Morgunblaðið - 26.09.1987, Page 18

Morgunblaðið - 26.09.1987, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987 BALKÖNSK SKÓGARSÓLEY Sóleyjarættin (Ranunculace- ae) greinist í fjölmargar ættkvíslir og er ein þeirra Skógarsóleyjar- ættkvíslin, sem á fræðimáli heitir Anemone. Þetta nafn mun dregið af gríska orðinu „anemos“, sem þýðir vindur. A sumum erlendum tungumálum eru plöntur þessai’ því nefndar „Blóm vindsins". Fleiri tilgátur eru þó til um það hvemig nafnið sé tilkomið. Af skógarsóleyjum er til mikill fjöldi tegunda sem eru allbreytilegar að útliti. Eitt af því sem stuðst er við, við greiningu tegundanna, er mismunandi gerð rótanna. Sumar hafa hnúðkennda jarðstöngla og er Balkönsk skógarsóley (Anemone blanda) ein þeirra. Eins og nafnið bendir til eru heimkynni þessarar tegundar Balkanskaginn og mun hún vera algengust í suð- urhluta Grikklands. Hún vex einnig á nokkrum svæðum í Litlu-Asíu. Má þar nefna Taurus- fjöll í Tyrklandi, landsvæði sem heitir Norður-Kúrdistan og svo Kákasusfjöll. Vaxtarstaðir balk- önsku skógarsóleyjarinnar eru oftast kjarrlendi í fjallshlíðum þar sem nokkurrar forsælu nýtur. Staðir þessir eru víða klettóttir og jarðvegurinn grýttur. Plönt- urnar vaxa því oft í klettasprung- um eða glufum á milli steina. Hér á landi, eins og annars staðar á norðlægum slóðum, þrífast þær best og verða falleg- astar þar sem sólar nýtur og jarðvegurinn nær að hlýna yfir vaxtartímann. Plönturnar blómstra snemma vors allstórum BLOM VIKUNNAR 69 Umsjón: Ágústa Björnsdóttir blómum, sem venjulega eru fagur- blá á litinn. Blómstönglarnir verða ekki meira en 6—10 sm. á hæð og eru þetta því ágætis plöntur fyrir steinhæðir, gijóthleðslur og aðra álíka staði. Vaxtartíminn er stuttur. Á miðju sumri visna blöð- in niður og plantan hverfur algerlega af yfirborðinu, en hnýð- in falla í dvala og hvílast að mestu til næsta vors. Nokkur rótarvöxt- ur byijar strax að haustinu. Það þarf að merkja vel þá staði þar sem plöntur þessar eru ræktaðar. Hnýði balkönsku skógarsóleyj- anna eru fáanleg í blómaverslun- um og hjá öðrum laukainnflytj- Merkja- og blaðasöludagur Sjálfsbjargar er á morgun. Hjálpum Sjálfsbjörg í baráttunni fyrir rétti og aðstöðu fatlaðra Tökum vel á móti sölubömum. Komið með að selja. Góð sölulaun! / ji SJALFSBJARGARFELOGIN Anemone blanda White splendour. lengi. Þetta afbrigði hefur verið hér í ræktun í meira en 15 ár og reynst framúrskarandi harðgert. Balkönsku skógarsóleyjarnar verða stöðugt vinsælli hjá garð- eigendum og enn meðal fegurstu vorblóma. í síðustu grein Haustið og litur laufanna urðu þau leiðu mistök að nafn greinarhöfundar Haf- steins Hafliðasonar féll niður í prentun. Sama skeði 29. ágúst sl. þá féll niður í prentun nafn Hall- dóru Haraldsdóttur með grein sem sú ágæta garðyrkjukona og skrifaði um Berberis. Á næstunni á þátturinn von á grein um haustlauka frá Haf- steini Hafliðasyni sem verður væntanlega birt 3. október nk. og vonandi verður þá öllu til skila haldið. endum að haustinu og einnig stundum á vorin. Vegna þess hve blómgunartíminn er snemma að vorinu er gróðursetning að hausti talin betri. Sett er fremur grunnt niður, best að holumar séu ekki meira en 4—5 sm á dýpt. Venju- lega eru hnýðin lögð í bleyti í nokkrar klukkustundir til þess að vekja þau af dvalanum. Vegna hættu á rotnun er rétt að þau séu ekki meira en hálfan sólarhring í vatninu. Leifar af gömlum rótum sjást oftast á neðri hluta hnýð- anna og á sú hlið auðvitað að snúa niður þegar gróðursett er. Af balkönsku skógarsóleyjunni em til nokkur garðaafbrigði og skulu hér nefnd þau sem mest eru ræktuð: Atrocoerulea með dökk- bláum blómum, Pink star með stómm bleikum blómum, radar, blómin era purpurarauð með sér- Anemone blanda blandaðir litir. kennilegri hvítri miðju, og White splendour með afar stómm hreinhvítum blómum, sem standa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.