Morgunblaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
MorgunblaÖiÖ/Agnar Árnason
Sigurlið
Víkings
Víkingshópurinn, sem lék síðasta
leikinn gegn Selfossi í 2. deildinni
og sigraði 3:2. Með sigrinum
tryggði Víkingur sér gullverð-
launin í 2. deild og sæti meðal
þeirra sterkustu eftir tveggja ára
fjarveru. Á myndinni eru frá
vinstri í aftari röð: Sigurður Ingi
Georgsson, formaður knatt-
spymudeildar, Youri Sedov, þjálf-
ari, Gunnar Öm Gunnarsson,
Unnsteinn Kárason, Hannes
Helgason, Bjöm Bjartmarz, Hall-
dór Gíslason, Bjöm Einarsson,
Einar Ásgeirsson, liðsstjóri, Har-
aldur Stefánsson, Guðmundur
Pétursson og Jóhann Óli Guð-
mundsson, formaður Víkings.
Fremri röð Sigurður Pétursson,
Páll Guðmundsson , Trausti Óm-
arsson, Lúðvík Bragason, Atli
Einarsson, Jóhann Þorvarðarson,
Jón Otti Jónsson, Þórður Marels-
son, Sveinbjöm Jóhannesson og
lengst til hægri sést í Einar Ein-
arsson, sem Víkingar völdu mann
þessa síðasta og mikilvæga leiks.
íslandsmótið f handknattleik hefst á miðvikudaginn. Á myndinni er Kristján Sigmundsson sem kosinn var besti leikmað-
ur síasta íslandsmóts.
HANDKNATTLEIKUR
Islandsmótið í
handknattleik hefst
á miðvikudaginn
ÍSLANDSMÓTIÐ íhandknatt-
leik hefst næstkomandi mið-
vikudag, 30. september, með
fimm leikjum í 1. deild karla en
aðrar deildir hefjast svo föstu-
daginn 2. október.
Leikimir í fyrstu umferðinni em
þessir
KA-Stjaman ....íþróttahöll á Ak. kl. 20.00
Breiðablik-KR.............Digranes kl. 20.00
FH-Þór, Akureyri.Hafnarfirði ki. 20.00
Víkingur-ÍR...Laugardalshöll kl. 20.00
Fram-Valur....Laugardalshöll kl. 21.15
íslandsmótið verður að þessu sinni
eitt umfangsmesta mót, sem haldið
hefur verið á íslandi. Fram fara á
milli 2.600 og 2.700 leikir, sem
þýðir að leikið verður í um það bil
144.000 mínútur — eða 2.400
klukkustundir. Ef leikimir færu all-
ir fram í einu og sama íþróttahúsinu
má búast við að þetta tæki um 100
sólarhringa.
Liðin sem taka þátt í mótinu í vet-
ur verða um eða yfir 300 sem þýðir
að þátttakendur verða hátt á sjötta
þúsund.
Fyrri umferð 1. deildar karla verður
leikin frá 30. september til 18. nóv-
ember — en síðan verður ekki leikið
í deildinni fyrr en eftir miðjan jan-
úar. Landsliðið verður á fullu við
æfingar og keppni frá því seinni
hluta nóvember mánaðar og fram
í miðjan janúar. Bikarkeppni HSÍ
hefst nú í fyrsta skipti fyrir ára-
mót, og skal fyrsta umferðin leikin
frá 15. nóvember til 15. desember.
Dregið hefur verið í keppninni og
mætast eftirtalin lið: ÍH-Stjaman,
Grótta-KRb, ÍBV-Valurb, Fylkir-
Þór Akureyri, Reynir Sandgerði-
Haukar, _ UMFN-Fram, Valur-KA,
ÍS-ÍR, Ármann-Ármannb, Hvera-
gerði-Þróttur R., UMFA-Víkingur,
IBK-UBK, ÍBVb-KR. Lið Selfoss,
FH og HK sitja hjá í fyrstu umferð.
Fyrsta umferð bikarkeppni kvenna
fer fram á sama tíma. Þar sitja lið
Stjömunnar og Þórs frá Akureyri
hjá, en leikimir em sem hér segir:
UMFA-ÍBK, ÍBV-UBK, Þróttur-
FH, KR-Víkingur, Fram-Haukar og
Grótta-Valur.
mSXHR
FOLK
MJEAN-MARIE Pfaff, mark-
vörður belgíska landsliðsins og
Bayern MUnchen, getur ekki leikið
með Bayern MUnchen næstu tvær
vikumar vegna hnémeiðsa sem
hann halut í Evrópuleik Belga og
Búlgara á miðvikudagskvöld. Pfaff
meiddist á hægra hnéi í fyrri
hálfleik er hann lenti í samstuði
við búlgarska framherjann,
Bozhidar Iskrenov.
MJOHN McEnroe,h'mn kjaftfori
tennisleikari, og eiginkona hans
Tatum O’Neal eignuðust á mið-
vikudag sitt annað bam, dreng, sem
hlaut nafnið Sean Tomoth
McEnroe. Móður og bami heilsast
ir Evrópuleikinn gegn Real Madrid
á miðvikudag.
■ YAGO, menntaskólaliðið, sem
Stjaman sló út úr Evrópukeppni
bikarhafa í handbolta í gær, er ein-
göngu skipað spænskum leikmönn-
um, sem stunda nám í Dublin. Þeir
hafa heldur meira á milli handanna
en gengur og gerist í Dublin og em
ekki vinsælir í borginni. Margir írar
vonuðu fyrir leikina að Stjaman
myndi rassskella spænsku strákana
rækilega og sú varð raunin. Leik-
mennimir spænsku tóku samt
þátttöku sína í Evrópukeppninni
alvarlega og vom í æfingabúðum á
Spáni fyrir skömmu, þar sem
Diego Maradona stendur nú samningaviðræðum við Napoli um að fram-
lengja samning sinn til ársins 1993.
vel eftir fæðinguna. Þetta var ann-
að bam þeirra hjóna, en fyrir eiga
þau dreng, Kevin John McEnroe,
sem nú er 16 mánaða.
MDIEGO Maradona sagðist í gær
vonast til að geta undirritað nýjan
samning við Napoli innan fárra
daga. Samningurinn, ef af honum
verður, mun tryggja að Maradona
verði hjá ítölsku meistunum fram
til ársins 1993. Mardaona, sem
kom frá Barcelona 1984, vonast
til að búið væri að skrifa undir fyr-
spænska sjónvarpi’ fylgdist vel með
þeim. Ekki er víst að umfjöllunin
um leikina verði eins mikil!
MNORÐMENN eru enn í sárum
eftir tvö töp gegn íslandi í fótbolt-
anum. Þeir ætla samt ekki að leggja
knattspymuna niður, heldur reyna
að ná móralnum upp aftur eftir
dapurt haust. Til stendur að fara
með liðið í æfinga- og keppnisferð
í haust eða vetur til Asíu, Afríku
eða Suður-Ameríku.