Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987 Jón Þ. Arnason Lífríki og lífshættir CXX Spurningin er: Hversu lengi enn telja „stjórnmálamenn“ skynsamlegt að beita fyr- irgreiddum atkvæðum taumlaust á þver- randi forða náttúruauðæva jarðar? Allt fram á síðustu tíma hafa formælendur og fylgjendur hag- vaxtartrúar verið svo blindaðir af sjálfsþótta og bjálfabjartsýni, að vart hafa verið viðmælandi. Upp á síðkastið hefir þetta að vísu dvínað, þó að enn sé alllangt frá að grilli í verulegt undanhald. Víst er og, að aldrei hafa fleiri og voldugri vígaskarar sótt grimmilegar að lífríki jarðar eða leitazt ákaflegar við að hindra gjörtæka hugarfarsbyltingu, sem er frumforsenda viðhlítandi framtíðar, en einmitt nú. En eigi að síður má til huggun- ar verða, að efí um almætti Mammons er tekinn að skjóta rótum og grípa um sig. Af þeirri ástæðu er ekki öll von úti um, að náttúruníðingar neyðist til að þreifa á afleiðingum hugsunar- leysis síns og hamagangs, orða sinna og afglapa. Þá væri fyrsta skilyrðið fyrir endurmati viðhorfa þeirra skapað. Og það væri hreint ekki litilsvert þegar af þeim sök- um, að þar með hlyti þeim að verða sæmilega ljóst, að framtíðin getur ekki orðið sú blómsturtíð, sem flestir hafa vænzt. Hömlulaus sjálfumgleði hlyti að þoka fyrir efablendni. A.m.k. lítið eitt. Sókn auðnar. Fyrir 14 árum hafði heimspek- ingurinn og sagnfræðingurinn m. m., Ivan Illich (f. 1926, Vín). höf- undur margra merkra ritverka, þar sem hann gagnrýnir tíðarand- ann ótæpilega, komizt þannig að orði (í bók sinni, „Tools for Con- viviality", New York 1973): „Eins og nú standa sakir væri mótbára gegn hagvexti nákvæm- lega jafn áhrifalaus og andmæli gegn sólarlaginu Síðan þetta var ritað, hefír reyndar ýmislegt gerzt, og gerist, eins og verða hlýtur. En ekkert, ekki vitundarögn, sem rennt getur stoðum undir kenningar marxista og markaðsmanna um endalausar „framfarir" og „kjarabætur“. Samt sem áður hrósa söfnuðir hagvaxtarrisans sífellt stærri og meiri sigrum yfír móður jörð. Sig- urfréttir eru ekki alltaf birtar við lúðrablástur og bumbuslátt. Stundum eru þær gerðar heyrin- kunnar af hógværð og lítillæti. Þannig er oftast farið um hrikale- gustu sigrana: Árlega þenjast eyðimerkur jarðar út um 60.000 km. Árlega minnka regnskógar hitabeltis jarðar um 100.000 km. Árlega blæs akurlendi jarðar upp um 200.000 km, að því er Hamborgarblaðið „WELT am SONNTAG" skýrir frá í smáklausu á innsíðu hinn 24. maí í vor. Og er þó ótalið, það sem hverfur undir mannvirki alls konar og íverustaði handa 216.000 nýbyggjum jarðar sér- hvem sólarhring. Það eru gömul sannindi, sem ávallt eru ný, að köll á breytt markmið og nýjar leiðir ná sjaldn- ast áheym á meðan sigurganga fer um garða og grundir, heldur þá fyrst, þegar hrikta tekur í röft- um. Gríski heimspekingurinn og vísindamaðurinn Aristoteles (384-322 f. Kr.) áleit, að eðli og inntak sérhverrar heimssýnar, at- burðar, atferlis eða fyrirbæris yrði ekki skilvitlega brotið til mergjar fyrr en hámarki hefði náð og út- fall hafíð. Þrátt fyrir það storma iðulega fram óþreyjufullir bálviðr- isvíkingar, sem meta „dómgreind" fjöldans einskis, þ. e. til sann- virðis, ótrauðir gegn ofureflinu. Klastursverk. Einn margra mikilsvirtra vísindamanna, er vakið hafa at- hygli á, að hin glitrandi fyrirheit framfaraboðenda hafa ill gengið eftir, er sálkönnuðurinn og rithöf- undurinn Erich Fromm (1900-1980), sem varð heims- kunnur af verkum sínum 10-20 árum fyrir andlát sitt, furðaði sig á „hinni nær ótrúlegu staðreynd, að hingað til hafa ekki verið gerð- ar neinar alvarlegar tilraunir til að forða okkur undan þeim örlög- um, sem okkur hafa verið kunn gerð.