Morgunblaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987
27
Slátrað á Patreksfírði
Sláturhúsið á Bíldudal hefur enn ekki fengið leyfi
Stofnlánadeild landbúnaðarins
hefur leigt Sláturfélagi Vestur-
Barðstrendinga sláturhúsið á
Patreksfirði. Félagið hefur þeg-
ar fengið sláturleyfi og hefst
slátrun þar væntanlega eftir
helgina. Sláturfélag Arnfirð-
inga, sem rekur sláturhúsið á
Bíldudal, hefur enn ekki fengið
sláturleyfi, en í fyrra fór öll
sauðfjárslátrun í sýslunni fram
þar.
Síðast var slátrað í sláturhúsinu
á Patreksfirði fyrir tveimur árum.
Húsið var síðan selt og þar var
rekin rækjuvinnsla. Fyrr á þessu
ári var húsið slegið Stofnlánadeild
landbúnaðarins á uppboði. Bændur
í Rauðasands- og Barðastrandar-
hreppi hafa nú stofnað Sláturfélag
Vestur-Barðstrendinga og tekið
húsið á leigu og hefur þeim þegar
verið veitt sláturleyfi.
Að sögn Ará ívarssonar slátur-
hússtjóra þurfti að gera nokkrar
endurbætur á húsinu. Til dæmis
hafði kjöt verið skilið eftir í frysti-
geymslu hússins. Frostið var síðan
tekið af geymslunni með þeim af-
leiðingum að kjötið úldnaði og
maðkaði. Ari sagði að byrjað hefði
verið á því að hreinsa frystigeymsl-
urnar og nú væri unnið að því að
koma húsinu í það horf sem það
var í áður en starfsemi rækjuvinnsl-
unnar hófst, en félagið stefnir að
því að kaupa húsið. Aðspurður um
hvort grundvöllur væri fyrir að reka
tvö sláturhús í sýslunni sagði hann
að þetta væri ekki spurning um
það, heldur um hvort bændur gæti
slátrað búfé eða ekki. „Það er til
dæmis ekki hægt að slátra stórgrip-
um í sláturhúsinu á Bíldudal.
En við erum ekki að vinna á
móti Bílddælingum, ég vonast
reyndar til að þeir fái sláturleyfi,"
sagði Ari.
Gert er ráð fyrir að stórgripa-
slátrun heíjist á Patreksfirði eftir
helgi og verður slátrað 150 til 200
stórgripum. Þegar því er lokið byrj-
ar sauðfjárslátrun og sagði Ari að
ekki lægi fyrir hve mörgu fé yrði
slátrað en áæltað er að það verði
2000 til 2700 fjár.
Sláturfélag Amfirðinga vinnur
nú að endurbótum á sláturhúsi sínu
á Bíldudal samkvæmt kröfum sem
fyrrverandi héraðsdýralæknir á
staðnum gerði. Sigurður Guð-
mundsson framkvæmdastjóri fé-
lagsins sagði að þeim þætti þessar
kröfur miklar „svona í einum bita“,
eins og hann orðaði það. „Við höfum
verið að endurbæta sláturhúsið svo
til árlega og í fyrra voru engar
kröfur um endurbætur settar fram.
Þá var slátrað í húsinu athuga-
semdalaust. Áður en hafist var
handa við lagfæringar nú var húsið
ekkert í verra standi en það var í
fyrra.“
Sigurður sagði að endurbótum
væri nú að Ijúka og þá yrði dýra-
læknir fenginn til þess að skoða
húsið með tilliti til væntanlegs slát-
urleyfis. „Við höfum ekki fengið
afsvar ennþá og verðum að bíða
og sjá,“ sagði hann. „Við ætlum
ekki að láta eitthvert kerfí
svínbeygja okkur. Það hefur reynt
á það áður að við gefumst ekki upp
baráttulaust."
í fyrra var sláturhúsið á Bíldudal
eina sláturhúsið í sýslunni og var
þá slátrað þar 6450 fjár. Nú er
gert ráð fyrir að slátra þar um
3000 fjár. •
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Kjartani
Blöndal í landbúnaðarráðuneytinu
er beðið eftir að lokið verði við að
gera þær endurbætur á sláturhús-
inu sem fyrrverandi héraðsdýra-
læknir benti • á. Þá verður
héraðsdýralæknirinn í Stykkishólmi
beðinn um að gera úttekt á húsinu
og verður umsóknin um sláturleyfi
afgreidd samkvæmt umsögn hans.
Valgarð Gunnarsson og Jón Axel Björnsson fundirbúa sýningu á Kjarvalsstöðum.
Kjarvalsstaðir:
Þrjár sýningar opnaðar
ÞRJÁR SÝNINGAR verða opnað-
ar á Kjarvalsstöðum í dag, laugar-
dag, klukkan 14.00. Katrín H.
Ágústsdóttir sýnir vatnslitamynd-
ir í vestur forsal, þau Björg Orvar,
Jón Axel Björnsson og Valgarður
Gunnarsson sýna málverk og
skúlptúr í vestursal og Rúrí sýnir
umhverfisverk í austursal. Sýn-
ingarnar standa til 11. október.
Sýning Katrínar H. Agústsdóttur
er fimmta einkasýning hennar. Á
sýningunni eru vatnslitamyndir,
áhersla er lögð á landslagsmyndir og
myndefnið er aðallega frá Ströndum.
