Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987 Búast má við miklum átökum um starfsemi ríkisins og skattheimtu Alit Verzlunarráðs Islands á stef nuyf irlýsingu ríkisstj órnarinnar og fyrstu aðgerðum Hér birtist i heild álitsgerð Verzlunarráðs íslands um stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar og fyrstu aðgerðir hennar. Stefnuyfirlýsing ríkisstjómarinn- ar og hagvöxtur undanfarinna ára hafa vakið miklar væntingar um bætt kjör. í yfirlýsingunni koma fram margvísleg áform um að auka fijálsræði og gera atvinnulífíð þannig betur í stakk búið til þess að standa undir aukinni velmegun og velferð. Jafnframt hyggst ríkis- stjómin ná verðbólgu niður á stig nágrannalandanna með aðhaldi í gengismálum og ríkisfjármálum. Margt bendir þó til þess að erfitt verði að ná fram helstu stefnumál- um stjómarinnar. Ríkisstjómin boðar skattahækk- anir á næstu þremur ámm í því skyni að jafna hallann á ríkissjóði og þessar skattahækkanir geta auð- veldlega orðið kveikja að nýju víxlgengi launa og verðlags þar sem ekkert bendir til þess að um þær sé almenn samstaða. Ríkisstjómin hefur sett sér það mark, að auka ekki ríkisútgjöldin í hlutfalli af þjóðartekjum og jafnvel það sýnist vera of háleitt stefnumál í ljósi þeirra loforða sem gefin em um velferðarmál ýmiss konar, hús- næðismál og landbúnaðarmál. Ljóst virðist að markmiðinu um hlutfalls- lega óbreytt ríkisumsvif verður ekki náð nema með meiri háttar upp- stokkun á velferðarkerfínu og endurmati á framlögum til hús- næðismála og atvinnuvega. Búast má við að vísitala fram- færslukostnaðar hækki um 20% á árinu og ekki er ástæða til þess að ætla að á næstu ámm skapist um- gjörð fyrir nýja þjóðarsátt til þess að ná svipuðum árangri í barátt- unni við verðbólguna og gerðist á árinu 1986. Hætt or því við að verð- bólgan verði á 20%—30% stiginu á næstu missemm og jafnvel hærri ef ytri aðstæður versna. Meginniðurstöður Verzlunar- ráðsins em þær að á kjörtímabili ríkisstjómarinnar megi búast við miklum átökum bæði á vinnumark- aði og eins átökum um allt sem snýr að starfsemi ríkisins og skatt- heimtu. Takist ríkisstjóminni að stjórna landinu með þeim hætti, að verðbólgan lækki á nýjan leik, að jafnvægi náist í ríkisbúskapnum og erlend skuldasöfnun stöðvist, nær hún meiri árangri en bjartsýnustu spádómar geta mælt fyrir um. Frjálsræði skilar árangri Á seinustu ámm hefur þeirri skoðun vaxið fylgi um allan heim, að afskipti stjómvalda af atvinnu- starfsemi eigi að takmarkast við að tryggja almenn, jöfn og stöðug skilyrði fyrir alla atvinnustarfsemi. Þannig komi best í ljós hvaða starf- semi ér í samræmi við óskir almennings, sem aftur muni skila sér í betri og tryggari lífskjömm. í löndum eins og Bretlandi, Frakk- landi, Portúgal, Bandaríkjunum og Danmörku, svo dæmi séu nefnd, hafa stjómvöld linað tökin á fj'ár- magnsmarkaði, farið af stað með einkavæðingu og komið á eða hafið undirbúning að einfaldara og skil- virkara skattkerfi. Víðast hvar fer fram heildarendurskoðun á hlut- verki hins opinbera með það fyrir augum að stöðva vöxt þess. Þetta hefur líka gerst hérlendis að vissu marki