Morgunblaðið - 23.09.1987, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1987
*
N
„Vílta komcL cL bió, e-lskxxn ?"
Þessir hringdu . . .
200 ára afmæli Ras-
mus Rasks
S.G. hringdi:
„Mig langar að beina þessari
fyrirspum til Hins íslenska bók-
menntafélags. Hvað hyggst félgið
gera í tilefni af 200 ára afmæli
Rasmus Kristjáns Rasks sem
verður hinn 22. nóvember?"
Ber ekki að svara
umsóknum?
Ámi Jóhannesson hringdi:
„Að undanfömu hefur verið
rætt um það tillitsleysi vinnuveit-
enda að svara ekki umsóknum.
Ég lagði inn umsókn inn hjá
Stofnlánadeild landbúnaðarins
vegna jarðakaupa fyrir um það
bil ári en hef ekkert svar fengið.
Nú langar mig til að spyrja hvort
stofnuninni beri ekki að svara öll-
um umsóknum sem henni berast."
Snúum okkur til Guðs
Súsana hringdi:
„Vegna eigin reynslu vil ég
benda þeim sem eiga í erfíðleikum
með að hætta áfengis- eða tó-
baksneyslu að snúa sér til Guðs
með þessi vandamál. Ég hef af
eigin reynslu komist að því að ef
maður biður Guð nógu ynnilega
þá bænheyrir hann alltaf. Það
getur liðið nokkur tími en bæn-
heyrslan kemur að lokum. Ég er
ekki í neinum sértrúarflokki, ég
er bara í okkar gömlu þjóðkirkju
og Guð er líka þar, hann er alls
staðar. Ég reykti í 47 ár samfelt.
Ég bað Guð að hjálpa mér til
þess að hætta og þá tókst mér
það. Nú eru 11 ár síðan ég hætti.
Eins er það með áfengið. Ég
neytti nokkurs áfengis um tíma
og hef sjálfsagt verið komin tæpt.
Þá sá ég kvikmyndina Ég græt
að morgni og hafði hún mikil
áhrif á mig. Ég bað heitt til Guðs
og eftir það fékk ég svo mikla
andstyggð á víni að ég hætti al-
veg.“
Miðið tónlistarf lutn-
ing einnig við eldra
fólk
Eldri maður hringdi:
„Mig langar til að koma því á
framfæri við þá sem stjóma ríkis-
fjölmiðunum að þeir miði tónlist-
arflutning meira við okkur eldra
fólkið framvegis en gert hefur
verið. Tónlistin sem flutt er dags
daglega á rás 2 er ekki annað en
baul og hávaði. Hvers vegna er
ekki flutt meira af gömlum og
góðum lögum í Ríkisútvarpinu."
Hringur
Stór herrahringur með bláum
steini tapaðist fyrir nokkru í
Garðabæ eða Reykjavík. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 656773.
Gleraugu
Kvengleraugu í rauðu leður-
hulstri fundust í Dalseli fyrir
skömmu. Eigandinn getur hringt
í síma 75074.
Taska
Svört leðurtaska með axlaról
tapaðist í strætisvagni, leið 15a,
fyrir skömmu. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 24036.
Kettlingur gef ins
Sex mánuða högni fæst gefíns
á gott og ábyggilegt heimili.
Síminn er 76206.
Saknar einhver fót-
bolta?
Sunnudaginn 13. september
var fótbolti tekinn í misgripum á
Miklatúni. Eigandi boltans er vin-
samlega beðinn að hringja í síma
14026.
BMX reiðhjól
Nýlegt BMX-reyðhjól fannst
fyrir einum og hálfum mánuði.
Eignadi þess er beðinn að hringja
í síma 641717.
Víkverji skrifar
Kyssi mig einhver falleg
stúlka. Eg er skattsér-
fræðingur í álögum!
HÖGNIHREKKVÍSI
Lögreglan í Reykjavík og
kannski víðar ætlar nú að hefja
hraðamælingar á götum höfuð-
borgarinnar í ómerktum bifreiðum.
