Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987 33 Könnun félagsmálaráðuneytisins á stöðu húsnæðislánakerfisins: Engar nýjar framkvæmdir í félagslegaum íbúðar- byggingum á næsta ári Umsækjandi sem á fimm íbúöir fékk lán fyrir þeirri sjöttu HÉR fer á eftir í heild, fréttatil- inu. Þá hafði verið ráðstafað öllu kynning frá félagsmálaráðu- fjármagni Byggingarsjóðs ríkisins neytinu sem Morgunblaðinu 1987 og mestöllu fé ársins 1988. barst í gær, 5. ágúst: Auk þess 380 milljónum króna af Ljóst er að gríðarlega mikil vandamál hafa skapast á fyrstu 11 mánuðum hins nýja húsnæðislána- kerfís. Margar af grundvallarfor- sendum kerfísins hafa ekki staðist. Fjárþörf kerfísins er mun meiri en haldið var fram í upphafi. Biðtími eftir lánum er þegar orðinn 2 ár og heldur áfram að lengjast. Þá er ekki sjáanlegt að kerfíð hafi megn- að að létta ásókn af félagslega húsnæðiskerfínu. Mikil hætta er aftur á móti á því að óbreyttar for- sendur muni skapa aukna þörf á félagslegum íbúðum. Á vegum fé- lagsmálaráðuneytisins er nú verið að gera könnun á ástandi húsnæðis- kerfisins, grundvallarforsendum þess og framtíðarhorfum. Þegar niðurstöður þeirra athugana liggja fyrir verður leitað samvinnu við aðila vinnumarkaðarins um þær leiðir sem færar eru til lausnar þeim vandamálum sem við blasa. Lánsfé búið 12. mars 12. mars var hætt að gefa út lánsloforð í nýja húsnæðislánakerf- ráðstöfunarfé ársins 1989. Þá er miðað við óbreytt ríkisframlag. Þeir sem síðast fengu loforð um lán til fyrstu kaupa þurtu að bíða liðlega 20 mánuði eftir fyrri hluta lánsins. Þeir sem áttu íbúð fyrir þurftu að bíða enn lengur. Frá 12. mars til 1. júlí hafa borist 2.100 umsóknir til viðbótar. Þær hafa ekki enn hlot- ið afgreiðslu. Til þess að afgreiða umsóknir þeirra er talið að þurfí um 70% af áætluðu ráðstöfunarfé Byggingarsjóðs ríkisins árið 1989 að óbreyttu ríkisframlagi. Lauslega áætlað jafngildir það því að þeir sem sendu inn lánsumsóknir í júní til fyrstu kaupa þurfí að óbreyttum útlánareglum og ríkisframlagi að bíða fram á haust 1989 eftir láni. 11,3 milljarðar á 10 mánuðum Alls höfðu 8.375 umsóknir um lán til kaupa á nýju og notuðu hús- næði borist Húsnæðisstofnun 1. júlí síðastliðinn. Af þeim hafa 5.740 fengið svar en 2.645 bíða af- greiðslu. Þeir sem lengst hafa beðið sendu inn umsóknir fyrir tæpum fimm mánuðum. Heildaríjárhæð útgefinna lánsloforða er 8.150 millj- ónir króna. Til viðbótar þeirri fjárhæð má síðan ætla að komi 3.150 milljónir króna vegna óaf- greiddra lánsumsókna. Samanlögð fjárþörf kerfísins fyrstu 10 mánuð- ina var samkvæmt því 11,3 milljarð- ar króna. Spenna á fasteigna- markaði — lélegri nýting lána Frá því að kerfið var tekið í notk- un hefur þýðing lánanna fyrir umsækjendur minnkað vegna þenslu á fasteignamarkaði. í ágúst 1986, rétt fyrir gildistöku kerfísins, hefði fullt lán til kaupa á notuðu húsnæði numið 84% af útborgun í sömu íbúð. Á þessu tímabili hafði söluverðið hækkað um 37,8% sem er 24% umfram almennar verð- hækkanir. Jafnframt hafði útborg- un hækkað úr 72,4% í ágúst í 79,1% í mars. Það er 6,7%. Kaupandi 4 Jónas Eggertsson, bóksali, ásamt konu sinni, Ólöfu Magnúsdóttur, í nýju búðinni. Morgunblaðið/BAR Bókabúð Jónasar í nýtt húsnæði BÓKABÚÐ Jónasar Eggertssonar flutti þann 27. hafði hún verið í 20 ár. Landsbankinn yfírtekur nú júlí síðastliðinn í nýtt húsnæði í Hraunbæ 102. það húsnæði. Verslunin var áður til húsa að Rofabæ 7, en þar herbergja íbúðar hefði sjálfur þurft að leggja fram 313 þúsund