Morgunblaðið - 23.09.1987, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987
- Vík í Mýrdal:
Skorað á landbúnað-
Nokkrír fundargesta þungir á brún.
Fundurinn í Leikskálum var vel sóttur og' þung undiralda í umraeðum. Morgunbiaðið/SigurJur Jónsson
arráðherra að veita
sláturleyfi strax
Ráðherra vill ekki ganga gegn áliti dýralækna
^ Selfossi.
Á FJÖLMENNUM fundi um lokun Sláturhússins í Vík hf.,
sem haldinn var í Leikskálum í Vík í Mýrdal á mánudags-
kvöld, var skorað á Jón Helgason landbúnaðarráðherra að
veita sláturhúsinu starfsleyfi til eins árs og að hann tæki
ákvörðun fyrir 23. september. Fund þennan boðuðu bændur
sem lagt hafa fé inn í Sláturhúsið í Vík hf.
Aðalsteinn Sveinsson héraðsdýralæknir.
Sláturhusið í Vík hf. fékk tilskip-
un um það fyrir tæpum mánuði að
ekki fengist leyfi til slátrunar þar
á þessu hausti. Engin vilyrði fylgdu
tilkynningunni um það að húsið
fengi leyfi að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum. Húsið hefur á undan-
fðmum árum fengið undanþágu til
slátrunar og forsvarsmenn þess
reiknuðu með að svo yrði einnig
nú. Með lokun sláturhússins er eitt
sláturhús starfandi í Vík, hús Slát-
urfélags Suðurlands.
í ályktun sem atvinnumálanefnd
Mýrdalshrepps gerði 21. september
eru hörmuð vinnubrögð við synjun
á sláturleyfi til Sláturhússins í Vík
hf. Nefndin tekur ekki afstöðu til
fjölda sláturhúsa í Vík en bendir á
að við Sláturhúsið í Vík hf. hafi 3
til 5 manneskjur verið við ársstörf.
Nefndin kveðst ekki standa á móti
því að leitað sé hagræðingar og
slátrun í Vík sé á einni hendi en
bendir á að Sláturfélag Suðurlands
hafi ekki verið jákvætt gagnvart
fullnaðarvinnslu sláturafurða í Vík
og í hlutfalli við fjölda sláturgripa
hafí mun minni vinnsla sláturafurða
verið á vegum SS en hjá Slátur-
húsinu í Vík hf. Síðan segir orðrétt
í ályktuninni: „Atvinnumálanefndin
óttast því afleiðingar þess að SS
fái eitt sláturleyfi í Vík nema að
jafnframt fáist trygging fyrir því
að þessi breyting verði ekki til at-
vinnusamdráttar eða aukins at-
vinnuleysis í hreppnum."
Það var þungt hljóð í innleggj-
endum í Sláturhúsið í Vík hf. og
starfsfólki þar á fundinum. Fundar-
menn kröfðust skýrra svara af
landbúnaðarráðherra í málinu og
vildu að hann tæki pólitíska ákvörð-
un og gæfí húsinu sláturleyfi í ár
þar sem aðstæður hefðu ekki breyst
í húsinu frá fyrra ári þegar húsið
var með undanþágu til slátrunar.
Ráðherra vísaði slíku á bug og bar
fyrir sig álit dýralækna á húsinu
sem hann sagði erfitt að sniðganga.
Þeir sem boðuðu til fundarins í
Vík voru bændur sem lagt hafa inn
fé í sláturhúsið undanfarin haust
og vilja gera það áfram. A fundinn
voru boðaðir þingmenn kjördæmis-
ins og heraðsdýralæknir í forföllum
yfírdýralæknis.
Dýralæknar sem skoðað hafa
húsið mæla ekki með slátrun og
hafa reyndar ekki gert það á undan-
fömum árum en yfirdýralæknir þó
gefið undanþágu. Settur yfirdýra-
læknir, Sigurður Sigurðsson, vill
ekki gefa slíka undanþágu í ár og
landbúnaðarráðherra vill ekki gefa
leyfi þvert á álit dýralækna. Á fund-
inum var bent á það að ráðherra
hefði fordæmi fyrir undanþágu og
gæti hæglega veitt hana til eins árs
og tekið með því tillit til aðstæðna.
Einkum þess hversu stuttan fyrir-
vara fyrirtækið fengi um lokun og
líka fólkið um missi atvinnunnar.
Guðbjartur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Sláturhússins í Vík,
sagði dýralæknisembættið sýna
fantaskap í málinu. Sótt hefði verið
um leyfí til sauðfjár- og stórgripa-
slátranar 24. júlí. Því hefði verið
hafnað fyrir tæpum mánúði. Hann
sagði að skýrsla um ástand hússins
hefði ekki fengist afhent strax og
ekkert gefið út um það hvað þyrfti
að bæta til að slátran gæti hafist.
Hann hefði fengið þau svör að nóg
væri að eitt sláturhús væri í Vík.
Hann fullyrti að alltaf hefði verið
farið að ábendingun dýralækna og
það lagfært sem ábótavt væri talið.
Hann sagði og að það væri verið
að kippa fótunum undan starfsemi
hússins og það færi á hausinn ef
leyfi fengist ekki.
Fram kom á fundinum að ekki
er allt sém sýnist í leyfisveitingum
ráðuneytisins og var í því sambandi
bent á leyfi til sláturhúss í
Grindavík sem var standsett eftir
að leyfi var gefið. Þetta gagnrýndi
Guðbjartur Pálsson og einnig Matt-
hías Guðmundsson fulltrúi frá SS
sem var á fundinum.
