Morgunblaðið - 06.08.1987, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 06.08.1987, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987 57 Ljósmynd/Kari Guölaugsson Skautahöllin er staðsett á svæði Háskólans í Calgary. Húii er sú fyrsta sinnar tegundar með 400 metra keppnisbrautum. Þar verður keppt í skíðagöngu og í skotfimi. Ljósmynd/Kari Guölaugsson Canmore er rúmlega 5000 manna bær í Klettafjöllunum. Þar verður keppt í skíðagöngu og í skotfími. skólans í Calgary. Þær byggingar, sem munu mynda ólympíuþorpið, eru nú þegar í notkun og í eigu háskólans. Þar er góð gistiaðstaða, stór matsalur, íþróttasalur, sund- laug og ÖIl önnur aðstaða hin besta. „Saddiedome“ I miðborginni er glæsileg skauta- höll, Saddledome, með sæti fyrir 17.000 áhorfendur. Þar verður keppt í listdansi á skautum og í íshokkí. Þessi skautahöll er heima- völlur „Calgaiy Flames" sem er um þessar mundir eitt af bestu ís- hokkíliðum Kanada. Íshokkí er langvinsælasta keppnis- íþróttin í Kanada. Kanadamenn hafa alla tíð verið mjög framarlega í heiminum í þessari íþrótt og hafa þeir unnið gull á Ólympíuleikunum 5 sinnum. Eftir að gullið í karla- flokki féll í hendur Kanada á síðasta heimsmeistaramóti í listdansi á skautum líta Kanadamenn björtum augum til keppninnar í Saddledome. KlettaQöllin Keppnin í alpagreinum mun fara fram í Nakiska í Klettafjöllunum. Nakiska er bara lítill partur af Kananaskis-þjóðgarðinum sem er mjög vinsælt útivistarsvæði. Þó er Nakiska þekktasta skíðasvæðið þar og tekur um klukkutíma fyrir Calg- ary-búa að keyra þangað til að fara á skíði. Mesti kosturinn við Nakiska í sam- anburði við Sarajevo er að bæði alpagreinar karla og kvenna verða á sama svæði, en í Sarajevo var tæplega 2 tíma akstur á milli keppn- isstaða. Enda þótt Nakiska liggi í rúm- lega 1500 metra hæð yfir sjávar- máli, var frekar snjólétt þar síðasta vetur. Þetta hefur valdið mótshöld- urum nokkrum áhyggjum, en búið er að koma fyrir rúmlega 30 snjó- gerðarvélum í fjallinu til öryggis, ef snjóleysi verður næsta vetur. Val Nakiska sem keppnisstaðar í alpagreinum var mjög umdeilt og snjóleysið þar í vetur hefur gefið andmælendum Nakiska-svæðisins byr undir báða vængi. Þeir hafa bent á að Lake Louise sé miklu hentugri keppnisstaður bæði hvað snjó og allar skíðaaðstæður varðar. Þeir hafa mjög mikið til síns máls en staðreyndin er sú að Lake Lou- ise er í rúmlega tveggja tíma fjarlægð frá Calgary þannig að „pólitík" réð því, ekki skfðaaðstaða, að Nakiska varð fyrir valinu. Canmore í Canmore fer fram keppni á gönguskíðum og í skíðaskotfími. Canmore er tæplega 5000 manna bær 130 km vestur af Calgary í Klettaijöllunum. Göngubrautimar í Canmore eru vægast sagt mjög erfíðar og kappar eins og Einar Ólafsson verða ekki öfundsverðir af því að ganga og skauta þessar brautir. Það versta er þó, að Canmore liggur mjög hátt yfír sjávarmáli, rúmlega 1400 metra. Þetta gæti háð keppendum, ef þeir verða ekki búnir að æfa í slíkri hæð og venjast loftslaginu. Snjóleysið masta áhyggjuefnl framkvœmdanefndar Ólympaaiuleikanna Núna eru rúmlega sjö mánuðir þar til XV. Vetrarólympíuleikamir 1988 í Calgary verða settir. Það hefur varla farið fram hjá neinum í Calg- ary, slík hefur umfjöllunin verið í Ijölmiðlum. Mesta áhyggjuefni framkvæmdanefíidar Ólympíuleik- anna hingað til hefur verið snjóleys- ið í Calgary síðasta vetur. Margir hafa bent á, að slík einmuna blíða, líkt og verið hefur þetta ár, geti tæplega orðið tvo vetur í röð, en hvort sem verður snjóleysi eða ekki þá em tiltækar snjógerðarvélar all- staðar sem til þarf. Þess vegna ættu áhyggjumar að vera ástæðu- lausar. Allir hljóta þó að vera sammála um að snjór af himnum ofan sé eðlilegri við slík stórmót sem vetrarólympíuleikamir eru. 17. nóvember mun ólympíueldurinn koma til St. John’s á Nýfundna- landi frá Grikklandi. Þá hefst þriggja mánaða hlaup með ólympíu- eldinn vestur á bóginn til Calgary. Ólympíuleikamir munu verða settir við hátíðlega athöfn á McMahon- leikvanginum í Calgary 13. febrúar 1988. Eftir það mun ólympíueldur- inn, tákn friðar og ólympfuhugsjón- ar, loga í 700 feta háum sjónvarps- tumi þar til XV. Vetrarólympíuleik- unum lýkur þann 28. febrúar 1988. Helsta einkenni miðborgarinnar í Calgary eru skýjakljúfamir. Þessi háhýsi koma eftilvill einhveijum kunnuglega fyrir