á seinustu fjómm ámm. Vaxtafrelsi, aukið frelsi í gjaldeyrismálum og verðlagsmál- um, einfaldara tekjuskattskerfí og sala nokkurra ríkisfyrirtækja bera þessu vitni. Bemm svo saman ýms- ar hagstærðir fyrir og eftir þessar aðgerðir. Árið 1983 var verðbólgan rúmlega 80%, en verður nálægt 20% 1987. (Þetta gerðist þrátt fyrir staðhæfingar margra að háir vext- ir, sem hækkuðu í kjölfar vaxta- frelsisins, væm ein helsta orsök verðbólgu.) Frá meðaltali ársins 1983 til ársbyrjunar 1987 jókst sparifé landsmanna um 50% að raungildi. Frá árinu 1983 til 1987 hafa þjóðartekjur á mann aukist um 20% að raungildi og kaup- máttur ráðstöfunartekna á mann hefur aukist um þriðjung á sama tímabili. Árið 1983 var viðskipta- halli 2% af landsframleiðslu en spáð er að hann verði 0,6% 1987. Vissulega áttu margir þættir hlut að máli í uppgangi efnahagslífsins á síðustu ámm en víst er að með frjálsræðisþróuninni og stöðugleik- anum gátu fyrirtækin mun betur en ella nýtt sér batnandi ytri skil- yrði og þannig náð miklu meiri árangri en annars hefði orðið. Mörg- góð stefnumál Nýi stjómarsáttmálinn boðar í mörgum atriðum áframhald á þeirri braut í fijálsræðisátt sem mörkuð var í tíð seinustu ríkisstjómar. Nýja ríkisstjómin hyggst t.d. hafa sem minnst afskipti af einstökum at- vinnugreinum og fyrirtækjum, en móta meginreglur um efnahagsleg samskipti og umgjörð efnahags- og atvinnulífs. Allar atvinnugreinar eiga að njóta sem jafnastra starfs- skilyrða og ríkið á fyrst og fremst að tryggja stöðug almenn skilyrði fyrir atvinnulífið hvað varðar gengi, skatta og lánakjör. í yfirlýsingunni er sérstaklega tekið fram að ríkisafskipti og ríkis- rekstur á atvinnufyrirtækjum verði sem minnst, að gjaldeyrisverslun og íjármagnshreyfingar milli ís- lands og annarra landa verði fijáls- ari og að Iög og reglur um erlent fjármagn í íslensku atvinnulífí verði endurskoðuð og samræmd. Þá er einnig tekið fram að skipan útflutn- ingsverslunar verði einfölduð og færð í átt til meira fijálsræðis þar sem aðstæður á erlendum mörkuð- um leyfa, svo og að tryggingar- starfsemi verði sem fijálsust undir tryggingaeftirliti ríkisins. Ríkisbúskapinn á einnig að taka til rækilegrar endurskoðunar, bæði tekjuöflunarkerfíð og útgjöldin. Skattkerfið á að taka mið af því að megintekjustofnar verði sem al- mennastir þannig að skattlagning verði sem hlutlausust. Undanþág- um og sérreglum á síðan að fækka til að unnt verði að hafa álagningar- hlutföll sem lægst. Áform eru um að taka upp nýja, samræmda og einfaldaða gjaldskrá aðflutnings- og vörugjalda á árinu 1988 sem getur stuðlað að framförum í versl- un og gert þessari atvinnugrein betur kleift að þjóna hagsmunum almennings. Ríkisútgjöldin á að endurmeta í því skyni að halda aftur af vexti þeirra á næstu árum, þannig að útgjöld hins opinbera í heild vaxi ekki örar en þjóðartekjur. Draga á úr sjálfvirkni ríkisútgjalda, auka sértekjur og sjálfstæði ríkisstofn- ana og beita skal útboðum í ríkari mæli. Ákveða skal heildarfjárhæð til einstakra verksviða við fjárlaga- gerð og vinna að því að bjóða almenningi til kaups ríkisfyrirtæki og hlutabréf