Morgunblaðið - 23.09.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987
19
byggingu almennrar hagsældar, en
tæpast til fyrirtækja í venjulegum
atvinnurekstri. Marshall-aðstoðin
við okkur og fleiri á sínum tíma var
skv. þessu dæmigerð þróunarað-
stoð.
Til þróunaraðstoðar má telja að
stjómsýslukostnað við aðstoðina/
samvinnuna, undirbúning starfs-
manna, leit að verkefnum,
námsstyrki og margt fleira.
Ýmis vafaatriði geta þó og hafa
komið upp í sambandi við skilgrein-
ingu á framlagi íslendinga til
þróunarsamvinnu. Þar má nefna,
hvort telja eigi kostnað við upplýs-
ingastarf til þróunarsamvinnu eða
t.d. aðstoð við flóttamenn frá þró-
unarlöndum. Sama gildir um
framlag til alþjóðastofnana, sem að
verulegu leyti beina starfi sínu að
þróunarríkjum, svo sem WHO,
FAO, ILO og UNESCO. Vafi ríkir
á því, hvemig telja skuli fjárfest-
ingu í t.d. rannsóknarskipum eins
og r/s Feng eða eignamyndun yfir-
leitt. Á að relja það til framlaga á
einu ári eða dreifa þeim á afskrift-
artíma eignanna?
Dæmi um aðstoð utan
eiginlegrar
þróunarsamvinnu
ÞSSÍ hefur ekki haldið sig
stranglega við skilgreininguna skv.
lið 1 hér að ofan. Stóra sjávarút-
vegsverkefnið sem hefur verið í
gangi á Cabo Verde og halda mun
áfram í haust, er að mínu viti dæmi-
gert þróunarsamvinnuverkefni. En
það er ýmislegt sem stofnunin hef-
ur verð beðin að liðsinna og hefur
liðsinnt, sem er utan skilgreiningar-
innar hér að ofan, oft smátt í
sniðum, en engu að síður gefandi
fordæmi sem leitað er eftir. Það er
m.a.s. sumt af því sem við emm
nú að styrkja á Cabo Verde, sem
ekki uppfyllir ströngustu kröfur um
Þróunarsamvinnu. íslendingar
leggja í flestum þessara tilfella að-
eins til ákveðið fjármagn, en taka
ekki þátt í framkvæmdum. Meðal
þessara verkefna má nefna:
— Byggingu fræðslumiðstöðar
kvenna á eyjunni Sao Vinente.
Um er að raeða eins konar fé-
lagsmiðstöð kvenna á eyjunni,
þar sem m.a. er kennd meðferð
matvæla (fisks), heilsufræði,
lestur, heimilisfræði o.fl.
— Fengur mun fara með rúm 30
tonn af íslensku mjóikurdufti,
sem verða birgðir til neyðar-
hjálpar.
— Við tökum þátt í eflingu heilsu-
gæslu í höfuðborginni Praia,
með endumýjun tveggja heilsu-
gæslustöðva í fjölmennum,
nýjum hverfum.
— Loks er það bygging eldaskála
fyrir munaðarlausa skjólstæð-
inga velferðarsamtaka Græn-
höfðaeyja.
Hvað helst hefur sett svip sinn
á störf ÞSSÍ þegar á heildina er
litið er ekki á mínu færi að meta.
Undanfama mánuði og reyndar
lengur hefur starfsemin einknennst
af undirbúningi framhalds verk-
efnisins á Grænhöfðaeyjum, eins
og komið hefur í fréttum. Auk þeirr-
ar sögu sem ég hef nú rakið og tínt
í héðan og þaðan, er auðvitað ýmis-
legt fleira sem Þróunarsamvinnu-
stofnun íslands hefur fengist við.
Einnig þarf að hyggja að ffamtíð-
inni og verður það gert í næstu
grejn.
Ég minntist áður á samnorrænu
verkefnin sem ÞSSÍ tók í arf m.a.
í Kenya, Tanzaníu og Mozambík.
Þeim skuldbindingum er nú Iokið
eða að ljúka, nema í Mozambfk
stendur verkefnði út 1989.
En þrátt fyrir allt sem áður var
sagt um samnorræna báknið, sem
mörgum væri farið að óa við, var
í fyrra undirrituð í Harrare í
Simbawe yfirlýsing stjómvalda
allra Norðurlandanna og níu ríkja
í S-Afríku um víðtæka þróunarsam-
vinnu. Við eigum eftir að ákveða á
hvem hátt við tökum þátt í þessu
samstarfi, en svo mikið er víst að
til þess er ætlast af okkur. Rétt er
að geta þess, að þessu samstarfi
verður ekki hagað alfarið á hinn
hefðbundna samnorræna hátt, held-
ur munu Norðurlöndin ýmist taka
að sér tvíhliða verkefni, sameinast
um „tvíhliða" verkefni, þá t.d. tvö
Norðurlönd á annarri hliðinni eða
þau geta greitt inn í pott marghiiða
verkefna. Ég vík nánar að þessu í
næstu grein.
Höfundur er foratöðumaður Þró-
unarstofnunar falanda.
MALVERKA-
sýning
á málverkum eftir Sfgurð Kristjánsson,
listmálara, I Eden Hveragerði,
dagana 23. sept — 6. okt.
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-brófaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaöri vinnu. Þú stundar námiö heima
hjá þér á þeim hraöa sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
irmanna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og
sjáöu öll þau tækifæri sem þórgefast. ICS-brófaskólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini i lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í f lugpósti. (Setjiö kross í aöeins
einn reit). Námskeiöin eru öll á ensku.
□ Tölvulorritun
□ RaNirkjun
□ Rilstörf
□ Bókhald
□ Vélvirkjun
□ Almennt nám
□ Bitvólavirkjun
□ Nytjalist
□ Stjórnun
tyrirtœkja
□ Garóyrkja
□ Kjólasaumur
□ Innanhús-
arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaöa
□ Blaóamennska
□ Kœlitækni og
lottrœsting
Nafn:.......................................................
Heímílistang:...............................................
ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High
Street, Sutton, Surrey SM11PR, England.
AUK hf. 3.212/SÍA