Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987 Mekka forabilamanna, Ystafell í Köldukinn. Þar stigu menn af forabflunum og kysstu jörðina. Hringferð F ombíla- klúbbs íslands 1987 Autocar-dráttarbíll, árgerð 1946 frá flutningafyrirtækinu GG Á dráttarvagninum er Citroen, árgerð 1923 ökufær en númerslaus. Eigandinn hafði ekki tækifæri til þess að vera með og aka bflnum, en þar sem bflinn langaði með i ferðina var sjálfsagt að taka hann á pall. eftír Kristínn Snæland Síðastliðin fímm ár hefur Rudolf Kristinsson fombílaáhugamaður og núverandi formaður Fombflaklúbbs íslands unnið að því að gera upp Ford A, árgerð 1929. Jafnframt bætti hann lítillega Ford A, árgerð 1930 sem hann hafði keypt í all- góðu standi. í bflskúmum á Sunnuflöt 40 kviknaði svo sú hug- mynd að fara hringferð um landið á báðum bflunum þegar þeir væm tilbúnir. Kristján Jónsson, hér eftir kallaður Stjáni meik, mikill fom- bflamaður hleraði þetta og bætti um betur. „Við fömm bara allir og gemm þetta á 10 ára afmæli kiúbbsins árið 1987“. Stjáni meik lætur ekki sitja við orðin tóm og fljótlega var hann búinn að virkja þá félaga sína sem þurfti. Sjálfur lagði hann sig svo fram að í ferð- inni átti hann einn sex bfla af tuttugu og fjórum. Þessi væntan- lega hringferð varð smám saman svo eftirtektarverð að er yfír lauk hét hún „Hringferð Fombflaklúbbs- ins og Olíufélagsins hf. á 10 ára afmæli Fombflaklúbbsins til styrkt- ar Krýsuvíkursamtökunum.“ Aðild að ferðinni áttu: Fombfla- klúbbur íslands, Olíufélagið hf., Krýsuvíkursamtökin, Hringhjól 1987, Félagsmiðstöðvamar Þrótt- heimar og Frostaskjól og loks Rás 2. Þessir aðilar sameinuðust í því að gera ferðina að „Tangarsókn gegn vímu“, söfnunarferð fyrir skóla og heimili í Krýsuvík. Tangarsóknin fór þannig fram að fombflamir óku réttsælis frá Reykjavík, norður um land en samtímis fór hjólreiðaflokkur Hringhjólsins rangsælis suður um land. Á Egilsstöðum lauk hinni eig- inlegu tangarsókn þegar hópamir mættust þann 14. júlí sl. Eftirleik- urinn var auðveldur fombflaflotan- um en Hringhjólið tók erfíðasta hluta landsins, Vestfírðina að sér og er enn að safna á þeim slóðum þegar þetta er ritað. Nú þegar er samt óhætt að segja að landsmenn hafa tekið „Átaki til hjálpar" ein- staklega vel. Við fombflakúbbs- menn og konur em þakklát okkar góðu landsmönnum fyrir góðar við- tökur. Ferðalagið Ferðin hófst á Ártúnshöfða þann 8. júlí og 24 bílar vom skráðir í ferðina. Einn var númerslaus og eigandinn hafði ekki tækifæri til þess að koma með. Þetta var Citro- en, árgerð 1923 sem aldrei hafði farið hringinn en langaði núna. Það var látið eftir honum með því að setja hann upp á dráttarvagn frá G.G. Autocar frá 1946 sem einnig var með í ferðinni. Á réttum tíma klukkan 9 um morgunninn seig lest- in af stað við flaut og sírenuvæl. Margir fombflar fylgdu í kveðju- skyni og í Kollafirði lauk þeirra fylgd. Við Borgames bættust í hóp- inn Volga, árgerð 1960 og Chevro- let, árgerð l937 sem fylgdu okkur smá spöl. í Staðarskála buðu þeir höfðingjar og bræður Magnús og Eiríkur ferðalöngunum kaffí og kökur. Ferðin gekk vel norður og austur um Húnavatnssýslur. A Blönduós var komið 2 mínútum á eftir áætlun, höfð bflasýning og loks gist í félagsheimilinu í boði hrepps- ins. Þama bilaði gírkassi í GMC- tmkk og snarlega vom tveir kassar sóttir á Hvammstanga, annar settur í um nóttina og bfllinn tilbúinn að morgni. Þama fannst einnig Volvo- hræ, árgerð 1946 sem átti að henda og grafa eftir nokkra daga í hreins- unarskyni. Stjáni meik tók brakið á pall til varðveislu, (Sem betur fór). 