krónur í ágúst 1986 en 897 þúsund í mars 1987. Mismunurinn er 584 þúsund krónur sem jafngildir 187% hækk- un. Sjálfvirkni í kerfinu Talsverð brögð eru að þvf að umsækjendur sem eiga miklar skuldlausar eignir fyrir hafí fengið loforð um lán úr nýja húsnæðiskerf- inu. Lausleg könnun á eignastöðu umsækjenda þegar liðlega 6 þúsund umsóknir höfðu borist bendir til að ekki færri en 15% umsækjenda eigi fyrir skuldlausar eignir að verð- mæti meira en 3,0 milljónir króna. Af þeim voru um 2% að minnka við sig. Um 3% áttu fyrir skuld- lausa eign að verðmæti yfír 4,0 milljónir króna. Um 12% umsækj- enda eða tæplega 1.000 aðila höfðu samkvæmt skattaframtali yfír 1,0 milljón króna í tekjur árið 1985 — fyrir tveimur árum. Það má ætla að svari til 1,7 milljónir króna árs- launa í ár. Miðað við fjölda umsókna sem borist höfðu í bytjun júlí má ætla að nú hafí um 1.200 aðilar sem eiga fyrir skuldlausa eign að verð- mæti yfir 3,0 milljónir krónar öðlast lánsrétt. Samanlögð lánsloforð til þeirra gætu nú numið 1,5 til 2 milljörðum króna. Sá hluti þessa hóps sem á fyrir eignir að verð- mæti 4,0 milljónir króna eða meira gæti verið um 250 aðilar. Lánslof- orð hans má ætla að séu 300 til 400 miljónir króna. Þess eru jafnvel dæmi að um- sækjandi sem átti fyrir 5 fbúðir hafi sótt um lán til kaupa á þeirri sjöttu og fengið lánsloforð. Tekjulágnm hafnað Þá eru brögð að því að umsókn- um tekjulágra umsækjenda sé hafnað. I mars hafði 540 af 6.500 umsóknum verið hafnað. Af þeim höfðu 150 að mati Húsnæðisstofn- unar ekki nægjanlega háar tekjur til að geta staðið undir kaupunum. Þessi hópur er nú senniiega farinn að nálgast 200 fjölskyldur. Telja má víst að því fólki sem er synjað sé að verulegu leyti vísað á félags- lega húsnæðiskerfíð. Umsækjendur eru nú eldri en áður og fleiri eiga íbúðir fyrir. Til dæmis um þá breytingu sem orðið hefur má nefna að 1983 voru um 60% umsækjenda undir þrítugu en nú eru einungis 37% á þessum aidri. Þeir sem sækja um ián til fyrstu kaupa eru 46% af öllum umsækjendum. Hinir sem eiga íbúð fyrir eru 54%. Síðustu mánuðina hefur þeim sem sækja um lán og * eiga íbúð fyrir farið hlutfallslega Qölgandi. Af umsóknum sem bárust í apríl og maí voru 62% frá fólki sem á íbúð fyrir. Meginforsendur hafa brugðist Ljóst er að nokkrar af meginfor- sendum fyrir hinu nýja lánakerfí hafa brugðist. Áætlun á fjölda umsælqenda hefur ekki staðist. 1. júlí sl. höfðu 164% fleiri umsóknir borist en áætlað var. í júní bárust fæstar umsóknir, 448. Það er þó liðlega 40% meira en áætlað var í forsendum kerfísins. Ekki verður séð að kerfíð hafi létt á félagslega húsnæðiskerfinu eins og reiknað var með. Á undanfömum árum hafa 4-5 umsækjendur verið um hveija íbúð í verkamannabústöðum og hefur ekki orðið nein breyting þar á. Framlög til félagslegra íbúða- bygginga hafa minnkað sem hlut- fall af heildaríjármagni til húsnæðismála. Árið 1985 var fram- lag ríkissjóðs og lífeyrissjóða til félagslegra íbúða 22,3% af ráðstöf- unarfé húsnæðiskerfisins. í ár er þetta hlutfall komið niður í 13,9%. 13% af lánsijármagni frá lífeyris- sjóðum renna nú til félagslegra íbúða. Miðað við óbreytt ríkis- framlag og óbreyttan hlut lífeyr- issjóða verður ekki um neinar nýjar framkvæmdir að ræða í félagslegum íbúðabyggingum á næsta ári. Keflavík Símanúmer hjá umboðinu í Keflavík er 92-13463. 40% afsláttur stendur yffir til miðvikudagsins 12. ágúst. SASCH, Laugavegi 69, sími 24360. Útsalan byriuð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.