“ Ennfremur segir hann (í bók sinni, „To have or to Be“, NewYork 1976): „Á sama tíma og einungis brjá- læðingur myndi í einkalífi sfnu sitja með hendur í skauti, þegar allri tilveru sinni og lífí væri ógn- Sú staðreynd fær ekki dulizt, að homo sapiens hefír verið stykkjaður niður í homo oec- onomicus, og afskræmismyndin af strang-efnahagslega ákvarð- aðri manneskju hefir um áratugi verið viðmiðun og leiðarljós allrar svonefndrar stjómmálastarfsemi. Nákvæmlega með þessu, að gera sér mynd af manneskjunni, sem er blátt áfram í öllum höfuðdrátt- um argasta klessuverk, var eitt afdrifaríkasta skref aldarinnar stigið niður til vinstri. Þetta var mynd af niðursoðinni mannpeysu. Afleiðing þess, að „stjómmála- menn“ tilbáðu þessa mynd af stöðugt vaxandi ákefð og innlifun, varð vitanlega sú, að hún endur- speglaðist í hugmyndum, sem sérhver einstaklingur gerði sér um sjálfan sig. Hjá því gat ekki farið, að þessi vanskapaða sjálfsmynd, sem smám saman varð að ófreskju, hefði gagnverkandi áhrif í þjóðlífinu. Öðruvísi orðað má segja, að manneskjan hafí skapað mynd af sjálfri sér, sem hlaut að hafa djúprist áhrif á stjómmála- stefnur og -störf, einkum í lýðræðisrílqum, þar sem atkvæði eru jafnan í hágengi. 1946). Hann taldi, að við hlytum að færa okkur í nyt hina voldugu aflgjafa mannlegrar sérhyggju, sem trúarbrögðin og gamall vísdómur ráðlögðu að halda í skefjum. Árið 1930 birti Keynes þá nið- urstöðu rannsókna sinna, að við hefðum hafíð einhveijar viðbjóðs- legustu eðlishneigðir okkar í hávegu æðstu dyggða, og nefnir þetta háttalag „fyrirlitlega sýki, eina hina hálfglæpsamlegu, hálf- sjúklegu tilhneiginga, sem með hryllingi em fengnar sérfræðing- um í geðlæknisfræðum til með- ferðar. En hægan!“, heldur hann áfram, „tíminn til þess er ekki kominn enn. Enn um minnst hundrað ára skeið verðum við að telja sjálfum okkur og öllum öðr- um trú um, að heiðarlegt sé óheiðarlegt og óheiðarleft heiðar- legt; því að óheiðarlegt er gróða- vænlegt en heiðarlegt ekki. Ófund og fégræðgi og undirferli hljóta enn um sinn að verða guðir okk- ar.“ Erkipáfí ríkjandi efnahagsum- svifa, skozki heimspekingurinn og siðfræðiprófessorinn Adam Smith (1723-1790) hafði reyndar löngu í HAGVEXTI „Óheiðarlegt er gróðavænlegt, heiðarlegt ekki.' GULL GEGN ÆRU dreginn, að af samefldri peninga- hyggju markaðsmanna og marx- ista, hafí tæplega getað leitt annað ástand og aðrar horfur en nú ógna líftíki jarðar. Bjartsýni í viðtekinni merkingu virðist því ekki eiga ýkjasterkan rétt á sér. Nú merkja orðin bjartsýnn maður nánast kjarklaus maður. Þær ijölmörgu ákvarðanir, sem teknar voru á ráðstefnum banda- rískra og sovézkra leiðtoga f Teheran, Jalta og Potsdam á heimsstyijaldarárunum 1943- 1945, hafa framar öllu öðru ráðið þróun mannlífs og jarðlífs allt síðan, fram á þennan dag. Og munu óhjákvæmilega gera um ófyrirsjáanlega langa framtíð enn. Á einskis mann færi mun vera að segja neitt með vissu um, hvort þjóðir heims fái lifað þá fólsku af. Varla fer á milli mála, að horf- ur eru ekki traustvekjandi. Vaxandi upplausn og úrræða- leysi í þjóðfélagsmálum á Vesturl- öndum, sem fallið hafa í gryfjur jöfnunaróra og rótleysis vinstri- hyggju, hafa vakið grun um, að fátæktin í austri geti naumast verið menningarfjandsamlegri en ofátssukkið í vestri. Sögulegar staðfestingar þess, að skammt sé jafnan að bíða hruns og tortíming- ar eftir að efnahagshyggja hefír náð að þrúga öll göfugustu sið- gæðis- og siðferðislögmál til undirgefni, eru ekki á meðal þess, sem helzt skortir í þekkingarforða „framfaraaldar" okkar. Ef rotn- unaröfl Vesturlanda færast enn í aukana má eins vel búast við að heyrast kunni raddir, sem kalla á harða hönd austursins til að slíta hrunaglammi. Evrópu skortir menn. Af mús- gráum múgamennum við stjóm- völ hefir hún yfrið nóg. Svo hefír enda verið óslitið síðan framan- greindar bandarísk/sovézkar ráðstefnur voru framdar. Reyndar