Morgunblaðið - 23.09.1987, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987
5
Knattspyrnufélagið Yalur vann sannfærandi sigur
í fyrstu deild íslandsmótsins
í knattspyrnu 1987. Valsmenn unnu tíu leiki,
gerðu sjö jafntefli og töpuðu einungis einum leik. Þeir
skoruðu þrjátíu mörk í leikjunum átján en
fengu aðeins á sig tíu.
Sjóvátryggingarfélag íslands er stolt af því að hafa
stutt starfsemi knattspyrnudeildar Yals á keppnistímabilinu.
Sjóvá þakkar leikmönnum
og forráðamönnum Vals
fyrir samstarfið
og óskar þeim
áframhaldandi velgengni
á knattspyrnuvellinum.
Tryggingarfélag í einu og öllu.
Sjóvátryggingarfélag íslands hf., Suðurlandsbraut 4, sími (91)-82500.
SJOVA
Sauðfjárslátrun hafin á Blönduósi:
Sauðfé fækkar
um 13,2% vegna
ríðuníðurskurðar
Eyþór Fannberg kerfisfræðing-
ur.
Manntalsskrif-
stofan:
Nýr for-
stöðumað-
ur ráðinn
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að ráða Eyþór Fannberg for-
stöðumann Manntalsskrifstofu
Reykjavíkurborgar.
Eyþór sem er kerfisfræðingur að
mennt hóf störf hjá Reykjavíkur-
borg árið 1971 og var lengst af hjá
Skýrsluvélum eða til ársins 1984.
Frá árinu 1984 hefur hann unnið
við tölvuráðgjöf og að lífeyrissjóðs-
málum hjá Reykjavíkurborg.
Eyþór var formaður starfs-
mannafélagsins í tvö ár frá 1980
til 1982 og átti sæti í stjóm þess
um nokkurra ára skeið.
Blðnduósi.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN hjá
Sölufélagi Austur-Húnvetninga
hófst á Blönduósi 15. septem-
ber. Áætlað er að slátra 53.500
kindum og er það 2.220 kindum
fleira en sl. haust. Þessari
aukningu sláturfjár veldur mik-
ill niðurskurður á riðuveiku fé
en alls er áætlað að skera niður
fé af þeim sökum á 14 bæjum
í Austur-Húnavatnssýslu.
Ennfremur hafa fjórir bændur
gert samning við framleiðnisjóð
um fækkun fjár. Ef tekið er tillit
til þess hve margar kindur voru
á fóðrum á viðkomandi bæjum sl.
vetur þá nemur fækkun fjárins í
Austur-Húnavatnssýslu, 5716
kindum eða sem svarar 13,3% af
sauðfé í sýslunni. Með öðrum orð-
um þá samsvarar þessi fækkun
því að sauðfjárrækt hefði verið
hætt í einum sveitahrepp í Aust-
ur-Húnavatnssýslu. Mest er
fækkunin í Áshreppi, Vatnsdal,
en þar verður skorið niður fé á 6
bæjum en á þessum bæjum voru
2512 kindur á fóðrum sl. vetur. í
Svínavatnshreppi verður skorið
niður fé á 4 bæjum og fækkar
þar um 1500 kindur samkvæmt
ásetningsskýrslum sl. vetrar.
Að sögn Gísla Garðarsson slát-
urhússtjóra á Blönduósi var
meðalfallþunginn fyrstu tvo dag-
ana 14,45 kíló og er það rúmlega
kílói meira en fyrstu dagana í
fyrra. Áætlað er að ljúka lamba-
slátrun 21. október en óvíst er
hvenær slátrun fullorðna fjárins
lýkur vegna margra óvissuþátta
sem tengjast riðu-niðurskurðin-
um.
— Jón Sig.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsaon
Óvíst er hvað þessar kindur eru að hugsa en ljóst er að þessari dýrategund fækkar verulega í Austur-
Húnavatnssýslu á þessu hausti.
íslandsmeistarar Vals og Sjóvá
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!