Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987 39 Skarphéðinn Waage verkstjóri - Minning Kveðjuorð: Friðrik Dungal Fæddur 24. desember 1909 Dáinn24.júlí 1987 í dag kveðjum við kæran sam- starfsmann og félaga, Skarphéðin Waage, hann tók sér tveggja daga fn' til þess að kveðja þennan heim, iagðist inn á spítala 23. júlí og andaðist daginn eftir, 24. júlí sl. Skarphéðinn fæddist á aðfanga- dag jóla árið 1909, foreldrar hans voru Magnús Waage, bóndi og smiður og kona hans, Himinbjörg Jónsdóttir, sem þá voru búsett að Laugarbóli í Amarfirði. Hann var yngstur 10 systkina, sjö bræðra og þriggja systra, sem öll eru látin nema tvær systur. Þegar Skarphéðinn var fjögurra ára gamall fluttust foreldrar hans að Mýrarhúsum í Amarfirði og þar ólst hann upp. Árið 1927, er hann var 18 ára gamall, fór hann tii sjós, fyrst á báta á Suðumesjum og síðar á tog- ara í Reykjavík. Það var ekki heiglum hent að komast á togara í þá daga, en fyrir orð bróður hans, Magnúsar, fékk hann pláss, enda var pilturinn harðduglegur og ósér- hlífinn. Þrátt fyrir lítil auraráð á kreppu- ámnum tókst Skarphéðni að safna sér aurum er nægðu til tveggja ára skólagöngu, fyrri veturinn, 1930— 1, í Alþýðuskólanum á Hvftárbakka, seinni veturinn, 1931— 32, var skólinn fluttur að Reykholti. Skarphéðinn minntist þessarar skólagöngu sinnar með þakkiæti og ánægju. Þar kynntist hann Málfríði Tómasdóttur og þau giftu sig 1933, eignuðust fjóra sjmi, Steinar, skókaupmann, Baldur, véi- viriqameistara, hann andaðist 1979, Tómas, veggfóðursmeistara, og Magnús, rafmagnsverkfræðing. Málfríður dó í desember 1967 eftir 34 ára gæfusamt hjónaband. Eftir skólagöngu vann hann ýmiss almenn störf til 1935, er hann réðst til Lýsisverksmiðjunnar Hauks, varð síðar verkstjóri hjá Lýsissamlagi íslenskra botnvörp- unga til 1964, verkstjóri í bygging- arvinnu, vann hjá Pósti og síma og í verzluninni Staumnesi þar til hann hóf störf hjá verzluninni Vogue 1970. Árið 1969 urðu tímamót í iífi Skarphéðins, þá kynntist hann Hólmfríði Eyjólfsdóttur, sem misst hafði mann sinn, Jón Einarsson, stofnanda Vogue, um svipað leyti og hann sína konu. Þau hófu sam- búð sem varð þeim báðum til mikillar blessunar, áttu saman sautján hamingjuár. Mikil og góð tengsl tókust með bömum þeirra og bamabömum og má með sanni segja að sambúð þeirra hafi verið öllum til gæfu. Samstarfsfólk hans í Vogue kveður hann með söknuði, hann var allra hugljúfi, hjálpsamur, greiðvik- inn og skemmtilegur. Ég votta Hólmfríði og öllum að- standendum hans innilega samúð. Guðjón Einarsson Öll vitum við að einhvem tíma munum við yfirgefa þennan jarð- neska heim, en það er nú svo, að ætíð kemur það okkur á óvart er sorgarfrétt berst. A slíkri stundu sækir að sár sökn- uður og orð verða lítilsmegnug, en minningin um góðan mann mun lifa. Skarphéðinn afí var einstakt snyrtimanni, hann var dulur maður að eðlisfari, en hafði jafnframt ákveðnar skoðanir til að bera. Ljóð- elskur var hann og vel lesinn. Óllu fuglaiífi og gróðri unni hann mjög. Sjaldnast féll honum verk úr hendi og til marks um það vann hann fulla vinnu til hinztu stundar, enda var það ósk hans og von. Sólarhring fyrir andlátið hafði hann kvatt heimili sitt og Fríðu ömmu okkar. Kviðalaus iagðist hann inn á sjúkrahús með þeim orðum, að hann yrði kominn aftur til vinnu, nýr og betri maður, að 10 dögum liðnum. Þannig var hann, tilfinningum sínum flíkaði hann helzt aldrei. Við vissum öll, og ekki sízt hann, að heilsa og þrek fór dvínandi, en hann bar höfuðið hátt til hinztu stundar. Fríða amma og Skarphéðinn stofnuðu saman heimili fyrir 17 árum, en nokkru áður höfðu þau bæði misst ástkæra maka. Þau voru sérlega samrýnd og áttu saman góð ár. Við kveðjum afa okkar um sinn með þökk fyrir að hann skyldi tengj- ast fjölskyldu okkar. Barnabörn Hóhnfríðar Fimmtudaginn 30. júlí var borinn til grafar einlægur vinur minn, Frið- rik Dungal, er lést á sviplegan hátt í flugslysi ásamt þremur félögum sínum. Hann var sonur hjónanna Höskuldar Dungal og Guðrúnar Ámadóttur. Hann