Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987
3
Frá Borgarnesi Mo^nblaiHÍ/Helgi Bjarnason
Starfsmönnum Pijónastofu
Borgarness sagt upp störfum
ÖLLUM starfsmönnum Pijóna-
stofu Borgarness, fjórtán tals-
ins, hefur verið sagt upp
störfum vegna rekstrarörðug-
leika hjá fyrirtœkinu. Uppsögn-
in tekur gildi eftir þijá mánuði.
Að sögn Sigurðar Fjeldsted for-
stjóra hefur enn ekki verið
tekin endanleg ákvörðun um að
leggja niður prjónastofuna.
Hins vegar eru menn í vafa um
hvort takist að halda rekstri
hennar gangandi og þvi var
starfsfólkinu sagt upp.
Sigurður sagði að Pijónastofa
Borgamess hefði starfað í 17 ár
og framleitt alls konar prjónavörur
úr ull til útflutnings. Mest hefur
Færeyingar
afla sér
upplýsinga
um eyðni
HÉR á landi eru staddir fær-
eyskir læknar og meinatæknar
til þess að kynna sér aðgerðir
íslendinga gegn eyðni.
Með í förinni er Jogvan Durhuus
landstýrismaður fyrir Þjóðveldis-
flokkinn í Færeyjum en hann er
heilbrigðismálaráðherra landsins
um þessar mundir.
Högni Joensen landlæknir og
nokkrir yfirlæknar og meinatækn-
ar ætla ásamt heilbrigðisráðher-
ranum að kynna sér aðgerðir
íslenskra heilbrigðisyfirvalda gegn
eyðni og ræða þær hugmyndir sem
fram hafa komið til þess að hefta
útbreiðslu sjúkdómsins.
Áætlað er að hópurinn verði hér
fram á laugardag.
Á rækjuveið-
ar á ný eftir
10 daga bann
Siglufirði.
SIGURFARI ÓF kom með tog-
arann Sveinborgu frá Siglufirði
í togi inn í Siglufjarðarhöfn á
þriðjudaginn. Hafði bilað gír í
togaranum úti á miðum.
Nú eru bátamir að búa sig und-
ir að fara á rækjuveiðar eftir tíu
daga rækjuveiðibann. Fyrstu bát-
amir fóru út um klukkan átta í
gærkvöld en þeim var heimilt að
byija veiðar um miðnætti.
M.J.
verið flutt til Bretlands, en einnig
til annarra landa. Kostnaður við
framleiðsluna hefði aukist mjög
mikið á undanfömum tveimur
árum en verðið sem fengist hefði
fyrir vöruna haldist óbreytt í
krónutölu.
„Þetta er mjög slæmt ástand,“
sagði Sigurður. „Borgames er fyr-
ir utan dýrðina i efnahagsmálun-
um núna. Þar er engin útgerð og
atvinnan byggist á landbúnaði og
iðnaði. Þetta er því mjög slæmt
fyrir byggðarlagið. Eftirspumin
eftir vinnuafli er lítil þama þótt
það vanti 6—7000 manns í vinnu
á landinu. Fyrir tveimur mánuðum
var sagt upp 17 manns sem unnu
á saumastofu fyrirtækisins og
okkur þykir leiðinlegt að þurfa að
segja þessu fólki upp nú. Þetta
er neyðarúrræði því sumir starfs-
mennimir hafa unnið hjá fyrirtæk-
inu í 17 ár.“
Innbrotið
í Vöruhús K.Á.:
22ára
Reykvíking-
ur játar
TUTTUGU og tveggja ára gamall
Reykvíkingur hefur játað við yfir-
heyrslur hjá Rannsóknarlögreglu
rikisins að hafa brotist inn f Vöru-
hús K.Á. 27. júli sfðastliðinn. .
í gær fór rannsóknarlögreglan
fram á gæsluvarðhald yfir mannin-
um til framhaldsrannsóknar, en
sakadómari tók sér eins dags frest
til ákvörðunar. Við innbrotið var
stolið 200.000 krónum í reiðufé, en
þýfið hefur enn ekki fundist. Talið
er að fleiri hafi verið í vitorði með
unga manninum, en það er ekki ljóst
á þessari stundu.
Trúnaðar-
bréf afhent
í Nígeríu
HINN 31. júli afhenti Ólafur Eg-
ilsson, sendiherra, Ibrahim
Babangida, forseta Nígeríu, trún-
aðarbréf sitt sem sendiherra
íslands f Nígeríu, með aðsetur i
London.