Morgunblaðið - 03.10.1987, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987
Vetrarstarf Laugar-
neskirkju að hefjast
Í VETUR verður messað í Laug-
arneskirkju á hverjum sunnu-
degd eins og endranær. En sú
breyting verður á að sunnudags-
guðsþjónustan verður kl. 11
árdegis og verður það eina guðs-
þjónusta dagsins. Þessi guðs-
þjónusta verður sannkölluð
fjölskylduguðsþjónusta, þvi hún
er ætluð öilum aldurshópum.
Sá háttur verður hafður á, að
við upphafsliði guðsþjónustunnar
verða allir viðstaddir, en þegar
kemur að prédikun fara bömin í
safnaðarheimilið með leiðbeinend-
um og fá fræðslu við sitt hæfí.
Guðfræðinemamir Jóna Hrönn
Bolladóttir og Bjami Karlsson
verða aðalleiðbeinendumir, en þeim
til aðstoðar verða ung hjón í söfn-
uðinum, sem hafa gefíð kost á sér
í þetta starf.
Eftir guðsþjónustumar verður
heitt á könnunni og getur fólk sest
niður og spjallað saman áður en
heim er haldið. Einnig er í ráði að
bjóða upp á heita súpu og brauð
annað slagið.
Þetta form á guðsþjónustuhaldi
er þekkt erlendis og hér á landi
hefur þetta t.d. verið notað í Hall-
grímskirkju við góðar undirtektir.
Það er von okkar að þetta form
verði kirkjustarfínu almennt til efl-
ingar og að einstaklingar jafnt sem
fjölskyldufólk geti átt gott sam-
félag í kirkjunni.
Safnaðarstarfið að öðru leyti
verður með svipuðu sniði. Æsku-
lýðsstarfíð verður á mánudögum
18.00. Kvenfélag kirkjunnar hefur
sína fundi fyrsta mánudag hvers
mánaðar, þann fyrsta 5. október
kl. 20.00. Kirkjukórinn hóf vetrar-
starf sitt í september en 25. október
verða tónleikar í Laugameskirkju
þar sem kórinn flytur Gloriu eftir
A. Vivaldi og Kóralkantötu eftir
D. Buxtehude: Jesús, heill míns
hjarta. Tónleikamir hefjast kl.
17.00.
Þá er ákveðið að bjóða upp á
helgistundir kl. 17.00 á sunnudög-
um að jafnaði einu sinni í mánuði
með vandaðri tónlist, ritningarlestri
og bænagjörð.
Einnig verða fræðslukvöld,
hjónanámskeið og samkomur sem
auglýstar verða hveiju sinni.
Jón Dalbú Hróbjartsson
sóknarprestur.
Námskeið
um fjör-
efnaval
FYRSTA námskeiðið af þremur
sem Rannsóknastofnun vitund-
arinnar fyrirhugar í vetur
verður haldið í dag, laugardag,
klukkan 13-18 í Hoíiday Inn. A
námskeiðinu verður fjallað um
einstaklingsbundnar næringar-
þarfir og skynsamlegt fjör-
efnaval.
Asamt upplýsingum um helstu
flörefni, stein- og snefílefni verður
meðal annars fjallað um sérþarfir
ákveðinna hópa, svo sem eldra
fólks, sykursjúkra, fólks sem býr
við streitu, neytir áfengis meira
en í meðallagi, reykir eða er í
megrun. Aðalleiðbeinandi verður
Geir Viðar Vilhjálmsson.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
□ Gimli 59871057 - Fjhst.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
Fundur verður í félagsheimilinu
Baldursgötu 9, miðvikudaginn
7. október kl. 20.30.
Rætt um vetrarstarfið og spiluð
félagsvist.
Stjórnin.
Skíðadeild
Fundur um vetrarstarfið nk.
mánudag kl. 20.30 i vallarhúsi
Í.R. í Mjóddinni.
Fundarefni:
1. Utanlandsferð um áramótin.
2. Þjálfaramál.
3. Önnur mál.
Félagar eru eindregið hvattir til
að fjölmenna.
Sjórnin.
f dag kl. 15.00 - 18.00 er opið
hús i Þribúðum, Hverfisgötu 42.
Hulda Sigurbjörnsdóttir tekur á
móti gestum vegna 70 ára af-
mælis síns ásamt Jóhanni
Pálssyni eiginmanni sínum. Jafn-
framt býður Samhjálp til kveðju-
hófs fyrir þau hjónin. Vinir og
velunnarar eru hvattir til að
koma. Allir eru velkomnir.
Samhjálp.
ÚtÍVÍSt, Gróflnni 1.
Símar: 14606og 23732
Sunnudagsferðir 4. okt.
Kl. 8.00 Þórsmörk, haustlitir.
Stansað 3-4 klst. i Mörkinni.
Verð 1.000,- kr.
Kl. 10.30 Sandakravegur -
Fagradalsfjall. Verð 700,- kr.
Kl. 13.00 Seltangar - ísólfs-
skáli. Létf ganga. Selatangar
eru forn útróðrastaður milli
Krísuvíkur og Grindavíkur. Margt
að skoða, m.a. merkar forn-
minjar, Nótahellirinn, sérkenni-
legar klettamyndanir er minna á
Dimmuborgir. Verð 700,- kr.,
frítt f. börn með fullorðunum.
Landmannalaugar - Jökulgil.
Spennandi helgarferð 9.-11.
okt. Gist i húsi.
Brottför frá BSÍ, bensínsölu.
Sjáumst!
Útivistarfélgar vinsamlegst
greiðið heimsenda gíróseðla fyr-
ir árgjaldinu.
Útivist, ferðafélag.