Þá verður einnig fylgst sérstaklega
með því að ökumenn virði reglur
um umferðarljós og stöðvunar-
skyldu. Frá þessu var skýrt á
baksíðu Morgunblaðsins á sunnu-
dag og þann sama dag birtist bréf
hér við hliðina á Víkveija, þar ser-.
einn af bréfavinum Velvakaiida
leggur til að umferðargæsla verði
framkvæmd af lögreglumönnum í
ómerktum bflum. Jafnframt er lagt
til að settir verði óeinkennisklæddir
lögreglumenn í hæfilega Qarlægð
frá umferðarljósum, til þess að hafa
hendur í hári þeirra fjölmörgu sem
aka yfír gatnamót á rauðu ljósi.
Þeim Víkveija, sem nú situr við
tölvuskjáinn, finnst ástæða til að
gera athugasemd við að einskonar
leynilögregluaðferðum sé beitt við
stjóm umferðarinnar. Beiting óein-
kennisklæddra lögregluþjóna á við
í sérstökum tilvikum en ekki fram-
kvæmd umferðarlaga. Fcrvamar-
starf en ekki handtökur hlýtur að
vera haft að leiðarljósi, þegar lög-
reglan sinnir umferðarsfjóm.
Takmarkið getur ekki verið að
góma sem flesta og skapa einskon-
ar ógnarástand á meðal vegfarenda
heldur hitt að fá sem flesta til að
fara eftir settum reglum. Er ekki
vafí á því, að merktir lögreglubílar,
mótórhjól lögreglumanna og áber-
andi lögreglumenn í glæsilegum
búningum hafa meiri almennan
fælingarmátt gagnvart óprúttnum
ökuþórum en lögregluþjónar í fel-
um. Væri nær að leggja mannlaus-
um lögreglubflum, þar sem auðvelt
er að sjá þá, en fela lögreglumenn
í ómerktum bflum, ef ætlunin er
að hafa góð áhrif á ökumenn.
xxx
Igóða veðrinu á laugardaginn
var Víkveiji ásamt fjölmörgum
öðrum að aka út úr bænum. Á
Miklubrautinni var ástandið eins og
venjulega, að ómögulegt var að
átta sig á því í hvorri akreininni
átti að aka til að halda jöfnum
hraða. Einn af ósiðunum hér er að
ökumenn sveifla sér á milli akreina
án þess að gefa stefnuljós og fara
jafnt fram úr hægra og vinstra
megin. Stundum mætti ætla, að
þeir sem aka reigingslegir á hægri
ferð í vinstri akrein telji sig gæslu-
menn almannahagsmuna og þjóna
réttlætisins með því að hindra með-
borgara sína í því að fara yfír 50
km hraða eða svo. Kannski eru
þetta borgaralegir lögregluþjónar í
ómerktum bflum? Eitt er víst, að
framlag þeirra til að draga úr slysa-
hættu er ekki mikið.
Þegar Víkveiji var kominn upp
í Ártúnsbrekku á laugardaginn og
ók í vinstri akrein tók hann eftir
litlum vörubfl fyrir framan sig
hægra megin. Var alls kyns drasl
á palli bflsins. Bflstjórinn ók hraðar
en farmur hans leyfði og gaf í um
leið hann og beygði yfír í vinstri
akreinina. Skipti engum togum að
stór kassi eða eitthvað slíkt datt
aftan af palli bflsins. Var það ekki
ökumanni vörubflsins, sem ók
áfram eins og ekkert hefði í
skorist, að þakka, að ekki varð
þama stórslys. Við sem á eftir hon-
um vorum áttum fyllt í fangi með
að fípast ekki. Á ljósunum við
Höfðabakka-gatnamótin var öku-
manni vörubflsins bent á, að hann
hafði misst hluta farms síns. Von-
andi var draslið fjarlægt áður en
slys hlaust af því.
XXX
Kæmleysi ökumannsins með
draslið, sem hann týndi í Árt-
únsbrekkunni, er dæmigert fyrir
subbuskapinn í umferðinni í
Reykjavík. Hann verður ekki upp-
rættur með óeinkenniskæddum
lögregluþjónum frekar en annað
sinnuleysi í daglegri umgengni
fólks. Yfírvöld geta gengið á undan
með góðu fordæmi til dæmis með
því að auka allar viðvaranir og ör-
yggismerkingar. Vegakerfíð í
íandinu og gatnakerfið í bæjum og
borgum er enn kynnt ökumönnum
út frá þeirri forsendu, að þeir þekki
það allt sjálfír af eigin raun.