Morgunblaðið - 26.09.1987, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Heimsmynd
stjörnuspeki
í dag ætla ég að fjalla lítillega
um heimsmynd stjömuspeki.
Eitt lífkerfi
Grunnhugmyndin að baki er
hin foma heimssýn að allt lífið
sé ein órofa heild, að alit sól-
kerfið sé eitt iífrænt kerfi.
Síðan er sagt að allt innan
þessa kerfis sé samverkandi
og hvert öðru háð. Biblían
rennir stoðum undir þessa
heimssýn þegar hún segir að
Guð hafi skapað manninn í
sinni mynd. Augljóslega er átt
við að Guð sé heimurinn, allt
sem er, og að maðurinn sé
smækkuð mynd af þessum
heimi.
Fυingarstund
Ástæðan fyrir því að stuðst
er við fæðingarstund er sú að
sagt er að allt sem gerist á
ákveðnum tíma beri merki
þess tíma, sbr. máltækið svo
uppsker sem sáir, þ.e. upphaf-
ið eða sáningin ákvarðar það
sem koma skal, eða uppsker-
una. Við vitum að við erum
böm jarðarinnar. Hví skyldi
ekki árstíminn sem við fæð-
umst á, þ.e. stjörnumerkin,
móta persónugerð okkar? Er
það fjarlæg og óraunhæf hug-
mynd að maður sem skynjar
jarðarlífið í fyrstu að vetrar-
lagi mótist sálrænt á annan
hátt en maður sem fæðist að
sumarlagi? Stjörnuspekingar
telja að svo sé ekki, sérstak-
lega þegar reynsla og athug-
un þeirra sýnir að svo er.
OskýrÖ svið
Til eru nokkrar kenningar um
það af hverju hægt sé að
skoða göngu pláneta. Ein
kenning er sú að hreyfing plá-
neta valdi röskun og breyting-
um á einhveiju óskýrðu
(segul)sviði og verki þar með
á lífkerfið allt. Fáir halda því
hins vegar fram að þyngdar-
afl pláneta verki á manninn
eða að plánetur sendi „geisla"
sem hafi „áhrif".
Lögmál
Vinsæl kenning er sú að ef
við getum fundið þó ekki
nema eitt gilt lögmál getum
við notað það til að skoða
annað í lífinu. Ástæðan fyrir
því er sú kenning að allt
lífkerfið sé ein samverkandi
heild.
Plánetur
f leit sinni að útskýringu á
lífinu og einstökum þáttum
þess hefur maðurinn síðan
beint athygli sinni að plánet-
unum. Kenning stjörnuspek-
inga er sú að hreyfíngar
þeirra varpi Ijósi á eitt af
mikilvægari lögmálum lífsins.
Ef við þekkjum þetta eina lög-
mál getum við notað það til
að skilja annað í lífinu og þá
m.a. mannlífið.
FjarlœgÖir
Þeir eru margir sem segja
gjaman að hægt sé að fallast
á það að Sólin eða Tunglið
hafi áhrif á jörðina og þá
hugsanlega á mennina. En að
plánetur sem eru í órafjar-
lægð geti haft áhrif sé
óraunhæft.
John S. Bell
Nýjar rannsóknir í eðlisfræði,
t.d. kenning Bells, sýna hins
vegar að raunveruleikinn er
ekki staðbundinn og að sam-
band geti myndast milli
tveggja eða fleiri hluta sam-
stundis, óháð flarlægð.
Aðrar rannsóknir styðja það
að heimurinn er ein heild,
m.a. vegna þess að þegar
reynt er að kryfja efnið niður
í æ smærri einingar kemur í
ljós að öll skil hverfa og það
að til sé aðskiinaður milli
hluta sé í sjálfu sér blekking.
Því miður leyfir plássið ekki
ítarlegri umfjöllun um þetta.
GARPUR
EFW A&RflUNPÓK! KDNUN6/ flEFUR
UERIO &ENT HELÞUZ flPfl/M PR/NS
C//H STJÓRUJflR TflUMANfl
-------------------TÝj PflÖB/...\
EFT/P FUND/ /HE£> FE
LÖOUA1 06 FOLLTR.ÍUM j ES6ETLÐ/
R//OSSJÖÐS ER FONPué^FE flLDHEJ
MEE> PÓrtSTÓLNOM
S/DflN-. -F p!h/ OtTUR I/E/Zip
pONG
fl ÖD/ZUM STflEJ: í HELL/ NEBANJflKt.
flR HELPUR SKUQGflBflLDUfl ANNflN
FUND.