Katrín stundaði nám við Myndlista
og handíðaskólann, í Handavinnu-
deild Kennaraskóla Islands og við
Myndlistaskólann í Reykjavík. Auk
þess hefur hún farið í námsferðir til
Danmerkur og Finnlands.
Katrín starfaði áður að textil
ásamt Stefáni Halldórssyni, en þau
reka textilverkstæði. Þar hafa þau
unnið við fatnað, þjóðllfsmyndir og
hökla. Katrín hefur haldið átta einka-
sýningar á batikmyndum, haldið
nokkrar kjólasýningar og tekið þátt
í samsýningum.
Björg Örvar, Jón Axel Bjömsson
og Valgarður Gunnarsson stunduðu
öll nám við Myndlista og handí-
ðaskóla íslands árin 1975-79. Björg
var í framhaldsnámi við Listadeild
Kalífomíuháskóla í Davis í Banda-
ríkjunum 1981-83, hefur haldið fjórar
einkasýningar og nokkrar samsýn-
ingar á Islandi, í Bandaríkjunum og
Austur Þýskalandi. Jón Áxel hefur
haldið fimm einkasýningar, auk sam-
sýninga á íslandi, í Svíþjóð og í
Frakklandi. Valgarður nam við Emp-
ire State College í New York
1979-81, hefur haldið þijár einkasýn-
ingar og nokkrar samsýningar á
íslandi og í Svíþjóð, tók meðal ann-
ars þátt í farandsýningunni „Miklat-
ún-Manhattan“ á vegum Norrænu
listamiðstöðvarinnar árið 1986. Á
sýningu þessara þriggja listamanna
í vestursal Kjarvalsstaða verða sýnd
málverk og skúlptúrverk.
Rúrí stundaði framhaldsnám í
Hollandi að loknu námi við Myndlista
og handíðaskólann. Hún hefur tekið
þátt í yfir 50 samsýningum víða um
heim og haldið sex einkasýningar. A
sýningu hennar í austursal verða
sýnd tvö umhverfisverk. Annað heitir
Tími, en í því eru ljósmyndir framkall-
aðar á stórar glerplötur, hitt heitir
Safn og var unnið á þessu ári. Einn-
ig verða sýndar „grafískar doku-
mentasjónir" tengdar gríðarstórum
útiskúlptúrum Rúríar í Malmö, Kaup-
mannahöfn og Helsinki frá árunum
1984-86. Ekkert verkanna hefur ver-
ið sýnt áður hér á landi.
Morgunblaðið/RAX
Unnið að uppsetningu listmunanna sem boðnir verða upp á sunnudag-
inn. Þeir verða til sýnis i Galleri Borg í Austurstræti föstudag og
laugardag.
Gallerí Borg:
Fyrsta listmunaupp-
boðið eftir niður-
f ellingu söluskatts
GALLERÍ Borg heldur klukkan
16.30 á sunnudaginn list-
munauppboð að Hótel Borg.
Þetta er eilefta listmunaupp-
boðið sem Gallerí Borg heldur
og jafnframt fyrsta listmunaupp-
boðið sem fram fer eftir að
Alþingi felldi niður söluskatt af
málverkum og setti í staðinn á
10% gjald sem leggst ofan á inn-
kaupsverð. Gjald þetta mun
renna ýmist til handhafa höfund-
arréttar eða í starfslaunasjóð
myndlistarmanna.
Að sögn Gísla B. Björnssonar hjá
Gallerí Borg standa vonir til að
þessi breyting muni auðvelda fólki
að eignast listaverk. 25% söluskatt-
urinn hafi verið þrándur í götu,
menn myndu frekar sætta sig við
10% höfundagjaldið. Einnig sagði
Gísli að nokkuð hefði verið um það
að undanförnu að íslenskir safnarar
hefðu leitað til útlanda til að kaupa
málverk eftir íslenska meistara í
söfn sín. Þeir hefðu þá oft á tíðum
greitt mun hærra verð fyrir verkin
en tíðkaðist hér á landi.
Meðal verka sem boðin verða upp
á sunnudaginn má nefna fimm verk
eftir Kjarval, þijár myndir eftir
Svavar Guðnason, æskuverk eftir
Þorvald Skúlason, Þingvallamynd
eftir Gunnlaug_ Blöndal, textílverk
eftir Barböru Ámason og olíumál-
verk eftir Jóhann Briem og Jón
Stefánsson auk gifsafsteypu af
„Fæðing sálar" eftir Einar Jónsson.
Einnig verða boðin _upp Island-
skort og myndir frá Islandi sem
hingað hafa borist frá Þýskalandi.
Kortin og myndirnar hafa ýmist
birst í erlendum kortabókum, tíma-
ritum eða dagblöðum frá 1522 til
1890. Flest öllum verkum á upp-
boðinu fylgja láginarksverð svo og
markaðsverð á mörgum þeirra.
Myndirnar og þau verk sem verða
boðin upp á sunnudaginn verða
sýnd í Gallerí Borg, Austurstræti,
klukkan 10-18 á laugardag.
Þessi Þingvallamynd eftir Gunnlaug Blöndal er meðal þeirra verka
sem boðin verða upp á Hótel Borg á sunnudaginn. Lágmarksverð
myndarinnar er 250.000 krónur.