Morgunblaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987 41 Sjávarútvegssýningin Per Strömberg Morgunblaðið/Bjami Bezta sýning, sem við höfum verið á - segir Sigurður Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Plasteinangrunar „ÞESSI sýngin gekk mjög vel og var sú bezta, sem við höfum verið á. Við höfum auk fram- leiðslu á fiskikössum verið að auka framleiðslugetu okkar á trollkúlum og sú aukning hefur skilað sér í meiri sölu. Við höf- um aukið markaðshlutdeild okkar og erum mjög bjartsýn- ir,“ sagði Sigurður Jóhannsson, framkvæmdastjóri Platsein- angrunar á Akureyri í samtali við Morgunblaðið. Plasteinangrun er rekin í sam- vinnu við norska fyrirtækið Pers Box og framleiðir og selur kassa með einkaleyfi Pers Box vestur um haf, til Kanada, Nýfundna- lands; Grænlands, Færeyja og Bretlands auk íslands svo dæmi séu tekin. Per Strömberg er eig- andi Pers Box og var hann einnig staddur á sýningunni og lét mjög vel af henni. „Ég er mjög ánægður með þessa sýningu. Hún hefur gefið góðan árangur. Þegar menn eru að hugsa um þægindi, mega gæð- in ekki gleymast. Það er skref aftur á bak. Þróun og nýjungar eru örar í fiskiðnaði. Það kemur alltaf eitthvað nýtt fram á sjónar- sviðið, en það er misskilningur að allt nýtt sé gott,“ sagði Per Ström- berg. Björgnnarnetið Markús: Þessi sýning hef- ur skilað mér miklu Morgunblaðið/Bjami Pétur Th. Pétursson og Ólafur Magnússon í sýningarbás sínum - segirPétur Th. Pétursson „VIÐ höfum náð sambandi við ýmsa nýja aðila og umboðs- menn okkar erlendis voru hér á sýningunni. Það hefur gengið mjög vel að þessu sinni og sala á talsverðu af Markúsarnetinu á að geta hafizt innan tiltölu- lega skamms tíma. Ég var mjög ánægður með þessa sýningu, hún hefur skilað mér miklu,“ sagði Pétur Th. Pétursson, framleiðandi Markúsarnetsins. „Núna hefur endanlega verið gefín út reglugerð um notkum björgunameta í dönskum físki- skipum, sem miðast við Markúsar- netið í einu og öllu. Því get ég nú í framtíðinni svarað endanlega fyrirspurnum og óskum frá sigl- ingamálastofnunum víða um heim. Fulltrúar skozku hafnanna hafa sýnt mikinn áhuga á netinu og þegar keypt eitt og Hollenzkir útgerðarmenn hafa lýst áhuga sínum á kaupum á um 200 netum. Framtíðin hjá mér snýst því um selja netið sem víðast. Styrkja umboðsmannakerfið erlendis og líklega að veita framleiðsluleyfí í einhveijum öðrum löndum. Hins vegar mun ég áfram verða með þróunardeild og framleiðslu hér heima. Eg er kominn inn í verkefni, sem heitir Eureka-Helios og snýst um öryggis- og björgunartæki. Innan þess mun ég vinna, í sam- vinnu við aðra, upplýsingar um rétt viðbrögð, þegar maður fer fyrir borð og tengja saman nota- gildi þeirra björgunartækja, sem nú eru á markaðnum. Ég mun reyna að kynna sjómönnum hvaða tæki eru til og hver eru bezt. Við vorum með ýmis önnur öryggistæki á básnum hjá okkur. Þar má nefna búnað til að geyma afhöggna limi, svo skeyta megi þeim við stúfinn aftur þó nokkur tíma líði frá slysinu, súrefnistæki, sjúkraböruur, loftspelkur og afís- ingarmottur fyrir skip og báta. Ég vil hvetja íslenzka sjómenn til að fara á þjálfunamámskeiðin hjá Slysavamafélaginu. Þau em hveiju sjómanni nauðsynleg," sagði Pétur Th. Pétursson. Vík í Mýrdal: Nýtt barnaheimili opnað Skriðdeild fyrir yngri en 2ja ára, nýung í dagvistun Selfossi. NÝTT barnaheimili var opnað i Vík í Mýrdal 21. september. Það er starfrækt í húsnæði hreppsins og er fyrir böm yngri en 2ja ára. Deildin, sem kölluð er skrið- deild, er opin fyrir og eftir hádegi og starfa þar tvær konur. Þessi nýja deild var opnuð til að auðvelda fólki að fara til vinnu frá bömum sínum. Sjö böm eru á þess- ari nýju deild fyrir hádegi og annað eins eftir hádegið. Það er Mýrdals- hreppur sem stendur fyrir þessari nýju deild og ákveðið að hún verði rekin til reynslu fram til 14. maí á næsta ári. Mýrdalshreppur starf- rækir einnig leikskóla fyrir börn eldri en tveggja ára. í hreppshúsinu í Vík er margt undir sama þaki. Þar er tónlistar- skóii, hreppsskrifstofa, íbúð sveitar- stjóra og svo skriðdeildin á efstu hæð hússins. Fjörugustu dvalar- gestirnir á deildinni eru reyndar kallaðir skriðdrekar svona í gamni. Sig. Jóns. Til sölu Blazer S-10 árg. 1985. Litur svartur, ekinn 48.000 mílur, 6 cyl, sjálfskiptur, 4 gira, vökva- og veltistýri, cruise control, rafmagnsrúðurog læsingar, litað gler, gasdempararog álfelg- ur. Thaoe innrétting. Verð 980 þúsund. Nánari upplýsingar í síma 689589. 4 . .Stór rýmingarsala Opið í dag frá kl. 10-16. Sími 91 691600 B—Wlil—UMlfftriTtl-T^ TiTilf-lflBiMi lif »»» >iil,U,U.U4UAfcl Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200 ■■•■annUHWHNHMMWM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.