Morgunblaðið - 26.09.1987, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987
Freigátan Andromeda siglir í humátt á eftir risaolíuskipinu Isomeria.
„sigla þau með“ — orðalag sem
Bretar kjósa frekar en að nota orð-
ið að „fylgja" — um 10 skipum á
viku 200 sjómílna siglingu frá
Hormuzsundi og vestur fyrir Dubai.
112 klukkustundir sigldum við í
kjölfar tankskipsins Isomeria, sem
er eign Shell-olíufélagsins og
smíðað til flutninga á fljótandi gasi.
Björgunarbátar Isomeria héngu í
davíðum utan á síðunni til vonar
og vara ef áhöfnin neyddist til að
yfirgefa skipið í skyndi. Ástæðan
fyrir þessari varúðarráðstöfun var
að írönsk freigáta af Arvand-gerð
elti brezku skipin. Það vill svo til
að Isomeria hafði í fyrra sloppið
naumlega frá írönsku freigátunni
Sahand — sem smíðuð var í Eng-
landi og seld þáverandi Iranskeisara
— þegar freigátan skaut fimm flug-
skeytum að Isomeria en hitti ekki.
Sahand var búin svonefndum Sea
Killer-flugskeytum, sem stjórnað
er með leysigeislum. Andromeda
Á eftirlitsferð um Persaflóa:
Hræðslan við tundurduflin
og yfirgang íranska flotans
Eftir Ian Mather
í hillingum hitamistursins
sýndist hluturínn sem flaut á
sjónum vera svartur og með
fleinum. Fyrir neðan þyrluna
okkar, sem var á sveimi þarna,
var áhöfn dráttarbáts að reyna
að vekja athygli okkar á hlutn-
um. Dráttarbáturinn var einn
„hrægammanna" sem bíða á
Persaflóa eftir að árás verði
gerð á eitthvert olíuflutninga-
skipanna í von um að verða
fyrstir á vettvang til bjargar.
í þetta skipti óttuðust fáklæddir
sjómennimir, sem böðuðu út hönd-
unum í áttina að rekaldinu, að bátur
þeirra hlyti þau örlög að gefa öðrum
„hrægömmum" skjótfenginn gróða.
Þyrlunni var flogið í áttina að
hlutnum, og þegar ég ieit út um
opnar dyr þyrlunnar sá ég pappa-
kassa fljótandi á hvolfí, og á
hliðunum var hann merktur með
orðinu Mazda. „Fleinninn" reyndist
vera máfur, sem flaug burt þegar
við nálguðumst.
Svona sjónhverfíngar eru algeng-
ar í mollunni sem fylgir nærri 50
stiga hitanum á þessum slóðum.
En það verður að rannsaka allt sem
þama flýtur og þykir grunsamlegt.
„Við tókum mark á þessu,“ sagði
James Jolliffe sjóliðsforingi, er
stjómaði leitinni um borð í þessari
þyrlu brezku freigátunnar Andro-
medu. „Þetta líktist tundurdufli.
Það hefði getað verið tundurdufl."
Þótt við höfum ekki fundið nein
tundurdufl að þessu sinni getur
hættan ávallt verið á næsta leiti
fyrir áhafnir skipanna sem að sigla
um Persaflóa. Mestar áhyggjur
hafa sjómennimir af tundurduflum
sem lagt hefur verið innarlega í fló-
anum, en slitna upp og reka suður
á bóginn. Duflin geta hæglega rifið
gat á hálftommu þykkt stálið í
skrokk freigátunnar og skipherrann
á Andromedu, Neil Rankin, er
langtímum saman á varðbergi í
brúnni að fylgjast með því sem
framundan er.
Á Flóanum er mjög mikið af alls-
konar fljótandi drasli. Svartir
mslapokar líkjast tundurduflum, og
sjóliðamir hafa rætt um að hefja
baráttu fyrir því að bannað verði
að nota annað en hvíta poka undir
msl. „Við höfum venjulega mann á
útsýnisvakt frammi í stefni," segir
einn undirforingjanna. „Fyrir
nokkm sá hann hlut á floti, sem
þegar nær var komið reyndist vera
ísskápur. Þegar hann loks gat
greint hvað þetta var, höfðu flestir
í áhöfninni leitað hælis aftur í skut.“
Andromeda er eitt þriggja
brezkra herskipa í Armilla-flota-
deildinni sem „sigla með“ skipum
skráðum í Bretlandi. Að jafnaði
er búin Sea Wolf-varnarflaugum,
sem ætlaðar em til að skjóta niður
árásarflaugar.