ríkisins þar sem henta þyki. Oll þessi stefnumál eru mikilvæg og í raun forsenda hagvaxtar og framfara á næstu árum. Þess vegna mega tímabundnir erfiðleikar og skammtímasjónarmið ekki verða til þess að hvikað sé frá þessum stefnumálum. Þungar skuldbindingar Áætlanir ríkisstjómarinnar mið- „Meginniðurstöður Verzlunarráðsins eru þær, að á kjörtímabili ríkisstjórnarinnar megi búast við miklum átök- um bæði á vinnumark- aði og eins átökum um allt sem snýr að starf- semi ríkisins og skatt- heimtu. Takist ríkis- stjórninni að stjórna landinu með þeim hætti, að verðbólgan lækki á nýjan leik, að jafnvægi náist í ríkis- búskapnum og erlend skuldasöfnun stöðvist, nær hún meiri árangri en bjartsýnustu spá- dómar geta mælt fyrir um.“ ast við að ná jafnvægi í ríkisbú- skapnum eftir þijú ár og einmitt með aðhaldi á því sviði ásamt að- haldi í gengismálum hyggst ríkis- stjómin tryggja sem stöðugast verðlag. Miklar kröfur verða hins vegar gerðar um aukin ríkisumsvif og meiri skattheimtu og ríkisstjóm- in á eftir að heyja harða baráttu bæði útávið og innbyrðis fyrir árangri á þessu sviði. Eftirfarandi þættir gefa nokkra hugmynd um þá erfiðleika sem ríkisstjómin mun eiga við að etja: ★ í stjómarsáttmálanum verður ekki séð að vandi landbúnaðarins verði leystur. Þvert á móti lítur út fyrir að kvótakerfíð sé komið til að vera í náinni framtíð. Búvömsam- ingurinn sem þegar hefur verið gerður á líklega eftir að kalla á síaukin útjöld, einkum í ljósi þess að kindakjötsneysla fer nú minnk- andi. Raunar má segja að land- búnaðurinn sé undanþeginn þeirri meginstefnu ríkisstjómarinnar, að allar atvinnugreinar njóti sem jafn- astra starfsskilyrða. ★ Húsnæðismál hafa verið dijúg- ur útgjaldaliður fyrir ríkissjóð á undanfömum ámm og fátt í sátt- málanum sem bendir til að framlög- in verði minni í náinni framtíð. Áfram er beinlís gert ráð fyrir ríkis- framlagi og svo sem kunnugt er hefur verið gert sérstakt samkomu- lag um kaupleiguíbúðir sem víkkar út hið svokalla félagslega kerfi. Þörfin fyrir síaukið ríkisframlag er ekki síst augljós vegna pólitískra erfiðleika við að minnka vaxtamun á teknum og veittum lánum Hús- næðisstofnunar. ★ Utgjöld til menntamála jukust á ámnum 1960 til 1985 um 5% árlega að raungildi. Spáð er að fram til aldamóta verði árleg raunaukn- ing 4% en auðvelt er að sjá fram á hærri tölu vegna síaukinna krafna um betri menntun. Á fjárlögum fyrir árið 1987 er framlag ríkissjóðs til Lánasjóðs íslenskra námsmanna tæpur milljarður og sýnt þykir að framlagið þurfí stöðugt að aukast m.v. núgildandi útlánareglur og markaðsvexti. Að öðmm kosti mun sjóðurinn stöðugt safna skuldum og étast upp. ★ Heilbrigðismál hafa á liðnum ámm tekið æ stærri skerf af lands- framleiðslu og ekki við því að búast að sú þróun stöðvist á næstu ámm. Útgjöld til heilbrigðismála námu t.d. um 3,3% af landsframleiðslu árið 1960 en vom 7,0% árið 1985. Árleg raunaukning ríkisframlags var tæp 7,0% á þessu tfmabili og skv. greinargerð starfshóps um fjárhag hins opinbera fram til árs- ins 2010 er gert ráð fyrir 6,0% árlegri raunaukningu fram að þeim tíma. ★ Lífeyriskerfinu er að