Morgunblaðið - 06.08.1987, Síða 25

Morgunblaðið - 06.08.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987 25 Heilsársfatnaður - sérstakyr fatnaður t.d^ Magic Group — Differer|jel—Tam ^ i - Ghost - Fotch - Uhlour TER sport Vesturgötu 4 í Hljómskálag'arðinum voru krakkarnir í leikjum fram eftir degi. Félagsmiðstöðvar í Reykjavík: Á annað hundrað böm í skrúðgöngu FÉLAGSMIÐSTÖÐVARNAR í Reykjavík efndu í gær til litskrúð- ugs lokahófs og voru þátttakendur næstum 200 talsins. Þeir voru frá átta félagsmiðstöðvum í Reykjavík en þær hafa boðið upp á leikjanámskeið fyrir börn í sumar. Að sögn Atla Amasonar starfs- manns félagsmiðstöðvarinnar Ársels hafa félagsmiðstöðvamar í Reykjavík staðið fyrir slíkjum leikjanámskeiðum undanfarin ár og hafa þau notið mikilla vinsælda meðal reykvískra bama. í gær lauk síðasta leikjanámskeiði sum- arsins og eins og undanfarin sumur kveðja bömin sumarið með svokallaðri „kamivalhátíð". Steinunn Hrafhsdóttir starfs- maður í Árseli sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta væri orðin hefð og hefðu félagsmiðstöðvamar skipst á að skipuleggja hátíðina undanfarin ár. „í ár er það hlut- verk okkar í félagsmiðstöðinni í Árseli að hafa veg og vanda að þessu „kamivali" sagði Steinunn. Skrúðgangan lagði af stað frá Klambratúni fyrir hádegi. Þá var . -f s Morgunblaðið/BAR Krakkar frá félagsmiðstöðinni Frostaskjóli í „kamivalskrúð- göngunni". gengið niður laugaveginn og en- dað út í Hljómskálagarði þar sem ætlunin var að skemmta bömun- um með ýmsum leikjum og þrautum. Mikið fjör var á leiðinni og virtust krakkamir óþreytandi við að syngja „Ég langömmu á“, „Atti katti nóva" og fleiri lög. Sumir börðu taktinn með bumbum og hristum sem þeir höfðu sjálfír búið til og málað í öllum regn- bogans litum. Bömin sjálf vom einnig hin skrautlegustu í búning- um sínum sem vom mjög fjöl- breytilegir. Öll vom þau með rauðmálaðar kinnar og bláan og svartan lit um augun. Þegar komið var í Hljómskála- garðinn vom krakkamir orðnir svangir og var þeim þá boðið upp á popp og djús á meðan þau hvíldu lúin bein eftir langa gönguferð. Þá var farið í skipulagða leiki og sá hver félagsmiðstöð um einn leik. Þar fór m.a. fram reiptog, boðhlaup, hópsöngur, pokahlaup og brennibolti. Bömin skemmtu sér við leiki fram eftir degi og var veðrið eins og best verður á kostið til útivistar og leikja. KARAKTER

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.