„Með því að sigla svona er ég í
aðstöðu til að granda hverju því
flugskeyti sem skotið yrði að Isom-
eria,“ sagði Rankin skipherra.
„Þessi staðsetning er einnig sú
bezta ef beita þarf öðmm vopna-
búnaði skipsins. En ég hef sent
Sahand óskir um „góðan dag.“ Það
er ekki á mínu verksviði að láta
ófriðlega. Við emm hér til að
tryggja rétt okkar til friðsamlegra
ferða á alþjóðlegri siglingaleið."
Irönsku freigáturnar framfylgja
af hörku þeirri stefnu yfirvalda að
stöðva skip og leita í þeim á
Hormozsundi. Svo mikil er harkan
að brezku sjóliðarnir kalla svæðið
„Arvand-sundið“.
Þær 12 klukkustundir sem við
sigldum með Isomeria var áhöfnin
á „varnarvakt" allan tímann og í
varðstöðu við allan vopnabúnað
freigátunnar.
Fyrir marga úr áhöfninni hafði
þetta í för með sér sex tíma vaktir
í steikjandi hita á þilfari. Svo heitt
var í sólinni að nauðsynlegt var að
kæla Exocet og Sea Wolf-flug-
skeytin öðm hverju með því að
sprauta þau með köldu vatni. í vél-
arrúminu komst hitinn upp í 60
gráður og ekki var unnt að koma
við handrið stiganna með bemm
höndum.
Í þetta skipti létu þeir á Sahand
sér nægja að skiptast stuttlega á
formlegum kveðjum í upphafi, en
létu svo ekki meira frá sér heyra
næstu klukkutímana meðan þeir
héldu sig í nánd við brezku skipin.
Þegar brezku skipin komust gegn-
um sundið út á Oman-flóa, misstu
þeir á Sahand áhugann og hurfu á
brott.
Austur-þýzkt olíuflutningaskipið
Zuhl var ekki jafn heppið. Við hlust-
uðum af athygli í talstöðinni þegar
skipstjóri þess reyndi árangurslaust
að komast framhjá íranskri freigátu
án þess að þurfa að stöðva.
í svari sínu við fyrirspurn freigát-
unnar játaði skipstjórinn að hafa
lestað olíu í Kuwait, einu þeirra
ríkja sem hvað mest styðja Irak
fjárhagslega í styrjöldinni. Stutt var
síðan Irakar höfðu gert loftárásir á
Íran í hefndarskyni fyrir eldflauga-
árás írana á Kuwait.
„Vinsamlegast dragið úr ferð-
inni,“ heyrðum við sagt frá íranska
herskipinu.
„En það tekur Iangan tíma,“ var
svarað með áberandi þýzkum
hreim. „Við emm á fullri ferð.
Hvenær viljið þið að við hægjum á
ferðinni?"
„Eins fljótt og auðið er þar sem
þið verðið að taka við frekari fyrir-
mælum. Neitið þið að hlýða?“
„Nei. Fallist þið á að við verðum
komnir í kyrrstöðu eftir klukku-
stund?“
„Það er samþykkt.“
„Við stöðvum þá.“
Seinna fékk Zuhl heimild til að
halda siglingunni áfram. En hættan
á að sendir verði sjóliðar um borð
til leitar að varningi, sem kemur
frá írak eða á að fara þangað, og
að eiga jafnvel yfir höfði sér að
vera handtekinn og fluttur til írans
hefur fengið margan skipstjórnar-
manninn til að gefa Irönum loðin
eða villandi svör.
Flestir forðast að nefna viðkomu
í Kuwait og þykjast á leið til ann-
arra hafna. Sumir telja það borga
sig að greiða hafnargjöld í öðmm
höfnum við Persaflóann svo þeir
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Sigurður Örn Leósson ásamt einu verka sinna.
Grunnskólinn á Kleppjárnsreykjum:
Myndlistarsýning opn-
uð við setningu skólans
Grund, Skorradal.