stómm hluta haldið uppi af ríkinu og skv. stjómarsáttmálanum er stefnt að því að lífeyrissjóðir og almanna- tryggingar tryggi samanlagðan lífeyri sehi nái lágmarkslaunum. Ljóst er að eftirlaunafólki fjölgar mikið á næstu ámm. Hinn 1. des. sl. vom um 22.000 manns 67 ára og eldri og reikna má með að þessi hópur verði fast að 23.500 að fjór- um ámm liðnum. Fjölgun lífeyris- þega kallar á útgjaldaaukingu umfram almenna tekjuaukningu í þjóðfélaginu og ennfremur er ljóst að boðað átak til þess að hækka lífeyri mun eiga eftir að reynast ríkissjóði kostnaðarsamt. ★ Vaxtagreiðslur hafa tekið dijúgan skerf af útgjöldum ríkisins. Þótt erlendar skuldir hafi lækkað, sem hlutfall af þjóðarframleiðslu, hefur átt sér stað skuldaaukning í einu mesta góðæri sem um getur. í seinasta ágripi af Þjóðarbúskapn- um kemur fram að á fyrstu sex mánuðum ársins hafði erlend lán- taka ríkissjóðs, nettó, aukist um 1,8 milljarða. Það er því ljóst að vaxtagreiðslur af erlendum lánum eiga áfram eftir að vera þungur baggi á ríkissjóði. Nauðsyn hagvaxtar Svo þungar skuldbindingar sem raun ber vitni vekja eðlilega upp spumingar um það hvemig jafti- framt sé hægt að halda ríkisútgjöld- um stöðugum sem hlutfalli af þjóðartekjum. Og jafnvel þótt við gefum okkur að stjómvöld haldi fast við þetta markmið þá er óleyst- ur vandinn sem felst í því að tekjur ríkissjóðs í dag duga ekki fyrir út- gjöldum. Lántökur, hvort sem er innanlands eða erlendis frá, leysa ekki vandann því lán þarf að borga. Stöðugur halli sem fjármagnaður er með lántökum leiðir til sífellt hærri vaxtagjalda sem að öðm óbreyttu gætu innan tiltölulega fárra ára sligað skattgreiðendur, ekki síst í ljósi loforða um skatt- frelsi ríkisskuldabréfa. Aukin samneysla verður tæpast fjármögnuð nema á gmndvelli hag- vaxtar og til þess þarf atvinnulífið að búa við fijálsræði og jöfn og stöðug skilyrði, eins og lofað er í stefnuyfirlýsingunni. Hvert eitt pró- sent í árlegri aukningu þjóðarfram- leiðslu hefur úrslitaþýðingu þegar til lengri tima er litið. 2,5% hagvöxt- ur á ári er rúmlega 10% á kjörtíma- bili en 4,5% á ári gera 20% á sama tíma. Það hlýtur svo að vera mun auðveldara að ná markmiðum um bætt kjör og aukna velferð ef hag- vöxtur á kjörtímabilinu verður 20% en ekki J.0% eða þaðan af minni. Það mun kosta meiri háttar skattahækkanir á næstu ámm ef ríkissjóður ætlar að standa undir öllum þeim útgjaldakröfum sem blasa við. Fram hjá þessum skatta- hækkunum verður ekki komist nema með bæði hagvexti og gagn- gerri uppstokkun á ríkisumsvifum. Flestir málaflokkar, sem ríkið þarf að endurskoða útgjöld sín til, em viðkvæmir og hafa mikla þýðingu fyrir þá sem hlut eiga að máli en án slíkrar endurskoðunar er sjálfri undirstöðu velferðar teflt í tvísýnu. Miklar skattahækkanir og eftir- gjöf á því markmiði að auka ekki ríkisumsvifin hlutfallslega leggur þyngri byrðar á almenning og at- vinnulíf og dregur úr verðmæta- sköpun. Eins er hætt við því að ekki náist samstaða á vinnumark- aðnum um hvemig semja skuli um launabreytingar í ljósi þyngri álaga á launþega og fyrirtæki. Skatta- hækkanir geta því auðveldlega orðið