Morgunblaðið - 06.08.1987, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987
5
h
Bitíst um íslenzkan fisk á fiskmarkaðinum í Hull
Neyðarástand á ferskfiskmörkuðum í Þýskalandi:
Ferskur fiskur ill óseljan-
legur í kjölfar sjónvarps-
þáttar um hringorma
NEYÐARASTAND hefur ríkt á ferskfiskmörkuðum í Vestur-Þýska-
landi undanfarna daga í kjölfar sjónvarpsþáttar um hringorma, sem
sýndur var þar i landi á þriðjudagskvöld í sfðustu viku. Er nú svo
komið að ferskur fiskur er nær óseljanlegur, einkum í Suður-
Þýskalndi, sem verið hefur stærsta markaðssvæðið fyrir ferskan
fisk. Samkvæmt upplýsingum frá Landssambandi islenskra útvegs-
manna hafa menn þungar áhyggjur af þróun þessara mála, enda
hefur orðið mikið verðfall á ferskfiski á fiskmörkuðum í Bremer-
haven og Kuxhaven undanfarna daga.
Upphaf þessa máls má rekja til
sjónvarpsþáttar þar sem skýrt var
frá því að hringormi færi ört fjölg-
andi í fiski sem veiddur væri í
Norðursjó, vegna aukinnar meng-
unar. Var þar jafnframt tekið fram
að ormurinn gæti valdið þarma-
bólgu, kýlum og illskeyttri maga-
kveisu. Þótt þátturinn hafi
eingöngu fjallað um físk úr Norð-
ursjó virðist almenn hræðsla hafa
gripið um sig hvað varðar físk-
neyslu og enginn greinarmunur
gerður á hvar fískurinn er veiddur.
Kemur þetta meðal annars fram í
því, að á örfáum dögum hefur fisk-
neysla í Þýskalandi dregist saman
um allt að 70%. í kjölfarið hefur
orðið verðfall á ferskum fiski á físk-
mörkuðum í Þýskalandi. Til
samanburðar má nefna að Sigluvík
SI seldi á miðvikudag í síðustu viku
karfa fyrir 52,55 krónur kflóið að
meðalverði, en Klakkur VE, sem
seldi í Þýskalandi síðastliðinn
þriðijudag, fékk aðeins 31,29 króna
meðalverð fýrir kflóið af karfa.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins sitja kaupendur aflans nú
uppi með fískinn vegna áðumefndr-
ar sölutregðu.
Eins og áður segir hafa íslenskir
útvegsmenn þungar áhyggjur af
framvindu þessara mála enda gæti
áframhaldandi sölutregða á fersk-
físki í Þýskalandi haft ófyrirsjáan-
legar afleiðingar fyrir afkomu
íslensks sjávarútvegs í framtíðinni.
Þá er og óvíst hvort þessi umræða
kann að hafa áhrif á freðfiskmark-
aðinn er fram líða stundir. Að sögn
Sigurðar Markússonar, fram-
kvæmdastjóra sjávarafurðadeildar
SÍS, eru þar uppi tvær kenningar,
sem ganga í sitthvora áttina. Hinir
svartsýnu telji að þessi neikvæða
umræða kunni að leiða til minnk-
andi fiskneyslu almennt, og gildi
þá einu hvort um sé að ræða fryst-
an físk eða ferskan. Skoðun hinna
bjartáynu væri hins vegar sú, að
fólk muni í auknum mæli kaupa
frystan físk í staðinn fyrir fersk-
fískinn. í því sambandi benti
Sigurður á grein, sem birt var í
þýsku dagblaði nú í vikunni, þar
sem rækilega er fjallað um hring-
orma í físki og á það bent, að
ormamir drepist við frystingu og
neysla freðfísks því með öllu hættu-
laus.
Ragnar Atli Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, og Magnús Bjarnason virða fyrir sér hluta
terrazzo-gólfsins.
á að tryggja að snjór og bleyta
tolli ekki.
Áætlað er að terrazzo-gólfið
kosti um 25 milljónir króna og
sagði Ragnar Atli Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Kringlunnar,
að ákveðið hefði verið að ráðast
út í svona dýra framkvæmd
vegna þess svona gólf væru mjög
þægileg að þrífa og þyrftu lítið
viðhald. Einungis þarf að slípa
gólfín á 20-30 ára fresti og þau
eiga að endast að minnsta kosti
jafn lengi og húsið. „Þar að auki
eru þau líka mjög falleg," sagði
Ragnar Atli að lokum.
byrjendanámskeið
Fjölbreytt, gagnlegt og skemmtilegt
byrjendanámskeið í notkun einkatölva
Leiðbeinandi:
Dagskrá:
• Grundvallaratriði við notkun PC-tölva
• Stýrikerfið MS-DOS
• Ritvinnslukerfið WordPerfect
• Töflureiknirinn Multiplan
• Umræður og fyrirspurnir
Logi Ragnarsson,
tölvufrœðingur
Tími: 11., 13., 18. og 20. ágúst kl. 20*23
Innritun í símum 687590 og 686790
.Tölvufræðslan
BORQARTÚN! 28
FUJICOLOR
SUPER HR
langbesta fihnan l
og á besta verðinu
Okkartakmark:
betri myndirjyrirnúmúpening!
Austurstræti 6 sími 611788 og Skipholti 31 sími 25177