Morgunblaðið - 26.09.1987, Side 2

Morgunblaðið - 26.09.1987, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987 Fíkniefni: Dani dæmdur UNGUR Dani hefur verið dæmd- ur í 50 daga fangelsi fyrir að flytja um 300 grömm af hassi til landsins. Hassið mun að mestu vera komið í dreifingu og sölu. Daninn, sem varð 21 árs á mið- vikudag, var handtekinn við komuna til landsins fyrir hálfum mánuði. í för með honum var ís- lendingur, en mál hans bíður afgreiðslu hjá ríkissaksóknara. Þá er talið líklegt að tveir íslendingar til viðbótar verði ákærðir fyrir aðild að málinu. Daninn hefur þegar haf- ið afpláningu á fangelsisvistinni. Alls mun um að ræða innflutning á um 600 grömmum af hassi. Dagskrá kvikmynda- hátíðar í dag FYRSTA sýningin á kvikmynda- hátíð Listahátíðar í dag verður í A—sal Laugarásbíós klukkan 13.30. Verður þá sýnd kvikmynd Romans Polanskis, „Tess“. Aðrar sýningar í A—sal í dag verða „Hún verður að fá’ða", klukk- an 17.10, „Eureka", klukkan 19.00, „Matador", klukkan 21.15 og „Komið og sjáið", klukkan 23.10. í B—sal verður fyrsta sýning dagsins klukkan 15.00. Þá verður sýnd myndin „Hinn sjötti dagur“, og er hún einnig á dagskrá klukkan 17.00. „Yndislegur elskhugi" verð- ur sýnd bæði klukkan 19.00 og 23.00, en klukkan 21.00 verður síðasta sýningin á „Makkaróní“, mynd ítalska leikstjórans Scola. í C—sal verður „Hnífurinn í vatn- inu“ sýnd klukkan 15.00, 17.00 og 19.00, „Sagan um virkið Súram" klukkan 21.00 og „Fangin fegurð" klukkan 23.00. Morgunblaðið/RAX Roman Polanski við Leifsstöð í gær ásamt Hilmari Oddssyni kvikmyndagerðarmanni. Vildi fyrir alla muni efna gamalt loforð - sagði pólski leikstjórinn Roman Polanski við komuna til landsins „ÍSLAND hefur ávallt heillað mig. Þvi vildi ég fyrir alla muni efna loforð sem ég hef áður svikið um að koma á Kvikmyndahá- tíðina í Reykjavík,“ sagði pólski leikstjórinn Roman Polanski við komuna til Keflavikurflugvallar i gær. Polanski er gestur Kvik- myndahátíðar og verður viðstaddur sýningu myndar sinnar „Tess“ í Laugarásbiói i dag. Ráðgert var að Polanski dveld- ist í fimm daga á íslandi. Hugðist hann nota tímann til þess að ferð- ast í bílaleigubíl um landið ásamt lagskonu sinni, frönsku leikkon- unni Emmanuel Seigner. Vegna anna við klippingu myndarinnar Frantic sem hann hefur unnið að í sumar getur Polanski hins vegar aðeins staldrað við í þrjá daga. „Myndimar Tess og Knife in the water [sem sýndar eru á Kvik- myndahátíð] eru ákaflega ólíkar. Ef horft er til þess hvaða mynd ég er ánægðastur með þá var Dance of the Wampire killers gerð á mjög farsælu tímabili ævi minnar," sagði Polanski. Hann kvað erfítt að bera Frantic saman við fyrri myndir sínar. „Hver mynd er alltaf frá- brugðin öðrum. Ég vona samt að þær séu allar persónulegar. Það er allt annað að taka kvik- mynd í Evrópu en í Hollywood. í Bandaríkjunum er veldi verka- lýðsfélaganna gífurlegt. Það hreyfir sig enginn án samþykkis þeirra og því verða kvikmyndimar stjamfræðilega dýrar eins og raun ber vitni. í Evrópu og þá sérstak- lega í Frakklandi er andinn annar og auðveldara að semja um hlut- ina. Starf leikstjórans verður því auðveldara." Polanski hrósaði Harrison Ford aðalleikara myndarinnar Frantic. Sagðist hann hafa haft mjög gam- an af samstarfinu og vonaði að áhorfendur fengju sem mest að sjá af Ford í framtíðinni. „Ég hreifst ungur af Orson Welles og sérstaklega kvikmyndinni Citizen Kane, þá hef ég einnig mikið dá- læti á 8V2 og öðrum myndum Fellinis. Aðrir leikstjórar sem mér em kærir em Kurosawa og Luis Bunuél. Af yngri mönnum get ég nefnt Stanley Kubrick og Steven Spiel- berg. Fyrir mér er kvikmyndin ævintýri og ég vil geta skemmt mér eins og bam þegar ég fer í bíó,“ sagði hann. „Ég hef aldrei haft sérstakan áhuga á kvikmyndahátíðum. Þær þjóna ekki öðmm tilgangi en að skemmta þeim sem elska kvik- mjmdir. Það er sama hvort Cannes, Feneyjar eða Reykjavík á í hlut — sjálft orðið hátíð sýnir að skemmtun áhorfandans situr í fyrirrúmi. Ég er hingað kominn til þess að sjá land sem mig hefur lengi dreymt um að heimsækja," sagði Roman Polanski. Brauð hf. kaupír Völund endur, „það er gott að sjá fyrirtæk- hefur trú á og óska ég þeim alls ið í höndunum á mönnum sem hins besta.