hvati að nýju víxlgengi kaup- lags og verðlags. Þá verður að hafa í huga að áhrif skattahækkana á vinnumark- aðinn og ákvarðanir fyrirtækja koma aðeins að litlu leyti fram í formlegum kjarasamningum. Ákvarðanir um laun og verðlagn- ingu vöm og þjónustu em teknar þúsundum saman á degi hveijum af sjálfstæðum aðilum. Vinnumark- aðurinn er lifandi markaður þar sem óformlegir samningar og breytingar em stöðugt í gangi. Stjómendur fyrirtækja taka líka fjölda ákvarð- ana á degi hveijum um reksturinn þar sem þeir bregðast við breyttum aðstæðum hver á sinn hátt. Við- brögð almennings og fyrirtækja við skattahækkunum lúta því sínum eigin lögmálum en ekki óskum stjómmálamanna og almennt gildir að fólk reynir að halda sínum hlut þegar skattamir em hækkaðir. Til- raunir til þess að hækka skatta geta því reynst kostnaðarsamari en virðist í fljótu bragði. Verðbólgan áfram vandamál Ýmislegt bendir til þess að bar- áttan við að ná verðbólgu niður á sama stig og í helstu viðskiptalönd- um okkar eigi eftir að verða mjög ströng. Stórir hópar launþega telja sig eiga ógreidda reikninga. Fisk- vinnslufólk er t.d. með bundna samninga út árið og hefur sjálfsagt fylgst af áhuga með hækkandi fisk- verði í kjölfar þess, að það var gefið fijálst 15. júní sl. eins og fram komnar kröfur gefa til kynna. Þá vekja fréttir um hugsanlegan samdrátt í sjávarafla ekki bjartsýni um framvindu efnahagsmála á næsta ári. Ekkert er ennþá í sjón- máli sem bendir til annars en að aflasamdráttur og erfiðleikar í sjáv- arútvegi leiði fyrr eða síðar til gengisfellingar krónunnar. Gengi krónunnar mun væntanlega haldast óbreytt framyfir næstu áramót en þá fer krónan að verða völt í sessi nema eitthvað ófyrirséð gerist. Ríkisvaldið er að þessu sinni ekki tilbúið til að lækka skatta og taka með þeim hætti þátt í sameiginlegu átaki til þess að ná verðbólgu nið- ur. Þvert á móti eru skattar hækkaðir og áframhald boðað á þeirri braut. Ein meginforsenda þess að skattalækkunarleiðin á sínum tíma gæti gengið upp sem frambúðarlausn var sú, að ríkisút- gjöldin væru lækkuð eða dregið úr þenslu með öðrum hætti. Skatta- lækkunarleiðinni var hins vegar ekki fylgt nægilega vel eftir og því hefur verðbólgan hækkað á nýjan leik. Einn mikilvægasti prófsteinninn á það hvort líkur eru á árangri í baráttunni við verðbólgu á næstu árum kemur fram á næstu mánuð- um. Þá kemur í ljós hvort launþega- samtökin gera kröfu um að hækkanir á framfærslukostnaði vegna skattahækkana verði bættar með samsvarandi launahækkunum. Ef deilur rísa um þetta atriði er ljóst að áform ríkisstjómarinnar um skattahækkanir eru jafnframt ávís- un á aukið víxlgengi verðlags og kauplags. í ljósi allra aðstæðna og stefnu- mála ríkisstjómarinnar er líklegt að verðbólgan verði á 20%—30% stiginu næstu misseri. Hún gæti jafnvel orðið hærri ef stjóminni mistekst að halda skattahækkunum í skeíjum eða ef hún nær ekki nægilegum tökum á stjóm peninga- mála. Lítið má útaf bera til þess að verðbólgan aukist ekki, sérstak- lega ef ytri aðstæður versna. Ef verðbólgan næst ekki niður er hætt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.