sjónir, en myndartaka á bíómyndinni um „Superman" fór að hluta til fram í kringum þessar háu byggingar. KNATTSPYRNA Dleter Höness veifar til áhorfenda á Ólympíuleikvanginum í sfðasta skipti. Höness kveður Friðriksdóttur i Munchen ÞAÐ var sögulegur knatt- spyrnuleikur sem fram fór á Ólympíuleikvanginum hór í Miinchen fyrir skömmu milli vestur þýska liðsins Bayern Múnchen og enska liðsins Liverpool. Annars vegar vegna þess að hinn góðkunni vestur- þýski leikmaður Bay- ern Dieter Höness lók þar sinn síðasta leik sem atvinnu- maður, og hins vegar vegna þess að um var að rœða fyrsta leik Liverpool á megin- landinu eftir hörmungarat- burðina f Brussel 1985 þar sem ólæti stuðningsamanna Liverpool ollu því að áhorf- endapallar hrundu og fjöldi manns lót Iffið. Hafa ensk knattspyrnulið verið í banni frá Evrópumótum síðan. Dieter Höness lék fyrst sem atvinnumaður með Stuttg- art-liðinu og hefur síðan leikið með Bayem síðastliðin átta ár. Til heiðurs gömlu Frá kempunni komu Bergljótu fyrrum leikmenn beggja liðanna saman fyrir leik Liverpool og Bayem og spiluðu. Þar á meðal voru kappar eins og: Gerd Miiller, Paul Breitner, Uli Höness (núverandi framkvæmda- stjóri Bayem), Sepp Maier og Brenninger, allt fyrrverandi landsliðsmenn í þýska landsliðinu. Leiknum lauk með sigri Bayem sem skoraði átta mark gegn sex mörkum Stuttgart. Sýndu gömlu hetjumar gullfallega tilburði og var gaman að. Leikur Liverpool og Bayem var fyrsti leikur Bayem undir stjóm hins nýja þjálfara Jupp Heynckes. Stillti hann liðinu upp með tveim- ur gestum; Dananum Sören Lerby og Ganamanninum Ayew Abedi, sem leikur í Frakklandi og er kallaður Pele! Léku þeir fyrri hálf- leikinn og sýndu góð tilþrif. Forráðamenn Liverpool eru ný- búnir að kaupa fjóra menn en liðið var hér án fímm leikmanna sem eiga í meiðslum. Var Liverpool því með hálfgert tilraunalið, og var greinilegt að það vantaði sam- æfíngu í liðið. Liverpool sýndi ekki þá snilldartakta sem maður á að venjast af liðinu. Fyrsta hálf- tímann gerðist næsta lítið hjá báðum liðum. Á 31. mín. sendi Brehme á Mattheus sem þmmaði í netið 1:0. Og tólf mín. sfðar gaf Sören Lerby eina af sínum hámá- kvæmu löngu sendingu á Matt- hesu á hægra kanti, Mattheus bmnaði upp í homið og gaf lag- lega á Dieter Höness sem skoraði með föstu skoti af löngu færi. Draumamark og áhorfendur hylltu Höness ákaflega. Staðan var 2:0 í hálfleik og vom menn hálf svekktir á deyfð Liverpool- liðsins. Gestimir í liði Baýem, „Pele“ og Lerby, léku bara í fyrri hálfleik og vöktu mikla hrifningu. Heyrst hefur að möguleiki sé á að „Pele“ verði með Bayem eftir næsta tímabil. í seinni hálfleik komu þeir Aug- enthaler, Dorfner, Lunde og Rummenigge inn í liðið hjá Bay- em. Var leikurinn betri af beggja hálfu en Liverpool náði þó ekki að skapa sér hættuleg færi. Mest bar á Gillespie, Johnston, Bames og Beardsley í leik Liverpool. Á 62. mín. fór Dieter HÖness útaf og varð að stöðva leikinn á meðan áhorfendur hylltu hann. Jurgen Wegmann, sem áður var með Schalke kom inn á og tekur hann stöðu Höness í liði Bayem. Weg- mann byijaði vel og skoraði á 71. mín. eftir slæm mistök markvarð- ar Liverpool, Grobbelaar. Hann hljóp út fyrir vítateig og hreinsaði illa frá. Mattheus skaut háuum snúningsbolta yfir markvörðinn en í stöng. Wegmann var vel stað- settur og skoraði örugglega, 3:0. Nú tóku Bretamir við sér og mínútu eftir mark Wegmanns skoraði Aldridge úr þvögu, sem myndaðist við mark Bayem. Á 83. mín. tókst Liverpool svo að skora á ný. Var þar að verki Bar- nes, sem Liverpool keypti frá Watford. Beardsley sneri laglega á vöm Bayem og sendi út á Bar- nes sem skoraði með hörkuskoti. Greinilegt er að bæði Beardsley og Bames voru góð kaup fyrir Liverpool-liðið. Leiknum lauk 3:2 fyrir Bayem. Það er ekki amalegt að ljúka ferli sínum eins og hinn 34 ára gamli Dieter Höness. Hann var kallaður fram af áhorfendum í lok leiksins og ætlaði fagnaðarlátunum aldrei að linna. Aðspurður sagðist hann mjög ánægður með lokaleikinn en auðvitað fylgdi því dálítill daupur- leiki að hætta. Það var ánægjulegt að sjá Li verpool á meginlandinu og ef stuðnir.gsmenn þeirra haga sér eins vel og á þessum leik verður þess ekki langt að blða að Liver- pool, sem og önnur ensk lið, leiki í Evrópukeppninni á ný.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.