“ Landsfundur Borgaraflokksins: Kosning formanns og varaformanns í dag - þrír berjast um sæti varaformanns BRAUÐ hf. hefur fest kaup á Timburversluninni Völundi hf. Völundur hf. var stofnað árið 1904 af mörgum smiðum og öðrum hluthöfum. Einn stofnendanna, Sveinn Jónsson húsasmíðameistari veitti fyrir- tækinu forstöðu I upphafi, en hann er afi fráfarandi fram- kvæmdastjóra, Sveins K. Sveinssonar, byggingarverk- fræðings, en hann hóf störf hjá fyrirtækinu 1954. í samtali við Morgunblaðið sagði Sveinn, að ástæðan fyrir því að þetta gamalgróna fyrirtæki væri nú selt, væri að ekki hefði náðst samstaða með eigendum um áframhaldandi rekstur. „Þegar slíkur ágreiningur ríkir, er best að sættast á það að selja.“ Sveini leist vel á hina nýju eig- í dag KOSNING formanns og varafor- manns Borgaraflokksins ásamt kjöri annarra embættismanna verður á landsfundi Borgara- flokksins í dag. Talið er víst að Albert Guðmundsson verði sjálf- kjörinn formaður og að Júlíus Sólnes verði kjörinn varaformað- ur þar sem Albert hefur lýst yfir stuðningi við hann og mörgum landsfundarfulltrúum finnst er- fitt að ganga á móti skoðun formannsins. Hinir tveir frambjóðendumir til varaformanns, Ásgeir Hannes Eiríks- son og Benedikt Bogason, hafa þó unnið ötullega að kosningu sinni og í gær vom liðlega 500 manns búnir að skrá sig á landsfundinn, en til þess að mega kjósa verða menn að vera flokksbundnir Borgaraflokki og láta skrá sig á fundinn. Á fundinum í gær vom tæplega 200 manns sam- kvæmt upplýsingum starfsfólks Borgaraflokksins á landsfundinum. Á fundinum í gær var erindi um uppmna Borgaraflokksins, stefnu- skrá hans og kosningabaráttu, kynntar vom skipulagsreglur og sam- þykktir fyrir Borgaraflokkinn og síðan störfuðu umræðuhópar. Fund- inum verður fram haldið í dag kl. 10.15. Sjá frásögn bls. 35. Morgunblaðið/Bemharð Valsson Forsetinn heiðursdoktor FRÚ Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, var í gær útnefnd heiðursdoktor við háskólann í Bordeaux í Frakklandi. Á mynd- inni áraar forseti háskólaráðsins frú Vigdísi heilla með nafn- bótina. l.ggBtUf Alfa með útsendingar á ensku Útvarpsefni á að vera á íslensku, segir Kjartan Gunnarsson, formaður útvarpsréttamefndar HIN kristilega útvarpsstöð, Alfa, hefur undanfarin fimmtudags- kvöld sent út þátt á ensku með bandaríska predikaranum Jimmy Shaggart. Kjartan Gunn- arsson, formaður útvarpsréttar- nefndar sagði í samtali við Morgunblaðið, að samkvæmt reglugerð skyldi efni yfirleitt flutt á íslensku. Haukur Haraldsson hjá útvarps- stöðinni Alfa, sagði í samtali við Morgunblaðið, að undanfarin fimmtudagskvöld á milli 22.30 og 23.30 hefðu þeir sent út þátt frá samkomum Jimmy Shaggart. Hann kostaði sjálfur þessar útsendingar og væru þessir þættir ætlaðir ís- lendingum, sem kynnu skil á enskri tungu og Bandaríkjamönnum á Keflavíkurflugvelli, en þáttur þessi væri vinsæll hjá þeim. Aðspurður um ástæður þess að þátturinn væri ekki þýddur yfír á íslensku, sagði Haukur að ekki væri unnt að skjóta inn íslenskum þýðingum og afleit- lega hefði komið út að setja íslenska rödd yfir rödd predíkarans; boð- skapurinn hefði ekki komist til skila. Kjartan Gunnarsson formaður útvarpsréttameftidar sagðist ekki hafa heyrt um þessar útsendingar kristilegu útvarpsstöðvarinnar, þannig að hann væri ekki f aðstöðu til að tjá sig mikið um málið. Hann benti þó á, að um útvarpsútsending- ar giltu skýrar reglur samkvæmt reglugerð, en samkvæmt henni skal allt talað efni vera sent út á íslensku eða þýtt og eru ekki undanþágu- heimildir í ákvæðinu. Kjartan benti hins vegar á að nokkur brögð hefðu verið að því að ekki væri farið að þessari reglu, og tók hann sem dæmi útsendingar Ríkisútvarpsins meðan á leiðtogafundinum stóð og fréttir á ensku. „Sama reglan verð- ur yfir alla að ganga," sagði Kjartan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.