9. júlí. „Aðild að ferðinni áttu: Fornbílaklúbbur Is- lands, Olíufélagið hf., Krýsuvíkursamtökin, Hringhjól 1987, Félags- miðstöðvarnar Þrótt- heimar og Frostaskjól og loks Rás 2. Þessir aðilar sameinuðust i því að gera ferðina að „Tangarsókn gegn vímu“, söfnunarferð fyrir skóla og heimili í Krýsuvík.“ Frá Blönduósi upp Langadal gekk ferðin vel en upp Vatnsskarð sauð á þremur bflum sem lentu á eftir dráttarbflnum sem var of hæg- fara til þess að hinir fengju næga kælingu. Niður að austanverðu gekk vel utan að þar sem unnið var að vegagerð hrökk slökkvitæki af og fyrir neðan vatn hljóp hjól undan einum. Á Sauðárkróki vomm við rétt um áætlun og þar var sýning áður en haldið var enn í austurátt mót Akureyri. Öll sú ferð, meðal annars „Það er annað að kveðja á Kotum, en komast í Bakkasel", tókst vel og nokkm norðan við Akureyri tóku félagar í Bflaklúbbi Akureyrar á móti hópnum. Saman var svo ekið í langri lest að Dyn- heimum á Akureyri þar sem honum var búin gisting. 10. júlí. Um kl. 13 var ekið í lest um Akureyri og hemlalítill bfll lenti þvert á Volvo-inum okkar árg. 1935. Vitanlega sást lítt á okkar en hinn var nokkuð sár. Áfram var ekið um bæinn og inn á Ráðhús- torg. Þar var Hljóðbylgjan, útvarp Eyjafjarðar og nágrennis með góða uppákomu, bflamir, menn og mál- efni kynnt í beinni útsendingu. Þaðan haldið á sýningarsvæði fram undan Dynheimum og bflunum rað- að upp. Þangað komu margir Akureyringar á glæsikermm sfnum frá liðnum áratugum. Ekki dró úr ánægju okkar þegar Slökkvilið Ak- ureyrar mætti á staðinn með tvo bfla. Dodge weapon, árgerð 1942 sem Ford vömbflshús hafði verið snilldarlega gert að stýrishúsi á og Ford big job, árgerð 1954 sem er glæsilegur slökkvibfll og enn for- ystubfll í útköllun frá Akureyri enda var bflstjórinn stöðugt í beinu sam- bandi við slökkvistöðina. Þama var sýning fram undir klukkan sjö, en þá bauð Bflaklúbbur Akureyrar upp á glæsilega máltíð í Dynheimum. Samtímis þessu var Halldór Láms- son með Ford A 1929 við söfnun í göngugötunni á Akureyri, hávaða- samur að venju með gjallarhomið góða frá Slysavamarfélaginu. Þannig leið þessi dagur í sól og sumaryl við mikla ánægju allra. 11. júlí. Til brottferðar var safnast við Krókseyrarstöð sem er innan við byggð á Akureyri. Hin áhyggjum hlaðna lögregla Akureyrar var mætt, einungis til þess að tryggja það að fombflamir ækju rétt út af stöðinni. Vitanlega þurfti Akur- eyrarlögreglan ekki að kenna fombflamönnum umferðarreglum- ar og skildi þar með okkur. Ferðin út Ejrjafjörð, yfír Víkur- skarð og að Ljósavatni gekk vel. Þar tók við kafli sem vegagerðar- menn unnu við, seinfarinn en áður en varði vomm við komnir niður Köldukinn að Ystafelli, Mekka fom- bflamanna á íslandi. Þar stigu menn af bflum og kysstu jörðina. í Ysta- felli er stórkostlegt safn fombfla, á öllum stigum, allt frá þvf að vera ökufærir í það að vera hræ sem aðeins em nothæf til þess að bæta annan betri sömu gerðar. Þama var staðnæmst góða stund, gengið um garð, skoðað og þegið kaffí og meðlæti fyrir allan hópinn. Loks var tekið boði þeirra ágætu hjóna Ing- ólfs Kristjánssonar og Kristbjargar Jónsdóttur að gista ókeypis í húsi þeirra að Landamótum sem er að- eins framar í Kinninni. Þá var ekið til Húsavíkur en gerður stuttur stans og ekið til baka að Fararstjórinn Kristinn Snæland og Stjáni meik fyrir framan eitt síðasta afrek Stj&na, Dodge vörubíll árgerð 1955. Á verkstæði Dagsverks Egilsstöðum. Rudolf Kristinsson nær, og Jón Guðmundsson fjær leggja sitt fram við rútuna sem valt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.