman út í þorp til að hringja suður að Sléttu til Páls að biðja hann nú um að slá. Alltaf sama ljúfa viðmótið, alltaf skyldi reynt sem allra fyrst og ekki brást það, því orð skyldu standa. Ég man hvað ég dáði þetta undratæki hans, ég fylgdi Páli ævinlega eftir við slátt- inn, ef eitthvað brygði nú út af og ævinlega var elskusemi hans söm við sig. Páll sló þá túnin öll, því margir leituðu til hans, vökunætumar urðu margar af þeim sökum, en hann vissi hver nauðsyn þetta var fólki, því um þetta snerist hluti af lífs- björginni eða lífsafkomunni öllu öðru fremur. Ég efa að menn hafi almennt kunnað að meta þetta sem skyldi, en þó hefur hugur manns ugglaust oft verið þakklátur, þegar litið var á nýlagða sléttuna í morgunsólinni, sem óslegin hafði beðið kvöldið áð- ur. Ég man máske gleggst þegar við heima vorum síðsumars á miklu óþurrkasumri að hefja hirðingu, erfíða og tafsama á stærsta túninu lengst frá bæ. Allt í einu em þau á Sléttu þar komin með vél sína og vinnulið og allt var hirt, gekk sem léttur leikur með alúðarfullri aðstoð þessa ágæta fólks. Þeim degi unglingsins gleymi ég aldrei. Þessi litla saga segir nieira en mörg orð um rausn og hjálpsemi þeirra hjóna. Ég minnist margra sam- funda okkar Páls, þar sem léttlyndi og hjartahlýja ásamt glöggri yfír- sýn Páls gerðu samverustundir að góðum stundum. Og enginn hló hjartanlegar, þegar slegið var á létta strengi og sjálfur var hann fundvís á hið gjöfula gaman tilver- unnar, það krydd hennar, sem kætir geðið, án þess af því hljóti einhver sár. Fáein ljósbrot frá liðinni tíð verða að nægja, en lífsferli Páls gerð fá- tækleg skil. Hann var fæddur á Sléttu-Strönd á Reyðarfírði 21. ágúst 1897, en Góðar stundir með MS sam- lokum -hvar oghvenær sem er. þar bjuggu foreldrar hans þá, Stef- anía Guðmundsdóttir frá Seldal í Norðfírði og Guðjón Pálsson frá Sléttu, síðar bóndi þar. Harðdugleg og samhent hjón og búskapur þeirra affarasæll. Systkini Páls voru: Þuríður, sem býr á Akranesi í hárri elli, og Guðmundur bóndi á Sléttu, dó á besta aldri. Páll ólst upp við öll algeng sveita- störf sem þá voru mörkuð ærinni erfíðisvinnu og feykilegri fyrirhöfn. Hann tók síðar við búi, fyrst ásamt Guðmundi bróður sínum, en síðar einn. Páli famaðist vel í búskap sínum, var góðbóndi á þeirra tíma mælikvarða, enda lagði hann alúð að öllu því starfí sem búskap fylg- ir. Búskapur átti vel við trausta og æðrulausa skapgerð hans, því margt vill þar á móti blása stundum. En svo jór þó að búskap stund- aði hann að fiillu aðeins til 1951 og lágu ýmsar ástæður ^ð baki. En árið 1941 urðu þó mest straum- hvörf í lífí Páls. Það ár gekk Páll í hjónaband. Eftirlifandi eiginkona hans er Sesselja Pálsdóttir frá Am- hólsstöðum í Skriðdal, systir þess landsþekkta flugkappa, Bjöms heit- ins Pálssonar. Sesselja er mikil ágætis- og atorkukona á alla lund, afar skemmtileg heim að sækja, enda gestrisnin í öndvegi, greind og gegn í hvívetna og sannur vinur vina sinna. Þau hjón eignuðust þijú böm: Sólrúnu Pálínu, húsmóður í Reykjavík, Guðjón, byggingar- meistara í Reykjavík og Guðmund, verkstjóra í Reykjavík. Einnig ólst upp hjá þeim að miklu leyti dóttur- sonur þeirra, Guðjón, sem var afa sínum einkar kær. Öll em þau efnis- fólk hið mesta, dugmikil og vel gefín. Þau Páll og Sesselja bjuggu á Sléttu til ársins 1951 og þar bjuggu með þeim foreldrar Sesselju frá 1942, Sólrún og Pált, sem fylgdu þeim, þar til yfír lauk. Út á Reyðar- fjörð flytja þau svo og reisa sér þar hús, hafa áfram nokkum búskap, en annars var unnið að ýmsu. Páll Guðjónsson hafði fornar dyggðir í fullum heiðri, hvar sem hann vann, vandaður til orðs og æðis, verklaginn og verkfús og lá aldrei á liði sínu. Um skeið tók Páll að sér fata- hreinsun hjá Kaupfélagi Héraðsbúa og fórst það mjög vel úr hendi, en það átti raunar við um hvaðeina sem í Canals KL RAFSKINNU? RENNURFRA Telemecanique ! til dreifingar á rafmagni Afar einfalt og fljótlegt í uppsetningu Sérlega hentugar fyrir verslanir. JÖTUIMIM f HÖFÐ^BAKKA 9 REYKJAVÍK ____SlMI: 685656 og 84530 ■■■■■■■■■ Höföar til .fólksíöllum starfsgreinum! Mjólkursamsalan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.