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra margítrekaði að ekki væri
unnt að sniðganga álit dýralækna
og veita leyfi, hann kvaðst meta
kindakjötið það mikils að ekki kæmi
til greina að slaka á kröfum varð-
andi slátran. Hann sagði að ef
sláturhúsið fengi vottorð frá dýra-
lækni um að slátran gæti farið fram
í húsinu þá afgreiddi ráðuneytið
slíkt leyfi.
Hjá mörgum fundarmanna kom
fram sú skoðun að ráðherra bæri
að meta aðstæður og taka pólitíska
ákvörðun í málinu. Staðan væri
þannig að bændur hefðu tekið á sig
skuldbindingar um að leggja inn
sláturfé í húsið, föst atvinna væri
í húsinu sem fólk mætti ekki við
að missa og sláturhúsið hefði tekið
á sig skuldbindingar vegna fyrir-
greiðslu um áburðarkaup bænda.
Fyrirvarinn um lokun væri of
skammur til þess að framgangur
málsins væri eðlilegur. Húsið þyrfti
eitt ár til að gera nauðsynlegar
ráðstafanir. Ráðherra viðurkenndi
að fyrirvarinn væri of skammur en
kvað ekki unnt að hundsa álit dýra-
Guðbjartur Pálsson fram-
kvæmdastjóri Sláturhússins i Vík
hf.
lækna þó svo fordæmi væri fyrir
undanþágu.
Fram kom einnig að forsætisráð-
herra hefur rætt við landbúnaðar-
ráðherra um lausn á málinu en Jón
Helgason sagði málið ekki heyra
undir forsætisráðherra, þeir hefðu
rætt málið en hann ekki gefið neina
yfírlýsingu.
Varðandi álit dýralæknanna kom
það fram að Þorsteinn Líndal hér-
aðsdýralæknir gaf húsinu umsögn
og einnig settur yfirdýralæknir,
Sigurður Sigurðarson. Hvoragur
þeirra treysti sér til að mæla með
undanþágu. í áliti þeirra era gerðar
athugasemdir við aðbúnað starfs-
fólks, þvottadælu og aðstöðu til
heilbrigðisskoðunar.
Ráðuneytið fékk Aðalstein
Sveinsson héraðsdýralækni, í íjar-
vera Þorsteins Líndal, til að gefa
húsinu umsögn. Auk þess, sem hin-
ir gerðu athugasemdir við, gagn-
rýndi hann aðstöðu til losunar
vamba. Aðalsteinn kvaðst ekki vilja
gefa húsinu það góða einkunn að
það fengi leyfí. Hann sagði yfír-
mann sinn, yfirdýralækni, hafa
lokað húsinu og þar við sæti.
Á fundinum kom fram að Slátur-
húsið í Vík hf. var stofnað vegna
ótta manna við það að Sláturfélag
Suðurlands flytti alla slátran frá
Vík á Hvolsvöll fengi það enga sam-
keppni. Fram kom að sá ótti er enn
fyrir hendi þó svo fulltrúar SS full-
yrði að svo verði ekki. Reyndar
bauð fulltrúi frá SS bændum upp
á þjónustu SS við slátran og úr-
lausn á málum vegna áburðarkaupa
ef þeir færðu viðskiptin yfir til SS.
Á fundinum var samþykkt af
þorra fundarmanna ályktun þar
sem skorað var á Jón Helgason
landbúnaðarráðherra að nota vald
sitt og veita sláturleyfi til eins árs
og að hann tæki ákvörðun fyrir 23.
september. Ráðherra var einnig
spurður um það hvort hann væri
búinn að taka ákvörðun í málinu
miðað við stöðu málsins og einnig
hvenær mætti vænta ákvörðunar.
Ráðherra svaraði ekki þessum
spumingum beint heldur vísaði til
fyrri orða og gaf það mörgum veika
von í bijóst um jákvæða lausn.
Sig. Jóns.
Höfum ekki efni á
að missa vinnuna
Seifossi.
HJÁ Sláturhúsinu í Vík hf. hafa
nokkrar konur haft atvinnu af
sláturgerð. Þær hafa unnið í
sex tíma á dag frá sláturtíð
fram í apríl. Við lokun hússins
missa þær þessa vinnu og í Vík
er ekki hlaupið að nýrri vinnu.
Hjá einum fundarmanna í Leik-
skálum kom fram að í Vík
mættu menn síst við því að
slátra atvinnutækifærum.
„Við eram mjög ósáttar við
þessa lokun og höfum alls ekki
efni á að missa vinnuna. Fyrir
okkur er þetta bæði peningalegt
og félagslegt mál,“ sögð þær
Guðrún Ámadóttir, Jóhanna Jó-
hannsdóttir og Sigurbjörg Páls-
dóttir sem unnið hafa við
sláturgerð í Sláturhúsinu í Vik
hf. Þær bentu á að vöramar frá
þeim hefðu oft fengið viðurkenn-
ingu manna um að það væra
fyrirmyndarvörar.
Þær sögðu stöðuna þannig að
hugsanlegt væri að fá vinnu hjá
SS á meðan á slátran stæði en
ekki lengur. Sláturgerðin í Slátur-
húsinu í Vík hf. hefði staðið fram
í apríl og þá hefðu þær þvegið
húsið hátt og lágt og þær viður-
kenndu ekki að sóðaskapur
viðgengist í húsinu. Þær sögðu
einnig að furðulegt væri að dýra-
læknar teldu að matvælavinnsla
gæti farið fram í húsinu en ekki
slátran.
— Sig. Jóns.
a . fe
" , 'í' í
Morgunblaðið/Sigurður Jönsson
Guðrún Árnadóttir, Jóhanna Jóhannsdóttir og Sigurbjörg Páls-
dóttir, starfsmenn Sláturhússins í Vík hf.
j