Morgunblaðið - 23.09.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987
45
Þjónustuíbúðir aldraðra við Ánahlíð i Borgamesi.
Morgunblaðið/Theodór K. Þórðarson
Fyrstu þjónustuíbúðir aldr-
aðra af hentar í Borgarnesi
Ánægðir eigendur utan við fbúðir sínar við Ánahlíð i Borgarnesi,
frá vinstri, hjónin Finnur Einarsson og Elín Guðmundsdóttir og við
hliðina á þeim er Hermann Búason þeirra nýi nágranni.
Borgarnesi.
TVÆR íbúðir af fjórum þjónustuí-
búðum aldraðra, sem Borgames-
hreppur hefur látið reisa, vora
afhentar eigendum sínum nýlega.
Húsin eru við Anahlíð, sem er ný
gata við Dvalarheimilið i Borgar-
nesi. Er eigendum húsanna boðið
upp á þjónustu frá Dvalarheimilinu
hvað varðar mat og þvotta. íbúð-
irnar eru einnig tengdar við
öryggiskerfi Dvalarheimilisins.
Athöfnin byrjaði á því að sveitar-
stjórinn, Gísli Karlsson, gerði grein
fyrir aðdraganda og byggingu þessara
íbúða. Þar kom fram að eftir nokkuð
langan aðdraganda hefði hrepps-
nefndin í nóvember 1985 boðið út
smíði á fjórum íbúðum í tveimur par-
húsum. Hefði frávikstilboði Loftorku
hf. í Borgamesi verið tekið. En í tilboð-
inu hefði fyrirtækið boðist til að
byggja íbúðimar f einingahúsum, hlið-
stæðum þeim sem Loftorka var þá að
byggja við Seljahlíð fyrir Reylq'avíkur-
borg. Hefði þessu tilboði verið tekið
og haustið 1986 hefði Loftorka byijað
framkvæmdir við byggingu húsanna.
Nú væri fyrirtækið að skila fyrra hús-
inu með tveimur íbúðum fullfrágengn-
um að innan sem utan.
íbúðimar eru um 70 fermetrar hvor
um sig. Þær eru hannaðar fyrir aldr-
aða og öiyrkja. í íbúðunum er greiður
aðgangur fyrir hjólastól og er sjúkra-
kallkerfí tengt Dvalarheimili aldraðra
sem er við hliðina. Arkitekt húsanna
er Hróbjartur Hróbjartsson. Endan-
legt kostnaðarverð liggur ekki fyrir
en gert er ráð fyrir því að íbúðimar
kosti um 3,2 milljónir til kaupenda.
Eyjólfur Torfi Geirsson oddviti
þakkaði þeim sem unnið höfðu að
ffamgangi þessa verkefnis og starfs-
mönnum Loftorku hf. og undirverk-
tökum fyrir þeirra vinnu. Sagði
Eyjólfur að þessar íbúðir bæru merki
um fagurt handbragð iðnaðarmanna
í Borgamesi.
Nýju eigendumir eru hjónin Finnur
Einarsson og Elín Guðmundsdóttir og
Hermann Búason, sem keyptu þessar
umræddu íbúðir. Kváðust hinir nýju
eigendur vera mjög ánægðir, íbúðimar
væru rúmgóðar og allt mjög viðráðan-
legt innanstokks.
Að sögn Eyjólfs Torfa oddvita Borg-
ameshrepps verða hinar tvær íbúðim-
ar afhentar 1. nóvember næstkomandi
og verður önnur seld en hin verður
leiguíbúð, sem verður leigð út til ör-
yrkja eða aldraðra Borgnesinga. Sagði
Eyjólfur að fram hefði komið áhugi
hjá nokkrum aðilum um að eignast
sams konar þjónustuíbúðir og líklegt
væri að fljótlega yrði tekin ákvörðun
um byggingu fleiri þjónustufbúða við
Ánahlíð.
- TÞK
Hínn útvaldi
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Hinn útvaldi (The White of the
Eye). Sýnd í Háskólabíói.
Stjörnugjöf: ★ ★ ,2/o.
Bandarísk. Leikstjóri: Don-
ald Cammell. Handrit: China
og Donald Cammell. Framleið-
endur: Cassian Elwes og Brad
Wyman. Aðalhlutverk: David
Keith og Cathy Moriarty.
Hinn útvaldi (The White of the
Eye), sem sýnd er í Háskólabíói,
er sálfræðilegur þriller sem lengst
af lofar mjög góðu en stendur svo
ekki undir væntingunum. Maður
er eiginlega jafnnær um hvað
myndin er í lokin eins og þegar
maður settist niður að horfa á
hana en leikstjórinn Donald Gam-
mell gerir hana svolítið smart í
hreyfanlegum og glansfínum tök-
um, hröðum (stundum alltof
miklum) klippingum, eggjandi
erótík og spennu. Stflæfíngamar
hans og persónusköpun er alltaf
athyglisverð en myndin fellur um
sjálfa sig þegar allt kemur til alls
og hin mörgu og ólíku blæbrigði
og misjafn hraði hennar ná ein-
hvem veginn ekki saman.