GRUNNSKÓLINN á Kleppjáms-
reykjum var settur laugardaginn
19. september, jafnframt skóla-
setningu var opnuð myndlistar-
sýning í skólanum undir nafninu
„Kynning borgfirskra lista-
manna“. Þetta er fimmta árið í
röð sem slík kynning fer fram.
Þeir listamenn sem kynntir hafa
verið em Elísabet Haraldsdóttir,
Hvanneyri, Páll Guðmundsson,
Húsafelli, Ingibjörg Einarsdóttir frá
Runnum, Guðmundur Sigurðsson,
Borgamesi, og nú er kynntur Sig-
urður Öm Leósson, kennari Klepp-
jámsreykjum. Sigurður Öm sýnir
70 myndir sem unnar em í olíu,
vatnsliti, pastel og fleira.
Af þessum 70 myndum era 55
þeirra til sölu og munu þær prýða
veggi skólans í um hálfan mánuð.
Sunnudaginn 27. september og 4.
október verður skólinn opinn kl.
14.00-22.00 og mun þá listamaður-
inn vera viðstaddur og bjóða upp á
kaffí í matsal skólans. _ D.P.
Frá Áfengisvamarráði:
Áfengi og heilsa
Afengi algengasta
vímuefnið
Neysla áfengis, algengasta
vímuefnis jarðarbúa, gleður marg-
an en getur skaðað mörg mikilvæg
líffæri sé ekki farið að með fyllstu
gát. Skemmdir á líffæmm af þess-
um sökum geta ógnað heilsu fólks
og jafnvel lífí segir í einu af upplýs-
ingaritum um áfengisneyslu sem
gefín em út m.a. af yfírvöldum
heilbrigðisfræðslu í Bretlandi.
Þriðjungur sjúkra-
rúma tepptur vegna
áfengisneyslu
Um allan heim hvfla útgjöld
vegna sjúkdóma og heilsutjóns, sem
rekja má til áfengisneyslu, þungt á
efnahag þjóða. í það fara fjármunir
sem sárlega skortir til að koma í
veg fyrir heilsutjón og sjúkdóma
almennt. í sumum ríkjum Evrópu
er þriðjungur plássa á sjúkrahúsum
einungis notaður fyrir þá sem spillt
hafa heilsu sinni með einhveijum
hætti með áfengisneyslu. í þróun-
arlöndunum fer heilsutjón vegna
áfengisneyslu vaxandi. Með sama
áframhaldi munu þjóðir þróunar-
landanna neyta jafnmikils áfengis
og þjóðir iðnríkjanna eftir manns-
aldur eða svo, jafnvel meira. Því
munu fylgja aukin vandamál og
álag á veikburða efnahag og þjóð-
félagsástand.
Drykkja skaðar öll
líffæri nema þvag-
blöðru og lungu
Þeir sem neyta áfengis reglu-
lega geta skaðað öll líffæri sín
nema þvagblöðm og lungu. Heili,
taugar, lifur, vöðvar, ným, magak-
irtlar, kynfæri, vélindi, magi og
gamir em meðal þeirra líffæra sem
geta skemmst. Næst á eftir hjarta-
sjúkdómum og krabbameini kemur
skorpulifur sem helsta dánarmein
miðaldra karla í mörgum iðnríkj-
um. Lífslíkur em undir því komnar
hversu snemma sjúkdómurinn
fínnst.
Heilinn í baði
Sérfræðingar hafa komist að því
að við mikla drykkju skerðist starf-
semi heilans sem er þá í bókstaf-
legri merkingu í vínandabaði. Það
má m.a. sjá á skertu jafnvægi og
stjómun vöðva. Því má ekki heldur
gleyma að áfengi er slævandi (de-
pressant) og áfengisneytendur sem
eru þunglyndir fremja oft sjálfs-
morð.
Áf engi og krabbamein
Meltingarfærin verða mjög fyrir
barðinu á áfengi og vísindamenn
hafa komist að því að áfengi teng-
ist krabbameini í munni, hálsi og
vélinda, en dauði vegna þess hefur
færst í vöxt frá 1950. Ein af ástæð-
unum fyrir því að þeir sem neyta
mikils áfengis deyja fyrr en aðrir