fæddist í Reykjavík 11. desember 1959 og varð þvf aðeins rúmlega 27 ára gamall. Og alltaf kemur þessi spuming upp, af hveiju hann? Hann sem var fullur af lífsþrótti og bjart- sýni. Það hrannast upp ótal minn- ingar á stundu sem þessari. Friðrik var hrókur alls fagnaðar hvar og hvenær sem var, opinn og blátt áfram. Hann átti stóran vina- hóp og er nú stórt skarð höggvið úr þeim hópi. Hans verður minnst sem einlægs og yndislegs drengs. Þegar maður í blóma lífsins er tekinn í burtu úr þessum heimi á vit feðra sinna, vaknar sú spuming hver er tilgangurinn, en ekkert svar. Friðrik var giftur Ámýju Ric- hardsdóttur og áttu þau synina Richard Þór, tæplega 6 ára, og Áma Kristin, sem þau misstu í sept- ember síðastliðnum, þá aðeins 3 ára gamlan. Og ber nú fundum þeirra feðga saman á ný. Það er erfitt að sætta sig við þessa staðreynd. En minningamar um marga góða og skemmtilega fundi okkar Friðriks geymi ég í hjarta mér, því hann var mér sannur vinur. Þetta er erfíð raun fyrir Rikka Þór, tæplega 6 ára gamlan, sem missir litla bróður, var það honum erfiður og mikill missir, nú 10 mán- uðum síðar missir hann sinn elskulega föður. Elsku Ámý og Rikki Þór. Með þessum fátæklegu orðum vil ég votta ykkur mína dýpstu samúð og bið algóðan Guð að gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg. Ég votta foreldrum, tengdafor- eldrum, systkinum og öðmm ættingjum mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Einnig sendi ég samúðar- kveðjur til aðstandenda Gunnars, Magnúsar og Rafns. Guð blessi ykkur öll. Helga Sigurðardóttir Fer inn á lang flest heimili landsins! raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar Steypuþyrla Til sölu steypuþyrla (gólfslípivél). Verð kr. 65.000,-. Upplýsingar í síma 75836 á kvöldin. Sumarbústaður 35 fm sumarbústaður er til sölu ef viðunandi tilboð fæst. Hann er 100-110 km frá Reykjavík. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Bústaður — 4088“. Rækjuframleiðendur Vegna breytinga á verksmiðjunni höfum við til sölu: 1 stk. Justus-litgreini fyrir rækjur. Tækið er mjög vinnusparandi ásamt hreinsi- borðunum og annar 2-3 pillunarvélum. Tækið er lítið notað. Þeir, sem áhuga hafa snúi sér til Johansen, framkvæmdastjóra, eða Berg, skrifstofu- stjóra. Telefax nr. 47-83-60630, sími 47-83- 60555. KÁRE RENÖ A/S, 9180 Skjervöy, Norway. Notaðar vélar og tæki Vegna breytinga eru neðangreind tæki og vélar til sölu: 1 stk. 8 tonna plötufrystir af Kværner-gerð. 1 stk. kælivél, 6 syl., Hall 17000 kcal/t. 1 stk. Siemensrofi 2.500 amp. 1 stk. Danfossspennir 3x380 volt. 1 stk. Uppgufari með einni viftu, 0,7 kw (ammoníak). 1 stk. Pækilkar með færibandi fyrir rækju. Þeir, sem áhuga hafa, geta snúið sér til Jo- hansen, framkvæmdastjóra, eða Berg, skrif- stofustjóra. Telefax nr. 47-83-60630, sími 47-83-60555. KÁRE RENÖ A/S 9180 Skervöy, Norway. Fjölskylduhelgi Útivistar í Þórsmörk 7.-9. ágúst Fjölbreytt dagskrá fyrir unga sem aldna: Ratleikur í umsjón unglingadeildar, göngu- ferðir, kvöldvaka, pylsugrill, varðeldur. Gist í Útivistarskálunum Básum eða tjöldum. Brottför föstudag kl. 20.00 og laugardag kl. 8.00. Sérstakt afsláttarverð. Frítt fyrir börn 9 ára og yngri með foreldrum sínum. Allir velkomnir, jafnt einstaklingar sem fjölskyldur. Sjáumst. LJtlVlStij Grófinni 1, Símar: 14606og 23732. íslensk - hollenska hf. Erum fluttir á Smiðjuveg 4C, Kópavogi. Ný símanúmer eru 44677 og 44780. Námsstyrkir fyrir starfandi félagsráðgjafa og æskulýðsleiðtoga Council of International Programs for Youth Leaders and Social Workers (CIP) býður styrki til þátttöku í námskeiðum frá apríl til ágúst 1988. Umsóknareyðublöð og upplýsingar liggja frammi hjá Fulbrightstofnuninni, sími 10860. Umsóknarfrestur er til 1. september 1987. Aðalfyndur Fylkis, FUS Aðalfundur veröur haldinn aö Hafnarstræti 12, 2. hæö, sunnudaginn 9. ágúst kl. 16.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á SUS-þing. 3. Önnur mál. Mætið stundvislega. Fylkir, FUS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.