átti að heita, að Evrópa ætti þar málsvara. En það var aðeins til málamynda. Fulltrúa hennar skorti allt, sem nauðsyn krafði til að standast ráðsmönnum þeirra snúning. Frammistaða hans þar var í fullkomnu samræmi við feril- inn allan, allt frá því að hann hófst í tossabekkjum enskra fyrir- myndarskóla. Hamy S. Truman (1884-1972), forseti Bandaríkjanna (1945-1953), lýsir smán Evrópu á afar skilmerkilegan, en jafri- framt nærfæmislegan hátt, í endurminningum sínum („Memo- irs“ Vol. II, Garden City 1955) m. a. þannig: „Hvenær sem málefni af þessum toga komu til með- ferðar, fannst Churchill nauð- Efi skýt- urrótum Djúpstæð mannþekking Truman blöskraði, Stalín byrsti sig að, hafast þeir, sem bera ábyrgð á almannaheill, í raun ekkert að, og þeir, er hafa trúað þeim fyrir sér, láta þá afskiptalausa. - Hvemig getur á því staðið, að hinn sterkasti allra eðlisþátta, sjálfsbjargarhvötin, virðist ekki vera lifandi lengur?“ Auðvitað átti Fromm svar við spumingu sinni á reiðum höndum, enda þurfti engan snilling til að varpa því fram á svipstundu. Meginástæðan er ásköpuð skammsýni manneskjunnar. Að kjarkleysi hennar viðbættu. Múg- ur er af náttúrunnar hendi andlega og sálrænt með öllu ófær um að ná tökum á rás framþróun- ar og afturkasts, og alveg sér í lagi ófús til að reyna að draga rökréttar ályktanir af ríkjandi lífsháttum sínum. Á því sýnist þess vegna varla geta leikið stórvægilegur efi, að þjóðfélagsskipan nútímans geri yfírleitt alltof miklar kröfur til mannsheilans. Hagsmunajúðska. „Ágætið", sem af hlauzt, mætti vel nefna - og það gerir líka margt lífvemdarfólk - stigmögnun efna- hagslegs blygðunarleysis, kurteis- lega til orða tekið. Eða skýrar: Sigur hagsmuna yfír hugsjónum, siðgæðismorð, ógnun Mammons við menningu. Ógeðið leitaði sér að sjálfsögðu stuðnings í lærðum og vísindaleg- um rökstuðningi. Hin hagsmun- aknúða manneskja skal telja dyggðir, það sem Vesturlanda- þjóðir höfðu um aldir talið dauðasyndir: Græðgi, ágimd, öf- und, bruðl, hóglífí o. s. frv. Efnahagslífíð þarfnast þessara drifkrafta vegna hagvaxtarins síns. Líklega hefír enginn skýrt þessa þörf skiljanlegri rökum en hið enska átrúnaðargoð hagspek- inga 20. aldar, sem enginn ber brigður á að hafi verið fijór og skarpskyggn athugandi, sjálfur John Maynard Keynes (1883- áður reist hagkenningar sínar á roðflettu eðli hins rótlausa ein- staklings, er sí og æ hefír hug og hjarta bundin við að auðgast sem mest á sem skemmstum tíma með sem minnstri fyrirhöfn. „Stjómmálamenn" Vestur- landa tóku að tileinka sér þessar niðurstöður í stærri og stærri skömmtum, og fannst bragð og ilmur afbragðsgóðgæti. Heimur og saga samtímans eru viðunandi vitnisburðir um, hversu fara ger- ir, þegar einungis er litið á náttúruríkið allt sem réttdræpa villibráð. „Bandaríkjamenn segjajá“. Mér er ekki kunnugt um, að mannþekking hinna skarp- skyggnu lærdómsmanna, Adam Smith og John Maynard Keynes, hafi sætt kollvarpandi gagnrýni. í ljósi þeirrar þekkingar verður sá lærdómur af henni auðveldlega synlegt að halda langar ræður áður en hann síðan að lokum beygði sig fyrir ákvörðunum, sem þegar höfðu verið teknar. Á meðan á þessum löngu útúrd- úrum Churchills stóð, var Stalin vanur að halla sér fram á olnbogana, snúa upp á yfir- vararskeggið og segja: „Af hveiju segið þér ekki já? Bandarikjamenn segja já, og við segjum já. Þér munið á endanum líka segja já. Hvers vegna gerið þér það ekki strax?“ „Þetta“, bætir Truman við, „stöðvaði ræðuflauminn. Að honum afstöðnum sagði Churc- hill líka já. En hann þurfti alltaf að halda ræðuna sína fyrst.“ En Stalin og Truman dáðust að vínhreysti Churchills - og ko- must ekki heldur hjá að leyfa honum að vera með. Svona umkomulaus var Evrópa orðin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.