SRLLf S/OJGG/, v/nup AVNN 1
ÉG VÖNfl flDpO HflF/K FPÍTT/R
UM pESSfl 'fl/ETLUN OKKflP ?
f!!ff!!!!!!!!!!?!!!!!!!!!!!!!?!!!!!!!!!!!!!!!f??!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!l!!!!l!!!!!!!!
. .. : :::I:‘ ::
GRETTIR
ÉG HBF TEKIP ÁKVÖRÐUN
5EM G/ETI 8REYTT ÖLLU
TOMMI OG JENNI
SARDiNOe
e/NUS/NN/
ENN?
DRÁTTHAGI BLÝANTURINN
FERDINAND
SMAFOLK
NO,KEEP IT! I UJA5
WR0N6..IT'5 Y0UR5!
I 5AIP IF IT FELL OVER,
IT U)A5 YOURS..KEEP IT!
REALLY? THANK YOU!
MERRY CHRI5TMA5!
Sæll! Við erum
trénu þínu!
Nei, þú mátt eiga það!
Þetta var rangt af mér.
Ég sagði að ef það félli
mættirðu eiga það. Hafðu
það!
Meinarðu þetta? Þakka
þér fyrir og gleðileg jól!
Nú verð ég að skreyta það
alveg upp á nýtt.
Sunnudagur
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Austur sýndi hugmyndaríka
vöm í eftirfarandi spili, en félagi
hans mislas stöðuna. Og átti sér
kannski einhveijar málsbætun
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ D74
VÁ65
♦ ÁKDG108
♦ 9
Vestur Austur
♦ Á8652 .. 4K1092
♦ 72 V43
♦ 432 ♦ 95
♦ 542 ♦ Á8763
Suður
♦ G
♦ KDG1098
♦ 76
♦ KDGIO
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 hjarta
Pass 3 tíglar Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 6 tíglar Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Stökk norðurs í sex tígla var
ekki skynsamlegt, en hann gat
ekki séð að makker hefði efni á
að spyija um ása án þess að
eiga svo mikið sem einn sjálfur.
Vestur lyfti spaðaás gegn
slemmunni og austur sýndi snilli,
að eigin mati, með því að láta
kónginn undir! Með því vildi
hann tryggja að félagi skipti
yfir í lauf. Vissulega góð hug-
mynd, en vestur átti eftir að
túlka boðin. Gat verið að austur
væri með eyðu í tígli? Sam-
kvæmt hefðbundinni notkun
hliðarkalla vísar hátt spil á hærri
litinn af þeim sem til greina
koma. Svo vestur spilaði tígli,
af tillitssemi við makker.
Reiðilestur austurs næstu tíu
mínútumar var að sumu leyti
réttmætur. Hann hafði ekki
doblað slemmuna og suður vildi
frekar spila sex hjörtu en sex
tígla. Hvort tveggja benti til að
það væri langsóttur möguleiki
að austur ætti engan tígul.
Á hinn bóginn er langsóttur
möguleiki þó alltaf möguleiki.
Og vestur hefði vafalaust spilað
laufí í öðrum slag ef austur hefði
látið spaðatvistinn undir ásinn.
Hvort sem vestur túlkar tvistinn
sem frávísun eða hliðarkall,
blasir við að spila laufi.
Það borgar sig ekki alltaf að
vera of snjall.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
í keppni á milli Sviss og Baden-
héraðs í V-Þýzkalandi kom þessi
staða upp í skák þeirra Kiefer
(Baden), sem hafði hvítt og átti
leik, og alþjóðlega meistarans
Zilger, Sviss.
27. Dh6! - Hxh6, 28. Hg8+ -
Ke7, 29. Hlg7 mát. Það kom
mjög á óvart að Þjóðveijamir sigr-
uðu 30—10, Svisslendingum að
vonum til mikilla vonbrigða.