1927 60 ára 1987
FERDAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir sunnudag-
inn 4. október:
1) Kl. 10.00. Stóri Hrútur -
Vigdfsarvellir.
Ekið um Móhálsdal aö Vigdísar-
völlum, gengið yfir Vesturháls
og Stóra Hrút (352 m) og þaöan
niður á þjóðveg. Verð kr. 600.00.
2) Kl. 13.00. Húshólmi - gamla
Krýsuvík.
Ekin Krýsuvíkurleið og gengið frá
Borgarhól að Húshólma I ög-
mundarhrauni. Verð kr. 600.00
Brottför frá Umferöarmiðstöö-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bil. Frítt fyrir börn í fylgd fullorð-
inna.
• Ferðafélag (slands.
Krossinn
.\ iiíSbiekku 2 — Kópavofr
Almenn unglingasamkoma í
kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir.
| raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
vSSV
W ÚTBOÐ
óskast i eftirtaldar bifreiöar og tæki sem veröa til sýnis þriöjudaginn
6. okt. 1987 kl. 13.00-16.00, í porti bak við skrifstofu vora, Borgar-
túni 7, Reykavík og víðar.
Tegundir Árg.
1 stk. Mitsubishi PajeroTurbo4x4 diesel 1984
1 stk. DaihatsuTaft4x4 diesel 1982
1 stk. GMC pick-up m/húsi 4x4 diesel 1977
1 stk. Toyota Land Cruiser 4x4 (skemmdur) diesel 1984
1 stk. Toyota Land Cruiser 4x4 diesel 1982
2 stk. Lada Sport 4x4 bensín 1984
4 stk. Volvo Lapplander 4x4 bensín 1980-82
2 stk. Mitsubishi L-200 pick-up 4x4 bensin 1981-82
2 stk. Subaru 1800 pick-up 4x4 bensín 1981-83
1 stk. Peugeot 505 station bensín 1983
1 stk. Mazda 929 station bensín 1982
1 stk. Lada 1500 station bensín 1982
1 stk. VW Double Cab diesel 1983
2 stk. Toyota Hi Ace sendib. bensín 1982
2 stk. Ford Econoline E-150 sendib. bensín 1979-80
1 stk. Dodge Sportman B200 7 farþ. bensín 1979
1 stk. Chevy Van sendib. bensin 1979
1 stk. Moskvitch IJ 2715 sendib. bensin 1981
1 stk. Chevrolet Suburban 8 farþ. bensin 1979
1 stk. Volvo N 87 fólks- og vörub. 10 f. diesel 1966
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Grafarvogi
1 stk. veghefill Caterpillar 12-E (ógangfær) Til sýnis hjá Vegagerö ríkisins, Akureyri 1963
1 stk. vélskófla Bröyt X-2 1963
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum.
Réttur er áskilinn að hafna tilboðum sem ekki teljast viöunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
R' )PGAi' I UNI 7 ‘ ir.'.l V-.H44
ATDK HUÓMUR
Kópavogur - spilakvöld
Hin vinsælu spilakvöld hefjast að nýju þriðjudaginn 6. október kl.
20.30. í Sjálfstæðishúsinu Hamraborg 1. Þriggja kvölda keppni.
Góð kvöld- og heildarverölaun. Eddukonur sjá um veitingar.
Sjáumst hress.
Sjálfstæðisfélögin i Kópavogi.
Sjálfstæðiskvennfélagið
Vörð, Akureyri
Sjálfstæöiskonur, Akureyri. Muniö félagsfundinn í Laxdalshúsi kl.
12.00 á hádegi laugardaginn 3. október.
Dagskrá:
1. Undirbúningur vegna 50 ára afmæli félagsins.
2. Vetrarstarfið.
Verið virkar og mætiö á laugardaginn kl. 12.00 á hádegi.
Stjórnin.
Reyðarfjörður
Egill Jónsson alþingismaður mætir á rabb-
fund á Hótel Búðareyri sunnudaginn 4.
október og hefst fundurinn kl. 20.30.
Þingmaðurinn verður einnig með viötals-
tíma sama dag á Hótel Búöareyri kl.
17.00-18.00.
Sjálfstæðisflokkurínn Austuríandi.
Fáskrúðsfjörður
Egill Jónsson, alþingismaður, mætir á rabb-
fund i félagsheimilinu Skrúð þriöjudaginn
6. október og hefst fundurinn kl. 20.30.
Þingmaðurinn verður einnig með viðtals-
tíma sama dag i Skrúði kl. 17.30-18.30.
Sjálfstæðisflokkurínn Austuríandi.
Mývatn
og nágrenni
Þingmaöurinn ykkar Halldór Blöndal og
Ólöf Hallgrirrisdóttir, hreppsnefndarmaður
í Skútustaðahreppi, verða meö viðtalstfma
mánudaginn 5. október nk. að Vogum 1,
Mývatnssveit. Viðtalstiminn veröur kl.
16.00-18.00 e.h. Einnig er hægt að hringja
i sima 44114.
Seyðisfjörður
Egill Jónsson alþingismaður mætir á rabb-
fund í félagsheimilinu Heröubreiö, litla sal,
mánudaginn 5. október og hefst fundurinn
kl. 20.30. Þingmaöurinn verður einnig með
viötalstíma sama dag í Heröubreiö kl.
17.30-18.30.
Sjálfstæðisflokkurínn Austuríandi.
Grenvíkingar
og nágrannar
Þingmaðurinn ykkar Halldór Blöndal og
Skírnir Jónsson, hreppsnefndarmaöur í
Grýtubakkahreppi, verða meö viðtalstima
sunnudaginn 4. október nk. f gamla skóla-
húsinu á Grenivík. Viðtalstíminn verður frá
kl. 14.00-16.00 e.h. Einnig er hægt að
hringja í síma 33259.