Fyrri helmingurinn er miklu
betur unninn í handriti. Myndin
fjallar um morð á konum í smábæ
nálægt Tulsa í Bandaríkjunum en
þeim tengjast utanbæjarhjón sem
David Keith og Cathy Moriarty
leika. Myndin byijar á blóðugu
morði án þess að Cammell sýni
það framið heldur sýnir hann
matarstell brotna og rauðan
vökva skvettast og leka um allt
og við þurfum ekki að vita meira.
En hann hefur gleymt þeirri nær-
gætni seinna þegar annað morð
er framið. Það kýs hann að sýna
í smáatriðum.
Fyrir utan þessa ósamkvæmni
er honum fyrirmunað að láta at-
riði spila út án þess að sundur-
klippa það og skjóta inní
annaðhvort atburðarás á sama
stað á sama tíma eða öðrum tíma
og öðrum fjarlægari stað. Það
tekur því bókstaflega tímana
tvenna að koma sér í atburðarás-
ina en þegar hún er nokkum-
veginn fengin sprengja Cammell
og kona hans, handritshöfundur-
inn China, allt í loft upp og skilja
okkur eftir jafnnær. Hver-gerði-
það þátturinn í myndinni hættir
einhvemveginn að skipta máli
þegar hún leiðist útí óskiljanlega
indíánamystík og stjamfræðilegt
rugl í sökudólgnum. Hvers vegna
fremur hann morðin? Ef marka
má það sem hann segir sjálfur
þá er hann undir stjóm alheims-
krafta og svo þruglar hann um
að ferðast til miðju jarðar. Af því
myndin er vel gerð freistast mað-
ur til að halda að eitthvað liggi
að baki. Það hefur þá farið fýrir
ofan garð og neðan hjá manni.
' Tímaflakkið í myndinni sýnir
okkur fortíð hjónanna og það
kemur í ljós að Keith tók Mor-
iarty frá öðmm manni. í þá daga
voru þau n.k. síðhippar, síðustu
blómabömin að fölna, en tíu árum
seinna eru þau jafn ástríðufull.
Og þau fara vel með rullumar þau
Keith og Moriarty. Hún er svona
femme fatale týpa sem gæti leik-
ið hlutverk Mary Astor ef Möltu-
fálkinn hans Hustons yrði
einhvertíma endurgerður. Hann
er efstur á lista lögreglunnar yfir
gmnaða og Keith leikur sig dæ-
malaust ólíklegan til voðaverka.
Leikurinn er allur mjög góður.
Aukapersónumar, tveir sérfræð-
ingar lögreglunnar frá Tulsa,
ákaflega vergjöm og rík vinkona
Keith, indjánavinur hans í lögregl-
unni og gamli kærasti Moriarty
setja allar skemmtilegan svip á
myndina og stundum kómískan.
OBiiBiiRBiiHBM!C0aaBBRfiri;afc»B»ir»taM (imiiiim iimcn MmiMiiiiiitniiiiaiininiiiiiiii
Ný hljómsveit
NÝRRI hljómsveit verður hleypt
af stokkunum í Veitingahúsinu
Evrópu á fimmtudagskvöld.
I fréttatilkynningu tii Morgun-
blaðsins segir að hljómsveitin hafí
hlotið nafnið Saga Class og er skipuð
Eiríki Haukssyni söngvara, EÍlen
Kristjánsdóttur söngkonu, Friðriki
Karlssyni gítarleikara, Eyþóri Gunn-
arssyni hljómborðsleikara, Birgi
Bragasyni bassaleikara og Pétri Grét-
arssyni trommuleikara.
Hljómsveitin hefur gert samning
við Veitingahúsið Evrópu og verður
húshljómsveit þar fram eftir vetri.
Háskóli Islands:
Námskeið í þýðingnm
NORSKU- og sænskudeildir há-
skólans gangast i vetur f fyrsta
skipti fyrir námskeiði í málnotkun
°g þýðingum. Námskeiðið gefur 5
einingar til BA prófs en er þó
opið almenningi án endurgjalds
Námskeiðið hefst í dag og verða
þar reifaðar ýmsar kenningar um
þýðingar en aðaláhersla verður lögð
á hagnýtar þýðingaræfíngar. Kennt
verður í Norræna húsinu og verða
kennslustundir á miðvikudögum
klukkan 17.15-19.00. Námskeiðinu
lýkur með prófí næsta vor
Umsjón með námskeiðinu hafa
sendikennaramir Oskar Vistdal og
Hákan Jansson
Til sölu BMW 735i
árgerð 1981. Gullsanseraður, topplúga, ABS. bremsur,
sjálfskiptur. Topp-bíll. Upplýsingar í síma 52146
Glæsilegar
haustvörur komnar
Kjólar, jakkar, pils, buxur og
peysur í miklu úrvali.
!■ ■■FIHPf 11 J'w' HJJHUIf 'J. v I.!. .1 I I I11 - ■ ■" ■J'F..'. '1 - f 1' I 8 I ■ m B f.'l m V9'V9